Morgunblaðið - 19.03.1958, Síða 20
VEÐRIÐ
SA gola eða kaldi,
Jiíðviðri, skýjað
66. tbl. — Miðvikudagur 19. marz 1958
Skólinn og æskan
Sjá grein á bls. 11.
Maður stórslasasl er hvell-
hetta sprakk í hóndum hans
Tók sprengiefni og hveliheftur af drengj-
um sem náð höiðu því í birgðaskemmu
STYKKISHÓLMI, 18. marz —
Það slys vildi til í Grafarnesi
í Grundarfirði s. 1. laugardag, að
maður að nafni Guðni Guðmunds
son, sjómaður þar á staðnum,
missti tvo fingur af vinstri hendi,
er hvellhetta sprakk í höndunum
á honum.
er í Grafarnesi, og var Guðni
því fluttur tafarlaust á báti til
Stykkishólms, þar sem héraðs-
læknirinn gerði að sárum hans.
Liggur hann nú í Sjúkrahúsi
Stykkishólms og líður vel eftir
atvikum. —Árni.
Standandi frá vinstri: Björn R. Einarsson, Sigurður Ólafsson,
Guðmunda Elíasdóttir, Árni Jónsson, Ólafur Magnússon, Gunn-
ar Kristinsson, Guðmundur Guðjónsson, Guðrún Á. Símonar,
I
jp Anna Bjarnason
FRÚ Anna Bjarnason, Suðurgötu
5, lézt að heimili sínu árla dags
í gær, 84 ára að aldri.
Anna Barnason var ekkja
Nikulaj Bjarnason, verzlunar-
manns, sem flestum eldri Reyk-
víkingum var að góðu kunnur,
en hann var um árabil afgreiðslu
maður Bergenska gufuskipafé-
lagsins. Hann lézt fyrir 10 árum.
Þau hjón bjuggu í Suðurgötu 5
frá því 1906 til dauðadags.
Anna Bjarnason var fædd á
ísafirði, dóttir Th. Thorsteins-
sonar kaupmanns.
Tók sprengiefni af drengjum
Tildrög slyssins voru þau, að
Guðni mætti tveim drengjum úr
þorpinu, sem komist höfðu inn í
birgðageymslu oddvitans á staðn-
um og náð þar í hvellhettur og
sprengiefni, sem geymt er þarna
vegna hafnarinnar. Tók Guðni
þetta af drengjunum og leiddi
þeim fyrir sjónir hve hættulegt
þetta væri.
Skipti það engum togum, að
meðan Guðni var að ræða við
drengina, sprakk hvellhetta í
höndum hans, með þeim afleið-
ingum að tveir fingur vinstri
handar tættust í sundur. Dreng-
ina sakaði ekki. — Enginn læknir
HeiSdaraflinii í Sand-
gerði rúml. 1000 S.
SANDGERÐI, 18. marz — Dag-
ana 1.—15. marz fóru bátar hér
yfirleitt 5—11 róðra og varð
heildaraflinn hjá þeim 158 tonn
á móti 197 tonnum á sama tíma
í fyrra.
Nú er heildaraflinn hér orðinn
rúml. 1000 á móti rúmlega 1300
tonna afla á sama tíma í fyrra.
Mesti afladagurinn á fyrr-
nefndu hálfsmánaðar tímabili
var 8. marz er Rafnkell kom með
23 tonn úr róðri og Guðbjörg
21,6 tonn.
Nú er hæsti báturinn hér Guð-
björg með 396 tonn, Muninmmeð
348,5, Víðir II. með 332 og jafnir
eru Pétur Jónsson frá Húsavik
og Rafnkell með með 227 tonn.
| Guðni Árnason |
GUÐNI Árnason, sem um margra
ára skeið var forstöðumaður Mat
ardeildarinnar í Hafnarfirði, and
aðist í gærmorgun að heimili
sínu, Lokastíg 13. Guðni var
þekktur borgari í Reykjavík.
Hann var 68 ára gamall.
