Morgunblaðið - 08.03.1958, Page 9
MORCVNBl 4 ÐIÐ
9
Laugardagur 8. marz 1958
Skóggrœðsla og markmið hennar
FYJRSTA takmark skóggræðslu
er auðvitað að rækta skóga, sem
gefi af sér timbur, er tímar líða.
Af þeim sökum hlýtur að verða
lagt mest kapp á að rækta barr-
tré, þar sem um 90% af allri við-
arnotkuninni er barrviður.
Reynslan hefur nú sýnt, að það
er auðvelt að rækta hér ýmsar
teg. barrtrjáa, ef rétt er að far-
ið. Gróðursetning þeirra verður
nærri skilyrðislaust að fara fram
í gömlu skóglendi, og því mun
ekki seilzt til annarra landa und-
ir skóg, nema þar sem sérstak-
lega stendur á, og þá einkum ef
menn eru að hugsa um ræktun
trjáa til prýði.
Þá þurfa menn og að hafa
nokkra hugmynd um vaxtarhraða
trjánna til þess að geta gert sér
ljóst, hvort skógrækt sé arðvæn-
legur atvinnuvegur í stærri stíl.
Mælingar hafa verið gerðar á
ýmsum af hinum erlendu trjám
hér á landi, og samkvæmt þeim
hefur viðarvöxturinn verið reikn-
aður út. Er þá jafnan miðað við
hver vöxturinn sé á hverjum
hektara lands og hann talinn í
teningsmetrum viðar.
Við útreikninga á vexti hefur
orðið að styðjast við norskar og
rússneskar töflur um vöxt trjáa
að noklcru, þar sem okkar eigm
tré eru fremur fá talsins og hafa
ekki náð fullum aldri. En með því
að nota þær töflur með gætni og
styðjast við þær mælingar, sem
til eru, má fá nokkuð öruggt yfir-
lit um vöxtinn fram í tímann.
Sé miðað við 80 ára tímabil
ætti lerkið frá Arkangelsk, þar
sem nú standa 100 teningsmetr-
ar viðar á hektara eftir 20 ár,
að hafa vaxið upp í 460 tenings-
metra alls. Rauðgreni og blá-
greni ætti að komast upp í 435
teningsmetra, en skógarfura í
245 teningsmetra á hektara
lands.
Meðalársvöxtur er því 5,7 ten-
ingsmetrar fyrir Ierki, 5,4 ten-
ingsmctrar fyrir greni en 3,1 fyr-
ir furu.
Nú er verðlag á viði og timbri
þannig hér á landi, að slík vara
mun óvíða í heimi öllum vera
jafndýr og hér. Miðað við þetta
verðlag kostar hver teningsmetri
af viði frá 800 og yfir 900 kr.
eins og hann fyrir kemur í trján-
um, þar sem þau standa í skógi
á rót. 4 teningsmetra vöxtur á
hektara lands á ári nemur því
um 3200 krónum.
Gróðursetning
Gróðursetning barrtrjáa getur
verið framkvæmd á ýmsan hátt.
Skógrækt ríkisins mun ávallt
taka mikinn þátt í henni, en
hún mun samt ekki vera fremst
í flokki, ef annars er kostur.
Hlutur skógræktarfélaganna á að
vera allmiklu meiri, og svo þyrfiu
einstaklingar að geta tekið þátt
í henni miklu meira en hingað
til. Til er lagaheimild, er mundi
auðvelda einstaklingum þátttöku
í þessu starfi, en þá heimild hef-
ur vart verið unnt að nota enn
sem komið er. Ástæðan er, að
ekki eru enn til skóglendi í eigu
hins opinbera, sem unnt væri að
taka til slíkra nota. Úr þessu
þyrfti að bæta, og það sem fyrst.
Undanfarin 3 ár hefur verið
lögð stund á gróðursetningu síðla
sumars, og hefur það tekizt mjög
vel. Virðist nú vera unnt að
lengja gróðursetningartímann á
á hverju ári um 3—4 vikur. Er
þá gróðursett í ágústmánuði og
jafnvel fram í september. Þá er
og verið að reyna ýmsar aðferð-
ir við gróðursetningu, og ef hir-
ar einfaldari gefast vel, mun slíkt
gera gróðursetninguna miklu ó-
dýrari en verið hefur, þar sem
unnt er ';V h-urn yjð.
Um birkiokóga og skóglendi
1 kafla þessum segir svo í upp-
hafi: „íslenzka skóglendið, hvort
sem það er hávaxið eða aðeins
kræklótt kjarr, er alltof verð-
mætt fyrir framtíð þjóðarinnar
til þess að láta það eyðast af
völdum uppblásturs og beitar."
