Morgunblaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 18
18
MORCVIVBT.AÐIÐ
Miðvikudagur 19. marz 1958
Fulltrúar á Búnaöarþingi 1959. Fremsta röð: Pétur Ottesen, Þorsteinn Sigurðsson, Steingrímur Steinþórsson, Gunnar Þorðarson.
2. röð: Benedikt Grímsson, Þorsteinn Sigfússon, Jón Sigurðsson, Kristján Karlsson, Einar Ólafsson, Egill Jónsson, Jóhannes
Daviðsson, Eggert Ólafsson, Benedikt Líndal, Sigmundur Sigurðsson, Ketill Guðjónsson, Guðmundur Erlendsson, Gunnar Guð-
bjartsson, Ásgeir L. Jónsson, skrifstofustjóri B. í. 3. röð: Kristinn Guðmundsson, Sigurður Snorrasona, Ingimundur Ásgeirsson,
Þórarinn Kristjánsson, Sveinn Jónsson, Baldur Baldvinsson, Jón Gíslason, Ásgeir Bjarnason, Bjarni Bjarnason, Páll Pálsson,
Garðar Halldörsson og Ragnar Ásgeirsson, skrifari þingsins.
Frá Búnaðarþingi
Búnaðarháskóli verði slofnaður á Hvanneyri
Slúdenlspróf ekki skilyrði lil inngöngu
Þingslil lara Iram í dag
1 GÆR lauk afgreiðslu mála þeirra er að þessu sinni verða af-
greidd á Búnaðarþingi, en aðeins er eftir þingslitafundur og hefst
hann kl. 9.30 í dag.
Þingið hefur nú staðið frá því 20. febrúar og hefur haldið 24
íundi, þingskjöl eru rúmlega 100 og um 400 ræður hafa verið flutt-
ar á þinginu.
Búnaðarháskólamálið
í gær afgreiddi þingið 7 mál.
Atkvæðagreiðsla fór fram um
búnaðarháskólamálið og var á-
lyktun meirihluta allsherjar-
nefndar samþykkt, en ályktun
minnihlutans felld, svo og voru
allar breytingatillögur felldar.
Meirihlutaályktunin var sam-
þykkt með 18 atkvæðum gegn 5
en tveir sátu hjá. Allir þingfull-
trúar voru mættir við atkvæða-
greiðsluna. Viðhaft var nafna-
kall. Já sögðu: Ásgeir Bjarnason,
Baldur Baldvinsson, Benedikt
Grímsson, Benedikt H. Líndal,
Bjarni Bjarnason, Egill Jónsson,
Garðar Halldórsson, Guðmundur
Erlendsson, Ingimundur Ásgeirs-
son, Þórarinn Kristjánsson, Jón
Sigurðsson, Ketill Guðjónsson,
Kristinn Guðmundsson, Páll Páls
son, Sigmundur Sigurðsson, Sig-
urður Snorrason, Sveinn Jónsson
og Þorsteinn Sigfússon. Nei
sögðu: Eggert Ólafsson, Einar
Ólafsson, Jóhannes Davíðsson,
Jón Gislason og Kristján Karls-
son. Hjá sátu: Gunnar Guðbjarts
son og Hafsteinn Pétursson.
Ályktun meirihluta allsherjar
r.efndar er samþykkt var hljóöar
svo:
„Búnaðarþing telur brýna
þörf á, að kcnnsla í búvisind-
um hérlendis verði efld og
aukin frá því, sem nú er, og
að henni verði komið í það
horf sem bezt gerist á Norður
löndum og í Bretlandi.
,Til þess að sá árangur náist,
telur Búnaðarþing nauðsyn
legt:
1. Að stofnaður verði fullkom
inn búnaðarliáskóli hériend
is og hann staðsettur á
Hvanneyri.
2. Að skilyrði til inngöngu i
búnaðarháskólann verði:
a. Búfræðipróf og dvöl í sveit
a.m.k. tvö ár eftir 1G ára
aldur.
b. Stúdentspróf eða jafngildi
þess í íslenzku, stærðfræoi,
dönsku og ensku auk lands-
prófs.
3. Að háskólanámið standi
þrjú ár og teknir verði nem
endur í skólann á hverju
ári“.
binflutningur og ræktun
holdanauta
Þá fór fram atkvæðagreiðsla
um innflutning og ræktun holda
nauta. Felld var breytingartil-
laga um innflutninginn með 17
atkv. gegn 8, en samþykkt að
hefja skipulega ræktun þess
holdanautastofns, sem fyxir er í
landinu með 21 ssrmhljóða at-
kvæðum.
Álag á áburð
Samþykkt var ályktun varð-
andi frumvarp til laga um álag
á áburð til eflingar hagfelldari
áburðarnotkun með 16 atkv.
gegn 4. Felur þessi ályktun í sér
að lagt verði i/2% á áburð þann
er bændur kaupa og því fé var-
ið til fyrrgreinds verkefnis.
