Morgunblaðið - 08.03.1958, Page 15
Laugardagur 8. marz 1958
MORCUNRLAÐIÐ
15
Frabkor ætlu nð beito sér fyrír
hernaðorboiidalagn Miðjarðar-
halsþjóða
Þeir senda 28 þús. hermenn fil viðbófar
herafla sínum í Alsír
PARÍS, 7. marz. — í kvöld fékk franska stjórnin traust, þegar
þingið greiddi atkvæði um áætlun hennar um styrjaldarreksturinh
i Alsír. 286 þingmenn greiddu stjórninni atkvæði, en 141 voru á
móti. í áætlun stjórnarinnar er m. a. gert ráð fyrir því, að 28 þús.
fianskir hermenn verði sendir til Alsír til viðbótar þeini 375 þús.
liermönnum, sem þar eru nú.
Innanlandstnál Frakka
í i-æðu sinni sagði Gaillard, að
í áætluninni væri bent á leiðir til
að verja bæði Frakkland og Alsír,
eins og hann komst að orði. Ráð-
herrann sagði ennfremur, að ekki
kæmi til mála, að Alsírdeilan yrði
leyst á alþjóðlegum vettvangi,
enda væri hér um algjört innan-
ríkismál Frakklands að ræða. —
Gaillard sagði, að Frakkar berð-
ust ekki aðeins í Alsír fyrir sjálfa
sig heldur allan hinn frjálsa
heim. Þetta ættu sumir banda-
menn Frakka erfitt með að skilja
og væri leitt til þess að vita.
Hernaðarbandalag
Þá sagði forsætisráðherra
Frakka, að stjórnin mundi
leggja fram tillögur um stofn-
un varnarbandalags þjóðanna
við vestanvert Miðjarðarhaf
ög yrði það nátengt Atlants-
Eldur í smiðju
SÍÐDEGIS í gær var slökkvilið-
ið kallað út tvisvar sinnum. í
fyrra skiptið var mikill eldur í
litlu verkstæði við Vesturgöt-
una en í síðara skiptið var eldur
í íbúðarskúr.
Verkstæðið er við húsið Vest-
urgata 21. Verið var að kveikja
upp í olíuofni. Maðurinn sem að
þessu var, þurfti að bregða sér
í síma. Þegar hann kom aftur
má heita að litli verkstæðisskúi-
inn væri allur í björtu báli. Þar
var unnið við málmsmíðar. Tók
það ekki langan tima fyrir
slökkviliðið að ráða niðurlögum
eldsins, en í smiðjunni litlu urðu
þó töluverðar skemmdir.
ÆskolýðssoB-
kono í kvöld
K.F.U.M. Fríkirkjunnar nefnist
eitt af safnaðarfélögum þeirrar
kirkju. Það starfar meðal ungs
fólks innan safnaðarins.
í vetur hefur starfsemi þess
aukizt allverulega. Þess skal get-
ið t. d., að félagið hefur aðstoð-
að við barnaspurningar með
skuggamyndasýningum, og hafa
þær gefið mjög góða raun. Hafa
forráðamenn félagsins fullan hug
á því að halda þessari starfsemi
áfram, og jafnvel auka hana, ef
fært reynist.
Næstkomandi sunnudagskvöld
kl. 8,30 gengst félagið fyrir æsku-
lýðssamkomu í Fríkirkjunni. í
henni munu taka þátt: Bassa-
söngvarinn Hjálmar Kjartansson
og Fríkirkjukórinn ásamt organ-
ista kirkjunnar. Einnig verður
lesinn kafii úr æfisögu enska
stjórnmálamannsins, William
Wilberforce. Að lokum tala svo
safnaðarpresturinn, séra Þor-
steinn Björnsson og Kolbeinn
Þorleifsson, formaður félagsins.
Gert er ráð fyrir almennum
söng, og er fólk því beðið um að
hafa með sér sálmabækur.
Sagt mun verða nánar frá
starfsemi félagsins á samkom-
unni, og er gengið verður út,
mun verða tekið á móti gjöfum,
félaginu til styrktar.
Allir eru velkomnir á samkomu
þessa, sérstaklega ungt fólk, á
meðan húsrúm leyfir.
hafsbandalaginu. Auðvitað
yrði Alsír aðili að slíku bancia
lagi. — Talsmaður frönsku
stjórnarinnar sagði í kvöld, að
málið yrði rætt við stjórnir
Ítalíu og Spánar, áður en end-
anleg ákvörðun yrði tekin.
Lönd þau, sem til greina koma
sem aðildarríki þessa nýja
bandalags eru: Túnis, Mar-
okkó, Libýa og England, auk
þeirra, sem nefnd voru að
framan.
Unglingur
hætt hominn
í sundlaug
AKRANESI, 7. marz. — Sl. laug
ardag meiddist 13 ára drengur
hér í sundlauginni.
Þennan dag var svo sem venja
er á laugardögum margt um
manninn í Bjarnarlaug. Dreng-
urinn, sem heitir Hallgrímur
Þór Hallgrímsson, hafði synt í
kafi, en var rétt nýkominn upp á
yfirborðið er 18 ára skriðsunds-
maður kom á harðaspretti og er
hann skaut hendinni fram fyrir
sig í sundtaki, kom hún beint í
annað auga Hallgríms Þórs, sem
við það fafaðist sundið. Stein-
sökk drengurinn niður á botn
laugarinnar. Aðalsteinn Jónsson
sundkennari sá er þetta gerðist
og stakk sér samstundis á eftir
drengnum og bjargaði honum
upp úr lauginni. Var hann flutt-
ur heim til sín, en næsta dag var
læknis leitað. Kom í ljós að Hall-
grímur Þór hafði fengið heila-
hristing undan höggi skriðsunds
mannsins og hornhimnan á auga
drengsins hafði rifnað. — Oddur
Batnandi afla-
brögð við Eyjar
VESTMANNAEYJUM, 7. marz.
