Morgunblaðið - 14.03.1958, Page 1
20 síður
Þýzkt blað segir ótvírætt frá
//hjálparbeiðni,/ íslands til NATO
Staðfest að Vestur-Þýzkaland hlaupi undir
bagga með 2 milljón dollara láni
ÞÝZKA blaðið „Deutsche
Zeitung und Wirtschaftzeit-
ung“ í Stuttgart birti 26. febr.
þær fréttir frá Bonn, að full-
trúar íslands séu um þessar
mundir að semja við þýzka
lánastofnun um 8,4 milljón
marka lán til hjálpar íslandi.
Er það tekið fram í fréttinni,
að ísland hafi leitað eftir þess-
ari hjálp við NATO. Banda-
ríkin hafi þegar hlaupið und-
ir bagga með íslendingum og
þess sé að vænta, að fleiri
NATO-ríki leggi fram sinn
skerf. Fréttiu í hinu þýzka
blaði er svohljóðandi:
Átta milljóna lán til íslands.
SambandslýðveldiS styður upp-
byggingarhjálp Bandaríkjanna.
BONN. Fulltrúar íslands semja
nú við Viðreisnarbankann (Kre-
ditanstalt íúr Wiederaufbau)
um lán i þýzkum mörkum til að
standa straum af ákveðnum upp
byggingaráætlunum. Lánið er að
upphæð 2 milljónir dollara (8,4
milij. marka). Með þessu er
Vestur-Þýzkaland að bæta við
5 milljón dollara lón, sem Ex-
port-Import-bankinn hefur veitt
og nýlega var samið um milli
Bandaríkjanna og íslands.
Samninga þessa má rekja til
tveggja atburða, í fyrsta lagi til
hinnar opinberu íslenzku heim-
sóknar til Þýzkalands og í öðru
lagi til málaleitana íslands hjá
NATO. Bandaríkin urðu mjög
skjótt við þeirri hjálparbeiðni,
til þess að koma í veg fyrir ís-
lenzkar aðgerðar gegn hinni
amerísku flugbækistöð. Einnig
hafði það að líkindum úrslita
þýðingu, að Sovétrikin yrðu ekki
á undan með lánatilboð, einkum
þar sem ætla verður að þau hafi
mikinn hug á því.
Þýzka sambandslýðveldið er
nú annað NATO-ríkið, sem ætlar
með aðstoð bankasamtaka, undir
forustu Viðreisnarbankans, að
verða við hjálparbeiðni íslands.
Hið bandaríska lón verður til 20
ára, en þýzka lánið væntanlega
til nokkru skemmri tíma (senni-
lega til 15 ára). Vextir veröa
4 prósent.
Lánið verður bwndið ákveðn-
um íslenzkum framkvæmdum.
íslendingum verður í sjálfsvald
sett hvar þeir verja fénu til inn-
kaupa, en að líkindum verður
þýzka láninu varið að mestu leyti
til kaupa í löndum Greiðslu-
bandalags Evrópu og má búast
við að bróðurpartinum verði
að venju eytt í Þýzkalandi. Það
er búizt við jákvæðum árangri
samninganna í vikulokin. í Bonn
er búizt við að fleiri NATO-ríki
fylgi fordæmi Bandaríkjanna og
Þýzkalands.
Forseti bondariskn verkolýðs-
sombondsins óónægður með
oistöðn stjórnorínnar
WASHINGl'ON —' Eisenhower Bandaríkjaforseti hefur kunngert
áætlun sína til þess að vinna bug á atvinnuleysinu, sem svo mjög
hefur borið á í Bandaríkjunum undanfarið. Hyggst hann verja
hundruð-milljónum dollara- til vegalagninga og annarra fram-
kvæmda á vegum ríkisins. Jafnframt hefur hann ákveðið að verja
200 millj. dollurum í húsnæði handa atvinnulausu fólki.
Forsetinn hefur sent þing-
flokki republikana bréf um þetta
mál og skýrt fyrir honum þær
áætlanir, sem hann hefur ó
prjónunum vegna atvinnuleysis-
ins. í því leggur hann m. a. til,
að lengdur verði sá tími, sem
atvinnuleysingjar fá ríkisstyrk.
