Morgunblaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 13
Miðvikudaeiir 19 mar? 1958 M OK C.T’iVRT 4Ð1Ð 13 Frá Búnaðarþingi: Ályktanir um búnabarháskóla og rœktun holdanauta verða atgreidd- ar frá Búnaðarþingi MÖRG mál voiu til afgreiðslu á Búnaðarþingi í gær. Samþykkt var eftirfarandi til- laga um áburðarframleiðslu: „Búnaðarþing ályktar, að til öryggis íslenzkum landbúnaði sé nauðsynlegt, að hið allra fyrsta verði áburðarfram- leiðsla aukin í landinu, .svo fullnægt verði þörfum land- búnaðarins, með aðaltegundir þess áburðar, sem jarðvegur- inn þarfnast. Beinir Búnaðarþing þeim eindregnu tilmælum til ríkis- stjórnarinnar, að nú þegar verði veitt fjárfestingarleyfi, svo hefjast megi handa um framkvæmdir á þessu ári. Búnaðarþing óskar þess, að stjórn Áburðarverksmiðjunn- ar h/f geri sitt ýtrasta til að fyrrgreindu marki verði náð sem fyrst, m. a. með því að reist verði nú þegar viðbótar- verksmiðja, sem framleiði fosfórsýruáburð ,og blandaðan áburð“. Þá var samþykkt eftirfarandi ályktun um innflutning á korni: „Búnaðarþing ályktar að beina þvi til stjórnar Búnað- arfélags íslands að láta rann- saka hvort hagkvæmt sé að flytja ómalað korn til lands- ins og hverra aðgjörða sé þörf, til þess að koma þvi i framkvæmd. Ennfremur að niðurstöður þeirrar rannsóknar verði birt- ar opinberlega“. Ennfremur var samþykkt svo- felld élyktun um aukna veður- farsþjónustu í þágu landbúnaðar- ins: „Búnaðarþing álítur, að framkvæmd 2.—5. liðs til- lagna á þskj. 64 um aukna þjónustu Veðurstofunnar í þágu landbúnaðarins muni hafa mikla þýðingu fyrii bændur og framþróun land- búnaðarins. Telur Búnaðar- þing nauðsynlegt, að sam- vinna sé á milli tilrauna- stööva landbúnaðarins og Veð urstofunnar um framkvæmd þessara mála eftir því sem v'ð verður komið. Ennfremur er æskilegt að búnaðarsambönd- in, hvert á sínu svæði, séu með í ráðum við framkvæmd 2. og 5. liðar (sérstaklega staðsetn- ing stöðva) og greiði fyrir málinu eftir því, sem ástæður leyfa. Jafnframt leggur Bún- aðarþing áherzlu á, að ríkis- stjórn og Alþingi sjái Veður- stofunni fyrir nægilegu fjár- framlagi til að sinna þessum verkefnum“. Þá var til fyrri umræðu tillaga til þingsályktunar um útrýmingu mæöiveiki í fjárskiptahólfi Suð- ur-Dala-, Mýrasýslu og á austan- verðu Snæfellsnesi. — Svofelld ályktun var samþykkt til síðari umræðu. Talsverðar umræður urðu um ályktunina: „Vegna þess að enn hefur ekki tekizt, að þvi er víst má telja, að útrýma mæðiveiki úr sauðfé landsmanna, ályktar Búnaðarþing að skora á Sauð- fjársjúkdómanefnd að gera þegar á þessu ári svofelldai ráðstafanir, enda verður að treysta því, að fjárveitinga- valdið leggi til þess nauðsyn- legt fé: 1. Að tryggja, svo sem fram- ast má verða, allar varnar- girðingar og öll hlið umhverfis svæði það, sem telja má eftir öllum líkum að nú sé sýkt. Tvöfaldaðar verði girðingar, þar sem þær eru einfaldar og hinar, sem nú eru tvöfaldar, gerðar upp að nýju, og verðir settir, þar sem þess kynni að vera þörf, svo hindraðar verði allar fjársamgöngur við svæð- ið á meðan núverandi ástand helzt. 