Morgunblaðið - 19.03.1958, Side 19
Miðvikudagur 19. marz 1958
MORCVNBLAÐIÐ
19
— Auka þarf eftirlif
Frh. af bls. 3
Ráðherrann sagði seint í ræðu
sinni, að yfirskoðunarmenn ættu
að verða eins konar yfirráðherr-
ar. Þetta er alger misskilningur.
Þeir eiga ekkert fjárveitingavald
að hafa, en aðeins að vera til
eftirlits, svo að ekki verði gengið
of langt í því að fara fram úr
fjárlögum eins og verið hefur.
Þá sagði ráðherra, að það væri
fjarstæða, að fela yfirskoðunar-
mönnunum eftirlitið. Það er
atriði, sem um má deila, enda
ekki aðalatriði málsins. En hitt
skiptir meginmáli, að það séu
þingkjörnir menn, sem hér hafa
eftirlit, en ekki menn, sem flestir
eru á vegum framkvæmdavalds-
ins, eins og gert er ráð fyrir í
stjórnarfrumvarpi, sem nú liggur
fyrir þinginu, og snertir nokkuð
þetta mál.
Miða á við sjóðsyfirlit
Fjármálaráðnerra las hér
skýrslu um umframgreiðslur
allt frá árinu 1924. Miðaði hann
við hundraðshluta. Ég teldi rétt-
ara að fram kæmu krónutölurnar
sjálfar, og myndi þá sjást, að um-
framgreiðslurnar hafa á einu ári
nýlega orðið meira en 10 sinnum
hærri en öll fjárlögin voru, þeg-
ar Eysteinn Jónsson var fyrst
fjármálaráðherra. Jafnframt má
geta þess, að öll útgjöld á sjóðs-
yfirliti fjárlaga voru 12 millj. kr.,
þegar Eysteinn Jónsson var fyrst
fjármálaráðlierra 1934. Skv. áætl-
un um útgjöld ríkissjóðs og út-
flutningssjóðs á árinu 1957 námu
þau 1243 millj. kr. eða 103 sinn-
um meiru en 1934. Útreikningar
á prósenthækkun hefur því
minna að segja en tölurnar sjálf-
ar, sem um er að fjalla.
Þá miðaði ráðherrann við
rekstrarreikninginn. Það tel ég
alrangt. Reikna verður með það
fé, sem fer til framkvæmda og
lána. Það eru vissulega útgjöld,
enda með á fjáraukalögum
Mismunandi ástæður
Segja má, að sumar ástæðurn-
ar til umframgreiðslanna séu
eðlilegar. Umframgreiðslur vegna
vegaviðhalds eru t. d. allt annars
eðlis en umframgreiðslur vegna
fjölgunar á starfsliði.
En svo ber þess að minnast, að
umframgreiðslur eru á ýmsum
fleiri sviðum. Alþingi leggur t. d.
mikla vinnu í það á ári hverju,
að skipta niður fé til nýbygginga
vega. Er þar hver fjárveiting
hnitmiðuð. En svo eru ákvæði
fjárlaga um þessi efni ekki virt
eins og vera ætti, og ríkisstjórn-
in raskar öllu því samræmi milli
vega og byggðarlaga, sem þingið
hafði ákveðið.
Ég hygg, að menn ættu að
vera sammála um, að við þá
spillingu — því að svo nefni ég
ástandið að því er umframgreiðsl
urnar varðar — sem nú er, verffi
ekki unað. Ég hef aflað mér upp-
lýsinga um þær greiðslur, sem
bæjarsjóður Reykavíkur hefur
að undanförnu innt af höndum
umfram fjárhagsáætlun. Þar er
um að ræða aðila, sem stjórnar-
—- Landhelgin
Frh. af bls. 1.
nauðsynlegum verndarráðstöfun
um væri ekki nægilegur til að
fullnægja kröfum allra þeirra,
sem fiskveiði stunduðu á svæð-
inu.
1 slíkum tilfellum kvað hann
ósanngjarnt að leggja sams kon-
ar takmarkanir á fiskveiðar
strandríkis, sem byggði afkomu
sína á veiðunum og á fiskveiðar
útlendinganna. Þá ætti strandríki
að sjálfsögðu að hafa forgangs-
rétt.