Útrýming mæðiveiki
Þá var og samþykkt tillaga til
þingsályktunar um útrýmingu
mæðiveiki í fjái-skiptahólfi Suð-
ur-Dala, Mýrasýslu og á austan-
verðu Snæfelisnesi með 19 sam-
hljóða atkvæðum. Ályktunin
hefur verið birt hér í blaðinu.
Framleiöslumál
Svofelld tillaga um framleiðslu
mál landbúnaðax-ins var sam-
þykkt með 23 samhljóða atkvæð-
um:
„Búnaðarþing lýsir ánægju
sinni yfir þeirri framleiðslu-
aukningu landbúnaðarvara,
sem orðið hefir á undanförn-
um árum og ályklar að halda
beri áfram á þeirri braut.
Ennfremur telur Búnaðar-
þing sig fylgjandi þeirri
stefnu Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, sem fram kom |
verðlagningu búvara s.l.
hausts og beinir því til Fram
leiðsluráðs, að gæta þess við
verðlagningu búvara framveg
is, eftir því sem fært er, að
verðlagið á hverjum tíma örfi
framleiðslu þeirra búvöruteg-
unda, sem seljast fyrir hag-
kvæmast verð á erlendum
markaði, miðað við fram-
leiðslukostnað. Enda verði
jafnan tryggt, að fullnægt
verði neyzluþörfinni innan-
lands“.
Hefting sandfoks
Ályktun um frumvarp til laga
um heftingu sandfoks og giæðslu
lands var samþykkt með 19 sam-
hljóða atkvæðum. Talsverðar
umræður hafa orðið um þetta
mál á þinginu og þá einkum um
þann lið er snýr að álagningu á
búfé bænda, sem svaraði 1 kr. á
kind og 10 kr. á kú og hross. Enn
fremur er gert ráð fyrir öðrum
fjárlagaleiðum í frumvarpinu,
sem einnig gerir ráð fyrir mjög
KÖRFUKNATTLEIKSMÓTI ís-
lands var haldið áfram síðastliðið
mánudagskvöld. Voru leiknir
tveir leikir í meistaraflokki
karla. Fyrri leikurinn var á milli
a-liðs Körfuknattleiksfélags
Reykjavikur og íþróttafélags
Reykjavíkur, — KFR sigraði með
45 stigum gegn 41 stigi. Síðari
leikuiúnn var á milli KR og
b-liðs KFR. Lauk leiHnum með
sigri b-liðsins, 44 stig gegn 23
stigum.
ÍR-ingum veitti betur í byrjun
leiksins. Þeir léku léttar og
ákveðnai'a en andstæðingarnir.
KFR-liðið var nokkuð sundur-
laust í fyi'stu og einstakir leik-
menn hikandi í varnarleiknum,
sem var maður gegn manni.
Einkum veittist Geir erfitt með
Helga Jóhannsson, sem skoraði
tvær fyrstu körfur leiksins. KFR
skorar siðan þrjú stig, og leikar
Istanda 4:3 ÍR í vil eftir fimrn
aukinni herferð gegn uppblæstri
og eyðingu lands.
Gert er ráð fyrir l!/2% álagi
á allar tóbaksvörur sem renni
til þessarar starfsemi. Búnaðar-
þing gerði tillögur um að fella
niður skattinn á búpening. Var
í þessu sambandi bent á að á
þessu þingi hefði vei'ið gert ráð
fyrir svo miklum álögum á
bændur að ekki væri fært að
hafa þær meii'i þar sem þegar
væri gert ráð fyrir álagi á áburð
og auknu framlagi til Búnaðar-
málasjóðs til styrktar hinni stóru
byggingu B. í. og Stéttarsam-
bands bænda við Hagatorg.
Fjáröflun til hússbyggingar
Svofelld ályktun var samþykkt
út af erindi byggingarnefndar
B.í. og Stéttarsambands bænda
varðandi fjáröflun til húsbygg-
ingar:
„Búnaðarþing ályktar að
fela stjórn Búnaðarfélags ís-
lands að vinna að því, að lög-
um um stofnun búnaðarmála
sjóðs verði breytt þannig að
sett verði í lögin ákvæði til
bráðabirgða svohljóðandi:
„Á árunum 1958—1961 að
báðum meðtöldum skal greiða
minútur. KFR kemst nú yfir og
eftir 9 mínútur standa leikar 9:8
þeim í vil. ÍR-ingar taka aftur
forystuna og halda henni út hálf-
leikinn, sem endar 23:21.
ÍR-ingar auka forskotið strax
í byrjun seinni hálfleiks. Eftir 10
mínútna leik hafa þeir náð 7 stiga
forskoti og leikar standa 38:31.