Hingað til hafa styrkirnir náð
yfir 26 vikna tímabil.
í febrúarmánu'ði sl. voru at-
vinnuleysingjar í Bandaríkj-
unum rúmlega 5.2 milljónir og
liafki þeim þá fjölgað um
700 þús. frá því í janúar. —
Þetta er hæsta atvinnuleys-
istala þar í landi í 8 ár.
Eisenhower sagðist búast við,
að atvinnuleysisaldan yrði að
miklu leyti riðin yfir í miðjum
næsta mánuði og af þeim sökum
gerði hann ekki frekari ráðstaf-
anir en þær sem fyrr eru nefnd-
ar til að draga úr atvinnuleysinu.
A þetta sjónarmið hefur þing-
Fara samningaviðrœð-
urnar út um þúfur?
PARÍS, 13. marz. — Fréttamenn
í París segja, að samningavið-
ræður í Túnisdeilunni gangi æ
erfiðar og menn séu nú við því
búnir, að þær fari alveg út um
þúfur. — Fréttir berast um það,
að Bourgiba forseti Túnis hafi
Jamila náðuð
PARÍS, 13. marz. —■ Coty
Frakklandsforseti hefir náðað
Alsírstúlkuna Jamilu Bou-
hira, sem dæmd hafði verið
til dauða af frönskum dóm-
stóli í Alsír fyrir þátttöku í
sprengjutilræði í Algeirsborg.
— Dauðadóminum var breytt
í ævilanga betrunarhúsvinnu.
Jamila neitaði alltaf þátttöku
í tilræðinu, en dró ekki dul á
samúð sína með uppreisnar-
mönnum. Hún sagðist hafa
orðið að þola pyndingar í
fangelsinu. — Mál hennar hef-
ur vakið mikla athygli, eins
og fréttir hafa borið með sér.
skipað svo fyrir, að engin hátíða
höld verði á þjóðhátíðardegi
Túnismanna vegna hins alvarlega
ástands.
Mollet óánægður.
Mollet, leiðtogi jafnaðarmanna
í Frakklandi hefur látið sér fátt
um finnast þær tillögur, sem
Gaillard hefur borið fram um
varnarbandalag ríkjanna við
Miðjarðarhaf. Segir hann, að
slíkt bandalag mundi ekki hafa
neina hernaðarlega þýðingu. Slík
uppástunga- er aðeins skálka
skjól fyrir stjórnina, sagði
hann og er hugsuð sem fluga,
sem franska þjóðin á að gína við
í erfiðleikunum.
í ræðu, sem Bourgiba hefur
haldið, sagði hann, að Bretar og
Bandaríkjamenn yrðu nú að
gera hreint fyrir sínum dyrum.
Annað hvort yrðu þeir að standa
með Norðurafriltuþjóðum og
sýna vináttu sína í garð þeirra,
sem berðust fyrir sjálfstæði sínu,
eða þeir væru staðnir að því að
hafa samstöðu með nýlendukúg-
urunum.
flokkur republikana fallizt. En
forseti bandaríska verkalýðssam-
bandsins (AFL-CIO), George
Meany, sagði á fundi með 1000
verkalýðsleiðtogum í Washing-
ton, að verkalýðshreyfingin
krefðist þess, að þingið gerði
ráðstafanir til að draga úr at-
vinnuleysinu. Hingað til hefði það
ekkert gert, sagði hann.
Þess má geta, að það eru að-
eins ákveðnar atvinnugreinar,
sem orðið hafa allhart úti vegna
atvinnuástandsins. I bíla- og flug-
vélaiðnaðinum hefur t. d. orðið
mikill samdráttur. í öðrum grein-
um atvinnulífsins hefur aftur á
móti verið mikil grózka og eykst
hún með hverju ári.
0—4—0
WASHINGTON, 13. marz. — í
dag var forseti bandaríska verka-
lýðssambandsins kallaður á fund
í Hvíta húsinu til viðræðna um
samdrótt í efnahagsmálum ríkis-
ins og atvinnuleysið, sem fylgt
hefur í kjölfarið. Forsetinn skor-
aði á Eisenhower að láta strax
til skarar skríða gegn atvinnu-
leysinu, því að það gæti breiðzt
út næstu mánuði með hörmu-
legum afleiðingum. Meany af-
henti Eisenhower bréf, þar sem
þess er m. a. krafizt, að skattar
verði lækkaðir í því skyni að
örva framkvæmdir í landinu.
