Morgunblaðið - 18.01.1958, Síða 9

Morgunblaðið - 18.01.1958, Síða 9
Laugardagur 18. jan. 1958 MOTtCT’NBLAÐIÐ 9 Frú Gróa Péfursdóttir: Sjálfstæðismenn hafa vakandi forystu í málefnum bæjarins OKKUR VESTURBÆIN GUM kemur alltaf vel saman um það, að við eigum heima í einhverjum snyrtilegasta og fallegasta hluta Reykjavíkur. En hverjum þykir sinn fugl fagur og það eru mörg falleg hverfi komin upp eða eru að koma upp í bænum, og ég hugsa að hvei'jum þyki vænt um sitt hverfi eða sinn bæjarhluta. Margt er í sköpun, ýmislegt á eftir að gera hér og þar. Það ex eins og gengur, það fæst ekki allt í einu, en í fyllingu timans fá þau hverfi, sem nú eru i æsku, sinn fulorðins-svip, á svipaðan hátt og Vesturbærinn er búinn að fá, en hann er með elztu hlut- um Reykjavíkur. Vesturbæingar munu mjög fagna því, þegar Sorpeyðingar- stöðin kemur upp núna á næst- unni og hætt verður að nota ströndina vestur frá í sambandi við öskuhaugana, eins og gert hefur verið. Sorpeyðingarstöðin er mjög mikið skref fram á við og efast ég um að bæjarbúar geri sér allir ljóst, hvað í því felst. Hér er um eitt mesta þrifnaðar- mál allra bæjarbúa að ræða, en það snertir ef til vill Vestur- bæinga ekki hvað sízt. Þegar hætt verður að fara með sorpið á þann hátt sem verið hefur, verður unnt að jafna og bæta um strandlengjuna vestra og þá opn- ast möguleiki fyrir fallegum vegi meðfram ströndinni. Nú er að rísa upp sundlaug Vesturbæjar, en fyrir henni hafa menn mikinn áhuga. Hreyfing um það að koma upp slíkri sund- laug hófst meðal Vesturbæinga sjálfra og skutu þeir saman nokkru fé til byrjuarfram- kvæmda. Síðan hefur staðið á ýmsu, svo sem opinberum leyf- j um og fleira, en nú er skriður kominn á málin og bygging hafin. J Eins og ég sagði fyrr er Vestur- j bærinn með eldri hverfum Reykjavíkur. Það hefur sína kosti og líka sína galla. Ein af- leiðingin af því hve Vesturbær- inn byggðist tiltölulega snemma er sú, að þar er sums staðar erfitt að koma fyrir leikvöllum fyrir börnin, vegna þess að ekki var gert ráð fyrir þeim í gamla daga, þegar bæjai-hverfið byggðist. Er, margir stórir vellir hafa nú kom- ið upp, og í Drafnarborg er stórt dagheimili. Ákvörðun bæjarins um að stofnsetja fæðingarh'eimili vekur almenna ánægju meðal kvenna í bænum. Það er mikill feginleiki yfir því, að Reykja- víkurbær skyldi taka þetta mál að sér. Fæðingardeild Lands- spítalans var á sínum tíma gott spor, en þróunin hefur orðið sú, að miklu fleiri konur vilja eiga börn sín á slíkri stofnun, heldur en gert var ráð fyrir í upphafi. Að vísu er það svo, að mikill fjöldi kvenna vill eiga börn sín heima, en þá er sú hindrun, að mjög víða skortir nauðsynlega hjálp á heimilunum, þannig að konur eru neyddar til þess að leita til slíkrar stofnunar. Fæð- ingardeildin er fyrir löngu orðin alltof lítil og það er nú mikil umbreyting að fá aðgang að hús- unum við Eiríksgötu. Þar er gert ráð fyiir að fram fari eðlilegar fæðingar, en langmestan hluta allra fæðinga ber að með eðli- legum hætti. Ef fyrirsjáanlegt er að eitthvað muni út af bera er fæðingardeild Landspítalans til taks. Og ennfremur ef eitthvað óvænt ber að höndum, þá er sú stofnun með fullkomnustu tækj- um