Morgunblaðið - 22.03.1958, Page 6

Morgunblaðið - 22.03.1958, Page 6
6 MORCZJIS BL 4ÐIÐ Laugardagur 22. marz 1958 VIÐTAL VIÐ STRAUSS, HERMÁLA RÁÐHERRA tímaritið & World BANDARISKA U. S. News Report hefur nýlega átt viðtal við Franz Josef Strauss, sem er hermálaráðherra Þjóð- verja. Strauss varð ekki alls fyr- ir löngu hermálaráðherra, þegar mikill styrr stóð um þau mál þar 1 landi og tók við af Blank, sem ekki þótti hafa getað komið því í fram- kvæmd, sem ætlazt var til í sambandi við herbúnaðinn. Strauss er á bezta aldri og hefur látið mjög á sér bera og segja ýmsir, að hann muni ef til vill standa næstur því, á eftir Erhard viðskiptamálaráðherra, að verða kanslari landsins. Sagt er að af þýzkum stjórnmálamönnum, fyr- ir utan Erhard, komi Gersten- meier þingforseti helzt til greina, auk Strauss. —oOo— Svo vikið sé að viðtalinu, var þar drepið á ýmsar spurning- ar varðandi Þjóðverja sérstaklega og hermál Evrópu almennt. — Strauss var spurður aS því hvaða líkur hann teldi til þess, að amerískur her mundi fara úr Þýzkalandi bráðlega og svaraöi Strauss því á þá leið, að til þess væru engin líkindi. Sagði Strauss að Þjóðverjar væru tilbúnir til þess, að uppfylla allar hérnaðar- legar skyldur sem Norður-At- lantshafsbandalagið legði þeim á herðar en án stuðnings Banda- ríkjamanna og hervarna af þeirra hálfu þar í landi, væri ekkert öryggi í Þýzkalandi. Þegar Strauss var spurður að því, hve mörg ár hann teldi að mundu Iiða þar til að Þjóðverjar gætu algerlega á sitt eindæmi tekið við hervörnum landsins og án aðstoð- ar Ameríkumanna, svaraði hann því, að engin Evrópuþjóð væri þess megnug að verja sjálfa sig á eigin spýtur. Hann sagði, að Evrópuþjóðir þyrftu á herstuðn- ingi Bandarikjamanna að halda eins lengi og hættan úr austri væri fyrir hendi. Þegar Strauss var spurður að því, hvort Þjóðverjar mundu búa her sinn kjarnorkuvopnum, svaraði hann því, að það væri algerlega komið undir ráði A.t- lantshafsbandalagsins, það ráð hefði hin æðstu völd um það, hvort herir Þjóðverja og annarra Vestur-Evrópulanda innan banda lagsins, yrðu búnir kjarnorku- vopnum. ( Þá var Strauss spurður að því, hvort Þjóðverjar mundu sjálfir fi’amleiða kjarnorkuvopn handa her sínum og svaraði Strauss því, að Þjóðverjar hefðu undirritað skuldbindingu um, að framleiða engin kjarnorkuvopn. —oOo— Þá var komið að- þeirri spurn- ingu, sem valdið hefur mestum umræðum í hermálum Evrópu upp á síðkastið, en hún er sú, hvort Vestur-Þjóðverjar muni leyfa Bandaríkjamönnum að koma upp hernaðarstöðvum með kjarnorkuvopn á vestur-þýzku landi. Strauss svaraði spurning- unni á þann veg, að enn lægi ekki fyrir álit Norstads, yfirfor- ingja Atlantshafsbandalagsins um það, hvar stöðvar Ameríku- manna fyrir fjarstýrð skeyti ættu að liggja. Eftir að þetta álit lægi fyrir mundu þing og stjórn í Þýzkalandi verða að taka endan- legar ákvarðanir í málinu. En Strauss bætti því við, að ekkert land ætti að færast undan þeim skyldum, sem það þyrfti að tak- ast á herðar tii þe?,s að verjast fjandsamlegri árás. I viðtalinu var síðan komið að áliti hermálaráðherrans á því, hver væri hernaðarmáttur Sovét- ríkjanna. Hann sagði, að álit sitt væri það, að Sovétríkin væru hernaðarlega mjög sterk, her þess væri vel æfður og vel vopnum búinn. Hann sagði að búast mætti við að bráðlega hefðu Sovétríkin á sínu valdi flugskeyti, sem hægt væri að skjóta milli heimsálfa og einnig flugskeyti til notkunar á styttri vegalengdum. Ennfremur hefðu Rússar langstærsta flota neðansjávarbáta, sem til væri eða hefði verið til og væri þar um mjög öflugt árásarvopn að ræða. Þeirri spurningu, hvort varn- ir vestrænu þjóðanna væru nægi- lega sterkar til að hamla móti Sovétrikjunum, svaraði