2. Að skipta umræddu svæði með girðingum, einni eða fleirum, og búa á þann hátt undir fjárskipti, sem haf- in yrðu þegar á næsta hausti, eftir að mæðiveiki yrði þar vart að nýju“. Þá var og afgreidd ályktun um innflutning varahluta til land- búnaðarvéla. Engar breytingar voru gerðar við hana frá fyrri umræðu, en henni hefur verið lýst hér áður. Þá var samþykkt svofelld ályktun um breytingu á girðing- arlögunum: „Búnaðarþing ályktar að skora á stjórn Búnaðarfélags íslands að vinna að því við landbúnaðarráðherra, að hann skipi nefnd þá, sem lagt er til í ályktun í máli nr. 32 frá síð- asta Búnaðarþingi. Jafnframt beiti hún sér fyr- ir því, að nefndin, þegar skip uð verður, taki til athugunar frumvarp til laga um breyt- ingu á girðingarlögum, sem nú liggur fyrir Alþingi. Enn- fremur verði tekin upp álykt- un um breytingu á girðingar- lögum í máli nr. 6 frá síðasta Búnaðarþingi og auk þess önn ur þau ákvæði girðingarlag- anna, sem ásíæða þykir til að tekin verði til meðferðar, eink- anlega þau atriði, sem snerta afréttargirðingar". Samþykkt var svofelld ályktun um slátrun stórgripa: „Búnaðarþing skorar á Framleiðsluráð landbúnaðar- ins að vinna að því við slátur- leyfishafa, að málum verði þannig skipað, að því er stór- gripaslátrun snertir, að hægt verði að afnema á næsta ári bráðabirgðaákvæði laga um kjötmat nr. 5, frá 22. febrúar 1949“. Þá var til síðari umræðu frum- varp til laga um búfjártrygging- ar. Mælt var gegn ályktun þeirri er búfjárræktarnefnd hafði látið frá sér fara og henni vísað frá með rökstuddri dagskrá og talið nauðsynlegt að vinna áfram að málinu með tilliti til þess að alls- herjartrygging komist á um land allt. Breytingartillaga kom fram við ályktun búfjárræktarnefndar um ræktun holdanauta, en henni hef- ur áður verið lýst hér í blaðinu. Felur hún í sér að skipuleg rækt verði upp tekin á holdanauta- kyni því, sem hér er þegar til í landinu. Breytingartillagan hljóð ar svo: „Fyrirsögn málsins orðist svo: Tillögur um innflutning og ræktun holdanauta. Framan við ályktunina komi eftirfarandi, sem verði fyrri- hluti: 1. Búnaðarþing telur, að ekki megi niður falla barátta fyrir innflutningi hreinrækt- aðra holdanauta, og vill í því sambandi benda á umsögn dr. Hammonds, hins þekkta búvís indamann, sem kom hingað til lands sl. sumar að tilhlutan Búnaðarfélags íslanús, Fyrir því skorar Búnaðar- þing á stjórn Búnaðarfélags fs lands að beita sér fyrir því, að innflutningur á holdanautum verði leyfður". Atkvæðagreiðslu um málið var frestað. Síðasta málið á dagskrá fund- arins var búnaðarháskólamálið og varð á þessum fundi umræðu lokið um það en atkvæðagreiðslu frestað. Eijis og áður hefur verið frá skýrt komu fram tvær ályktan- ir frá meiri- og minnihluta alls- herjarnefndar. Það sem fyrst og fremst skilur á milli er staðarval og undirbúningur málsins. Meiri- hlutinn vi)l hafa skólann á Hvanneyri, en minnihlutinn vill hafa hann sem deild við Háskóla íslands og athuga betur undir- búning málsins, m. a. með tilliti til kostnaðar. Fram eru nú komnar þrjár breytingartillögur. Asgeir L. Jónsson og Bjarni Bjarnason flytja brtill. um að undirbúnings menntunin miðist við kunnáttu i einhverju Norðurlandamálanna, þar sem gert er ráð fyrir dönsku í ályktunum beggja nefndarhluta, svo og að gagnfræðaprófi verði bætt við. Kristján Karlsson og fleiri flytja breytingartillögu um að stúdentspróf verði gert