Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 18
18 M ORCV\ BL 4 ÐIÐ Fðstudagur 14. marz 1958 Eftir fimm umferðir HAFNARFIRÐI. — A skákmóti Hafnarfjarðar, sem stendur yfir þessa dagana er búið að tefla fimm umferðir: í fjórðu umferð, sem tefld var á sunnud., urðu úrslit í meistaraflokki þau að Jón Kristjánsson vann Skúla Thorar- ensen, Sigurgeir Gíslason vann Eggert Gilfer, Stígur Herlufsen vann Ólaf Sigurðsson, en bið- skák varð hjá Guðmundi S. Guð mundssyni og Hauki Sveinssyni. Fimmta umferð var tefld í fyrrakvöld og urðu úrslit þessi: Guðm. S. vann Jón, Haukur vann Sigurgeir, en biðskákir urðu hjá Eggert Gilfer og Ólafi, Stígi og Skúla. Vinningsstaðan er þessi: Stígur 3Vz og 1 biðskák. Guðm. S. 3 og 1 biðskák, Jón 2 og biðskák, Haukur IV2 og 3 biðskákir. Sigur geir og Ólafur IV2 og 1 biðskák hvor, Skúli 1 og 2 biðskákir og Eggert 0 vinn. en 2 biðskákir. —G.E. Þráinn Sigurðssor „Gamull" Framari í heimséhn EINN knattspyrnumannanna, sem léku hér á veilinum „í gamla daga“, leit inn á ritstjórn Mbl. í gær. Var þar kominn Þráinn Sigurðsson, sem fyrir rúmum 7 árum fluttist búferlum vestur um haf til Bandaríkjanna. Síðan hefur hann ekki komið hingað til lands. — Það hefur verið mjög ánægjulegt að koma hingað, hitia alla sína gömlu vini og kunn- ingja og sjá hversu fólki hefur vegnað hér vel og borgin stækk- að, sagði Þráinn. Það, sem kom mér af stað, var 50 ára afmæli iníns gamla félags, knattspyrnufélagsins Fram. Þráinn var mikiil og áhuga samur félagsmaður, og eftir að hafa leikið með félagiau í fjölda mörg ár, átti hann saeti í stjórn þess um árabil. Er hann kom á afmælishátíðina, kom hann fær- andi hendi, því hann gaf féíag- inu fallegan bikar. Ég sagðí strákunum, að um þennan bikar skyldu öll félögin keppa, og það félagið hljóta hann hverju sinni, sem næði beztum árangri í öllum flokkum yfir sumarið. Það félag eignast bikarinn, sem vinn ur hann þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Þráinn kvaðst ekkf betur sjá eftir þessa stuttu dvöl hér, en knattspyrnuáhuginn væri jafn- vel meiri en í gamla daga. Væri það gleðilegur vottur þess, að félögin hefðu á að skipa dugleg- um forystumönnum. Af sínum högum, sagði Þráinn, að hann og fjölskylda hans væri búin að koma sér allvel fyrir í Bandaríkjunum. Þráinn á efna- laug og stundar enn að nokkru sína gömlu iðn, klæðskeraiðnina. Hann býr nú með fjölskyldu sinni í bænum Gurnee, sem er um 30 mílur norður af stórborginni Chicago. Þráinn er á förum vestur aftur. Hann kveðst hafa hitt marga gamla kunningja á fund- Björn Baldursson Akur- eyrarmeistari í skaufahl. AKUREYRI, 12. marz. — Skauta mót var haldið á Akureyri um síðustu helgi. Fór keppnin fram á laugardag og sunnudag á Leir- unum. Þátttaka var með bezta móti. Björn Baldursson sigraði í A-flokki á öllum vegalengdum (4) og varð þar með Akureyrar- meistari í skautahlaupi. Stig féllu sem hér segir: 1. Björn Baldurs- son, 230,083 stig, 2. Kristján Arnason 237,644 stig, 3. Sigfús Erlingsson 237,820 stig.Um næstu helgi fer fram firmakeppni í 'svigi á Vaðlaheiði. Verður mikil þátttaka í þeirri keppni.