Þar segir og, að af hinum inn-
lenda gróðri sé birkið hin eína
tegund hins íslenzka gróðurríkis,
sem geti komið í veg fyrir upp-
blástur og eyðingu jarðvegs. Þá
eykur birki'ð frjósemina í þeim
jarðvegi, sem það vex í, og skóg-
lendin eru yfirleitt frjósömustu
blettirnir á öllu iandinu. Þá miðla
skóglendin betur vatni en önnur
gróðurlendi, og viða hindrar ís-
lenzka skóglendið skriður úr
fjallshlíðum.
Því miður skortir enn mikið á,
að fullkunnugt sé um stærð og
gæði hins íslenzka skóglendis, en
líkur eru til að það sé nálægt
100.000 hektörum, eða um 1% af
flatarmáli landsins.
Á fjárleysisárunum kom birki-
gróð'ur ótrúlega víða upp, þar
sem menn hafði ekki órað fyrir
grein er enn dauður lagabók-
stafur.
Fræðsla og leiðbeiningar
Þetta er snar þáttur í starfi
Skógræktar ríkisins. Skógræktar-
stjóri og skógarverðir veita
mönnum alla þá fræðslu, sem
þeir geta í té látið, og komið hef-
ur verið á fót námsskeiðum við
Kennaraskólann til þess að kenn-
araefnin viti nokkur skil á skóg-
græðslu almennt. Þau námsskeið
hafa gefizt mjög vel. En drýgst
hefir verið að haga fræðslunm í
samstarfi við skógræktarfélögm,
og á þann hátt hefir mest gagn
af henni orðið.
því að enn skortir mikið á um-
vega, hreinsun skóganna-og jafn-
ferðarmenningu.
Tilraunir í skógrækt
Brýn þörf er á að koma upp
tilraunum vegna ýmissa þáua
skógræktarstarfsins, og hefur
verið farið fram á að þetta yrði
gert undanfarin tvö ár, en ekk-
ert hefur hafzt upp úr þeirri
málaleitan enn.
Meðal þess, sem leysa þarf úr,
er þetta:
1. Tilraunir með gróðursetn-
ingu sömu trjátegunda við mis-
jöfn vaxtarskilyrði.
2. Nákvæmur samanburður á
ýmsum afbrigðum sömu teg-
Úr gróðrarstööinni á Hallormsstað. Ilér standa hundruð þúsunda af sitkagreni og rauðgreni, sem
gróðursetja verður á næstu árum. Hlíðarnar andspænis Hallormsstað þyrfti að græða og gera að
arðbæru landi með skógi.
að hann væri til. Því miður er
nú flest af þessu uppurið á ný.
í skóggræðsluáætluninni er
gert ráð fyrir, að skóglendi lands-
ins væru mæld, og heildarlýsing
gerð af þeim. Yrðu þau þá um
leið flokkuð með hliðsjón af því,
hver væru bezt fallin til þess að
gróðursetja barrtré í.
En hins vegar mun friðun skóg-
lenda fyrst um sinn verða að tak
markast við þau skóglendi, sem
bezt eru fallin til gróðursetning-
ar á annan bóginn, en á hinn
bóginn við þau lönd, sem eru í
hættu af uppblæstri og beit. Fjár-
hagsleg geta þjóðarinnar mun
vart leyfa meira að sinni.
Loks má heldur ekki gleyma
því, að vel hirtir og grisjaðir
birkiskógar geta gefið af sér fyx-
irtaks húsgagnavið, og innan tíð-
ar mun unnt að nota birkivið
og birkibörk til þess að framleiða
þilplötur.
Aðstoff við skóggræðslu
ein^taklinga
Skógræktarlögin gera ráð fyr-
ir þrenns konar aðstoð við ein-
staklinga til þess að rækta skog.
Undanfarin ár hafa verið veittar
kr. 100.000 til þess að koma upp
girðingum um skóglendi og að
styðja einstaklinga til skógrækt-
ar. Þetta hefur gefizt vel, en
þyi'fti að vera miklu meira.
Þá er heimilt að leyfa einstaki -
ingum að setja niður barrviði í
skóglendi, sem Skógrækt ríkis-
ins á, en á þann hátt, að allt er
upp vex verði eign þess, sem
gróðursetur og erfingja hans.
Þessi heimild hefur strandað á
því, að skort hefur skóglendi til
þess að láta í té í þessu skyni
Annars gæti þessi heimild kom-
ið að drjúgum notum og lyft und-
ir skógræktina á ýmsum stöðum,
ef kostur væri á að beita henni.