Um þessi vandamál öll fjalla
nú sérfræðingar, en þó er ekki
eftir neinu að bíða um lausn
þeirra. Ræðumaður lagði áherzlu
á að Islendingar vildu ekki
skerða frelsi hafsins með tillög-
um sínum né hindra siglingar. En
það sé stórlega mikilvægt fyrir
íslendinga, að fiskveiðilögsagan
sé sem rýmst.
12 mílur verði aðalreglan
Vandamálið er aðeins að
finna, hvar takmarkalínan á
að vera. Lýsti Hans G. Ander-
sen því yfir að íslendingar
væru samþykkir tillögu Kan-
ada um 12 mílna fiskveiöiland
helgi, enda eru 12 sjómílur í
flestum tilfellum sanngjörn
takmörk íyrir fiskveiðilög-
sögu. Hvað viðvíkur okkur ís-
lendinga myndi slík regla ná
langt að fullnægja þörfum
okkar og við munum styðja
þá tiliögu sem aðalreglu, en
eins og ég tók fram áður telj-
um við' þó að þörf sé sérstakr-
ar reglu þegar um er að ræða
strandríki þar sem þjóðin
byggir afkomu sína á fiskveið-
um.
Ástralía samþykk
Fulltrúi Ástralíu í landhelgis-
nefndinni, John Hood, lýsti einn-
ig fylgi við tillögu Kanada um
12 sjómílna fiskveiðilandhelgi.
Hins vegar taldi hann að venju-
leg löggæzlulandhelgi ætti að
vera aðeins 3 mílur.
Á morgun mun Jón Jónsson,
fiskifræðingur, tala í landgrunns-
nefndinni og Davíð Ólafsson,
fiskimálastjóri, í fiskifriðunar-
nefndinni.
— Franska þingið
Framh. af bls. 1
Lögregla úr sveitunum
Öfgaflokkarnir bæði til hægri
og vinstri hótuðu að efna til mót-
mælafunda í dag vegna þessa
frumvarps og þar sem ríkisstjórn-
in telur sig ekki lehgrn- geta
treyst Parísarlögreglunni eftir
kröfugöngu lögreglumanna á
dögunum, ákvað hún að kalla
fjölmennt lögreglulið úr sveit-
unum til borgarinnar.
Stjórnin í hættu
Þótt stjórn Gaillards hefði bet-
ur í þessari atkvæðagreiðslu, eru
horfurnar ekki bjartar framund-
an, því að nú hótar íhaldsflokk-
urinn, sem ræður yfir 101 þing-
sæti og á þrjá ráðherra í stjórn-
inni að segja sig úr henni. Hót-
un þessa ber flokkurinn fram til
að mótmæla undanlátssemi í
Alsír-málinu, sem komi fram í
samningum við Bourgiba forseta
Túnis.
Umræður í Lista-
mannaklúbbflum
í KVÖLD hefjast hinar skipu-
lögðu miðvikudagsumræður í
Listamannaklúbbnum í baðstofu
Naustsins. í þetta sinn veðra þær
helgaðar myndlistinni og gagn-
rýnendum hennar. Málshefjend-
ur verða: Björn Th. Björnsson,
Helgi Sæmundsson og Hjörleifur
Sigurðsson. Síðan eru frjálsar
umræður.
Umræðuefni aæstu miðviku-
dagskvöld verða: Leiklist og leik-
dómarar, bæjaryfirvöldin og list-
irnar, útvarpið og listirnar, hljóm
listarlífið, sinfóníuhljómsveitin,
starfsemi Menningarsjóðs, lista-
mannalaunin o. fl.
Utvega frá Vestur-Þý/.kalandi og öðrum löndum:
SKIP OG BÁTA
af öllum gerðum og stærðum.
Snnfremur alls konar
VÉLAR OG ÁHÖLD
Leitið tilboða.
Dr. Magnús Z. Sigurðsson,
Hamburg 36/Colonnaden 5.
Verð staddur á Hótel Borg, Reykjavík til 25. þ.m.
liðum verður tíðrætt um og hefur
víðtækastan rekstur hér á landi
að ríkisrekstrinum frátöldum.
Þessar upplýsingar eru þannig:
1951: 3,3 millj. umfram áætlun.
1952: 2,12 millj. umfram áætlun. j
1953: 951 þús. undir áætlun.
1954: 1,4 millj. umfram áætlun.
1955: 779 þús. undir áætlun.
1956: 7,7 millj. umfram áætlun.
