Morgunblaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 19. marz 1958 — Grein sr. Jóhanns Framhald af bls. 11 iastheldni við nauðsynleg lög- mál í sérhverju starfi. Skarpskyggnir menn, eins og Berggrav biskup, hafa tekið eftir þvi að köllunarstarf manna varð- veitir oft það siðgæði, sem ríkis- vald, skóli og kirkja vanraekja eða gera lítið úr. Rikisvald og stjórnmálamenn skírskota til þroska, samvizkusemi, sannfær- ingar, árvekni og áhuga og ann- arra siðgæðislegra mannkosta, en vanrækja grundvöllinn að uppcldi þessarra mannkosta með æskunni. Það verður þjóðfélag- inu til bjargar að köllunarstarf manna vekur oft þá samvizku, sem skóii og kirkja hafa svæft. •En þó verður árangurinn ekki allt af góður, eins og gefur að skilja. Sumir menn eru hinir mestu sæmdarmenn við vinnu sína fimm daga vikunnar. En þegar lögrnál vinnunnar hættir að kalla um helgar, þá fórna þeir öllu á altari skemmtana og nautna og eru snauðir og aumir næsta mánudag, þegar lögmál vinnunn- ar kallar á þá með boðorðum sínum. Þetta er alkunnugt lög- mál, sem margir hafa séð í fram- kvæmd. Ef atvinnuleysi verður langvarandi, þá veldur það sál- rænni þjáningu margra og einn- ig spillingu sumra. Enn er eitt dæmi þessu til skýringar: Hraust- ir og heilbrigðir slæpingjar, sem ekki vilja vinna, þótt verkefnin blasi við, eru jafnan spilltpstu menn sérhvers þjóðfélags. Sömu lögmál gilda einnig í lífi safnaða. Starfandi söfnuðir eru venjulega hamingjusamir og þróttmiklir. Þeir vinna erlendis að kristniboði og mörgum öðrum líknar- og mannúðarmálum í mörgum deildum, lesa Biblíuna, sækja málfundi, sumir starfrækja skóla. Við guðsþjónustur biðja þeir bænir sameiginlega eftir •sömu helgisiðabók og prestur notar sjálfur, játa trúna svo sem einn maður væri, syngja af lífi og sál. En iðjulaus söfnuður með lokaðan munn, sem ekki virðist kunna að nota bækur (og hefir ekki helgisiðina í höndum sér) hlýtur að verða daufur og ves- ældarlegur af því að starfslögmál lífsins kemur honum ekki til hjálpar. Trygging lýðræðisins Eins og samvizkan verður jafn- an að vera vakandi í menningar- legu lífi og starfi, þannig verður hún einnig að vera á verði ef lýðræðið á að lifa. Ef samvizka þcgnanna kafnar undir einhverju fargi, hvort sem það er farg múg- sefjandi og annarra siðdeyfandi áhrifa eða farg einliliða þekking- arhyggju (intellektúalisma), þá hefir lýðræðið enga tryggingu. Náttúruvísindin draga nú að sér athyglina með hraða eldflaug- anna. Mannvísindin mjakast á- íram hægt og hægt, eíns og fót- göngulið. En hættan á ósigrum nútímamannsins er ekki handan við brautir gervitunglanna, held- ur á jörðu niðri. Hér, en ekki þar, eru hin erfiðustu viðfangs- efni. Þau þarf stöðugt að leysa á ný með hverri kynslóð. Til skilnings og greiningar eru sálarfræði og félagsfræði mjög nauðsynlegar, svo auðið sé að fá rétta mynd af þeim fyrirbærum, sem á ferðinni eru á hverjum tíma, til þess að menn skilji hvert stefnir. En siglingatækin og kjölfest- una verður að minu viti siðfræð- in að leggja til. Og það verður æ auðveldara með aðstoð ann- arra mannvísinda. Þetta er við- urkennt af mörgum hugsandi mönnum. í stjúrnarskrá sumra frjálsra landa