Morgunblaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1958, Blaðsíða 18
18 MORCUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 10. janúar 1958 Fundur Sjálfstæbisfélaganna Fr.amh. af bls. 1 ar höfum við gefið út stefnuskrá okkar.sem birt hefir verið í hinni svokölluðu „bláu bók“. Kjósend- um gefst alltaf tækifæri til sám- anburðar og nú, þegar þessi „bláa bók“ er prentuð aftur í ár, þá er birt aftur orðrétt stefnan, sem mörkuð var 1954 þannig, að kjós- endurnir geti sjálfir borið saman orð og efndir. Þetta mundi ríkis- stjórnin og hennar lið aldrei treysta sér til að gera og þetta mun vera einsdæmi í stjórnmálr- sögunni. En Sjálfstæðismenn hafa ekkert að óttast — þeir þoia að ganga af fullri djörfung og hreinskilni fram fyrir borgara bæjarins. Borgarstjóri benti á mörg dæmi um það, hverju Sjálfstæðisflokk- urinn hefði lofað í byrjun kjör- tímabilsins og hverjar efndirnar hefðu orðið. Benti hann meðal annars á það að á kjörtímabilinu hefðu skuldlausar eignir Reykja- víkurbæjar aukizt úr 240 millj. í 400 milljónir króna, eða um 160 milljónir. Útsvarsstigi væri nú lægri í Reykjavík en nokkurs staðar annars staðar í kaupstöð- um landsins og hefði lækkað á síðasta ári. Borgarstjóri talaði um virkjun Sogsins, stækkun Hitaveitunnar með Hlíða- og Höfðaveitunum, stórfelldar skóla byggingar, lóðaúthlutanir, bygg- ingu Heilsuverndarstöðvarinnar, áframhaldandi byggingu bæjar- spítalans, sorpeyðingarstöðina, sem tæki til starfa nú á næstunni, leikvanginn í Laugardal, raðhús- in, fjölbýlishúsin við Gnoðarvog og margt fleira. Orsökin til þessa mikla framtaks er sú, að stefna og starf Sjálfstæðisflokksins mið ar að því, að örva og styrkja framtak fólksins í bænum og það er samstarf með borgurunum og bæjarstjórninni. Á því byggjast þessar miklu framkvæmdir. sagði borgarstjóri. ★ Magnús Jóhannesson trésmið- ur tók næstur til máls. Það er ekki nýtt að kosið sé, sagði Magnús, en samt eru kosn- ingarnar þann 26. janúar að mörgu leyti afdrifaríkari en bæj- arstjórnarkosningar hafa oft ver- ið áður. Ber þar margt til. Mál- efnaleg aðstaða Sjálfstæðis- flokksins hefur sjaldan eða aldrei verið sterkari. Nú hefur fólkið til samanburðar stjórn bæjar- málanna annars vegar og stjórn- ríkismálefnana hins vegar, þar sem andstöðuflokkar Sjálfstæðis manna hafa setið við völd í eitt og hálft ár. Reykvíkingum er nú gert erfiðara fyrir en öðrum að neyta kosningaréttar síns. Mál- flutningur minnihlutaflokkanna hefur sjaldan verið aumari en nú og á ýmsan hátt eiga kjósenduv auðveldara með en áður að átta sig á málunum. Sjálfstæðismenn hafa af sinni hálfu upplýst mál- in í málgögnum sínum, með því að skýra glöggt og greinilega frá gangi tiltekinna bæjarmála. í „bláu bókinni" gefst tækifæri til að bera saman orð óg efndir Sjálfstæðismanna. Þeir eru ekki hræddir að ganga fram fyrir kjósendur og láta þá sjálfa dæma. Hvernig yrði upplitið á Hermanni Jónassyni og stjórnar- liðum hans, ef þeir ættu nú á sama hátt að gera upp orð og efndir eftir sína stjórnarsetu, eins og Sjálfstæðismenn gera að kjörtímabilinu í bæjarstjórn loknu? B'æjarbúar gleyma held- ur ekki því, sem fyrr hefur að þeim snúið. Þeir gleyrna því ekki, hvernig það var, þegar Sogsvirkjunin fór af stað, en þá börðust Framsóknarmenn, sem höfðu ríkisstjórnina á sínu valdi, gegn þeim. Þegar Hitaveitan var í deiglunni var samstjórn Fram- sóknar og Alþýðuflokksins, sem reyndi að hefta Hitaveituna og við borð lá, að þá tækist að drepa hana með öllu. Það sem vakir fyrir