1957: 361 þús. undir áætlun.
Af þessu sést, að hér hefur
hyggilegar verið að farið en hjá
ríkinu. Og þar koma ekki öll
kurl til grafar, þótt fjárlög og
svo rekstrarreikningur eða sjóðs
yfirlit séu athuguð. Aukning
ábyrgða hefur verið gífurleg á
undanförnum árum og lánveiting
at hafa einnig keyrt úr hófi.
Hér er því svo komið, að gera
verður ráðstafanir til að spyrna
við fótum. Það er engin afsökun
hjá fjármálaráðherra, að aðrir
séu meðsekir.
Er hér var komið, var fundar-
tími deildarinnar úti og var um- j
ræðunni því fresta#, * •
Húsnæii óskast til kaugis
3ja herbergja íbúð á góðum stað í Reykjavík. Fyrsti
veðréttur þarf að vera laus.
Húsnæði á góðum stað í Reykjavík, sem hentugt
væri sem félagsheimili.
íbúiir til sölu
2ja og 3ja herbergja íbúðir í húsi í Hálogalands-
hverfinu, sem eru í byggingu. Hagstætt verð. And-
virði miðstöðvarlagnar (án ofna) og. utanhúss múr-
húðunar lánað til 2ja ára.
4ra herbergja fokheld hæð í Hálogalandshverfinu.
Skemmtileg teikning, fagurt útsýni.
Fasteigna & Vcrðbréfasalan,
(Lárus Jóhannesson hrl)
SuðurgötU 4, símar: 13294 oð 14314.
ATVINNA
Stúlka helzt vön verksmiðjuvinnu óskast. Æskilegt
að viðkomandi hafi reynslu í verkstjórn og vön að
sníða. Tilboð ásamt meðmælum ef til eru, serdist
Morgunblaðinu fyrir 22. þ.m. merkt:
Prjónastofa — 8909.
Hjartanlega þakka ég börnum mínum tengdabörnum
og öðrum vinum mínum nær og fjær, rausnarlegar gjafir,
skeyti og vinarhug mér auðsýndan á 70 ára afmælisdegi
mínum 10. marz.
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Magnúsdóttir.
Píptulagningarmenn
Munið minningarspjöld Styrktarsjóðs pípulagninga-
meistara. Minningarspjöld fást hjá Tryggva Gísla-
syni, sími 14371; Bergi Jónssyni, sími 11195;
Jóhanni Pálssyni, sími 33191.
VEGNA JARÐAREARAR
Kristínar Kristjánsdóttur verða sölubúðir okkar
lokaðar allau daginn á morgun, fimmtudag.
KJÖTBORG HF.,
Háaleitisvegi.
KJÖIBORG HF.,
Búðargerði.
Móðir okkar
AX.N’A BJARNASON
Suðurgötu 5, andaðist í gær, þriðjud. 18. þ.m.
Gunnar, Hjálmar oð Þorsteinn Bjarnason.
Systir okkar
UNNUR HELGADÓTTIR
frá Hjörsey andaðist 17. þ.m.
Halldóra Helgadóttir, Ólöf Helgadóttir,
Guðmundur Helgason.
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdámóðir
STEFANÍA TH. BJARGMUNDSDÓTTIR
andaðist í sjúkrahúsinu Sólvangi mánudaginn 17. marz.
Fyrir mína höndí barna og tengdabarna.
Hallmundur Sumarliðason.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
KRISTÍNAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Helluvaði fer fram frá Dómkirkjunni fimmtud. 20.
( þ.m. kl. 11 f.h.
Athöfnin hefst með húskveðju frá heimili hinnar látnu
Lokastíg 20, kl. 10 f.h.
Gunnar Erlendsson,
Aðalbjörg Sigfúsdóttir, Sylvia Sigfúsdóttir,
Hildigunnur Gunnarsdóttir, Jónas Gunnarsson.
Hjartkær eiginkona mín og móðir
MAGNEA HALLDÓRSDÓTTIR
frá Stokkseyri, sem andaðist í sjúkrahúsi Akraness 12.
þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
21. þ.m. kl. 1.30 e.h.
Jarðarförinni verður útvarpað.
Guðmundur Pálsson og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og jarðarför
SALVARAR HÁVARÐARDÓTTUR
frá Bolungarvík.
Guð blessi ylckur öll.
Börn hinnar látnu.