má rekja sum á- hrifin beint til John Looke og heimspeki hans, sem undirstrik- ar samhengið milli lögmáls Guðs, samvizkunnar, mannlegrar skyldu og mannréttinda. Mennta- menn Noregs og Bandaríkjanna hafa miklu meiri mætur á stjórn- arskrá sinni en við höfum á okk- ar stjórnarskrá, vitna oft í hana og kynna sér samhengið ræki- lega. En það er ekki nóg að frjálst lýðræði byggi tilveru sína á samvizkusömum hugsuðum. Það verður einnig að eiga til- veru sína undir samvizkusemi þegnanna; andlegri sameign þeirra, sem aldrei má verða að dauðum bókstaf, Vakandi, upp- lýst, næm og nákvæm samvizka er ekki aðeins kirkjunni nauð- synleg, heldur engu síður ríkinu, sem byggir tilveru sína og stjórn- arfar á þjónustu, réttindum og skyldum. Það er illa farið ef æskan lær- ir ekki bæði jákvætt og neikvætt hvað hér er í húfi. Jákvætt þarf hún að læra hvað í hugtökunum felst og hvaða samband sé á milli þeirra og hvaða ávexti ekki ÞINGSALYKTUNARTILLAGA Sigurðar Ó. Óiafssonar og Ingólfs Jónssonar um eftirgjöf hallæris- lána hefir orðið nokkurt umræðu efni í dagblöðum að undanförnu. í fyrstu var sagt frá ummælum Páls Zóphóníassonar á Alþingi, er tillagan var þar til umræðu, sem mörgum þóttu undarleg, en þar talaði hann m. a. um auð bænd- anna og litia þörf á fullri eftir- gjöf lánanna. Bóndinn á Laugarvatni, Bjarni Bjarnason skólastjóri, vill fyrir alla muni forða sér og stéttinni allri frá því að heita betlari. Guð- mundur bóndi á Kópsvatni einnig, en telur þörf mikilla endurbóta á innheimtunni, og rökstyður til- lögu um það, já, og aðra til vara. Það eru þannig tveir bændur og einn vinnumaður, sem opinber- lega hafa — svo mér sé kunnugt — mælt gegn tillögu þeirra Sig- urðar og Ingólfs, og vilja með því forða bændastéttinni frá ægilegri smán. Nokkrir bændur, sem trúlega eru ekki eins vandir að virðingu sinni og stéttarinnar, hafa aftur á móti mælt eindregið með sam- þykkt tiUögunnar. Hér veröur þetta margrædda lánamál ekki rakið ýtarlega, að eins bent á örfá atriði. Á árunum fyrir og um 1950 fengu bændur á Austur- og Norð austurlandi nokkra fjárhæð úr ríkissjóði vegna óþurrka og vor- harðinda, og mun öllum hafa þótt sjálfsagt. Haustið 1955, þegar séð var hverjar yrðu helztu afleiðingar hinna stórkostlegu óþurrka hér sunnanlands, veitti ríkisstjórnin nokkrar milljónir króna úr ríkis- sjóði til að forða stórfelldri fækk un nautgripa, strangri mjólkur- skömmtun, innflutningi búvara í stórum stíl o. s. frv. Um þetta voru víst einnig allir sammála, að væri knýjandi þjóðhagsleg nauosyn. Yar þó öllum ljóst, að hér var aðeins bættur hlutf af því tjóni, sem bændur urðu fyrir, þar eð engin hækkun varð á söluverði búvaranna vegna vegna óþurrkana, en hækkun framleiðslukostnaðar auðvitað mjög mikil. (Verðlag landbúnað- arafurða er, eins og allir vita, við það miðað, að bændur skrimti í meðalári) Óhætt mun að fullyrða, að óþurrkar slíkir sem voru sumarið 1955, jafnist á við algert aflaleysi á vetrar- vertíð. Ætli bátaflotinn þyrfti þá nokkurn styrk? Jú, sennilega, og þætti engum mikið. Og svo mætti á það drepa, að einmitt um sama leyti — haustið 1955 — þegar rætt var um hallærislán til bændanna, fengu