þessum mönnum er að ganga af Sjálfstæðisflokknum dauðum, því að þeir vita, að á meðan Sjálfstæðismenn halda meirihluta sínum í höfuðstað landsins verður hann ekki brot- inn á bak aftur með ranglátri kosningalöggjöf, kosningaklækj- um, eða öðrum bolabrögðum. Orrustan um borgina er hafin, sagði Magnús. Við munum nú hvetja vopnin, en það fæst að- eins sigur, ef til hans er unnið, og við munum berjast fyrir á- framhaldandi heill og góðum hag Reykjavíkur. Á Kristján J. Guiftiarsson yfir- kennari rakti í stórum dráttum framkvæmdir Sjálfstæðismanna í skólamálum á siðustu árum og hverjar áætlanir þeirra væru i þeim efnum í framtíðinni. í ört vaxandi bæ kalla margar fram- kvæmdir að í einu, sagði Kristján. Þar er mörgum verkefnum að sinna. Skólamálin eru einn stærsti þátturinn, bygging nýrra skólahúsa og skipulagning allra þessara mála. Það skortir ekki stór orð af hálfu minnihluta- flokkanna í bæjarstjórn um að í þessum málum sé aðeins að finna kyrrstöðu og skort hjá Reykvík- ingum. En þessir herrar ættu að líta til þeirra bæjarfélaga, þar sem þeir sjálfir ráða og líta á, hvernig ástandið er þar. Hvern- ig væri það til dæmis, ef Reykja- vík væri borin saman við Kópa- vog, þar sem ekki eru skilyrði til þess að halda uppi fræðslu samkvæmt lögum landsins. Með þessu er ekki verið að áfellast þessi bæjarfélög, heldur er hér verið að benda á þann mikla mun, sem er á framkvæmdum Sjálfstæðismanna í þessum efn- um hér í Reykjavík og það sem er víðast annars staðar. Af andstæðinganna hólfu er mikið talað um kyrrstöðu, það skorti lóðir, byggingarfram- kvæmdir séu ekki nógu örar. Þeir, sem vinna að skólamálun- um og skipulagningu þeirra verða þó áþreifanlega varir við það að ný hverfi rísa upp, þar sem þörf er á skólum. Árið 1957 var skipuð nefnd sérfróðra manna til að skipta Reykjvíkurbæ í skólahverfi og var álit þessarar nefndar samþykkt ágreinings- laust í bæjarstjórn. Sjálfstæðis- menn mörkuðu þegar stefnuna í samræmi við þessar tillögur og nú stofnuðu þeir til þess átaks, að hefja byggingu fyrsta áfanga 5 skólahúsa í nýjum hverfum í bænum, sem ekki gátu beðið eftir úrlausn í þessum efnum. En þá spruttu andstæðingarnir upp og töluðu um þá óhæfu sem það væri, að krefjast svo mikillar fjárfestingar í einu. Þá var það talin óhæfa, að ætla sér að byrja á 5 skólum í einu. Þetta var und- irbúningur þess, að fjárfesting- aryfirvöldin drægju við sig að veita fjárfestingarleyfi, enda varð það svo að leyfin fyrir sumum þessum byggingum voru dregin lengi. En nú bregður svo við, að þegar komið er að kosn- ingum er það sem áður var kall að óhófleg fjárfesting orðið að kyrrstöðu og skorti. Þannig eru vopnin, sem barizt er með gegn okkur á þessu sviði og þannig er það víðar. ★ Næst tók til máls frú Gróa Pétursdóttir og ræddi um ýmis mál, er varða konur og börn í Reykjavík. Hún minnti meðal annars á starf Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn að því að fjölga og bæta leikvelli í bænum. í því sambandi gat hún sérstaklega um hma lokuðu smábarnaleikvelli. Þá ræddi Gróa um starfsemi Æskulýðsráðs Reykjavíkur, sem hófst á síðasta kjörtímabili, Hef- ur það komið upp mörgum tóm- stundaheimilum víðs vegar í borginni, þar sem ungir Reyk- víkingar eiga þess kost að sinna ýmsum hugðarefnum sínum. Gróa Pétursdóttir ræddi einnig þá ákvörðun bæjarstjórnar að stofnsetja fæðingarheimili í hús- um bæjarins við Eiríksgötu og Þorfinnsgötu. Verður þar á næst unni komið upp heimili fyrir 26 sængurkonur og kvað Gróa það mundu verða til