Morgunblaðið - 14.03.1958, Síða 2

Morgunblaðið - 14.03.1958, Síða 2
8 M o R r. n n fí r .4 n t ð Föstudagur 14. marz 1958 Tollyfirvölclin í Hamborg hafa nú tekið leynivópn í þjónustu sína. Er það röntgentaeki, sem notað er til þess að komast að hvort einhver óviðkomandi hlutur er í póstsendingum. Hér á myndinni sést toliþjónn seíja pakka til gengumlýsingar. RáðherraÍMFiéé SA-Asíu- bandaiagssm ÍGkið Nauðsyníegt er, að beriasf gegn undir- róðurssfarfsemi koenmúnisia í Asíuiönóum MANILA, 13. marz. — í morgun lauk fundi utanríkisráðherra SA- Asíubandalagsrikjanna í Manila. Birt var yfirlýsing, þar sem segir, að fulltrúa Thailands, sem er framkvæmdastjóri bandalagsins, hafi verið falið að ræða við framkvæmdastjóra Bagdadbandalagsins og NATO um nánara samstarf milli þessara þriggja varnarsamtaka. — Síðan segir, að störf SA-Asíubandalagsins hafi einkum miðað að því að hefta útbreiðslu kommúnismans á bandalagssvæðinu, enda reki kommúnistaflokkarnir þar öfluga og skipulagða starfsemi. FSufningar austan Fjalis mjjög erfiðir vegna snfóa Hvar er Pal Maleter? NEW YORK, 13. marz. — Aðalfulltrúi Bandaríkja- manna hjá S. Þ., Henry Cabot Lodge, hefur beint fyrirspurn til Ungverjalandsnefndar S.Þ. um það, hvort henni sé kunn- ugt um, hvar Pal Maleter, frelsishetja Ungverja, sé nið- ur kominn. í bréfinu segir ennfremur, að allur heimur- inn beri kvíðboga fyrir því, hvernig þróun mála hefur verið í Ungverjalandi síðan Rauði herinn bárði niður frelsishreyfingu þjóðarinnar. Er síðan bent á, að ástandið þar fari síversnandi. 20 ár frá .Anschluss' VÍNARBORG, 12. marz. — f dag voru 20 ár liðin síðan Hitler sendi þýzkt herlið inn í Austur- riki og innlimaði það í Stór- Þýzkaland. Austurríski herinn veitti enga mótspyrnu. Blöðin í Austurríki minnast þessara atburða með löngum greinum og er þar lögð áherzla á það, að árás nazista á Austur- ríki hafi aðeins yerið forleikur að siðari heimsstyrjöldinni. Er því m.a. haldið fram, að ef aust- urríski herinn hefði barizt, hefði hann fengið stuðning frá Bretum og Frökkum og heimsstyrjöldin hefði brotizt út þá þegar. En helzta ástæðan fyrir því að Schushigg þáverandi forsætisráð- herra gaf ekki fyrirskipun um að skjóta var sú, að Austurríkis- menn og Þjóðverjar eru bræðra- þjóðir. Heildarfiskafli á s.l. ári 436,327 lestir HEILDARFISKAFLI nam á s.l. ári 436,327 lestum, þar af voru 155,547 lestir togarafiskur, segir í skýrslu Hagtíðinda um fisk- afla á árinu 1957. Til frystingar fóru 179.855 lestir af fiski, til söltunar 77,667 lestir og til herzlu 34,477 lestir. Til vinnslu í verk- smiðjum fóru 78,315 lestir af síld, en 27,155 lestir af síld til sölt- unar og 12,023 lestir af síld til beitufrystingar. Mest aflaðist af þorski eða 201,160 lestir. Af síld öfluðust 177,494 lestir, 61,522 lestir af karfa, rúmlega 20 þús. lestir af ýsu og 14,376 lestir af ufsa. Vélræn móttaka veðurskeyta A ráðstefnunni var rætt um fjarskiptaþjónustu fyrir flugsam- göngur og einnig um veðurstof- ur. Samkvæmt ákvörðun þessa