síldarsalt- endur á Suðvesturlandi nokkrar milljónir úr ríkissjóði. Ekki vegna þess að síldin veiddist ekki, heldur vegna þess að hún veidd- ist. Síðar veiddist meiri síld, og saltendur fengu fleiri milljónir. Allir voru á einu máli um, að þetta væri nauðsynlegt og sjálf- sagt. Hvað um endurgreiðslu? Jú, þegar bændur eiga í hlut. Þeir eru auðugir, og bændavinirnir miklu — foringjar Framsóknar- flokksins — geta ekki til þess hugsað að stéttin verði smánuð með niðurlægjandi betli. Bjarni á Laugarvatni talar um betl. Páll Zóphóníasson um f jár- hagsþroska og manngildi. Báðir láta þeir hæversklega í það skína, má vanta. Neikvætt þarf hún að vita um afleiðingar múgmennsku, lögmálsfyrirlitningar, sálsjúk- legra fyrirbæra og léttúðugs mats á sígildum verðmætum. Það, sem oft er meginljóður á fram- ferði æskumanna, er að þeir hafa blátt áfram ekki glímt við að hugsa um annarra manna rétt en sinn eigin. En þeir eru venju- lega fljótir til að skilja þetta ef málið er skýrt fyrir þeim. Og þetta er nauðsynlegt að skýra og skilja lýðræðisins vegna. Það á allt sitt undir því að mönnum sé ljóst hvað frelsi undir ábyrgð er í raun og veru. að margt hafi þeir vel gert fyrir íslenzkan landbúnað. Ég vil taka eindregið undir það , síðarnefnda með þeim. Hitt er þó jafnvíst að með fjandskap sín- um við áðurnefnda þingsályktun artillögu eru þeir að þjóna póli- tískri lund sinni, en ekki land- búnaðinum. Að vísu er fjálglega um það | talað, að þeir fátæku, þeir, „sem skulda meira en nemur eignum þeirra“ (P. Z. Tíminn 29. nóv. ’57), — og þeir munu raunar nokkuð margir þrátt fyrir heiðar legar tilraunir til að gera okkur ríka á pappírnum — skulu sleppa að einhverju eða jafnvel öllu leyti. Þá hefir lífsskoðunin líka mik- ið að segja. Páll Zóphóníasson segir nefnilega orðrétt í Tíman- um 29. nóv. 1957:....og fer þá mikið eftir lífsskoðun lántakenda hvað gert verður ..." Svo er nú það. En þeir auðugu, sem viðkom- andi hreppsnefndir hafa af ein- hverri óskiljanlegri glópsku út- hlutað af áðurnefndu fé, eiga ekki að sleppa. Hverjir eru þessir auðugu? Ég held að því verði bezt svarað með ummælum merks framsóknarþingmanns, þegar ónefndur kommúnisti hafði ráðizt harkalega að bændastétt- inni og meðal annars látið svo ummælt að ríku bændurnir ættu að fá ca. þriðjungi lægra verð fyrir afurðir sínar, en þá var skráð. Framsóknarþingmaðurinn svar aði eitthvað á þessa leið. Þegar kommúnistar tala um ríka bænd- ur hljóta þeir að eiga við þá, sem enn hefur tekizt að halda upp- kornnum börnum sínum heima við bústörfin, — þrátt fyrir pen- ingaflóð þéttbýlisins — og geta því íramleitt meira en einyrk- inn. Svona er kveðjan, sem komm únistar senda unga fólkinu í sveit unum .... Nú er þetta breytt. Kveðjan kemur frá Framsóknarforingjun- um. Hið eina, sem ríkisstjórnin getur gert, vilji hún firra sig vanvirðu í þessu máli, er, að láta með öllu niður falla innheimtu hallærislánanna. En fari hins vegar svo að við fáum kveðjuna, þá er það vissu- lega trú mín að sunnlenzkir bændur fari að dæmi stéttar- bræðra sinna á Austur- og Norð- austurlandi: AÐ ÞEIR LÁTI EKKI KÚGA SIG TIL ENDUR- GREIÐSLU Á JAFNSJÁLF- SAGÐRI