Mesti afladagur-
inn í Ólafsvík
ÓLAFSVÍK, 18. marz. — Dagur-
inn í gær var mesti afladagur
vertíðarinnar, er meðalafli bát-
anna komst upp í 13,1 tonn. Bát-
arnir eru nú almennt að hefja
veiðar með net.
í gær voru 3 bátar á netum
og fékk sá þeirra sem mestan
afla hafði, Bjarni Ólafsson, 25,5
tonn og Glaður 15,5 tonn, en sá
þriðji var með lítinn afla. Línu-
bátarnir voru einnig með prýðis
afla og var Þorsteinn með mestan
afla 18,5 tonn, Jökull 17, Víking-
ur 16 og Fróði 15.
Þegar litið er á aflaskýrslur
eins og þær liggja nú fyrir frá
vertíðarbyrjun fram til 15. marz,
kemur í ljós að einn bátanna hér,
Jökull er með um 9 tonna meðal-
afla í róðri í 46 sjóferðum. Er
þetta talið nær einsdæmi í ver-
stöð við Breiðafjörð, en heildar-
afli bátsins er 417,5 tonn. Næst
kemur svo Hrönn með 334 tonn,
Víkingur 322, Fróði 316, Bjarni
Ólafsson 310 og Þorsteinn 303
tonn. — B. Ó.
Minkurinn hefur búið
um sig í Laxá í S.-Þing.
ÁRNESI, S-Þing. — Hér í Aðal-
dal hefur minks orðið vart í hólm
um í Laxá hjá Nesi og Árnesi.
Ekki er vitað um hvort um fleiri
dýr sé að ræða. Þetta er í fyrsta
skipti sem minks verður vart við
þessa miklu lax- og silungsá.
Mjög er talið erfitl að veiða
minkinn, ekki hvað sízt meðan
hann getur látið ís og snjó skýla
sér, þótt auðvelt sé að finna
bækistöðvar hans meðan hart er
um og í öðru lagi fara einstök
svæði árinnar aldrei undir ís á
vetrum. Ekkert dýr hefur enn
sem komið er verið unnið.
Hér við Laxá eru skilyrðin
fyrir mink hin ákjósanlegustu,
gnægð af silungi og laxi í ánni
og fjölskrúðugt fuglalíf.
Á Þórðarstöðum var mink ban-
að fyrir nokkru í kjallara húss-
ins! Hafði minkurinn leitað þar
hælis í tunnu.
í dölunum fram af Fnjóskadal
er allmikið um mink. Þessi vax-
andi útbreiðsla minksins í sýsl-
unni er mönnum áhyggjuefni.
Ríkir áhugi á því að róttækar
ráðstafanir verði gerðar af hálfu
þess opinbera og sveitafélaganna
til verndar nytjafiski í ám og
vötnum og hinu fjölskrúðuga
fuglalifi, sem óvíða er fjölskrúð-
ugra. —Hermóður.
Mæimsóttar-
bólusetningin
í FREGN af því í blaðinu
í gær að hér í bænum sé nú
hafin lokabólusetningin gegn
mænusóttinni, voru birtar rang-
ar upplýsingar um það hve lengi
fram á kvöld Heilsuverndarstöð-
in er opin í þessu skyni.
Var sagt í blaðinu að opið væri
framyfir klukkan 6 á kvöldin.
Þetta er rangt, því Heilsuvernd-
arstöðin getur ekki haft opið leng
ur vegna bólusetningarinnar en
til kl. 5 alla virka daga, nema
laugardaga þá er aðeins opið frá
kl. 9—12 á hádegi. Á það er lögð
áherzla að ljúka þessari almennu
bólusetningu fyrir lok þessa
mánaðar. Fer bólusetningin dag-
lega fram frá kl. 9—11 árd. og
1—5 síðd., nema laugardaga, sem
fyrr getur.
Jón Sigurbjörnsson, Þuríður Pálsdóttir og Ketill Jensson. Við
hijóðfærið er Magnús Pétursson. Á myndina vantar Kristin
Ilallsson, Einar Sturluson, Sigurveigu Hjaltested, Karl Guð-
mundsson og Gest Þorgrímsson.