mikillar blessun ar fyrir sængurkonur og aðstand endur þeirra. Frú Gróa minnti því næst á að. engin kona væri í öruggu sæti á lista hjá andstæðingaflokkum Sjálfstæðismanna í Reykjavík við þessar bæjarstjórnarkosning- ar. Á lista kommúnista, sem oft hafa þótzt vilja veita konum að- stöðu til að taka þátt í stjórn- málastarfinu, er nú engin kona ofar en í stjötta sæti. Á lista Sjálfstæðismanna er hins frú Auður Auðuns, forseti bæjar- stjórnar, í öðru sæti. Þessi stað- reynd mun verða til þess að hvetja reykvískar konur til að stuðla að sigri Sjálfstæðisflokks- ins hinn 26. þessa mánaðar. Takmarkið er, sagði Gróa Pét- ursdóttir að lokum: Gísli Hall- dórsson arkitekt skal í bæjar- stjórn Reykjavíkur. Á Næsti ræðumaður var Jóhann Hafstein, bankastjóri. Hann minnti á, að skömmu eftir að nú- verandi ríkisstjórn var mynduð, var mikið um það rætt að leggja þyrfti íhaldið í Reykjavík að velli við næstu bæjarstjórnar- kosningar. Sett var á laggirnar nefnd til að vinna að þessu sam- eiginlega hugðarefni minnihluta- flokkanna í Reykjavík. Fyrst var talað um sameiginlegan fram- boðslista til bæjarstjórnarkjörs. Úr þeim ráðagerðum varð ekkert. Þá var tekið að ræða um laga- breytingu, sem heimila skyldi kosningabandalög. Einnig það strandaði á því, að vinstri menn- irnir þorðu ekki að taka áhætt- una, sem slíku braski fylgdi. End irinn varð sá, að þeir notuðu illa fengið meirihlutavald sitt á Al- þingi til að breyta kosningalög- unum í því skyni að gera kjós- endum í Reykjavík örðugra að neyta atkvæðisréttar síns. Nú er kosningarbaráttan hafin. Sjálfstæðismenn benda á stefnu- skrá sína fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar, og störf þau, er þeir hafa unnið á kjörtímabil- inu. Þeir hafa síðan í haust hald- ið marga fundi, sem efnt hef- ur verið til af Landsmálafélag- inu Verði. Þar hefur verið rætt um bæjarmálin á málefnalegan hátt. Slíkum kosningundirbún- ingi er ekki til að dreifa hjá and- stæðingaflokkum Sjálfstæðis- manna. í blöðum þeirra eru kosn- ingarnar undirbúnar með blekk- ingum og gífuryrðum. Þar er lít- ið talað um framtíðina. Helzt er svo að skilja, að núverandi minnihlutaflokkar telji sig geta stjórnað Reykjavíkurborg í sam- einingu með svipuðum starfsað- ferðum og þeir nota nú í ríkis- stjórn. Og því heyrist hreyft, að nú verði því ekki með réttu haldið fram, að stjórn Reykja- víkurbæjar muni fara í handa- skolum vegna ósamlyndis and- stæðinga Sjálfstæðismanna. f því sambandi er vert að rifja upp, að ekki er til ríkari sönn- un fyrir þvi, hvílík hætta er á glundroða í bæjarstjórn Reykja- víkur, ef andstæðingar Sjálf- stæðismanna fá þar meirihluta, en samstarfið í ríkisstjórninni. Við getum raétt um varnarliðið, erlendar lántökur, úrræðin í efnahagsmálunum, vinnufriðinn, útflutningsverzlunina, banka- pólitíkina og húsnæðismálin og borið saman loforð og efndir stjórnarflokkanna á þessum svið um. Um öll þessi efni var miklu lofað en flest svikið. Reynslan af ríkisstjórninni kennir okkur að hentistefnulið Hermanns Jón assonar og valdaklíka kommún- ista mega ekki fá yfirráð yfir Rey k j a víkurborg. Að ræðu Jóhanns lokinni tók til máls Guðmundur H. Guð- mundsson húsgagnasmíðameist- ari. Guðmundur ræddi fyrst nokk- uð um árásir andstæðingaflokka Sjálfstæðismanna á fjárstjórn Reykjavíkurbæjar og benti á rök leysið í þeim málflutningi. Hann nefndi ýmis dæmi um tillögu- flutning andstæðinga Sjálfstæð- ismanna varðandi fjármál höfuð- staðarins og sýndi fram á, að sjáum við, hversu stór-! sem