Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.03.1958, Blaðsíða 17
Föstudagur 14. marz 1958 MORCVTSBL 4ÐIÐ 17 ESéttindi vélsljóra Á FUNDI í neðri deild Alþingis í gær var 1. umr. um frumvarp Karls G'uðjónssonar um breyting- ar á lögunum um atvinnu við siglingar. Frá frumv. var sagt í Mbl. í fyrradag, en það snertir þau ákvæði laganna, sem fjalla um réttindi véistjóra. Vill flutn- ingsmaður auka réttindi þeirra manna, sem fengið hafa menntun sína í vélstjórn á mótornámskeið- um Fiskifélagsins. Flutningsmaður skýrði frumv. með framsöguræðu. Síðan tók Ásgeir Sigurð'sson til máls. Hann sagði, að endurskoðun lagaá- kvæða um atvinnu við siglingar væri lokið fyrir nokkru að því er skipstjórnarmenn varðar, og hefði lögum verið breytt í san>- ræmi við það. Hins vegar starf- aði enn nefnd að endurskoðun ákvæðanna um vélstjóra, og teldi hann, að bíða ætti álits hennar, enda myndi þess að vænta á næst unni. Þá taldi Ásgeir nauðsyn- legt, að Farmanna- og fiskimanna samband íslands fengi frumvarp það, sem fyrir lá, til umsagnar, en það er sá aðili, sem hér á hlut að máli fyrir hönd vélstjóra. Karl Guðjónsson sagði, að sjálf sagt væri að senda frumvarpið til umsagnar þeirra, sem það * KVIKMYNDIR * „Kiss me Kate” ÞESSI bráðskemmtilega amer- íska óperumynd sem sýnd er í Gamla Bíói er gerð eftir hinum fræga söngleik Cole Porters, en hann byggir söngleikinn á leik- riti þeirra hjónanna Sam og Bellu Spewack, með sama nafni, en þau hjón eru okkur hér að góðu kunn fyrir leikritið „Væng- stýfðir englar“, sem Menntaskóla nemendur sýndu í vetur En efni leiksins „Kiss me Kate“ má svo rekja alla leið til leikrits Sakespeares, „The Taming of the Shrew.“ — Það standa því marg- ir góðir höfundar að þessari söngva- og dansmynd, enda er myndin fjölbreytt, prýdd af- burðaskemmtilegum dönsum sem snillingar sýna, ágætum söngvum sem eru Iistavel sungnir, og auk þess er leikurinn prýðilegur og fullur gáska og góðri kímni. Hina skapmiklu og óviðráðanlegu ungu stúlku Lilli Vanessi (Kate) leikur hin snotra og ágæta söng- kona Kathryn Grayson, en Fred Graham (Petruckió), sem tekur að sér að „temja“ hana leikur Howard Keel. Einnig hann er ágætur söngmaður og leikari. Þá er Ann Miller mjög skemmtileg í hlutverki Lois Lane (Bianca) og dans hennar frábær. — Fleiri skemmtilegir listamenn koma þarna fram, en of langt mál yrði að telja þá alla. Mynd þessi er tekin í ANSCA- litum og er afburðavel gerð. Hygg ég að marga munu fýsa að sjá hana, enda munu menn áreiðanlega skemmta sér vel og ekki ætti það að spilla, að Þjóð- leikhúsið mun sýna söngleikinn nú í vor. Ego. Síldveiði Norð- manna 1 HINN 6. þ. m. nam síldveiði Norð manna, samanlögð vetrarveiði og vorsíldarveiði alls 3.010.000 hektó lítrum. Á sama tíma í fyrra var veiðin 8,058,000 hektólítrar. Af aflanum hafa nú farið til bræðslu 1,678,000 hl., í fyrra 5,948,000 hl. Lýsismagn er áætlað nú 13,400 tonn og var í fyrra 47,500 tonn. Mjölframleiðslan nú er orðin 30,500 tonn, en var í fyrra 108,000 tonn. Vorsíldarveiðin er enn mjóg treg við Noregsstrendur. varðaði, enda héldi hann því ekki fram, að þar kynni ekki að mega færa eitthvað til betri vegar. Hins vegar kvað hann lítið myndi vinn ast við að bíða álits nefndar- innar, sem vinnur að endurskoð- un lagaákvæðanna um menntun vélstjóra. Hún hefði lengi verið að störfum án þess að gefa út álitsgerð, enda væri hún ósam- mála. Gylfi Þ. Gislason menntamála- ráðherra kvað nefndina væntan- lega ljúka störfum næstu daga, en ekki myndi sameiginlegra til- lagna að