Þá er og til í skógræktarlög-
unum almenn heimild til að
styrkja skógargirðingar að upp-
fylltum vissum skilyrðum, en sú
Skjólbelti
Ræktun skjólbelta er fyrst og
fremst hagsmunamál fyrir garð-
yrkju, kornrækt og landbúnað-
inn yfirleitt. Hér á landi er eng-
inn aðili til, sem hefur tök á að
gera tilraunir með skjólbexti
nema Skógrækt ríkisins, og því
hefur henni verið veitt kr. 50.000
fjárveiting nú um tvö ár til slíkra
tilrauna.
Áður en sú fjárveiting fékkst,
Siðari hluti
var orðið ljóst, að hér er yfir-
leitt hægt að koma upp skjól-
beltum. Þó er enn margt á huldu
um ræktun þeirra, svo að gexa
verður ýmiss konar tilraunir á
næstu árum áður en ræktun
þeirra getur oi-ðið almenn.
Náttúruvernd og ferðafólk
Þegar undan er skilin friðun
Þingvalla og Dimmuborga má
heita að öll náttúruvernd á landi
hér hafi til skamms tíma hvilt
á Skógrækt ríkisins. Margir af
stöðum þeim, sem girtir og frið-
aðir hafa verið á vegum hennai
mundu nú vera lítils eða einskis
virði, ef friðunar hefði ekki not-
ið um skeið. Auk þess eru ýmsir
staðir fjölsóttir af ferðafólki, svo
sem Þórsmörk, Þjórsárdalur, Ás-
byrgi, Vaglaskógur og Hallorms-
staðaskógur. Kostað hefur verið
kapps um að greiða götu ferða-
manna um þessi lönd og önnur,
svo sem kostur hefur verið á.
Því miður hefur það verið alltof
lítið, miðað við það, er æskilegt
væri, enda hefur aldrei verið
veitt neitt fé til slíkra hluta sér-
staklega, þegar frá eru skildar
nokkrar lítils háttar fjárveiting-
ar til vegagerða. En oft er tölw-
verður kostnaður samfara þessu,
sem stafar af auknu viðhaldi
vel fjárleitir og smalamennska,
undar.
3. Tilraunir með staðarval fyx--
ir hinar ýmsu trjátegundir.
4. Tilraunir með ýmsar gróður-
setningaraðferðir og áburðar-
gjöf.
5. Tilraunir með sáningu trjá-
fræs í stað gróðursetningar.
6. Tilraunir með gróðursetning-
artíma.
7. Mælingar á vexti og þroska
trj ánna.
8. Gróðurathuganir og jarð-
vegsrannsóknir í sambandi við
vöxtinn.
9. Veðurathuganir í sambandi
við vöxt og þrif trjánna.
10. Rannsóknir á íslenzka bii'k-
inu og afbrigðum þess.
11. Ýmiss konar tilraunir í sam
bandi við uppeldi trjáplantna í
gróðrarstöðvunum, t. d. sáning-
artíma, áburðargjöf, vetrarum-
búnað, upptöku, geymslu o.m.fl
Auk þessa eru mörg vandamál
óupptalin, sem ekki verða leyst
nema með tilraunum.
Skógræktarfélag íslands er
sambandsfélag allra héraðsskóg-
ræktarfélaga landsins, en þau eru
nú 29 alis, og nær starfssvið
þeirra yfir allar sýslur landsins
nema 3. Alls eru nú yfir 9000
félagar innan vébanda skógrækl-
arsamtakanna.
Skógræktarfélag íslands —
Stjórn og markmið þess
Aðalfundir Skógræktarfélags
ins, sem haldnir eru á hverju
sumri á ýmsum stöðum landsins,
kjósa fimm manna stjórn til þess
að fara með málefni félagsins í
þeirri stjórn eru nú Valtýr
Stefánsson, form., Hermann Jóa-
asson ráðherra, varaformaður,
Haukur Jörundarson, ritari, vEiii-
ar Sæmundsen, gjaldkeri og
Hákon Guðmundsson, hæstarétt-
arritari. Framkvæmdastjóri fe-
lagsins er Hákon Bjarnason, en
erindreki þess er Snorri Sigurðs-
son, skógfræðingur.
Takmark félagsins er að kynna
almenningi skógrækt og allt er v*
henni lýtur og vinna að henm
eftir föngum með gróðursetn-
ingu skóga. Héraðsfélögin koma
sér upp girðingum, útvega plönt-
ur og fá sjálfboðaliða til þess að
setja þær niður. Við gróðursetn-
inguna gefst mönnum kostur á
að læra að handleika plöntur og
fara vel með þær.