og læknum til í næstu nálægð. Fæðingardeildin var einmitt í upphafi ætluð til þess að gegna slíku hlutverki, og nú eftir að stofnun er komin upp til þess að annast um eðlilegar fæðingar, þá ætti fæðingardeild Landspít- alans að geta notið sín til fulls við sitt sérstaka hlutverk. Það er mikið gert fyrir ung- viðið í Reykjavík. Það blasir alls staðar við, hvernig því er sinnt. Upp rís nú stórt íþrótta- svæði, íþróttafélögin eignast sín félagsheimili, börnin sína leik- velli, dagheimili og tómstunda- heimili, en meðal foreldra er al- menn ánægja með þau. Tóm stundaheimilin veita ungviðinu verkefni og halda því frá solli og það hefur fjölda mörgum heim- ilum orðið mikið liðsinni að þess- á bágt með að bjarga sér að fullu. Til dæmis er húsaleigan mikill þröskuldur í vegi þess að slíkt fólk geti bjargað sér áfram, eins og það vill. Það vill miklu síður fara á Elliheimili, þó það ið svo farsæl að nú er Reykja- vík sá staður á öllu íslandi, sem menn helzt vilja búa á. Bæjar- búar verða þess líka sífellt varir hve forustumennirnir í bæjar- málunum eru vakandi um hag Reykjavíkur. Þeir sjá það líka, að það er hugsað um að prýða bæinn og fegra, Auk þess sem hugsað er um velferð fólksins, heilsufar og hag. Sjálfstæðismenn þurfa ekki að kvíða komandi kosningadegi, ef sig á því að láta ekki svæfa áhugann með áróðri um að Sjátf- stæðisflokkurinn sé öruggur. Meðan Sjálfstæðisflokkurinn hef ur ekki nema eins atkvæðis meiri hluta í bæjarstjórn, er hann aidr- ei svo öruggur að allir flokks- menn, og aðrir, sem fylgja vilja flokknum, þurfi ekki að leggja sitt ýtrasta til þess að tryggja meirihluta flokksins. Ósigur Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn- arkosningunum væri ógæfa Reykjavíkur en sigur Sjálfstæð- ismanna væri sigur Reykjavíkur þeir standa vel saman og vara og Reykvíkinga jl ctUjLouutUl' um stofnunum. En eitt er það mál, sem ekki mætti gleymast og þyrfti að taka föstum tökum í framtíðinni, en það er aðstoð til eldra fólks. Á ég þar við eldri hjón og einstætt fólk, sem er orðið við aldur og vill vinna en Fjöldi unglinga hefir sótt tómstundaheimili Æskulýðsráðs Reykjavíkur og notið þar tilsagnar, fræðsiu og skcmmtunar. óttist sízt að það fái ekki góðan aðbúnað. En þetta fólk heldur í lengstu lög í vonina um að geta bjargað sér sjálft, að mestu eða öilu leyti, af eigin kröftum., ___________________________ Margt af þessu fólki er vel fært um að leggja fram vinnu að > vissu marki, en það þarf aðstoð iUM OG EFTIR aramotm hefur að nokkru leyti og þá eins og ég i skák.iífið fkki ,ve.rl,ð ™J°g ^ sagði áðan, ekki sízt með húsa SKAK leiguna. Innan raða Sjálfstæðis- flokksins hefur verið rætt um þetta mál. Komið hefur til orða að ef til vill væri unnt að ráð- stafa nokkru húsnæði handa slíku fólki til þess að létta því baráttuna og fá því bækistöð til þess að geta stundað vinnu sína. Á Málefnin eru mörg, sem vinna þarfa að. Reykjavík er stór og fer stækkandi og alltaf blasa við ný og ný viðfangsefni. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur miklu og skemmtilegu hlutverki að gegna, að hafa forystu í slíkum bæ, sem Reykjavík er. Hér er allt í sköp- un, allt á hreyfingu, alltaf eitt- hvað nýtt og nýtt, sem sinna þarf. Hér er verkefni fyrir stóran og vakandi flokk, eins og Sjálf- stæðisflokkinn, enda hefur hann leyst störf sín af hendi með prýði. Forusta Sjálfstæðismanna í bæj- armálum Reykjavíkur hefur ver- Börn að leik á barnalcikvöllum. | skrúðugt hér á íslandi en aft- | ur á móti hafa bæði Holland og i England haldið skákmót um jólin. I Hastings sigraði P. Kei'es með nokkrum yfirburðum, en næstir komu Gligoric og Dr. Filip. f Bewervic er hafið stórmót í til- efni af 20 ára afmæli nýjársmóta þar. Meðal þátttakenda eru D. Bronstein, Euwe, G. St&hlberg, Pilnik og O’Kelly, sem allir eru stórmeistarar. Hvítt: R. Teschner (Þýzkaland.) Svart: M. Tal (Rússland.) Sykileyjar-vörn 1. e4, c5; 2. Rf3, Rc6; 3. d4, cxd4; I 4. Rxd4, Rf6; 5. Rc3, d6; 6. g3, Leikurinn gefur hvítum mjög tak markaða möguleika á frum- kvæðinu, en leiðir aftur á móti til fastrar stöðu. 6. Bg5 eða Bc4 henta ekki eins vel hinum rólega skákstíl Teschner. 6. —, g6; 7. Bg2, Til skemmtilegra sviptinga leiðir 7. Rde2 og á þann hátt að halda í riddarann, en svartur getur byggt upp mótsókn með h5, Bc7 og Dc8. 7. —, Rxd4; Ein- faldasta leiðin til að jafna stöð- una. Eftir 7. —, Bg7 tapar svartur skiptamun vegna Rxc6 bxc6. e5 og Bxc6f. 8. Dxd4, Bg7; 9. o-o, o-o; 10 Dd3, Be6; 11. Rd5, Mark- mið hvíts er að staðsetja vel sína menn, og þvinga svartan til að skipta á d5 en þá verður peðið á e7 þægilegur sóknarpunktur fyrir hvítan. Þessi áætlun er því aðeins framkvæmanleg að svart- ur tefli rólega og geri ekki nógu ákveðnar sóknartilraunir.ll. —, Hc8; 12. c3, Hfe8; Tal skipuleggur lið sitt hratt og nákvæmt, Hrók- num er ætlað að valda peðið á e7 og losa þannig drottninguna, sem á að herja á drottningararm hvíts. 13. Be3, Da5; 14. h3(?) Þótt þessi leikur sé ekki bein- línis rangur er hann allt of hæg- fara. í athugasemdum sýnum í „Schachmaty“ bendir Tal á 14. a4! sem hann hafði hugsað sér að svara með 14. — Bxd5 og síðan a6. 14. —, Da4!; Tal sýnir mjög næman skilning á stöðunni með þessum leik sínum. Mark- miðið er að leika b7—b5—b4 og þrýsta einnig á peðið á e4. 15. Hfel, b5; 16. Bg5, Þessi leikur var ekki tímabær fyrir hvítan. Aug- Ijóst er að hvítur stendur orðið höllum fæti, og átti því að stefna að uppskiptum með 16. Rxf6, Bxf6; 17. Bd4. Eftir hinn gerða leik hvíts tekst svörtum að auka frumkvæði sitt til mikilla muna. 16. —, Rxd5; 17. exd5, Rf5; 18. Dd2, b4!; 19. c4, Dc2! A BC DEFGH Tal uppsker nú ávöxtinn af erf- iði sínu, og þvingar hvítan til drottningarkaupa, en í endatafl- inu standa menn hans miklu bet- ur en hvítu mennirnir. T. d. bisk- uparnir á g7 og f5 ei’u með stöð- ugar hótanir gegn drottningar- armi hvíts á meðan „kollegar“ þeirra á g5 og g2 hafast ekkert að. Þeir, sem finna vanmátt sinn í liðskipan ættu að rannsaka vand- lega fyrri hluta þessarar skákar, og reyna á þann hátt að öðlast innsýn í mikilvægi þess að hafa vel staðsetta menn. 20. Dxc2, Rangt væri 20. Hxe7, Dxd2; 21. Hxe8, Hxe8; 22. Bxd2, Bxb2; 23. Hel, Hxelf; 24. Bxel, Bc3 og vinnur. 20. —, Bxc2; 21. Hacl, Bd3; 22. Hc3, Bxb2f; 23. Hxd3, Bxcl; 24. Bxcl, Hxc4; 25. Bd2, Framh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.