vænta frá nefndarmönn- | um. 3—4 herb. íbúð óskast til leigu 1. apríl eða síðar. Uppl. í síma 50493 milli kl. 8—9 í kvöld og næstu kvöld. GÖTT KMiP Iðnaðarfyrirtæki óskar eftir stúlku, sem getur unn- ið sjálfstætt við að búa til snið og sníða kápur og annan utanyfirfatnað. Tilboð með upplýsingum merkt: Kunnátta — 8871 sendist á afgr. blaðsins fyrir n.k. mánudag. TIL SOLU Glæsileg ný 3ja herbergja íbúð. Sanngjarnt verð. Fyrsti veðréttur er laus og á 2. veðrétti gott lán 120 þús. MÁLFLUTNINGSSTOFA Sigurður Reynir Pétursson hrl. Agnar Gúsiafsson hdl. Gísli G. ísleifsson hdl. Austurstr. 14, símar 1-94-78 og 2-2870 Verkakvennafélagið Framsókn Aðalfundur Verkakvennafélagsins Framsóknar verður n.k. sunnudag 16. marz kl. 2.30 e.h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. — Önnur mál. Mætið réttstundis. Sýnið skírteini eða kvittun við innganginn. Stjórnin. cd»jÓá i, ennn Barna- og unglingablað íneð myndum Ljósberinn þarf að komast inn á hvert barnaheimili í landinu. — Áskriftarverð er kr. 30.00. — Útfyllið meðfylgjandi áskriftarlista og sendið afgreiðslu Ljósberans strax í dag. — Ég undirrit .... gerist hérmeð áskrifandi að Ljósberanum Nafn Heimili Utanáskrift blaðsins: Ljósberinn, Pósth. 276, Rvík. TIL SÓLU I KÖPAVOGI: Falleg hæð í nýju húsi við Borgarholtsbraut. — 120 ferm., 4 herbergi. Sér inngangur og sér kynd- ing. Bílskúrsréttur fylgir. Útborgun 180 þús. kr. I. veðréttur laus, Við Álfhólsveg 5 herbergja íbúð í raðhúsi 120 ferm. Tækifærisverð. MÁLFLUTNIN GSSTOF A Sigurður Beynir Pétursson hrl. Agnar G ústafsson hdl. GísK G. Isleifsson lidl. Austurstr. 14, símar 1-94-78 og 2-2870 í dag verður opnuð Samsýning á verkum bandarískra listmálara í bogasal Þjóð- minjasafnsins. Sýningin verður opin daglega frá kl. 2—10 til 24. þ.m. Laugaveg 33 Fyrir fermingðrtelpur Hvítir hanzkar Hvítwr knipplingavasaldútar. Hvít undirföt Hvít nærföt Hvít sokkabandabelti Orðsending tii stóreignaskaffgreiðenda Með því að Skattstofan í Reykjavík og Fjármálaráðu- neytið hafa neitað að sýna skrá yfir stóreignaskattgreið- endur, fara undirrituð félagasamtök þess á leit við með- % lima sína, að þeir gefi trúnaðarmanni samtakanna upp- lýsingar um stóreignaskatt, sem á þá er lagður. Óskað er eftir að sent sé nákvæmt afrit (helzt ljósprentað) af til- kynningu, er þeir hafa fengið um greiðslu skattsins frá Skattstjóranum í Reykjavík. Þeir, sem senda inn frum- rit af tilkynningunni, munu fá þau endursend nm hæl, eftir að afrit hefir verið tekið af þeim. Farið verður með upplýsingar þessar sem algert trúnaðarmál. Opinberlega mun þó verða skýrt frá, hvernig skatturinn skiptist á verzlun, iðnað og aörar atvinnugreinar. Samtökin hvetja meðlimi sína til þess að bregðast vel við þessari málaleitan, þar sem upplýsingar um þessi mál eru mjög þýðingarmiklar, m. a. í sambandi við væntan- leg málaferli út af álagningu skattsins. Samtökin fara þess ennfremur á leit við þá stóreigna- skattgreiðendur, sem ekki eru meðlimir í undirrituðum félagasamtökum að þeir sendi upplýsingar á sama hátt um þann stóreignaskatt, sem á þá er lagður. Tilkynningar skattstjórans eða afrit af þeim, skulu sendar til lir. Svavars Pálssonar, lögg. endurskoðanda, Tjarnargötu 4, Reykjavík, eigi síðar en nk. mánudag. Félag íslenzkra iðnrekenda Félag ísleuzkra stórkaupnianna Húseigendafélag Reykjavikur Landssainband iðnaðarinanna Samband smásöluverzlana Verziunarráð íslands Vinnuveitendasamband Islands — Bezt ab auglýsa I Morgunblaðinu —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.