STYRKVEITINGU. Miklaholtshreppi, 5. febrúar 1958. Einar Eiríksson. Iðnskólanum á Pal- reksfirði slilið PATREKSFIRÐI, 15 marz. — Iðnskólanum á Patreksfirði var slitið með hátíðlegri athöfn í sam komuhúsinu Skjaldborg á mið- vikudagskvöldið, kl. 18. Sjö nem- endur voru í skólanum, _þar af ein stúlka. Luku allir nemend- urnir prófinu upp úr öðrum bekk. Hæstu einkunn hlaut Gylfi Guðbjartsson, járnsmíðanemi, 8,74 stig. Skólastjóri var séra Tómas Guð mundsson, sóknarprestur á Pat- reksfirði. Ólöf Cuðrún Minningarorð I DAG verður gerð írá Fossvogs kirkju útför Ólafar Ólafsdóttur frá Stórhólmi í Leiru. Ólöf andaðist í Sjúkrahúsinu í Keflavík að morgni mánud. 10. þ.m. eftir stutta legu. Ólöf Guðrún Ólafsdóttir var fædd 18. ágúst 1896 í Keflavík í Rauðasandshreppi, dóttir hjón- anna Ólafs Guðbjartssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Hún ólst upp í foreldrahúsum að Hænu- vík í Rauðasandshreppi, en þang- að höfðu foreldrar hennar flutzt, þegar hún var á barnsaldri. Þar átti hún heima til ársins 1920, er hún fluttist til Reykjavíkur. Árið 1929 giftist Ólöf Guð- mundi Bekk Björnssyni, starfs- manni við Laugarnesspítala, síð- ar húsverði við Miðbæjarbarna- skóiann, og eignuðust þau hjónin einn son, Albert Bekk, sem nú er skipverji á Dettifossi. Mann sinn missti Ólöf eftir aðeins fjög urra ára sambúð. Hann fórst af slysförum árið 1933. Árið eftir giftist hún Kjartani Bjarnasyni, sjómanni í Reykjavík, og bjuggu þau um þriggja ára skeið á Þórs- götu 15, en árið 1936 keyptu þau jörðina Stórhólm í Leiru. Þar hafa þau rekið búskap með reisn og myndarbrag um meira en tvo áratugi. Þau hjónin Kjartan og Ólöf eignuðust þrjú börn, eina dótt- ur, Sigrúnu, sem er afgreiðslu- stúlka hjá Kaupfélagi Suður- nesja í Keflavík og tvo syni, Guð mund og Bjarna, eru þeir báðir í heimahúsum. Mig setti hljóða, er ég frétti að mín trygga vinkona Ólöf Ólafs- dóttir væri látin. Lóa var hún kölluð af okkur vinum hennar. Við kynntumst fyrir nokkrum ár um og samfundir okkar urðu á þann veg, að upp frá því varð hún mér sem bezta móðir. Sumt fólk, sem á vegi okkar verður á lífsleiðinn er þannig gert, að það sáir í kringum sig gleði og friði, hvar sem það fer um foldu. Slíku fólki er það áskapað að lyfta umhverfinu á bjartara svið, sveipa burtu drunganum og skuggunum líkt og sólstafir, er brjótast gegnum regnský. Þessu fólki er ekki erfitt að afla sér trausts annarra, því að svo virð- ist, sem það sé sent í mannheim til þess að vera öðrum styrkur og hjálparhella. Þannig kom Lóa mér fyrir sjónir. Ætíð var hún reiðubúin að rétta hjálparhönd hverjum, sem þurfti og hvernig sem á stóð fyrir henni sjálfri, og ekki sizt þeim, sem minni matt- ar voru, hvort heldur það voru menn eða málleysingjar, því að ekkert aumt mátti hún sjá. Svo gjafmild var hún og kærleiksrik, að slíks eru fá dæmi. Ófáir munu þeir, er þegið hafa gjafir úr hönd um hennar, þótt hún sjálf vildi aldrei neitt um slíkt taia. Þótt hún annaðist heimili sitt af ein- stakri umhyggjusemi sem fyrir- myndar húsmóðir, ástrík eigin- kona og móðir, þá gaf hún sér á- vallt tíma til þess að fara frá heimili sínu, ef hún vissi af ein- hverjum erfiðieikum meðal Ólafsdóftir