—job. um í hinum svonefnda Lions- klúbb hér í bænum, en aðai- stöðvar þessa alheimsfélagsskap ar eru í Chicago og er Þráinn þar meðlimur. Hér í Reykjavík hefur Þráinn búið hjá mági sín- um, Jóni Þórðarsyni, forstöðu- manni Hvítabands-sjúkrahúss- ins, Háagerði 83. Bað Þráinn Mbl. að flytja kunn ingjum sínum og gömlum mum, sem hann ekki gæti hitt að þessu sinni, beztu kveðjur. Körfuknatt- leiksmótið KÖRFUKNATTLEIKSMÓTINU var haldið áfram í fyrrakvöld að Hálogalandi. ÍKF sigraði KFR b-lið með 106 stigum gegn 22. Mun þetta vera í fyrsta sinn, sem íslenzkt félag skorar yfir 100 stig í einum leik. Seinni leikurinn var á milli KR og KFR-a-liðs. KFR sigraði með 46 stigum gegn 41 stigi eftir harða keppni. Frá Bunaðarþingi: Miklar umræður um innflutning holdagripa í GÆR voru 6 mál til umræðu á Búnaðarþingi. Um sium urðu miklar umræður svo sem rækt- un holdanautgripa, og stóð fund- ur í hartnær 5 klst. Dráttarvélaakstur unglinga Fyrst var tekin fyrir tillága til þingsályktunar varðandi frum- varp til umferðarlaga. Allsherj- arnefnd skilaði svofelldri álykt- un: „Búnaðarþing ályktar að halda fast við ályktun sína og greinar- gerð, um 28. gr. frumvarps 'ul umferðarlaga, sem lá fyrir Al- þingi 1957“. í greinargerð með þeirri álykt- un eru rökstuddar ástæður fyrir því hve óhagkvæmt bændum sé að aldurstakmark sé sett fyrir því að unglingar aki dráttarvél- um við bústörf í sveit. Þetta muni einnig verða til þess að unglingar úr kaupstöðum eigi erfitt með að komast til sumar- dvalar í sveit. Ásgeir Bjarnason upplýsti að í fyrradag hefði komið fram á Alþingi tillaga um að miða akst- ur unglinga á dráttarvélum við hæfnispróf. Allsherjarnefnd féllst þó á að bæta öðrum lið við ályktun sína þar sem nýtt atriði væri komið fram í málinu. Sveinn Jónsson mælti gegn því að þetta væri afgreitt svo fljótt. Annar liður ályktunarinnar hljóð ar svo: „Ef Alþingi telur sér ekki fært annað en hafa takmarkanir á aldri unglinga við akstur heim- ilisdráttarvéla við heyvinnu og önnur bústörf, telur Búnaðar- þing að betra sé fyrir bændur að hæfnispróf verði lögleitt í þessu efni, heldur en að aldurs- takmark verði ákveðið". Fyrri liðurinn var samþykkt- ur einróma en síðari liðurinn með 17 atkvæðum gegn 4, 2 fulltrúar voru fjarverandi en 2 sátu hjá. Þar með var málið afgreitt frá Búnaðarþingi. Ræktun og innflutningur holdanauta Miklar umræður urðu um rækt Nýtt sjúkraskýli tekiS til starfa í Bolaregarvík Verður einnig notað sem elliheimili í ftanniioinni BOLUNGARVÍK, 13. marz. — Síðastliðinn mánudag var tekið í notkun hér nýtt sjúkraskýli á neðri hæð læknabústaðarins. Tekur skýlið 10 sjúkiinga í rúm. Bygging þess hefur staðið yfir í langan tíma, en þó miðað tiltölu- lega vel. Sjúkraskýlissjóður, sem tekjur hefur haft að skemmtana- skatti, hefur mjög iagt máli þessu lið, en framkvæmdastjóri hans er Steinn Emilsson og hef- ur verið frá stofnun sjóðsins. Tvær hjúkrunarkonur Tvær hjúkrunarkomu hafa verið ráðnar til hjúkrunarstarfa að sjúkraskýlinu og til umsjónar. Þær eru frú Hólmfríður Hafliðo- dóttir og frú Margrét Eyjólfs- dóttir. Eru þær báðar úr Bol- ungarvík. Yfirlæknir sjúkraskýl- isins er Guðmundur Jóhannes- son, hérðaslæknir. Verður einnig notað sem elliheimili Fjórar sjúkrastofur eru á neðri hæðinni, rúmgóð dagstofa fyrir sjúklinga er þar einnig. Meining in er, að skýlið skuli einnig notað sem elliheimili. Á efri hæð lækn isbústaðarins er íbúð héraðs- læknis, lækningastofa, röntgen- stofa og apótek. í Stjórn sjúkraskýlisins eru Guðmundur Jóhannesson, héraðs læknir, Jónatan Einarsson, odd- viti og Þórður Hjaltason, sím- stóri. Góðar