Morgunblaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 16
16 MORGVNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 26. marz 1958 — Blandaðu fyrir mig whisky í glasið, Etienne. — Já, herra. Lalande þrífur hljóðnemann. Hann talar sviplausa en skýra ensku: — TRZ kallar. .. TRZ kallar. .. Við þörfnumst hjálpar. .. Við þörfnumst hjálpar ykkar....... Mjög áríðandi að ná sambandi við París. .. Hver getur hjálp að okkur til þess að ná sambandi við París . . hér er um líf og dauða að tefla.... — minningunum um allt, sem hann hvarf frá í Evi’ópu. Stund- um, í hitasóttarköstunum, röltir hann eftir regnvotum götum, und- ir bogaljósunum. í fæðingarbse sínum, Antwerpan. Hafnarbær, alltof margar krár — fyrir þann, sem á érfitt með að standast Bakkus konung. Svipur Grete svífur fyrir hugskoti hans í hita- sóttardraumunum .... og andlit Anette. — Hvar í fjandanum er bölv- aður svertinginn? Hvers vegna kemur hann ekki? — Etienne! öskrqr hann aftur. Loksins birtist svertinginn í dyrunum. — Hvað ertu að stökkva í burtu? Bölvaður slæpinginn þinn. Whisky .... flýttu þér. Hann tæmir með áfergju glas- ið, sem Etienne réttir honum. — Það er gat á moskitonetinu, hrópar Lalane um !eið og hann lætur fallast niður írúmið — ör- magna, að því er virðist. — Ekkert í þessu bölvuðu húsi er eins og það á að vera! Fyrir hvað heldurðu í rauninni að ég borgi þér, svarti þorparinn þinn? Ég vil heyra einhverja hljómlist! Flýttu þér! Etienne gengur þverúðarfullur að stóra sendi- og móttökutæk- inu i einu horni herbergisins. — Veggirnir eru þaktir myndum af hálfnöktu og nöktu kvenfólki. Etienne þolir ekki þessar myndir. Hann blygðast sín fyrir smekk húsbónda síns. Skemmtilegasta tómsiundaiðja Gilles Lalande er að fást við loftskeytatæki. Honum varð það til mikillar gleði, er nýlendu- stjórnin ákvað fyrir nokkrum árum að fá honum í hendur full- komin loftskeytatæki. Uppruna- lega var það hugmyndin, að hann skyldi kenna innfæddum með- ferð tækjanna. En starfskraftar Gilles Lalande þurru smám sam- an — og ekkert varð úr kennsl- unni. Etienne leitar að stöð. Raf- bi’estum í hátalaranum. Etienne magnstruflanir valda braki og heldur áfram að leita og finnur stöð, sem útvarpar danslögum. — Ég vil ekki heyra þetta! hreytir sjúklingurinn í rúminu útur sér. Hann byltir sér. Hann er þreyttur oð dapur eftir whiskydrykkjuna. Honum finnst kvenmannsraddir hrópa á sig úr öllum áttum. Saxofónninn vælir og trumb- urnar dynja......Lalande finnst hann svífa m'eð hvítklæddri konu í dans. Hitasóttin hefur gert hann taugaóstyrkan og hann teygir sig í whiskyglasið. Skyndilega er tilbreytingar- leysi danslagavælsins rofið. — Skerandi, tær, æst rödd kallar á ensku: — hér .... TKX hér .. kallar allar stöðvar .... kallar allar stöðvar. .. biðjum um hjálp .... maður um borð er al- varlega veikur.....TKX biður allar stöðvar að veita hjálp ! . . skipti. Lalande rís upp í rúminu og stynur órólega. Það er eins og röddin frá hátalaranum hafi svipt hitasóttarmóðunni frá aug- um hans. Hann dregur moski- tonetið til hliðar og stigur ber- fættur út á gólfið. Hann skjögr- ar yfir í hinn enda herbergisins og ýtir við svertingjanum. — Leyfðu mér að komast að! Lalande þrífur hljóðnemann. Hann talar lágri, óskýrri röddu — á ensku: — TRZ .. hér.. TRZ .. hér .. ég kalla T'KX .. ég heyri í yður TKX .. ég heyri prýðilega! .. skipti! kl. 22,lo raióevrópotími - á norðorlshafitac - rna borð i "raari6 sörensen". — Svarið aftur, TKX .. Olaf Larsen hefur beðið eftir svari í margar klukkustundir, fullur angistar og eftirvænting ar — og, þegar svarið gellur skyndilega úr hátalaranum, stekkur hann upp úr sæti sínu. Eftir andartak nær hann aftur stjórn á sjálfum sér. Faðir hans hefur líka staðið á fætur, augu hans eru starandi og hann er skjálfhentur. _ TKX hér .. TKX .. ég heyri til