nn stjórna íslandi. í þeim bæjarsjóður myndi fyrir löngu vera orðinn gjaldþrota, þótt ekki hefði verið tekið tillit nema til helmings af sýndar- og yfirborðs tillögum þeim, sem minnihluta- flokkarnir hafa flutt til hækkun- ar á fjárhagsáætlun bæjarins á undanförnum árum. Þá hefur einnig, sagði Guð- mundur, nokkuð verið veitzt að Sjálfstæðisflokknum í sambandi við húsnæðis- og lóðamál. Sann- leikurinn er sá, að á undanförn- um 4 árum hefur verið úthlutað lóðum fyrir um það bil 4000 íbúð- ir, og lóðum fyrir iðnaðarhús- næði hefur verið úthlutað til allra þeirra, sem fjárfestingar- leyfi hafa fengið til slíkra fram- kvæmda. Á síðasta kjörtímabili var úthlutað til iðnaðarins um 15—16 ha. svæði í Reykjavík. Guðmundur ræddi þessu næst nokkuð um framboðslista hinna flokkanna og rakti hinar hörðu árásir, sem þriðji maður á lista Alþýðuflokksins hefur gert á fjár málaveldi S.Í.S. Ræðumaður rifjaði síðan upp nokkrar endurminningar frá bernskuárum sínum hér í Reykja vík. Þegar ég var að alast upp hér í bæ fyrir um það bil 50 ár- um, sagði hann, var hér engin vatnsveita, og ég minnist þess, þegar ég þurfti sem lítill dreng- ur að sækja vatn af Kárastígn- um í Barónsbrunn, sem stóð þar sem nú eru gatnamót Laugavegar og Snorrabrautar. Þá var lítið um frárennslisæðar, engin höfn, gatnagerð lítil sem engin, ekkert rafmagn og engin hitaveita. Ef við berum þetta saman við ástand ið nú, stígar framfarirnar hafa orðið og við skulum minnast þess,1 hverjir hafa stjórnað bæjarfélag- inu á undanförnum árum. Það hefur ekki verið skröltormur Framsóknar, Þórður Björnsson, eða aðrir fulltrúar minnihluta- flokkanna. Það hefur verið Sjálf stæðisflokkurinn, sem með ör- uggri og framsýnni stjórn hefur gert Reykjavík að þeirri nútíma borg, sem hún er nú. ★ Þá tók til máls Bjarni Bene- diktsson, ritstjóri. Hann sagði meðal annars: Það er ekki ofmælt að aldrei hefur nokkur bæjarstjórn skilað betra né gifturíkara starfi en sú, sem setið hefir síðasta kjörtíma- bil og notið hefur drengilegrar, vasklegrar og víðsýnnar forystu Gunnars Thoroddsens borgar- stjóra. Er Sjálfstæðismenn ganga nú til kosninga, eru á lista þeirra margir gegnir og góðir bæjarfull- trúar, sem þekkja til fullnustu þarfir borgaranna og bæjarfélags ins, en einnig hugmyndaríkir og dugmiklir ungir menn, sem lík- legt er að verða muni að miklu liði við stjórn bæjarmálanna. Yfirburðir Sjálfstæðismanna eru því auðsæir, hvort sem litið er til málefna eða manna. Við Sjálfstæðismenn höfum oft stað- ið nokkuð höllum fæti í Reykja- vík, er við höfum í ríkisstjórn átt samstarf við flokka eins og Framsóknarflokkinn. Nú er hins vegar vígstaðan að því er til þjóðmálanna tekur sterkari en oftast áður, því að við eigum í höggi við andstæðinga, sem í orð um og gerðum hafa sannað fjand skap sinn við Reykjavík. Má í því sambandi minnast orða Emils Jónssonar, forseta Sameinaðs Alþingis og formanns Alþýðuflokksins, sem hann við- hafði nokkru eftir síðustu Alþing iskosningar. Hann vildi gera lítið úr fylgisaukningu Sjálfstæðis- manna, vegna þess að hún hefði íyrst og fremst verið í Reykja- vík. Svipaður fjandskapur við höfuðstaðinn kemur fram í hin- um sífelldu árásum Tímans að undanförnu á bæjarfstjórn Reykjavíkur fyrir að kaupa eitt skrifstofuhús fyrir hluta af hinni margþættu starfsemi sinni. Ekki hefur það þó heyrzt gagnrýnt i blaðinu, er kaupfélögin úti um land hafa komið sér upp bygg- ingum yfir starfsemi sína. Og enn er þess að minnast, að sá litli sparnaður, sem stjórnarliðar á Alþingi komu fram í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna fyrir jólin, var í því fólginn að skera niður framlög til nauðsynlegra framkvæmda í Reykjavík.