Soraya og keisarinn.
Ekki gert róð fyrir, oð Soroyo
hitti keisoronn oftur
* ■
Hun verðuir nú fyrir mikilli gagnrýni í Iran
KÖLN, 13. marz. — Búizt er við
því á hverri stundu, að tilkynn-
ing verði gefin út um það í
Teheran, að keisarinn og Soraya
drottning hafi skilið.
Eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum, ræddi frændi drottn-
ingar, Bakhtiar þingmaður, við
hana og foreldra hennar í Þýzka-
landi og reyndi að miðla málum
milli ástarinnar og stjórnmál-
anna, eins og einn fréttamann-
anna scm fylgzt hafa með máli
þessiu, komst að orði. Drottn-
ingin vill ekki beygja sig fyrir
þeim kröfum, sem stjórnmála-
mennirnir hafa borið fram.
Keisarinn hefur skýrt frá þvi,
að ekki sé hægt að fresta krýn-
ingu hans öllu lengur, þar sem
ástandið í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs sé svo ótryggt. En
sú skylda er honum lögð á herð-
ar, að ákveða við krýninguna,
hverjum beri að erfa ríki hans.
Þegar vitað var, að drottning gat
ekki fætt manni sínum erfingja,
tók hann þá ákvörðun að nota
sér heimild Kóransins og fá sér
aðra konu, sem gæti fætt hon-
um son. Ekki er víst, hvernig
Soraya tók þessari uppástungu,
en sumar heimildir fullyrða, að
hún hafi vísað henni á bug, enda
er hún uppalin við vestrænan
hugsunarhátt. Hins vegar segja
aðrar heimildir, að drottning hafi
fallizt á að keisarinn tæki sér
nýja konu, en þó með þessum
skilyrðum:
1) Að Soraya verði krýnd með
keisaranum og verði að öllu
leyti viðurkennd eina drottn
ing ríkisins.
2) Að nýja konan megi ekki
búa í keisarahöllinni.
3) Að hún velji sjálf þessa
nýju eiginkonu keisarans.
Fréttamenn segja, að Soraya
hafi verið mjög ákveðin í samn-
ingaviðræðunum í Köln. Vinir
Framh. á bls. 2
ÚtvarpsstÖð uppreisnarmanna í
Padang hœtti skyndi-
lega útsendingum
Búast má v/ð, oð til stórtibinda
dragi á Mið-Súmötru
JAKARTA, 13. marz. — f kvöld
hætti útvarp uppreisnarmanna i
Padang skyndilega útsendingum,
segir í fréttum frá Jakarta. —
Þeir, sem hlustuðu á útvarpið,
segja, að ekki hafi verið hægt
að sjá, að útsendingarnar hafi
verið stöövaðar með valdi. —
Landgöngusveitir Jakartastjórn
arinnar stefna nú til Padang, en
þar eru höfuðstöðvar upprcisn-
armauna, eins og kunnugt er. í
kvöld tilkynnti. stjórnin í Jak-
arta, að hersveitir hennar hefðu
unnið fyrstu orrustuna á Mið
Súmötru og hefðu nú oliusvæðið
þar á valdi sínu. Hersveitirnar
skildi eftir að fallhlífasveitir
Jakartastjórnarinnar höfðu svif-
ið þar til jarðar og hertekið flug
völl borgarinnar.
Frá Manila berast þær fregn-
ir, að þar hafi m. a. verið rætt
um það, livort SA Asíubandalag-
ið ætti að viðurkenna stjórn upp
reisnarmanna í Padang.
Talsmaður Jakartastjórnarinn
ar segir, að í gær hafi erlendar
flugvélar varpað niður vopnum
tll uppreisnarmanna i Padang
og nágrenni.
í fregnum frá Hollandi segir,
að flugvélar Jakartastjórnarinn-
ar, sem vörpuðu sprengjum á að
alstöðvar uppreisnarmanna S
Padang hafi verið af rússneskri
tóku bæinn Pakan Bahau her-eða kinverskri gerð.