yðar. TRZ .. hver er- uð þér? segir Olaf. — Ég heiti Lalande .. ég er í Belgisku Kongo. .. Hver eruð þér? Er eitthvað að hjá yður? — Þetta er togbáturinn „Marie Sörensen“, skipstjóri er Larsen. Ég er sonur hans. Við erum staddir á Norður-íshafinu, norður af íslandi, segir Olaf í hljóðnemann. — Einn skips- manna er veikur, alvarlega veikur. Við vitum ekki hvað að honum er. Við þurfum þegar í stað að ná sambandi við lækni, sem getur greint sjúkdóminn. — Heyrðuð þér þetta? — Móttekið, hljómar rödd La lande verkfræðings innan úr miðri Afríku. Hann talar ensku með flæmskum hreim. — Hver eru sjúkdómseinkenn in? — Hár hiti, uppköst, segir Olaf. — Þrautir í öllum iíkam- anum. Einn nái-akirtillinn er sprunginn. Annar er mjög þrút- inn. .. Sennilega hitabeltissjúk dómur. Maðurinn kom á skipið í Antwerpen .. kom með skipi frá Indonesiu. í Antwerpen. .. Þetta orð 22,15 miðevrópntlmi - við titnie koparnámiirnar kl» 22,2o miðevróputíral - við napoli-flóann» fcslgisku kongo» hljómar í eyrum Lalande sem ástarjátning frá fæðingarbæ hans. Antwerpen. . . þrjú at- kvæði, sem hafa segulmögnuð seiðandi álirif á þennan ein- manna mann í frumskógum Afríku. En nú hljómar rödd Olafs Lar sen aftur í hátalaranum: — Getið þér komið okkur í samband við lækni, sem gæti hjálpað okkur? Lalande snýr sér að svarta þjóninum og segir: — Eigum við að sækja Leuwelsder lækni? Hús fiskimannanna standa í þyrpingu á bökkunum niðri við ströndina. Fölur máni varpar daufum og kaldranalegum bjarma niður á auðar, bugðótt- ar götur. I útjaðri þorpsins stendur ný- tízku íbúða-sambygging, hvít- kalkaður steinkassi, sem að út- liti er alger andstæða litlu fiski- mannakofanna. Laiande situr við loftskeytatækin með whiskyglasið við hlið sér — í nánd við Tituie-námurnar í Kongó. Svertinginn hi’istir höfuðið. Lalande ber hljóðnemann að munni- sér: — Halló . . Halló, TKX. .. Læknirinn okkar er einskis nýtur. Þér hættið á, að hann gefi ranga sjúkdómsgrein- ingu. .. Iieimska hans er víð- fræg. . .. Rödd Olafs verður ákveðin og innileg: — Við megum engum tima eyða til ónýtis. öll skips- höfnin er óttaslegin. .. Heyrð- uð þér það? _ Móttekið, TKX. Ef um hita beltissjúkdóm er að ræða get ég ekki bent yður á neinn betri stað að leita til en Pasteur-stofn unina í París. Því miður get ég ekki náð til Parísar með loft- skeytatækjunum mínum. En ég ætla að reyna að ná sambandi við einhverja aðra stöð, sem síð- an getur haft samband við París. Heyrið þér það? Lalande er æst ur. _ Halló, TRZ, halló, TRZ. .. Móttekið. .. I%kka yður .. ég bíð frekari frétta.... Lalandi snýr sér að svertingj anum. Á fjórðu hæð logar ljós í ein- um glugga. Inni fyrir, í stof- unni, situr hraustlegur, grann- ur maður á fimmtugsaldri. Hann er álútur og er að fást við loft- skeytatæki, furðulítið — af nýj- ustu gerð. Andlit mannsins er vax-gult og þunnt kolsyart yf- irvaraskegg virðist skipta því í tvo jafna hluta. Hann heitir Domenieo d’Angelantonio. _ Iialló . . Halló ......Lola, Lola“ . . kallar hann í hljóðnem ann — „Lola, Lola“.. Á þessari stundu er smyglara báturinn „Lola Lola“ á siglingu utan við ítölsku landhelgina á Napoli-flóanum. Lestarrúmið er fullt af smyglvarningi. I höfn- inni í Napoli bíða fiskimennirn- ir eftir því að koma varningn- um á óhultan stað. Domenico með vaxgula andlitið og loft- skeytatækin hans eru tengiliðir milli fiskimannanna í höfninni og smyglarabátsins „Lola Lola“. Þeir bíða allir eftir svari frá „Lola Lola“. Lofttruflanir eru miklar og það brakar hátt í há- talaranum. Domenico vill ekki a r L ú á LOOK, BIG BOV, QUIT J- TRYING TO PLAY DETECTIVE AND PAY . SOME ATTENTION . jk, TO ME. WILL YOU, . PLEASE/ J I'D LIKE TO VERY \ much/ THERE'S SOMETHING MYSTERIOUS GOING ON HERE/ / THE BOYS ARE TUNING UP, MARK ...WANT TO DANCE? YOU'RE RIGHT, MR. TRAII__THIS >2 IS A MIDLAND COLLEGÉ \ CLASS RING...BELONGED TO MY BROTHER WHO WAS n KILLED IN KOREA/ 1) „Þetta er alveg rétt, Markús,“ sagði Bárður. „Þetta er skólahringur frá Midland. Bróðir minn, sem féll í Kóreu, átti hann.