Félögin eiga nú girðmgar, sem
eru yfir 3000 ha að flatarmáli,
og undanfarin ár hafa þau gróð-
ursett um % allra þeii'ra trjá-
plantna, sem komið hafa úr gróðr
arstöðvum landsins.
Til starfs þessa njóta félög-
in nokkurs styrks úr ríkissjóði,
mörg hafa líka styrk frá bæjar-
félögum og sýslufélögum, njóta
gjafa og framlaga frá mörgum
aðilum, og auk þess greiða fé-
lagar árgjöld til þeirra.
Undanfarin 2 ár hefur ríkis-
styrkur til skógræktarfélaganna
numið kr. 400 þús., en samkvæmt
skýrslum félaganna hafa þau
lagt fram 3 kr. á móti hverri 1
kr., sem þau hafa fengið í ríkis-
styrk um allmörg ár. En í fyrra
munu framlög félaganna hafa
numið hátt í 4 kr. á móti hveiri
1 kr. frá ríkinu.
Tvennt háir nú einkum starf-
semi sumra skógræktarfélaganna.
Annað er að ungu fólki fækkar
enn í ýmsum héruðum, og því
reynist sums staðar erfitt að
vinna að gróðursetningu á vorin.
Hitt er að styrkir til þeirra hafa
staðið í stað þrátt fyrir vaxandi
dýrtíð, svo að mörg hver, og þó
einkum þau, sem eru í hinum af-
skekktari landshlutum, eiga
miklu erfiðara en áður með að
setja upp nýjar girðingar og
gróðursetja í þær, sem fyrir eru.
Undanfarin ár hafa félögin
gróðursett í allt frá 60 hektörum
lands upp í 100 hektara, auk þess,
sem þau hafa verið að koma upp
girðingum. Tvö stærstu félögin
hafa einnig allmikið uppeidi
trjáplantna með höndum.
Þá hafa félögin staðið að skipt-
um á ungu fólki milli Noregs og
íslands á þriggja ára fresti, og
hefur þetta verið til rnikils góðs
fyrir skógræktina.
Nú skortir félögin mjög alís
konar faglegar leiðbeiningar, og
hefur sérstakur erindreki starfað
á vegum Skógræktarfélags ís-
lands sl. ár. Starf hans hefur orð.
ið félögunum hinn mesti styrkur.
Ef skóggræðsluáætlunin á
fram að ganga er það skilyrðis-
laus nauðsyn, að skógræktarfé-
lögin eflist og styrkist, og hér
verður ríkisvaldið að ganga á
undan með því að hækka styrk-
inn til heirra allverulega.
' •'ræðslusjóður
Sjóðurinn var stofnaður sam-
tímis lýðveldiskosningunum árið
1944. Markmið sjóðsins er hvers
konar landgræðsla en þó fyrst og
fremst skógrækt. Stofnfé hans
varð ekki nema um kr. 330 þús.,
og hefur hann þvi ekki getað innt
af höndum nema brot af því,
sem æskilegt hefði verið.
Þegar sjóðurinn var nýstofu.
aður var hugmynd manna að láta
arðinn af sölu setuliðseigna renna
,í hann, en frá slíku var horfið
af skammsýni. Síðar hefur sjóð-
urinn vaxið nokkuð og er orð-
inn rösklega 1,2 milljónir króna.
Þótt hann sé ekki stærri en þetta,
hefur margt gott af honum leiti,
og með útlánum í þágu skógrækt-
ar hefur verið unnt að koma
mörgu til leiðar, sem ekki hefði
verið nokkur kostur án hans.
Sjóðsstjórnin hefur aflað hon-
um fjár með happdrætti og sölu
jólatrjáa um nokkur ár. Auk þess
rennur 10. hluti af því, sem inn
kemur fyrir sölu merktra vindl-
inga, beint í höfuðstól sjóðsins.
En 90% af því, sem inn kemur
fyrir hina merktu vindlinga, er
varið beint til þess að auka upp-
eldi trjáplantna, og eru þær tekj-
ur orsök til þess, hve vel hefur
tekizt að stækka gróðrarstöðv-
arnar og auka uppeldið.
Skógræktarstarfinu í landinu
er hin mesta nauðsyn að efla
sjóðinn svo sem framast er kost-
ur, ekki sizt fyrir þá sök, að sá
höfuðstóll sjóðsins, sem ekki er
í fasteign, rýrnar með hverju ári.
Tíl 1»-! -»?i halda í horfinu er
vi'amh á bls. 11