gjaíir Kvenfélagið Brautin gaf rúm- fatnað í sjúkrastofur, að mestu leyti fyrir ágóða leikritsins „Arabískar næíur“, sem sýnt var hér síðastliðinn vetur. Sjálfstæð- iskvennaféiagið „Þuríður sunda- fyllir“ gaf borðlampa á hvert náttborð. Börn Bárðar heitins Jónssonar á Ytri-Búðum, hafa geíið sjúkraskýlinu ■ vandað út- varpstæki en hlustunartæki eru við hvert sjúkrarúm. Ber að þakka allar þessar gjafir og sömuleiðis öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn á umliðnum árum til þess að þetta sjúkraskýii geti nú hafið starfsemi, enda bætir það úr brýnni þörf. I —Fréttaritari. un holdanauta og spunnust inn í umræðurnar deilur um innflutn ing sæðis og búfjár. Kristján Karlsson talaði fyrir ályktun um ræktun holdanauta þeirra, sem til eru í landinu. Fel- ur hún í sér skipulega ræktun sunnlenzka holdanautastofnsins í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Er hún í eftirtöldum 5 liðum: „1. að samningur verði gerður við Sandgræðslu ríkisins um afhendingu holdanautastofns- ins í Gunnarsholti. Ennfremur verði leitað eftir því að fá úti- hús og íbúðarhús á Kornbrekk um til umráða. 2. Að gerður verði samningur við Sandgræðsiuna um afnot til langs tíma af beitilandi fyr- ir holdanautin og kaup á nægu heyi til vetrarfóðurs. . 3. Að holdanautabúið verði eign ríkisins með sérrekstri, undir umsjón Búnaðarfélags íslands. 4. Að Búnaðarfélag íslands ráði bústjóra, er framkvæmi fyrir- mæli þau, er það setur um ræktun, hirðingu og fóðrun hjarðarinnar. 5. Að Alþingi veiti nægilegt fé til stofnframkvæmda vegna búsins og reksturs þess“. Þá kvað Kristján að fyrir lægi umsögn yfirdýralæknis um inn- flutning búfjár og væri hann því mjög andvigur. Einnig hefði hann leitað upplýsinga erlendis og samkvæmt þeim teldi hann slíkan innflutning óráðlegan. Garðar Halldórsson átaldi bú- fjárræktarnefnd fyrir störf henn ar að þessu máli. Taldi ályktun- ina vera fremur neikvæða og litlar líkur til þess að hún bæri þann árangur er ætlazt væri til af þeim er vildu stuðla að innflutn- ingi holdagripa. Átaldi hann einn ig að nefndin legði ekki fram erindi Búnaðarsambands Eyja- fjarðar varðandi innflutning holdanauta. Þá taldi hann að ekki hefði verið aflað þeirra upplýsinga, er síðasta Búnaðar- þing hefði samþykkt að afla skyldi. Aðeins lægi fyrir álit yfirdýralæknis en ekkert frá Dýralæknafélagi íslands og ekk- ert um reynslu annarra þjóða 1 þessum efnum. Halldór Pálsson talaði nokkuð um þá ræktun þeirra holdagripa, sem fyrir væru í landinu og lýsti tilraunum, sem tilraunaráð bú- fjárræktar hefði hafið í Laugar- dælum á uppeldi kálfa blönduð- um holdakyni því, sem hér er til, og mjólkurkyninu. Árangurs væri ekki af því að vænta fyrr en eftir nokkur ár. Einnig gat hann komu dr. Hammonds hingað til lands sl. sumar og þess að hann hefði bent á að möguleikar væru til ræktunar holdanauta hér svo og að beztu einstakling- ar af holdakyninu í Gunnars- holti væru frambærilegir á ensk- um kjötmarkaði. Sveinn Jónsson tók mjög í sama streng og Garðar Halldórs- son og vítti nefndina og búfjár- ræktarráðunauta okkar fyrir and stöðu gegn þeim er vildu koma á þessari nýju búgrein þ.e. rækt- un holdagripa. Taldi hann álykt- un búfjárræktarnefndar nei- kvæða og blátt áfram til þess fallna að afsanna möguleikana til þess að hér væri hagkvæmt að rækta holdagripi. Mælti hann mjög