þeirra, sem hún þekkti, til þess að hjálpa þeim eða verða þeim að liði á einhvern hátt. Lóa var félagslynd kona. Öll- um menningar- og mannúðarmál um vildi hún leggja lið. Hún var trúuð kona, kirkjurækin og söng- elsk, og trygglynd var hún og vinföst svo af bar. Við vinir hennar söknum henn ar sárt, en minningin um þessa góðu og fórnfúsu konu er dýr- mætur fjársjóður, sem við varð- veitum í hjörtum okkar. Ég þakka þér, Lóa, tryggð þína og sanna vináttu frá fyrstu kynn- um og ástvinum þínum votta ég dýpstu samúð mína. Vinkona. Frú Ólöf Guðrún Ólafsdóttir, Stórhólmi, Leiru. F. 18. ág. 1896. D. 10. marz 1958 Rósirnar fölna oft fljótt, er frostvindur næðir um grund. Komin oft niðdimm er nótt þá nær virðist miðdegisstund. Við skiljum ei skaparans ráð. Skiljum ei jarðlífsins dvöl. Allt mun það alkærleiks náð. Eins það, er veldur oss kvöl. Eg vonaði, vina mín kær, að við myndum aftur hér sjást. Hug mínum harmurinn nær er ég heyri að vonin sú brást. Minning þín mild er og hlý svo mér fellur tárdögg á kinn. Því nú er sem skuggarik ský skyggi á blómvöndinn þinn. Ég minnist svo margs er ég naut því mjög oft ég dvaldi hjá þér. Ég gleði og hamingju hlaut er hlúðir þú ástríkt að mér. Ég kem, og í huga þig kveð við knýtt höfum vináttu-bönd. Nú við það ég, vina, mig gleð að við hittumst ljóssins á strönd. Guðrún Ingimundardóttir. Beituskurðarvél HERRA Kjartan Fr. Jónsson kom til mín í febrúar og bað mig að prófa fyrir sig beituskurðarvél sem hann hefir fundið upp og smíðað sjálfur. Ég skar svo með vélinni í nokkra daga, og eru það beztu róðrarnir sem við höfum íengið á vertíðinni. Það er stað- reynd að það getur enginn mað- ur skorið síld með hníf eins jafnar og góðar beitur og vélin sker. Ég óskaði eftir því við uppfinn. ingamanninn herra Kjartan Jóns son að hann gerði lítilsháttar breytingar á vélinni til þess að létta og auka afköst hennar. Það hefur tekið nokkurn tíma fyrir Kjartan að verða við þess- ari ósk minni því hann hefir verið bundinn við sjóróðra hér á Akranesi (vélamaður á bát.) En nú hefir Kjartan lagfært vélina eftir minni ósk og er vélin kjörgripur. Hún sker 600 (sex hundruð) beitur á mínútu af fros inni síld og eru allar beiturnar jafnstórar, en haus og sporð- blöðku aðskilur vélin frá beit- unni sjálfri. Það tekur ekki nema ca. 30 mínútur að skera síld á 45 stampa af beittri linu og er því óhætt að fullyrða að vélin spari mönnum við beitingu 12 tíma í vinnusparnað og er það milljón króna sparnaður ef reikn að væri með því að vélin væri notuð á öllum bátum íslenzka fiski-flotans sem róa með línu. Ég tel það skyldu fiskimálastjóra og sjávarútvegsmálaráðherra að sjá svo um að beituskurðarvél þessi verði fjölda framleidd ekki einlivern tíma heldur strax (tafar laust). Beituskurðarvélin sker allar síldarbeiturnar jafnstórar og með því sparast milljónir króna á eyðslu sildar, því menn meö hníf skera alltaf misjafn- lega stórt. Á þessari kjarnorku- og tækni öld höfum við íslendingar engin efni á því að nota ekki fullkomna tækni til lands og sjávar. Akranesi 3. marz 1958. Iljálmar Thedótrsson landformaður m.b. Fiskaskaga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.