— Allur þorri báta hér er nú
komin með *et, þó eru enn 10
bátar með línu, en þeir hafa ver
ið með góðan afla 6—10 tonn í
róðri. Afli netjabátanna hefur
verið æði misjafn að undanförnu.
í gær var aflinn frá 300 fiskum
upp í 6700 fiska, en yfirleitt var
aflinn þó í tregara lagi í gær.
í gær voru aðeins nokkrir bátar
með meiri afla en 3000
fiska og mestan afla hafði ms.
Sindri er var með 6700 fiska, eða
um 59 tonn upp úr sjó, og er það
óhemju-góður afli. í dag er afli
netjabátanna mikið jafnari, frá
1000 fiskum upp í 5000 fiska.
Mjög margir bátar voru með
2000—3000 fiska. Handfærabát-
arnir sem eru orðnir mjög marg
ir hér í Eyjum og hingað til hafa
verið með lélegan afla, fengu
í dag í fyrsta skipti á vertíðinni
allverulegan afla og sumir ágæt-
an. — Sjómenn telja að mikill
fiskur hafi gengið nú í straum-
inn, en fiskurinn heldur sig mjög
grunnt undan Sandi. Útlit er fyr-
ir sjóveður í nótt. — Bj. Guðm.
A fundi bæjarstjórnar í fyrrad.
var samþykkt tillaga frá Guð-
mundi Vigfússyni um, að vatn úr
borholu við Sundlaugarnar
skyldi leitt í laugarnar. Um þetta
hafði hitaveitunefnd ritað bæj-
arráði fyrir skömmu.
1. O. CL T.
St. Verðandi no. 9
Fundur í kvöld kl. 8,30.
1. Inntaka riýliða.
2. Upplestur: Einbjörg Einars-
dóttir. — Æt.
Unglingastúkan Unnur nr. 38
fundur á morgun, sunnudag kl.
10 f.h. Inntaka nýrra félaga. —
Kvikmyndasýning o. fl. skemmti
atriði. Fjölsækið stundvíslega.
— Gæzliumaffur.
Lokað i kvöld
KOPAVOGUR
Sjálfstæ'ðisfélögin í Kópavogi efna til skemmtunar
í Tjarnarcafé niðri, nk. sunnudag kl. 8,30 e. h.
Aðgöngumiðar fást í skrifstofu flokksins að Mel-
gerði 1, í dag kl. 7—9 e. h. og á morgun, sunnudag
kl'. 1—4 e. h.
ATH. Strætisvagn fer frá Tjarnarcafé í Kópavog
að skemmtuninni lokinni.
Skemmtinefndin.
Háskólastúdentar!
skemmtið ykkur að Gamla-Garði í kvöld. Hljómsveit
leikur frá klukkan 9
Stúdentar vitji aðgöngumiða gegn skírteini milli
kl. 5—7.
Stjórnin.
Einbýlishús
Til sölu er einbýlishús í byggingu á góðum stað
í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 3.30.85.
Kvittanahefti
(febrúarmánuður) frá Morgunblaðinu tapaðizt sl.
fimmtudag, sennilega í Kópavogi. Reikningarnir
eru í þessar götur: Kársnesbraut, Urðarbr; ut,
Hraunbraut, Hófgerði og Holtagerði. —
Finnandi vinsaml. skili því í skrifstofu Morgun-
blaðsins, sími 2-24-80.
Plymouth '47
sérlega góður og vel útlítandi er af sérstökum
ástæðum til sölu nú þegar. Hagstætt verð.
Uppl. í síma 19327, eftir hádegi í dag og á morgun.
Unglinga
vantar til blaðhuröar við
Bráðræðlsliolt
Baldursgofu
Sími 2-24-80
GlSLI GUÐMUNDSSON
bókbindari andaðist aðfaranótt föstudagsins 7. marz í
sjúkrahúsi Hvítabandsins.
Guðmundur Gíslason,
Fanney Guðmundsdóttir.
Bróðir minn ,
JÓHANNES ASKEVOLD JOHANNESSEN
læknir í Rekovac, Júgoslavíu,
andaðist þar 22. febrúar sl.
Haraldur Johannessen.
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir og amma
VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Tannstöðum, andaðist að heimili okkar, Barmahlíð 12,
aðfaranótt 6. marz.
Aðstandendur.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
húsasmíðameistari andaðist í Landakotsspítala 7. þ.m.
SVERRIR SVERRISSON
Guðrún Magnúsdóttir og börn.
Hjartans þakkir til allra fjær og nær er auðsýndu okk-
ur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
HJARTAR PALSSONAR
Sigríður Þórðardóttir,
Ágúst Pálsson og fjölsbylda
Útför
BENEDIKTS ERLENDSSONAR
er lézt 4. marz, fer fram þriojudaginn 11. marz kl. 2 e. h.
frá Aðventkirkjunni.
Aðstandendur.
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, bæði nær
og fjær, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall
og jarðarför elsku di-engsins okkar
GUÐJÓNS ELl
Guð blessi ykkur öll.
ísafirði, 3. marz 1958.
Rebekka Stígsdóttir,
Sturla Halldórsson
og börn.