W
77
Syngjandi páskar
á þri&judaffskvöld
F É L A G íslenzkra einsöngvara hefur undanfarin tvö ár efrtt til
söngskemmtana, sem það nefnir „Syngjandi páska“ og hafa notið
eþistakra vinsælda. — í fyrra voru alls haldnar 20 slíkar söng-
skemmtanir, 12 þeirra í Reykjavík, en hinar á Suðvesturlandi og
á Akureyri. Hefur ágóði af þessum skemmtunum runnið í félags-
sjóð. —
Á þriðjudaginn lcl. 23.15 efnir
félagið til fyrstu söngskemmtun-
ar á þessu vori, og ber hún enn
heitið „Syngjandi páskar1.. Koma
þar fram 15 söngvarar og leikar-
ar auk hljómsveitar Björns R.
Einarssonar og píanóleikarans
Magnúsar Péturssonar. Lothar
Grund hefur gert leiktjöld fyrir
sýninguna, sem verður hin fjöl-
breyttasta.
Skemmtunin skiptist i tvo hluta
sem hvor um sig verða samfelld
heild, þannig að dagskráin verð-
ui með nokkuð öðru sniði en áð-
ur. Efnið er að mestu tekið úr
óperettum og öðrum léttum söng-
leikum. Auk þess flytur Karl
Guðmundsson einn af sinum al-
kunnu skemmtiþáttum. Á dag-
skránni verða alls 20 atriði, og er
þar að finna marga þekkta og
skemmtilega söngva, sem menn
munu áreiðanlega hafa ánægju
af í hinum nýstárlega búningi
.Syngjandi páska.‘.
Ópera við Þjóðleikhúsið
Á fundi við fréttamenn í gær
ræddi Bjarni Bjarnason læknir,
formaður Félags íslenzkra ein-
söngvara, nokkuð um framtíðar
áform féiagsins. Kvað hann meg
intakmark félagsins vera það að
búa betur að íslenzkum söngvur
um og helzt að stuðla að því, að
óperuflutningur verði fastur lið-
ur í menningarlífi bæjarins.
Hann kvað félagsmenn hafa
sérstakan áhuga á fastri óperu
við Þjóðleikhúsið, og hefði það
mál verið rætt við menntamála
ráðherra. Auk þess heíði Ragn-
hildur Helgadóttir og fleiri þing-
menn borið fram þingsálylctunar
tillögu um málið í fyrra, en hún
lægi enn hjá fjárveitinganefnd.
Kvað hann félagið óánægt með
þann drátt sem orðið hefði á af-
greiðslu málsins. Einnig kvaðst
hann harma það, að þjóðleikhús
st.jóri væri andvígur hugmynd-
inni um fasta óperu við Þjóðleik
húsið.
Rök fyrir óperustarfsemi hér
Bjarni Bjarnason ncfndi ýmis
rök sem styddu þessa hugmynd.
Óperur væru mjög vinsælar með-
al almcnnings og sérlega vel sótt
ar, þannig að Þjóðleikhúsinu
mundi verða fjárhagslegur styrk
ur að þeim. Auk þess væri vel
hægt að láta fastráðna söngvara
taka þátt í öðrum leiksýningum,
því margir þeirra hefðu leikhæfi
leika og sumir menntun á því
sviði. Þá bæri að líta á það, að
fastráðnir í söngvarar mundu
syngja ókeypis á hljómleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Er bezt að Iæra sænsku?
Bjarni kvað leitt til þess að
vita, að góðir íslenzkir söngvarar
sæju enga aðra leið til að lifa á
list sinni en setjast að erlendis.
Ef þessu færi fram yrði aldrei
hægt að ala hér upp góða söngv
arastétt. í þessu sambandi minnt
ist hann á þann leiða sið Þjóð-
leikhússins að ieita alltaf út fyr-
ir landsteinana, þegar ópera eða
óperetta er sett á svið hér. Við
höfum ekkert á móti Svíum,
sagði hann, og okkur er kært að
fá hingað heimskunna söngvara,
en þegar sóttir eru söngkraftar,
sem ekki standa okkar fólki fram
ar, verður að átelja það.