að inn- tökuskilyrði í væntanlegan bún- aðarháskóla, og Baldur Baldvins- son flytur breytingartillögu við álit meirihluta- allsherjarnefndar um að aðeins verði tiltekið að búnaðarháskólinn verði í sveit, en ekki endilega á Hvanneyri. Miklar umræður urðu enn um þetta mál og fer iram atkvæða- greiðsla um það í dag. Fundir hefjast að nýju á Bún- aðarþingi kl. 9.30 i dag. Emilía frammi fyrir speglinum að byrja að klæðast gervi þeirrar tannhvössu: — Á ég að brosa til hægri, vinstri — eða kannske beint? (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) „.. til skiptis tannhvoss og blíð“ Leiðrétting X frétt blaðsins frá Búnaðar- þingi, sem birtist sl. sunnudag, var sagt að mikið hefði verið rætt mamman um verðmismun mjólkurafurða og kjöts og talið að sauðfjáraf- urðir hefðu orðið afskiptar í verðlagningu. Þess skal getið hér að Einar Ólafsson, sem sæti á i Framleiðsluráði, taldi að það væri ekki rétt að sauðfjárafurð- um væri mismunað í verðlagi. ÞEIR, sem séð hafa „Tannhvassa tengdamömmu" eru sennilega sammála um það, að tengda- mömmur gerast ekki öllu tann- hvassari nú til dags. Fréttamað- 1 Mbl. og ljósmyndari gerðu sér ferð út í Iðnó um helgina til þess að athuga hvort tengda- væri í rauninni jafn tannhvöss og orð fer af — og fóru að tjaldabaki. En báðir sann færðust fljótlega um það, að sennilega væri leit að jafnblíðri og skemmtilegri tengdamömmu og Emilíu, því að hún er raun veruleg' tengdamanna, á tvo tengdasyni og fimm barnabörn — „og það er svo spennandi“, segir hún og brosir blítt. . Engu að síður þykir Emilíu Jónasdótiur gainan að fara með hlutverk þeirrar tannhvössu — „ég verð aldrei ieið á þvi. Mér finnst hver sýning vera sú fyrsta enda þótt þær séu nú orðnar 112 — og ég skemmti mér alltaf jafnvel“. í sannleika sagt, þá er það ekkert smáræði: 112 sýningar. Að vísu hafa ekki allar sýning- arnar farið fram hér í Reykja- vík, þv að Emilía fór með tengdamömmu-hlutverkið í „Tannhvassri tengdamömmu" norður á Akureyri á vegum ieik félagsins þar í vetur. Nyrðra var ekki slegið slöku við, því aS »ým ingar voru þar 16 á 14 dögum — og þar lék Emilía tengdamömm- una í 100. sinn. Þá var mikið um dýrðir, Emilía var hyllt veglega — og frá meðleikendum barst henni m.a. kvæði mikið skraut- ritað. Var það eftir Pál Helga- son og hljóðar síðasta vísan svo: Vér óskum af öllu hjarta að auðnist þer langa tíð í sviðsljósi björtu að skarta til skipiis tannhvöss og blíá. „Tannhvoss tengdamamm»“ var frumsynd í Iðnó 30. janúar í fyrra. Leikfélagið hefur sý»t hana 14 sinhum úti á landi, an hinar sýningarnar hafa allar fac- ið fram í Iðnó. 100. sýningin ver8 ur því jafnframt sú 86. hér í Lx» — og verður það nýtt met í sögu Leikfélagsins. Aldrei fyrr hefur félagið sýnt neitt leikrit jafnlengi í einu Frænka Charleys var sýnd 85 sinnum, Kjarnorka og kvan- hylli 71 sinni og Gullna hliðið sinnum. En 100. sýningin í Iðnó verðui' jafnframt 116. sýning Emilíu í hlutverkinu á rúmu ári — og er pví óhætt að segja, að Emilía hafi staðið sig vel i hlut- verki þeirrar tannhvössu, jafn- mikil indælis tengdamanna og hún hiýtur annars að vera Loftur Bjarnason, pípu- lagningameistari minning í DAG verður jarðsettur i Foss- vogskirkjugarði Loftur Bjarna- son, meistari í