Morgunblaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 1
20 síður
45. árgangur.
12. tbl. — Fimmtudagur 16. janúar 1958.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gul bók" nkissfjórnarinnar í húsnœðismálunum
Ríkiseinkasala fasteigna — einokun íbúðaleigu ? — Minni íbúðir
Reykvíkinga og lán veitt til opinberra bygginga í stað einkaíbúða
Misnotkun þess fjármagns, sem í fasteignum liggur
í Reykjavík og nágrenni licnnar4* meginmeinsemd að
dómi sérfræðinga ríkisstjórnarinnar
MORGUNBLAÐIÐ hefur nú í höndum skjöl varðandi einn
þátt „úttektarinnar11 frægu, sem fara átti fram „fyrir opnum
tjöldum“, álitsgerð „sérfræðinga“ V-stjórnarinnar í hús-
næðismálum og frumvarp, sem búið var að prenta, en var
afturkallað, er verið var að byrja að útbýta því. Megineíni
skjalanna er á þessa leið:
Handa Reykvíkingum á að byggja „þokkalega þrigg'ja
herbergja íbúð á um 60 fermetra og fjögurra herbergja á um
80 fermetra", en talið er í „gulu bókinni", að þeir sói nú hús-
næði úr hófi fram.
-jfc- Nýjar nefndir skulu „sjá um alla sölu fasteigna“, en
aðrar skulu „hafa með höndum útleigu alls atvinnu- og
íbúðarhúsnæðis“.
■Jf „Komið verði á fót byggingarvöruverzlun ríkisins“ og
„opinberri stofnun .... til útleigu hvers konar vinnuvéla“.
■fc Loks eiga opinberar íbúðabyggingar að njóta „for-
gangsréttar um opinbert lánsfé og hagkvæm lána- og vaxta-
kjör, eftir því, sem hægt verður að láta í té“.
Bragð er að . . . er að hafa þokkalega þriggja her
Þessar einstæðu tiilögur eru í
álitsgerð stjórnskipaðrar nefnd-
ar og eru undirritaðar af Hann-
esi Pálssyni og Sigurði Sig-
mundssyni, formanni húsnæðis-
málastjórnar. Á einum stað í
hinni „gulu bók“ segir: „Með
þessu er gengið nokkuð langt inn
á eignarréttinn". Má með sanni
segja, að „bragð er að þá barnið
finnur“. Enda mála sannast, að
með tillögum þessum, sem bæj-
arstjórnarkosningarnar vafalaust
skera úr um, hvort stjórnarflokk-
arnir þora að fylgja eftir, eru
menn beinlínis sviptir rétti yfir
eignum sínum. Jafnframt er að
því stefnt, að héðan í frá megi
engir byggja sér íbúð að eigin
óskum, nema þá þeir, sem notið
fá undanþáguheimilda, sem gert
er ráð fyrir. Fer naumast milli
mála, hverjir þeir mundu verða.
Sjálft gengur lagafrumvarpið
skemmra en tillögur tvímenning
anna og mun það ástæðan til
þess, að Einar Olgeirsson iét
stöðva útbýtingu þess á Alþingi
og hirða aftur af borðum þing-
manna það sem þar var komið.
„Villubyggingar . . .
í Keykjavík"
Stjórnarherrarnir telja rétt að
ganga „nokkuð langt inn á eign-
arréttinn" vegna þess að menr
„bruðli í lúxusvillubyggingum
Viliubyggingar eru líka það, sem
einkennt hefur byggingarstarf-
semina hér í Reykjavík á seinni
árum, og vakið stórfurðu útlend-
inga, sem hér hafa komið“. Nán-
ustu vinir þeirra útlendir, sem
hingað koma nú í stórhópum,
hafa vafalaust undrazt. En svo
eru aðrir útlendingar, sem eiga
mikla sök. „Hernámsvinnan
(svo) á Keflavíkurflugvelli hef-
ur .... sogað til sín vinnuaflið".
. Er athyglisvert, að í skjölum
þeirrar stjórnar, sem samið hef-
ur um áframhaldandi dvöl varn-
arliðsins í landinu, skuli það
nefnt hernámslið. Og heldur kyn-
leg er sú röksemd, að íslending-
ar verði að búa þrengra, vegna
þess að þeir höfðu miklar tekjui
af varnarliðsvinnu.
60—80 fermetrar,
það er skammturinn
„Það er mála sannast, að hægt
bergja íbúð á um 60 ferm. og
fjögurra herbergja á um 80 ferm.
. . . Mismunur á verði 80 ferm.
íbúðarinnar og 120 ferm. íbúðar-
innar er því kr. 102.400,00. Gera
má ráð fyrir, að nauðsynlegar
byggingar í Reykjavík einni séu
minnst 600 íbúðir á ári . . . .
húsnæðiskostnaður þessara 600
fjölskyldna, sem í íbúðunum
byggju, yrði minnst kr. 6.144.000,
00 — meiri á ári, ef þær byggju
Síminn er 1 27 43
SÍMI kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðismanna í Miðbænum er
1 27 43 (ekki 1 27 42 eins og
misritaðist í blaðinu í gær).
í 120 ferm. íbúð í stað 80 ferm.
Undirritaðir nefndarmenn
álíta, að þjóðfélagið verði að
haga sínum byggingarmálum
þann veg að hindra byggingu
lúxusíbúða.. .. “
Þá vita Reykvíkingar það.
Ríkið ráffstafi öllu
Tillögur eru í 11 liðum um al-
gjör yfirráð ríkisins yfir öllum
íbúðarhúsabyggingum. Öllu fé
Fran.h. á bts 12
Frumvarp til taga
Itú-alciau.
