Morgunblaðið - 18.01.1958, Blaðsíða 13
Laugardagur 18. jan. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
13
Markús Sigurðsson
húsasm'iðameisiari — minning
i.
ÞAÐ var ekki fyrr en ég var kom
inn austur í Holt, eftir alllanga
fjarveru erlendis að ég frétti lát
Markúsar Sigurðssonar, frænda
míns. Ég hugsaði mér þá þegar
að minnast hans nokkrum orð-
um, þó að ýmislegt annríki hafi
valdið því, að ekki hefur af orð-
ið fyrri en nú.
Markús Sigurðsson fæddist að
Fagurhóli í Landeyjum 4. nóv.
1878, en þar bjuggu þá foreldrar
hans Sigurður bóndi Einarsson
og Helga Einarsdóttir frá Lamba
felli undir Eyjafjöllum. Helga
var skörungur í allri gerð og
drengur góður, Sigurður hvass-
greindur, glettinn og fimur í orð-
um, og hinn mesti kappsmaður.
Erfði Markús í ríkum mæli þe'ssa
höfuðeiginleika foreldra sinna
beggja. Hann var yngstur þeirra
Fagurhólsbræðra fjögurra og sá
þeirra, er lengst lifði. Hinir voru
Einar Sigurðsson, faðir minn,
Steinn Sigui'ðsson, kennari og rit
höfundur í Hafnarfirði, og Einar
yngri Sigurðsson, er lengi var sjó
maður í Reykjavík, harðger mað-
ur og dugandi.
Markús tók ungur að leggja
stund á smíðar og urðu þær 1
rauninni ævistarf hans, enda var
hann bráðhagur og verklaginn
með afbrigðum. Sveitabúskap
stundaði hann þó nokkur fyrstu
árin eftir að hann gerðist full-
vaxta, og þá sjómennsku jafn-
framt á vertíðum. En vorið 1911
fiuttist hann til Vestmannaeyja
og mátti heita, að upp frá því
stundaði hann nær eingöngu húsa
smíðar og húsamálningu. Hann
var jafnvígur á bæði handverk,
afkastasamur og vandvirkur, svo
að af bar, og jafnan eftirsóttur til
starfa. Frá Vestmannaeyjum
fluttist Markús til Hafnarfjarðar
og bjó þar nokkur ár, en átti
heima í Reykjavík síðustu fjöríu-
tíu ár ævi sinnar og stundaði þar
iðn sina. Hann andaðist 30. okt.
1957 og gekk að verki hvern dag,
þrátt fyrir háa elli, nema þrjár
síðustu vikurnar, sem hann lifði.
II.
Markús Sigurðsson var fjöl-
hæfur maður og fluggreindur.
Hann hafði á yngri ái'um lært að
leika á orgel, hjá hinum góð-
kunna kennara Jóni Pálssyni, síð-
ar bankaféhii'ði, og náði um skeið
mikilli leikni í þeirri íþrótt. Var
hann organleikari við kirkjur í
Landeyjum meðan hann átti þar
heima, og fékkst síðar nokkuð við
orgelkennslu og söngkennslu og
stjórnaði söngflokki í Vestmanna
eyjum. Hann var gleðimaður og
hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann var með mönnum á yngri
árum, og þó jafnan manna prúð-
astur, snyrtimaður mikill og fág-
aður í framkomu. Fylgdi það hon
um og til æviloka, að með hon-
um þótti öllum gott að vera yngri
og eldri, og má ég þar vissulega
trútt um tala.
Kynni okkar Mai'kúsar náin
hófust er ég var innan við ferm-
ingu og átti þá heima með foreldr
um mínum í Vestmannaeyjum-
Síðar, eftir að ég var kominn yfir
fermingu, rerum við tvær vertíð-
ir í Vestmannaeyjum á sama báti.
Markús var afbragðs sjómaður,
glöggur, snar og athugull, allra
manna glaðværastur í starfi og
kunni ekki æðruorð að mæla, þó
að ískyggilega liti út og augljós
háski á ferðum. Á þessum árum
urðum við svo samrýndir, þrátt
fyrir mikið miseldri, að því var
líkara, sem Markús væri eldri
bróðir minn, en föðurbróðir. Eft-
ir að ég var kominn í skóla, vann
ég nokkur sumur hjá Markúsi í
Hafnarfirði og heimili hans þar
var mitt annað heimili. Aldrei
hef ég unnið með manni, sem
jafngaman var að vinna með,
eins og Markúsi á þeim árum.
Hann var þá enn á léttasta skeiði,
dugur hans og verkhyggni frá-
bær, svo að hvert verk varð auð-
velt undir stjórn hans. En yfir
samvistir þessara vinnudaga
tókst honum einnig að breiða blæ
af látlausri glaðværð og gaman-
semi, sem honum var svo sér-
staklega eiginleg. Hann gat verið
bráðfyndinn í orðum og sagði
skemmtilega frá. Og í öllu við-
móti hans var einhver sú hjarta-
hlýja og birta, sem veldur því,
að ég minnist nú þessara sam-
verudaga í starfi ,sem nokkurs
konar sunnudaga. Það er einmitt
yfir þeim einhver sunnudags-
birta, sem í vaxandi mæli ein-
kenndi líf Markúsar og persónu,
eftir því sem á ævina leið. Betri
Framh. á bls. 15.
Aldrei meira vöruúrval ......
Aldrei meiri afsíáttur ••••••
Flestar vörur á hálfvirði ....
því að hjá okkur stendur nú yfir glæsileg
s
Kvenúlpur, kr. 350
Kvenkápur kr. 300
Kvenbuxur 100%
nælon kr. 22
Kvenhanzkar kr. 22
Kvenslæður kr. 25
Telpnapiis og blússa kr. 85
Kvensokkar kr. 20
Sportsokkar kr. 20
Hosur kr. 6
AL A
Pólarfrakkar, kr. 900
Karlmannaskyrtur kr. 70
Karlmannahlússur kr. 250
Kairlmannasokkar kr. 10
Karlmannanærföt kr. 17
Drengjajakkar m/loðkraga
kr. 260
Barnafrakkar kr. 350
Drengjavinnubuxur kr. 70
Drengjavettlingar kr. 14
— Vetrzlið þar sem verðið er lægst
Laugaveg 22 Laugaveg 38 SnorrabrgUt 38
Sírni: 1-26.00 Sími: 17-68-7 Simi: 1-499-7
Aimennur kjósendafundur.D-listans
í Hafnarfirði n.k. mánudag
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði halda almennan kjósendafund í
Hafnarfjatrðarhíó n.k. mánudagskvöld klukkan 20.30.
Á fundinum flytja ávörp og ræður:
Valgarð Thoroddsen,
Elín Jósepsdóttir,
Helgi S. Guðmundsson,
Eggetrt fsaksson,
Hulda Sigurjónsdóttir,
Páll V. Daníelsson,
Ólafur Elísson,
Þorgrímur Halldórsson,
Árni Grétar Finnsson,
Siguirveig Guðmundsdóttir,
Stefán Jónsson.
Fyrir fundinn leikutr hljómsveit Carls Billich létt lög, og einnig syngja
þau Þuríður Pálsdóttir og Guðmun dur Jónsson, óperusöngvarar, eiiir
söng og tvísöng.
Allir kjösendur D-listans eru velkomnir á fundinn
Vorboðinn, Þór, Fram, Stefnir