Strauss svo, að það væri undir því komið, hvort Atlantshafsríkin væru reiðubúin til þess að leggja það á sig sem til þess þyrfti að geta staðið gegn árás. Atlantshafs- bandalagið þyrfti að ganga að þessum málum með einurð, í því máli mætti enginn tvískinnung- ur vera. Bandalagið yrði að her- væðast eins sterklega og tím- arnir krefðust. —oOo—• Strauss var að lokum spurður að því, í hverju hann teldi að megifihættan frá Sovétríkjunum fælist nú. Svaraði hann því til, að vestrænu þjóðirnar þyrftu að hafa auga á neðanjarðarstarfsemi kommúnista og áróðri þeirra, sem miðaði að heimsyfirráðum, en bak við alla þessa starfsemi lægi hið geysilega hervald þeirra. Hann talaði einnig um, að Sovét- ríkin legðu hina mestu stund á að koma ár sinni fyrir borð við- skiptalega meðal margra þjóða og væri sízt ástæða til þess að gera lítið úr þeim þætti út- þenslustarfsemi þeirra. Enn- fremur þyrftu vestrænu þjóðirn- ar að gæta þess vel, að það væri ekki nóg að einblína á þægindi og mikla framleiðslu af notavörum, heldur þyrfti vilj- inn til að verja sig, viljinn til að lifa og búa í friði og frelsi sífellt að vera vakandi rneð þess- um þjóðum. Ef stjórnmálamenn Vestur-Evrópu og almenningur í þessum löndum gera sér grein fyrir því, hver þörfin er á að halda vöku sinni, þá er öllum okkar málum borgið, sagði Strauss að lokum. norrænna STOKKHOLMI, 18. marz — Ut- anríkisráðherrar Norðurlanda komu í dag saman á hinn árlega vorfund sinn. Fyrir Island mæt- ir á þessum fundi sendiherra þess í Stokkhólmi. Á fundinum verð- ur .rætt um samstarf Norður- landa á ýmsum sviðum m. a. hjá Sameinuðu þjóðunum og í Evrópu samstarfinu. Þá verður rætt um viðhorf til hinna nýju Arabaríkja og um stjórnmálasamband við Túnis og Marokkó. Skýrt er frá því, að ekkert hafi verið né verði rætt á þessum fundi um heimsókn Krúsjeffs og Búlganins til Norðurlanda. Fund- inum mun ljúka á miðvikudag- inn. —NTB. Ekkert nýtt í bréfi Bulgnnins LONDON, 19. marz. — Síðasta bréf Bulganins til Macmillans var birt í dag. Aðalatriði bréfsins, sem er í lengra lagi, er það, að NATO-ríkin, með Bretland og Bandaríkin í fararbroddi, geri nú ítrekaðar og örvæntingarfullar tilraunir til þess að koma í veg fyrir að samkomulag náist um afvopnun og árangur náist af fundi ríkisleiðtoga. Segir Bulgan in að flugskeytastöðvar í vestan- verðri Evrópu séu nú stærsta hindrunin í vegi afvopnunarsam- komulags — og ræðir sérstaklega um Bretland í því sambandi. Þá má geta þess, að Bulganin getur ekki fallizt á að sjálfsákvörðunar réttur leppríkjanna verði ræddur á ríkisleiðtogafundi. Úr Austur-Skagafirði BÆ, HÖFÐASTRÖND, 10. marz. — Ennþá eru hér töluverð harð- indi og eru nú búin að vera jarð- bönn og mjög oft stórhríðar síð- an fyrir jól. Nú síðustu daga hafa þó verið góðviðri en frost nokk- ur. í Fljótum er mér sagt að um tveggja metra jafnfallinn snjór sé og mjög víða þurfi að fara hálfboginn undir símalínur. — Snjórinn er þar orðinn svo harð- ur að bændur fara mikið um á dráttarvélum. Nýlega fékk Jón Kort Ólafsson bóndi í Haganesi sér snjóbelti á dráttarvél sína. Reynist þetta tæki ágætlega og gera menn sér góðar vonir um framtíðarnotin. í Sléttuhlíð er nýbyggður veg- ur (Siglufjarðarvegurinn) kom- inn út að Keldum. Vegur þessi er að mestu upp úr og sýnir það bezt, hve geysileg þörf er fyrir þennan veg út eftir um þessar snjóþungu sveitir. Þeir, sem kunnugastir eru, telja að jafnvel í snjóalögum eins og nú eru muni svona hár vegur út fyrir Stráka til Siglufjarðar verða að mestu fær bifreiðum. Þegar kemur inn í Hofshrepp- inn eru snjóalög svipuð og ytra þó ef til vill sé þar ekki eins djúpt. Þar er ekið um á drátt-' arvélum og jeppum á hjarninu. Alveg er teppt