Þá kvað hann það sjálfsagt
réttlæti, að íslenzkum söngvur-
um væri gefinn kostur á að fara
utan til frekari menntunar þegar
erlendir menn væru fengnir hing
að.
Söngvararnir sem viðstaddir
voru tóku undir orð formanns-
ins, og sumir létu þess getið, að
eina ráðið til að fá hlutverk við
Þjóðleikhúsið væri að læra
sænsku og syngja upp á sænsk-
an máta!
f stjórn Félags slenzkra einsöngv
ara eru nú auk Bjarna Bjarnason
ar Kristinn Hallsson gjaldkeri,
Hermann Guðmundsson ritari og
Óskar Norðmann varaformaður.
Skipstjóri dæmdur
SKIPSTJÓRINN á brezka togar-
anum Bombardier, sem tekinn
var að veiðum innan fiskveiði-
takmarkanna aðfaranótt' mánu-
dags, var dæmdur á Seyðisfirði
í gær. Hlaut hann 74 þús. kr.
sekt og afli og veiðarfæri voru
gerð upptæk. — Skipstjórinn,
sem heitir Meech, áfryjaði dómn-
um, en setti tryggingu fyrir
greiðslum. Fór togarinn síðan frá
Seyðisfirði.
Stykklshólmsbáfar
STYKKISHÓLMI, 18. marz —
Bátar hér eru almennt hættir við
línuveiðar og byrjaðir með net.
Afli hefur verið mjög tregur í
net síðustu dagana. Allir bátarn-
ir reru með net í dag og er það
fyrsti netadagurinn. .
Togarinn Þorsteinn þorskabít-
ur kom hingað til Stykkishólms
á laugardaginn og losaði 160 lest-
ir af fiski til vinnslu í hrað-
frystihúsin hér. Togarinn fór þeg-
ar aftur út á veiðar. —Árni.
Náimkeið um
alvinnu- og verka-
jýðsmál hefsl í kvðld
f KVÖLD hefst námskeið um at-
vinnu- og verkalýðsmál á veg-
um Verkalýðsmálaráðs Sjálf-
stæðisflokksins og Málfunda-
félagsins Óðins. Námskeiðið verð
ur lialdið í Valhöll, félagslieimiii
Sjálfstæðismanna og verða fund-
ir tvisvar í viku á miðvikiudags-
og föstudagskvöldum.
Fundurinn í kvöld hefst kl.
8,30 og er nauðsynlegt að allir
þeir, sem tilkynnt hafa þátttöku
sína mæti á fundinum í kvöld,
1 því þá verður greint nánar frá
allri tilhögun námskeiðsins.
Eignir Iðju um 355 þúsund kr.
AÐALFUNDUR Iðju, félags verk
smiðjufólks, var haldinn í Al-
þýðuhúsinu sl. þriðjudagskvöld.
Formaður félagsins, Guðjón Sig-
urðsson, setti fundinn og las
reikninga félagsins, sem endur-
skoðaðir höfðu verið af iöggilt-
um endurskoðendum, og skýrði
þá. Tekjur á árinu voru krónur
248,000,00, þar af félagsgjöld um
200 þús. kr. Bankainnistæður eru
orðnar um 208,000 og eignir alls
um 355 þús. Þar af eru 100 þús.
kr. í skuldabréfum frá tíð fyrr-
verandi stjórnar Björns Bjarna-
sonar.
Umræður urðu nokkrar um
reikningana og fann Björn
Bjarnason það helzt að þeim að
fólk hefði ekki verið látið borga
fullt félagsgjald þó að það ynni
ekki nema stuttan tíma úr árinu.
Ennfremur tóku til máls Arn-
grímur Ingimundarsonar, Einar
Eysteinsson, Þorvaldur Ólafsson
og að lokum Guðjón Sigurðsson.
Voru reikningarnir síðan bornir
upp og samþykktir samhljóða.
Lesin var fundargerð kjörstjórn-
ar varðandi endurskoðun reikn-
inga félagsins þess efnis að lög-
giltir endurskoðendur skuli jafn-
an endurskoða þá.