fundar verður fjarskiptakerfið gert sjálfvirkt að miklu meira leyti en áður hefir verið. Að því ®r ísland varðar munu ákvarð- anir þessa fundar valda því að móttaka veðurskeyta verður vél- ræn að mestu leyti í framtíðinni. Fréttamaður Mbl. átti tal við full- trúa íslands á fundinum um það bil er honum lauk. Kváðu þeir að hingað til hefðu veðurskeyti ▼erið send með morse til íslands, en því verður breytt þannig að skeytin verða send með sjálf- virkum „teleprinter", svo sem þegar tiðkast milli flestra Ev- 2 millj. dollara Bandaríkjamenn tilkynntu á fundinum, að þeir mundu leggja fram 2 millj. dollara til styrktar Filippseyingum, Thailendingum og Pakistansbúum. Ástralíumenn hétu 2 millj. punda framlagi og Bretar og Frakkar lofuðu einnig að styrkja þessar þjóðir, svo að þær gætu bætt tæknimenntun sína. i rópulanda. Kostir þess eru auk- inn hraði í skeytasendingunni, á að gizka þrisvar sinnum meiri en með gömlu aðferðinni. Er áætlað að um 1960 verði öll veð- urskeytaþjónusta til íslands kom- in í þetta horf. Mun það hafa í för með sér að ekki verður þörf á nema tæpum helming þess starfsfólks við veðurskeytaþjón- ustuna sem nú er. Útvarpað viðstöðulaust Þá var og afráðið á ráðstefn- unni að innan skamms verði far- ið að útvarpa veðurskeytum til flugvéla viðstöðulaust allan sól- arhringinn af segulbandi, en fram að þessu hafa þau aðeins verið send á vissum tímum. Mun þessi nýbreytni einnig hafa áhrif á þróunina á Islandi. ggs. Aðaláherzla á efnahagsmálin Samþykkt var, að bandalagið þyrfti nú að leggja höfuðáherzlu á efnahagsmálin, ef frjálsar þjóð- ir ættu að standa kommúnistum á sporði í þeim efnum, enda raekju þeir öflugán efnahagsáróð ur í Asíulöndum. Væri hinn efna hagslegi þátáur aðildarríkjanna nú engu ómerkari en hernaðar- hliðin. Var bent á, að frjálsar þjóðir þyrftu að vera vel á verði, ef þær ættu að geta barizt af al- efli gegn undirróðri kommúnista í Asíu. Bandalagsríkin þyrftu að efla samstarfið við svonefnd hlut- laus ríki, en jafnframt er varað við háskalegri stefnu þeirra, því að þau væru ekki alltaf nægilega á verði, þegar kommúnistar ættu í hlut. MANILA, 13. marz. — Frétta- menn segja, að það hafi verið vandamál fyrir ráðherrana á Manilafundi SA-Asíubanda- lagsins að fjalla um Indónesíu málin. Ástæðan sé sú, að ekki sé um annað að ræða en veita uppreisnarmönnum og and- kommúnistastefnu þeirra lið eða horfa aðgerðarlaus upp á Jakartaherinn brytja þá nið- ur og færa um leið Sovét- stjórninni landið á silfur- bakka. Stjórnmálamenn á Filippseyj- um segja, að hér sé um hið mesta alvörumál að ræða. Indónesía liggi aðeins um 1000 km frá Filippseyjum og allt, sem þar STÖÐUGT þyngist færðin um héruðin fyrir austan Fjall, og mjólkurflutningarnir hafa síð- ustu daga verið svo erfiðir, að það hefur tekið fullan sólarhring að ljúka hverri ferð frá Selfossi um sveitirnar til að taka mjólk- ina og flytja hana til vinnslu í Flóabúinu. Flestár ef ekki allar ýtur, sem ræktunarsambönd bændanna í Árnes- og Rangár- vallásýslu