til Sauðárkróks þar sem eldri vegirnir eru orðnir það signir að þeir eru í kafi og svo hefir þar verið mokað við og við, sem virðist stundum gera illt verra þegar frá líður og alltaf fyllir í göngin, sem mokuð eru. Hægt er þó að komast á dráttarvélum til Sauðárkróks með mjólk og er þá að mestu farið utan vegar. Er nú sá háttur tekinn upp um tíma að hver bóndi fer með sína mjólk á dráttarvél sinni. Nýlega fékk Gunnar Bald- vinsson í Hofsósi sér snjóbelti á dráttarvél. Reynast þessi belti einnig ágætlega. I dag var Gunn- ar á leið til Sauðárkróks með á annað þúsund lítra af mjólk á sleða aftan í vél sinni. Eins og annars staðar hér í útsveitunum eru öll hross á gjöf. Þó mun vera sæmilegur hrossahagi þegar kem ur fram fyrir Gljúfraá og Blöndu sUrlfar úr \ dagíega lífinuJ „Meðferð olíukynd- ingartækja. FYRIR skömmu vakti einhver máls á því hér í dálkunum, að hann hefði orðið fyrir óþæg- indum vegna sótfalls, er stafaði frá ófullnægjandi brennslu í tækjum nágranna hans. Af þessu tilefni er rétt, að ræða þetta mál nokkru nánar. Síðustu árin hefir notkun olíu til hit.unar húsa farið ört vax- andi tæði hér á landi og annars staðar. Hins vegar hefur þess ekki verið gætt sem skyldi, að viðhafa nauðsynlega aðgæzlu um val tækja þeirra, sem fengið er það mikilsverða hlutverk, að halda íbúðunum heitum. Vart verður þess allviða, að notaðir eru fyrir olíubrennslu sömu katlarnir og hafðir voru til kolakyndingar. Annars staðar og þá einkum í nýrri húsum eru katlar, sem ætlaðir eru fyrir olíu brennslu. Katlar þessir eru eitt- hvað mismunandi að gæðum eins og vænta má, enda virðast flestir þeirra vera „umbættar“ eftirlíkingar af erlendum köti- um. Það mun vera allútbreidd skoðun, að olubrennarar með til- heyrandi sjálfstjórnarrofum þurfi litla eða enga hirðingu, og bví sé sjálfsagt, að eigandi burfi ekki annað en gefa fyrirskip anir með því að styðja á takka einhvers staðar í húsinu. Þetta er hættuleg sjálfsblekking. Olíu- brennarinn er vél og allar vélar þarfnast umhirðu og eftirlits. Brennari, sem ekki er í full- komnu lagi táknar óþarfa eyðslu, og sé hann látin eiga sig, þar til hann hættir að svara fyrirskip-. unum, getur viðgerðin kostað töluvert mikla upphæð. Til þess að hafa sem fullkomn- ust not af olíubrennaranum, verða menn að gera sér grein fyrir þvi, í aðalatriðum a.m.k., hvað fram fer í þessari einföldu vél. í þeim tilgangi, að olían brenni sem bezt, er henni dælt með ákveðnum þrýstingi, ca. 7,7 kg á fersm. (sem aftur er háð olíutegundinni) gegnum olíu- gjafann, og úðast hún við það inn í brennsluhólfið. Öll brennsla út heimtir loft. Og fullkomin brennsla útheimtir, að loftgjöfin sé í nákvæmlega réttu hlutfalli við olíugjöfina. , Fullkomin brennsla á 1 lítra af oliu þarfnast ca. 15 ferm. af lofti. Af þessu verður Ijóst, að það er nauðsynlegt, að nægilegt loft ber ist inn í brennsluklefann. Hér skal þess getið, að of mikið loft og of lítið er jafnrangt. Og jafn- vel smávægilegasti mismunur á of miklu og of litlu lofti þýðir töluverða fjárhagslega eyðslu. Á loganum má sjá, hvort loft- gjöfin er rétt. En það nægir ekki að skoða hann ' gegnum opið spjaldið, því að loftgjöfin eykst og breytir loganum, þegar spjald ið er opnað. Bezt er að leggja gler fyrir opið og skoða síðan logann, sem á að vera sítrónugul ur með rauðum broddum. Ef log inn er rauður og sótborinn og reykurinn dökkur við skorstein- inn, er loftgjöfin of lítil. Ef log- inn er hins vegar skjalli hvítari og reykurinn úr skorsteininum ekki sýnilegur, táknar það of mikla loftgjöf. Þetta hvort tveggja táknar slæma brennslu, og þegar um of lítið loft er að ræða, safnast sót í ketil og skor- stein. Sótið verður að þykkri húð og verkar einangrandi og tærir hvort tveggja. Alvarlegt hættumerki er það, þegar hurðir ketilsins hristast og eða loftspjaldið glamrar, en það er merki um slæma brennslu og sótun. Margvíslegar orsakir geta verið til þessa, en þær verður að finna og lagfæra það, sem ábótavant er. Loks má geta þess, að því er brennslu snertir, að ásigkomu- lag skorsteinsins getur haft úr- slitaþýðingu. jón Þorkelsson Á MIÐVIKUDAGINN birtist hér í dálkunum bréf um 200 ára ártíð Jóns Þorkelssonar. Sú villa slæddist inn, að skólahúsið á Hausastöðum hefði verið byggt 1782.