Þannig mætti halda lengi áfram. Þegar á allt þetta er litið, get- um við Sjálfstæðismenn verið bjartsýnir. En ég vil þó vara við of mikilli bjartsýni. Það eru sterk öfl, sem á móti okkur berj ast og sækja á með hatri, óvild og lítilsvirðingu á öllu því, sem reykvíkskt er. Við höfum á móti okkur fjármálaveldi Framsóknar flokksins og SÍS og kommúnista með heilt heimsveldi á bak við sig og ótakmarkaða sjóði. Þess- um árásum skulum við svara á verðugan hátt, með því að gera 26. janúar að sönnum D-degi — dýrðardegi, svo að þá vinnist sá sigur, sem frægastur hefur verið unninn á íslandi. Á • Einar Thoroddsen hafnsögu- maður minntist á nokkra helztu áfangana í ýmsum velferðarmál- um, sem náðust á kjörtímabili þeirrar bæjarstjórnar, sem nú mun brátt láta af störfum. Hann ræddi um framkvæmdir í hús- næðismálum og forystu Sjálf- stæðismanna á því sviði, um stækkun hitaveitunnar, jarðbor- anir, vjjkjun Efra-’Sogs og hinar miklu áætlanir um stækkun og endurbætur á Reykjavíkurhöfn. Hann minnti einnig á að næg at- vinna var í borginni á síð- asta kjörtímabili. Einar Thoroddsen bar saman orð og efndir Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjavíkur og lofo'rð og svik vinstri flokkanna, kosningum, sem nú fara í hönd, er kosið um tvennt, sagði hann. Það er í fyrsta lagi gengið að kjörborðinu til að velja bæjar- stjórn í Reykjavík á næsta kjör- tímabili. ■ En það er einnig kosið um málefni þjóðarheildarinnar. Við þetta er þó það að athuga, að þeir, sem greiða minnihluta- flokkunum atkvæði, vita í raun- inni ekki, hverja þeir eru að velja til forustu um bæjarmál höfuðstaðarins. Minnihlutaflokkarnir fengu í síðustu kosningum 7 fulltrúa kjörna. Þeir skiptast nú í 6 hópa, og það er broslegt, er slíkir sundr ungarpostular tala um að taka að sér stórn Reykjavíkúr. Ég hefi setið í bæjarstjórninni og hlustað á málflutning þc-ssara manna, heyrt þá flytja óraunhæfar sýnd- ar og yfirborðstillögur á hverjum fundinum af öðrum. Ég minnist þess hins vegar ekki, að þeir hafi nokkru sinni reifað neitt nytjamál er Sjálfstæðismenn hafa ekki verið búnir að undirbúa eða unnið að því að undirbúa. Þeir, sem kjósa Sjálf- stæðismenn, vita að þeir kjó*a flokk sem halda mun áfram öruggri og traustri stjórn. Við skulum kjósa D-listann, svo að Reykjavík fái að blómgast og vaxa. ★ Síðasti ræðumaður var Geir Hallgrímsson hæstaréttarlögmað- ur. Hann sagði meðal annars: Sjálfstæðismenn vilja byggja bæjarfélagið upp af sjálfstæðum, óháðum einstaklingum, sem án íhlutunar ráða og nefnda, hafta og banna, geta skapað sér starf- svið, lífsviðurværi, húsnæði og myndað sér skoðanir án ótta við valdhafa eða yfirboðara. Þannig á bæjarfélagið að vera rammi um líf og starf borgaranna, það á að sinna sameiginlegum þörf- um þeirra og koma til hjálpar, þegar skortur og sjúkdómar hafa lamað. Vinstri flokkarnir vilja, að sambandsvald, bæjarfélögin eða þjóðfélagið reki öll atvinnutækin, veiti mönnum atvinnu og hús- næði, séu forsjá einstaklinganna og hafi þannig ráð þeirra í hendi sér. Þessi stefnumunur kemur Ijós- lega fram í viðhorfi Sjálfstæðis- flokksins annars vegar og vinstri flokkanna hins vegar í húsnæðis- málunum. Það hefur verið stefna Sjálfstæðismanna, að hver fjöl- skylda búi í eigin húsnæði. Mik- ið hefur á unnizt í þeim efnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.