eiga, eru stöðugt í gapgi við að halda opinni leið um sveitirnar, því að rikið sér aðeins um að halda þjóðvegun- um opnum. Er færðin nú orðin svo þung, að um vegina er ekki öðrum bílum fært en hinum öfl- ugustu mjólkurbílum frá Flóa- mannabúinu. í gærmorgun snemma kom lest mjólkui-bíla til Selfoss, og höfðu bílarnir verið að brjótast eftir mjólkmni í um 24 klst. Síðari hluta dags í gær fóru mjólkurbílarnir enn af stað. Von azt var til, aö þeir myndu kom- ■ast í allar sveitii’ aörar en Laug- ardal og Grimsnes ofanvert. Ekki var vitað, hve lengi bíl- arnir myndu verða í þessari ferð, en Guðbjartur Jónsson á Selfossi SiSEtfkSiiiispr á sl. ári nam rámlega 1,358 ffiiilj. Ir. Á sl. ári voru fluttar inn vörur fyrir rúmlega 1,358 millj. kr., að því er segir í febrúarhefti Hag- tíðinda. Mestur var innflutning- urinn frá Sovétríkjunum, ann- að ríkið í röðinni var Banda- ríkin, þ’iðja Bretland, fjórða V- Þýzkalarxd og fimmta Danmörk. Innfluttar vörur frá Sovétríkj- unum námu rúmlega 278 millj. kr., frá Bandaríkjunum rúmlega 182 millj. kr., frá Bretlandi rúm- lega 158 millj. kr„ frá Vestur- Þýzkalandi rúmlega 104 millj. kr. og frá Danmörku rúmlega 95 millj. kr. Mest var flutt inn af eldsneyti, smurningsolíum og skyldum efnum eða fyrir ríflega 256 millj. kr. Flutt voru inn flutningatæki fyrir rúmlega 138 millj. kr., garn, álnavara, vefnaðarmunir o. þ. h. fyrir rúmlega 117 millj kr. og vélar aðrar en rafmagnsvélar fyrir rúmlega 110 millj. kr. Macmillan fer til Wasliington LUNDÚNUM, 13. marz. — Tilkynnt var í Washington í kvöld, að Macmillan mundi ræða við Eisenhower í Hvíta húsinu í júní næstkomandi. — Búizt er við, að fundur þeirra verði 9.—10. júní. gerist, snerti mjög SA-Asíulönd- in öll. Þeir benda á, að ef Sukarno vinnur sigur á uppreisnarmönn- um verði stjórn hans enn háðari kommúnistum en áður og svo mun fara, að þeir gleypi landið með húði og hári. Filippskir fréttamenn í Indónesíu segja, að nú horfi illa fyrir uppreisnar- mönnum á Mið-Súmötru. Frétta- maður, sem er nýkominn frá Padang, segir, að uppreisnarmenn séu illa búnir vopnum og því ósennilegt, að þeir geti veitt stjórnarherjunum mikið viðnám, en þeir séu staðráðnir í að berjast til þrautar og megi því gera ráð fyrir, að mikið blóð eigi eftir að fljóta, áður en Sukarno hefur náð því takmarki sinu að eyða sveit- um uppreisnarmanna. sagði í samtali við Mbl. í gær- kvöldi, að vonir stæðu til, að bíl- arnir yrðu ekki jafnlengi í þess- um leiðangri og í þeim siðasta. Færðin á öllum vegum Árnes- og Rangárvallasýslu er nú þann- ig, að þeir verða bráðófærir, ef skafrenning gerir. Guð- bjartur sagði, að vegagerðin væri að senda fleiri ýtur þangað aust- ur, t.d. væru báðar ýturnar, sem verið hafa við Skíðaskálann, á leiðinni austur yfir Hellisheiðina í gærkvöldi. Það mun ekki held- ur veita af að hafa nægan véla- kost austan heiðarinnar því að ekki hefur unnizt tími til þess að ryðja þjóðvegina nema að litlu leyti, og aðeins þannig, að þeir eru slarkfærir fyrir stóra