— Bétt er 1792. hlíðin er snjólétt eins og oftast nær. Alltaf ern búfjárkvillar að stinga sér niður svo sem lungna- pest í sauðfé og bráðadauði r kúm, en heilsufar mannfólksins telur héraðslæknir mjög sæmi- legt. Fjöldinn af vinnandi fólki sem að heiman kemst er í atvinnu utan héraðs, enda er hér nú mjög dauft yfir öllu atvinnulífi. Nýlega hélt Ungmennafélagið Geisli í Óslandshlíð upp á 60 ára afmæli sitt. Þar var fjölmenni samankomið við góðan fagnað. Annars er fátt um mannfundi í sveitinni, því fátt er um mann- inn á heimilunum og illt að kom- ast að heiman frá búverkum. Það liggur við að fólki leiðist á stund- um þar sem fáir hittast. Síminn og lestrarefnið, sem er orðið á hverju heimili, lestrarfélögin og útvarpið gera þó lífið bjart, og get eg í því sambandi ekki stillt mig um að minnast á útvarpssög- una, sem Þorsteinn Ö. Stephen- sen er að lesa, Sólon íslandus. Þó mjög margir hafi áður lesið þetta verk finnur nú fólkið, sem hlustar af áhuga, hvílíkt listaverk þetta er, þegar snillingur les. B. J. Miitningargjaía- sjóSur Landspítalans AÐALFUNDUR Minningarsjóðs Landspítala íslands, var haldinn 5. febr. sl. Gjaldkeri sjóðsins lagði fram endurskoðaða reikninga fyrir ár- ið 1957. Á árinu 1957 veitti sjóðurinn í sjúkrastyrki alls kr. 70.700,00, sem er hæsta upphæð sem nokk- urt ár hefur verið veitt úr sjóðn- um síðan hann tók til starfa árið 1931. Langmestur hluti styrkveiting- anna á árinu 1957 rann til um- sækjenda, sem þurftu að leita sér lækninga erlendis. Þrátt fyrir hina fullkomnu sjúkratryggingu, sem gildir nú orðið, getur óhjákvæmileg sjúkra húsvist erlendis verið svo dýr, að kostnaðurinn sé óviðráðanlegur venjulega bjargálna fólki. Sjúkra samlögin greiða í slíkum tilfell- um aðeins daggjöld á sjúkrahús- um, allt að þeirri upphæð sem hæst er greitt innanlands. En ferðakostnaður, greiðslur til er- lendra sérfræðinga og í mörgum tilfellum kostnaöur við að senda mann með sjúklingnum, nema oft mestum hluta upphæðarinn- ar. Sem dæmi má geta þess, að tveir sjúklingar, sem sendir voru til Ameríku á sl. ári, urðu hvor um sig að greiða rúmlega 60 þús. kr. Báðir þessir sjúklingar fengu verulega bót meina sinna. Rétt er að taka fram, að sjúkra styrkir til utanfarar eru ekki veittir úr sjóðnum, nema fyrir liggi meðmæli yfirlækna Land- spítalans, áður en sjúklingurinn fer utan. Sjóðstjórnin færir öllum þeim, er stutt hafa að velgegni sjóðsms á undanförnum árum, sínar beztu þakkir. Minningarspjöldin eru afgreidd á eftirtöldum stöð- um: Landsími íslands, Verzl. Vik, Laugav. 52, Bækur og ritföng Austurstræti 1, og á skrifstofu forstöðukonu Landspítalans. Umsóknir sendist til formanns sjóðsins frú Láru Árnadóttur Laufásvegi 73, er einnig gefur allar upplýsingar. □---------------------n ACCRA, 18. marz (Reuter) — Um miðjan næsta mánuð mun hefjast hér í höfuðborg Ghana ráðstefna sjálfstæðra Afríku- ríkja. Meðal þeirra sem sækja ráðstefnuna eru Nasser forseti Egyptalands, Bourgiba forseti Túnis og Tubman forseti Líberíu. Þar munu og mæta forsætisráð- herrar Eþíópíu, Líbýu, Marokkó og Súdan. n---------------------n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.