KFR liðið gefur sig hvargi, og
Guðmundur Georgsson og Þórir
Arinbjarnarson skora 6 stig í röð
fyrir liðið. Enn skorar ÍR, —
leikar standa 40:37 fyrir ÍR og
fimm mínútur eftir af leik. KFR
skorar fjögur stig, en Helgi Jó-
hannsson jafnar úr víti. Þá skor-
ar Gunnar Sigurðsson körfu af
löngu færi, og litlu síðar bætir
liðið annarri körfu við, vegna
mistaka í vörn ÍR. Ekki eru fleiri
stig skoruð, og KFR sigrar þenn-
an spennandi leik með 45 stiguni
gegn 41 stigi.
Guðmundur Georgsson fyrir-
14% viðbótargjald af söluvör
um landbúnaðarins, sem um
ræðir í 2. gr. og rennur það
til Búnaðarfélags íslands og
Stéttarsambands bænda, til að
reisa hús félaganna við Haga-
torg í Reykjavík yfir starf-
semi þeirra. Skal fénu skipt
milli þeirra eftir hlutfallinu
tveir á móti einum. Um álagn
ingu og innheimtu gjaldsins
gilda sömu reglur og um bún
aðarmálasj óðsg j'ald“.
Felld var breytingartillaga frá
Ingimundi Ásgeirssyni og Baldri
Baldvinssyni um að y3 þessa
aukagjalds gengi til starfsemi
búnaðarsambandanna. Aðaltil-
lagan var samþykkt með 21 at-
kvæði gegn 2 en 2 sátu hjá.
Miklar umræöur urðu um
þetta mál.
Relslákvæði vegna
landhelgisbrola
EINS og skýrt var frá í Mbl. á
sínum tíma, lagði Páll Zóphónías-
son fram snemma á því Alþingi,
er nú situr, frv. um refsingar
fyrir landhelgisbrot. Vill hann,
að skipstjórar séu — auk sekta
— látnir sæta sviptingu skip-
stjórnarréttinda á íslenzkum skip
um um 1 árs skeið eftir fyrsta
brot, en ævilangt eftir annað
brot.
Mál þetta var rætt í haust og
sent sjávarútvegsnefnd efri
deildar til athugunar. Þótti flutn-
ingsmanni hún fara sér hægt í
að afgreiða það og kvartaði yfir
því á þingi fyrir nokkrum vik-
um. Nú hefur nefndin skilað
áliti. Segir þar m. a.:
„Að athuguðu máli getur nefnd
in ekki fallizt á réttmæti eða
nauðsyn þess, að lögfestar verði
tvenns konar refsingar fyrir
landhelgisbrot, þannig að þær
verði vægari gagnvart erlendum
skipstjórnarmönnum en íslenzk-
um ....“ Hins vegar taldi hún
ástæðu til að endurskoða refsi-
ákvæði varðandi mál af þessu
tagi og lagði til, að málinu væri
vísað til ríkisstjórnarinnar.
Umræða fór siðan fram í gær.
Sló þá í brýnu milli Björgvins
Jónssonar, framsögumanns nefnd
arinnar og Páls Zóphóníassonar,
en við atkvæðagreiðsluna var
samþykkt að vísa málinu til
stjórnarinnar með 10 atkv. gegn
þremur.
liði KFR var bezti maður vallar-
ins. Vart hefur sézt betri leikur
hjá einstaklingf í þessu móti. Guð
mundur skoraði 16 stig í leikn-
um og öll úr erfiðri stöðu. Helgi
Jóhannsson átti góðan leik fram-
an af og skoraði sjö stig á fyrstu
10 mínútum leiksins. Guðmundur
Georgsson tók þá við af Geir
Kristjánssyni að gæta Helga, og
skoraði hann einungis eitt stig
eftir það. Stig KFR skoruðu:
Þórir Arinbjarnarson 15 stig,
Gunnar 6, Guðmundur Árnason
og Geir 4 hvor, og svo Guðmund-
ur Georgsson 16 stig.
Fyrir ÍR skoruðu: Steinþór 13
stig (þar af 11 stig í fyrri hálf-
leik), Heigi Jónsson 5 stig, Lárus
6, og Ingi Þór ð stig.
Seinni leikinn sigraði b-lið
KFR gegn KR með yfirburðum.
Kom b-lið KFR á óvart í þessum
leik. Var almennt búist við auð-
unnum sigri KR, enda tapaði lið-
ið leiknum gegn a-liði KFR með
einungis fimm stiga mun.
Á föstudagnn verður mótinu
haldið áfram og er það næstsíð-
asta leikkvöldið. Fyrri leikurinn
verður á milli IKF og KFR en
sá síðari milli b-liðs KFR og ÍR.
Keppnin hefst klukkan 20 að Há-
logalandi.
Körfuknaftleiksmótið :
KFR vann ÍR 45:41
í hörkaspennandi leik