mjólk- urbíla. Hvalfjörður mjög þungfær Fréttamaður Morgunblaðsins átti í gær tal við Kristján Guð- mundsson hjá vegamálastjórn- inni og spuröi hann um færð á vegum á Suðvesturlandi. Kristján sagði, að ýtur vega- gerðarinnar sem sendar voru í fyrradag til að vinna á veginum í Hvalfirði, hefðu orðið að snúa við norðan fjarðarins, en þar var geysimikill snjór, einkum hjá Bláskeggsá og hlíðunum hjá Þyrli. í gærmorgun fóru nokkrir stórir bílar af stað héðan úr bænum og átti að reyna að opna Hvalfjörð fyrir þá. Mun það hafa tekizt. Um Borgarfjörð er mjög þung- fært. Friðrik Þórðarson í Borg- arnesi tjáði blaðinu í gær, að það- an væri fært austur að Hítará og upp að Svignaskarði, en vart öllu lengra. Er mikill skafrenn- ingur á þessum slóðum. Undan- farið hefur að sögn Kristjáns Guðmundssonar yfirleitt verið unnt að brjótast eftir aðalvegun- um á öflugum bílum. Krýsuvíkurvegurinn er sæmi- lega fær austur í HveragerðL — Soraya Frh. af bls. 1 hennar segja, að hún muni reyna að afla sér frægðar sem leikkona, ef hjónabandið fer út um þúfur. Nú þegar hefur hún fengið all- mörg tilboð um að leika í kvik- myndum. í síðustu fregnum af þessu undarlega máli, sem vakið hefur heimsathygli, segir, að síðar í þessari viku muni verða gefin út yfirlýsing í Teheran, þar sem því verði lýst yfir, að Soraya hafi verið svipt drottningarnafnbót- inni og gerð að „almennum borg- ara“. Hún fær greiddar 10 millj. riala (um 3 millj. ísl. kr.). Allt hefur mál þetta komið eins og reiðarslag yfir Persa, sem héldu að keisarinn og drottning hans hefðu lifað í hamingjusömu hjónabandi. Aldrei hafa þeir vit- að til þess, að skugga hafi borið á sambúð þeirra þau sjö ár, sem þau hafa verið gift. Auðvitað hafa allir vitað um ófrjósemi drottningar, en það hefur ekki haft nein úrslitaáhrif fyrr en nú. — Drottningin hefur undanfarið orðið fyrir allmikilli gagnrýni í íran; hún hefur (af hirðinni) verið sögð stolt og ósveigjanleg og sé það arfur frá þýzkri móður hennar og auk þess hafi hún alltaf litið niður á aðra og verið þess fullviss, að hún bæri af öllum dauðlegum mönnum. Talsmaður stjórnarinnar hefur sagt, að ekki geti komið til mála að drottning hitti mann sinn aftur. . . . ★ I fréttum frá Köln í gærkvöldi, segir, ad Soraya sé nú að leggja af stað í stutta heimsókn til Xeheran. Hafi hún keypt farmið- ann í dag. Fréttamenn túlka þetta á þá leið, að innan skamms verði gefin út opinber tilkynning um skilnað keisarans og drottn- ingar. Vélrœn móttaka ve&ur- skeyta í framtíðinni Rætt um fiarskiptaþjónustu á fundi í Genf GENF, 11. marz. — Dagana 24. febrúar til 8. marz var haldinn hér í Genf sameiginlegur fundur Evrópusvæða ICAO, alþjóðlegu fjarskiptastofnunarinnar og WHO, alþjóðlegu veðurfræðistofnun- arinnar. Fundinn sóttu tveir fulltrúar af hálfu íslands, þeir Hlynur Sigtryggsson forstöðumaður Veðurstofunnar á Keflavík- urvelli og Bjarni Gíslason stöðvarstjóri í Gufunesi. Erfitt að taka afstöðu með Sukarno í Indónesíu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.