UiKt fvrír Ali»n«i i> tti. iajtgiafstr^i>t(t>,
1. KAM.i
•Umt'na ák*aúti
Mynd af titli frumvarpsins, sem afturkallaff var.
Eiginhandarundirskrift höfunda „gulu bókarinnar“.
Undir hælinn
menn varpa
lagf hvar Bandarikja-
kjarnorkusprengjum
Fátt annað nýtt í bréfi Bulganins til Hermanns Jónassonar
I GÆR var bréf Bulganins til Hermanns Jónassonar, forsætisráð
herra, birt í íslenzkri þýðingu. TASS-fréttastofan rússneska rakti
einnig í fyrradag aðalefni bréfsins, sem er hliðstætt bréfum þeim,
er Bulganin sendi samtímis til forsætisráðherra annarra At-
lantshafsbandalagsríkja og greint hefur verið frá í fréttum.
Aðalatriði bréfanna er það, að Bulganin hvetur til þess, að efnt
verði til ríkisleiðtogaráðstefnu innan tveggja til þriggja mánaða
— og á þeim fundi verði reynt að draga úr viðsjám á alþjóða-
vettvangi.
í upphafi bréfsins segir Bulg-
anin, að ríki Atlantshafsþjóðanna
vígbúist nú mjög og hafi hern-
aðarundirbúningur þessara þjóða
aldrei verið ákafari en nú. Sum-
ir vestrænir stjórnmálamenn
haldi því fram, að engin önnur
leið sé til þess að tryggja öryggi
þjóðanna en sívaxandi hernaðar-
máttur. Kveður Bulganin þessa
menn formælendur „kalda stríðs-
ins“ og þetta vígbúnaðarkapp-
hlaup taki sífellt meira af vinnu-
afli þjóðanna til vopnafram-
leiðslu.
Segir Bulganin síðan, að ýmsir
stjórnmálamenn, þar á rneðal
nokkrir forystumenn Atlantshafs
bandalagsríkjanna, „gerist nú
formælendur fyrir því að setja
niður deilur milli austurs og vest
urs með samningaumleitunum".
Síðan segir:
„í þessu sambandi þykir mér
rétt að taká það fram, að vér
erum algjörlega á þeirri skoðun,
sem þér settuð fram á Parísar-
fundi NATO-ráðsins um nauðsyn
þess að „gera allar hugsanlegai
rásðtafanir i þá átt að ná sam-
1 komulagi milli austurs og vest-
urs og tryggja með því frið-
inn.“ “.
Síðar segir: „Það er einlæg
Framh. á bls. 19.
Orrusfan um borgina er hafin
„Við kjósum góba bæjarstjórn og
fellum slæma ríkisstjórn"
Niu menn af lista Sjálfstæðisflokksins töluðu á
fjölsóttum fundi Sjálfstæðisfélaganna i gærkvöldi
Fyrsti almenni kjósendafundur Sjálfstæðisfé-
laganna var haldinn i Sjálfstæðishúsinu í gær-
kvöldi og hófst fundurinn kl. 8,30. Þar héldu ræður
9 af frambjóðendum Sjálfstæðismanna á listan-
um við bæjarstjórnarkosningarnar og var fundar-
salurinn þéttsetinn áheyrendum. Yeður var bó
mjög óhagstætt og hefði mátt ætla að það snillti
fundarsókn, en augljóst var að almennur áhugi
ríkti á þssum fundi á því að gera sigur Sjálfstæð-
isflokksins sem gæsilegastan.
Þorvaldur Garffar Krisljánsson
formaður Varðarfélagsins setti
fundinn með nokkrum orðum og
bauð fundarmenn velkomna.
Sagði hann m. a.: Við Sjálfstæðis
menn búumst til bardaga. Nú
er leitað til allra um aðstoð til
að tryggja framtíð Reykjavíkur
undir forustu Sjálfstæðismanna.
Um leið munu margir vilja veita
ríkisstjórninni ráðningu fyrir allt
hennar framferði á undanförnu
hálfu öðru ári með því að gera
sigur Sjálfstæðisflokksins sem
glæsilegastan í Reykjavík. Gaf
formaður síðan ræðumönnum
orðið og tók Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, fyrstur til máls.
Borgarstjóri sagði m. a.: Þeir
flokkar, sem standa að ríkisstjórn
inni gáfu út fagra loforðaskrá
fyrir hálfu öðru ári síðan, en nú
munu þeir enga óska eiga heit-
ari en að hún væri gleymd. Þeir
vildu sízt af öllu þurfa að
rifja það upp frammi fyrir
alþjóð hverju þeir lofuðu
og hverjar efndirnar hafa
orðið á stjórnartímabilinu, en
allir vita að öll heit stjórnarliðs-
ins hafa verið rofin. Við Sjálf-
stæðismenn í bæjarstjórn höfum
annan hátt á þessu, sagði borg-
arstjóri. Fyrir hverjar kosning-
Framh. á bls. 18
Rússinn
hlaut hæli
BONN 15. jan. — Yfirmaffur
brezku herstjórnannnar í Vestur
Berlín skýrffi yfirmanni rúss-
nesku herstjórnarinnar í Austur
Berlín svo frá í dag, aff rússneski
liðþjálfinn, sem leitaffi hælis í V-
Berlín í lok síffasta mánaffar,
hefffi hlotiff hæli vestan járn-
tjalds sem pólitískur flóttamað-
ur. Yíirmaður rússnesku her-
stjórnarinnar krafffist þess, að
liðþjálfinn yrffi framseldur á
þeim forsendum, aff hann væri
afbrotamaður. Hefffi hann m. a.
sært annan hermann með skamm
byssuskoti.