“ 2—3) Nokkrir kátir náungar eru farnir að leika dillandi dans- lög. „Eigum við að dansa, Mark- ús?“ spyr Dídí. — „Já, það vil ég mjög gjarnan ... Annars er eitt- hvað dularfullt á seiði hér.“ — „Svona, Markús, vertu nú ekki að leika leynilögreglumann," sagði Dídí óþolinmóð. „Reyndu heldur að veita mér einhverja athygli.“ raska ró nábúanna og hann dreg ur niður í hátalaranum. En sam stundis kveður við glymjandi rödd: — TRZ kallar . . TRZ kall ar .. óska skjótrar hjálpar .. þarf að ná sambandi við París þegar í stað .. ég endurtek, TRZ kallar .. getið þið hjálpað til að ná sambandi við París þegar í stað.. . .? Domenico bölvar hljóðlega. — Hann er gramur og slær út hend inni eins og hann vilji banda þessari truflandi stöð frá hátal aranum. Hvað er þetta —- samband við París? Sjálfur þarf hann aðeins að ná sambandi við smyglarabátinn. — Halló .. Halló, „Lola Lola“. En „Lola Lola“ svarar ekki. í stað þess lætur bjáninn aftur heyra til sín: .— TRZ kallar .. TRZ kallar . . þarf að fá sam- band yið París þegar í stað .. það er um líf og dauða að tefla .. Hver vill hjálpa okkur?.. — Getur hann ekki haldið sér saman, segir Domenico og er nú runnið í skap. Hann dregur enn niður í hátalaranum þar til köll- in verða að lágu hvísli. En ekki tekst honum að þagga algerlega niður í þessari stöð, því að hún hlýtur að nota sömu bylgjulengd og smyglarabáturinn. Loksins lætur skipstjórinn á „Lola Lola“ heyra til sín. Domenico hreytir út úr sér: —. Hvar hafið þið verið? Eruð þið alltaf að slæpast? Ilvers vegna svöruðuð þið ekki? — Við gátum ekki látið heyra til okkar fyrr.... — Þá það, segir Domenico. —. Hvenær búizt þið við bátunum? — Stundarfjórðungi yfir þrjú. Skipstjórinn á „Lola Lola“ gefur upp staðarákvörðun sína. — Umhleðsla á rúmsjó .... á DH 25,26. . . . — .. umhleðsla á rúmsjó .. á DH 25,26.... Orðin hljóma í lögreglubílnum, sem þýtur eftir götum litla þorps ins. I bílnum er miðunarstöð —. og á línuritsvalsinn teiknar sjálf ritandi penni óreglulegt línurit. — Þarna náðum við honum aftur, segir loftskeytamaðurinn í lögreglubílnum. Hann er sterkur, segir Ippolito lögreglufulltrúi ánægjulega. — SHlItvarpiö Miðvikaulagur 26. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Við vinnuna": Tón leikar af plötum. 18,30 Tal og tónar: Þáttur fyrir unga hlust- endur (Ingólfur Guðbrandsson námsstjóri). 18,55 Framburðar- kennsla i ensku. 19,10 Þingfrétt ir. — Tónleikar. 20,30 Föstu- messa í Hallgrímskirkju (Prest- ur: Séra Sigui’jón Þ. Árnason. — Organleikari: Páll Halldórsson). 21,35 Lestur fornrita: Hávarðar saga Isfirðings; V. — sögulok (Guðni Jónsson prófessor). 22,10 íþróttir (Sigurður Sigurðsson). 22.30 Frá Félagi íslenzkra dæg- urlagahöfunda: Hljómsveit Jóna- tans Ólafsson leikur íslenzk lög við gömlu dansana. Söngvari: Sigurður Ólafsson. Kynnir: Jóna tan Ólafsson. 23,10 Dagskrárlok. Fimmtudagur 27. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 „Á frívaktinni", sjómanna- þáttur (Guðrún Erlendsdóttir). 18.30 Fornsögulestur fyrir börn (Helgi Hjörvar). 18,50 FramburS arkennsla í frönsku. 19,10 Þing- fréttir. — Tónleikar. 20,30 „Víxl ar með afföllum", framhaldsleik rit fyrir útvarp eftir Agnar Þórðarson; 8. þáttur. — Leikstj.: Benedikt Árnason. Leikendur: Rúrik Haraldsson, Herdís Þor- valdsdóttir, Ása Jónsdóttir, Flosi Ólafsson, Árni Tryggvason o. fl. 21,15 Tónleikar (plötur). 21,45 íslenzkt mál (Ásgeir Blöndal Magnússon kand. mag.). — 22,10 Passíusálmur (44). 22,20 Erindi með tónleikum: Baldur Andrés- son kand. theol. flytur síðarg erindi sitt um norska tónlist. — 23,00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.