með því að hafizt yrði handa um innflutning sæðis af erlendu, hreinræktuðu holda- nautakyni og átaldi að tillaga þess efnis væri ekki borin undir Búnaðarþing. Sveinn benti einn- ig á að stór svæði væru á landi hér þar sem menn vildu gjarna notast við ræktun holdagripa vegna þess að þar væri ekki markaður til mjólkurframleiðslu en sýnt væri að kjöt væri væn- legast búnaðarvara til útflutn- ings. Vítti hann þann drátt og seinagang sem væri á þessu máli. Ólafur Stefánsson nautgripa- ræktarráðunautur kvaðst ekki hafa verið á móti því að inn- flutningur holdagripa væri haf- inn en taldi að slíkt hefði ekki og væri ekki enn framkvæman- legt vegna þess að ekki væri til sóttvarnarstöð hér á landi og því ekki hægt að vinna gagnlega að málinu. Þá taldi hann ásökunina um að verið væri að vinna nei- kvætt starf með því að hefja skipulega ræktun sunnlenzka holdastofnsins mjög alvarlega. Margir fyrrgreindra ræðu- manna tóku oftar til máls og loks var málinu vísað til síðari umræðu. Önnur mál Þá samþykkti Búnaðarþing til- lögur um skiptingu Búnaðar- málasjóðs fyrir 1957. Kom fram athugasemd við að ekki hefði fengizt innheimt framlag til sjóðsins að fullu. Einnig var sam þykkt tillaga um að Búnaðarfé- lag íslands gerðist aðili að Evrópska búfjárræktarfélaginu (The European Association of Animal Production). Einnig var samþykkt ályktun um að litlar breytingar skyldu gerðar á útgáfu Freys, en fallizt á að bæta í hann léttara efni ef rúm leyfði. Gegn hinu síðasttalda var mælt og borin fram tillaga um að fella það niður. Var hún felld. Þá urðu nokkrar umræður um varnir gegn kartöfluhnúðormi, Jarðræktarnefnd lagði fram á- lyktun um að stjórn B.í. beitti sér fyrir því að flutt væri á Alþingi frumvarp um varnir gegn garðasjúkdómum. Frá því var skýrt að kartöfluhnúðormur væri að verða talsvert útbreidd- ur og nauðsyn að hefta útbreiðsl- una með því að leggja niður sýkt garðlönd en það myndi eina vörn- in gegn þessum vágesti. Málinu var síðan vísað til síðari umræðu. Heimsókn Halldóru Bjarnadóttur í gær heimsótti Halldóra Bjarnadóttir heiðursíélagi Bún- aðarfélags íslands þingið og flutti stutt ávarp en forseti þakkaði henni komuna. Einnig voru í gær lesin upp heillaskeyti er borizt höfðu í til- efni sjötugsafmæli Jóns Sigurðs- sonar á Reynisstað, sem var í gær. Næsti fundur Búnaðarþing* hefst kl. 9,30 í dag. Endurskoðun vörumerkja- laganna EINS og sagt var frá í Mbl. á sínum tíma fluttu þeir Páll Þor- steinsson og Gísli Guðmundsson frumvarp á þingi í haust um breytingar á vörumerkjalögun- um. Aðaltillaga þeirra var sú, að heiti, sem notuð eru sem vöru- merki, skuli vera rétt mynduð að lögum íslenzkrar tungu að dómi heimspekideildar háskólans. Ým- is önnur atriði voru einnig í frumv. Því var vísað til allsherjar- nefndar neðri deildar að lokinni 1. umr. í haust. Nefndin athug- aði frumvarpið og fékk um það álit ýmissa aðila. Hún taldi, að málvöndunarsjónarmiðið, sem í því kemur fram, eigi fullan rétt á sér og að gildandi lög um vöru- merki þurfi breytinga við. En að athuguðu máli taldi nefndin rétt, að lögin verði endurskoðuð milli þinga, og lagði til, að málinu væri vísað til ríkisstjórnarinnar. Flutningsmenn töldu sig geta sætt sig við þessa afgreiðslu, og var hún ákveðin með samhljóða atkvæðum á fundi neðri deildar í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.