járnsmíði og rör- lagningum, sem andaðist 11 þ.m. Fæddur var Loflur á Kirkju- bóii í Hvítársíðu 1. október árið 1881. Faðir hans, Bjarni Lofts- son frá Þúfu í Kjós var af Lofts- ætt, sem löngum hefir verið kennd við Háls í Kjós. Bræður Bjarna voru Jón bóndi á Haf- þórsstöðum í Norðurárdal og Loilur í Bollagörðum á Seltjarn- arnesi. Bjarni Loftsson flutti upp í Borgarfjörð fyrir 1870 og dvaldi þar síðan. Kona hans og móðir Lofts var Valgeröur Jóns- dóttir frá Síðumúlaveggjum í Hvitársíðu, Jónssonar frá Snarta stöðum, Ólafssonar í Geirshlíð Guðmundssonar og er sú ætt allfjölmenn í Borgarfirði. Bjarni og Valgerður voru á ýmsum stöðum í uppsveitum Borgarfjarðar. Um tíma var Bjarni ráðsmaður hjá sr. Guð- mundi Helgasyni í Reykholti, en síðast mun hann hafa verið á Vatnsenda í Skorradal. Loftur Bjarnason ólst upp með föður sínurn. Var um tíma á unglingsárum á Grund í Skorra dal og hélt tryggð við það heim- ili ævilangt. Tvítugur að aldri fór hann til Reykjavíkur og átti þar heima síðan, nema tvö ár, er hann dvaldi á Eyrarbakka. Hann lærði járnsmíði hjá Þorsteini Jónssyni járnsmið og stundaði járnsmíði lengi og síðan rörlagn ingar og var meistari í báðum iðngreinum. Loftur Bjarnason var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Anna Kristín f. 1880 d. 1944. For- eldrar hennar voru Kristófer Bárðarson frá Flesjustöðum i Kolbeinsstaðahreppi og Ástríður Jónsdóttir frá Uppsölum í Hálsa sveit. Kristófer og Ástriður brunnu inni í húsinu Bergþórug. 14 í Rvík 1937, bæði háöldruð. Loftúr og Anna Kristín áttu tvær dætur. Önnur þeirra, Ásta Valey, er dáin fyrir nokkrum ár- um. Hin dóttir Lofts er Laufey húsfreyja við Andakílsárvirkj- un í Borgarfirði, gift Sigurði Guð mundssyni 1. vélstjóra við virkj unina. Seinni kona Lofts, er hann kvæntist 1951, er Helga Sigurbjarnard. frá Grund í Svínadal í Húnavatnssýslu. Upp eldisdóttir Lofts er Hrafnhildur Þorleifsdóttir og býr hún í Hafn- arfirði. Loftur Bjarnason var um margt merkur maður og vel gerS ur, bæði anaiega og líkamlega. Hann var iorustumaður og braut ryðjandi í félagiskap stéttar sina ar og naut þar áliis og virðingar. Hann \ ar ágætur féiagsmaður, starfsfús og hugkvæmur, sam- vizkusamur og öruggur, þó á móti blts: Hann var ágætlega hagmæltur og lét oft fjúka í kviðiingum. Oftast var það lipurt og ;étt, en i;<.nn átti lÍKf. til að yrkja niyrki og þungskilið og þótu þá ga.nar. að dýru rími og erfiðu. Hann var vel að sér i sögu og bókmenntum þjóðar sinnar, ramíslenzkur í hugsun og máli, þjóðlegur og þjóðrækinn. Kvæða maður var hann allmikill og kunni fjöiua gamalla rímnalaga enda músíkalskur og hafði yndi af söng og hljóðfæraslætti. Ég var nin síðustu ár í íélags- skap með Lofti Bjarnasym í tveimur ieiögum í Reykjavík, Kvæðamannaiélaginu Iðunni og Borgfirðingafélaginu. Þar kynnt- ist ég og n-ut hinna góðu kosta hans, sem nms góða og trausta félaga, alltaf var tilbúinn til stai'is . j taf mátti treysta. Veit ég ..ó ég má fyrir hönd P6^-- i, þakka honum nú að iaiu.. n, fyrir samstarfið og mar. -.nægjulegar samveru stundir um leið og við sendum ekkju n-....a, dóttur og öðrum að- standendum samúðarkveðjur við fráfall þessa ágæta manns. ' ' 'ti. lllugason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.