Morgunblaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.03.1958, Blaðsíða 20
V EÐRIÐ Suðaustan kaldi, skýjað. wnMali Saga kjördæmamálsins Sjá grein á bls. 11 72. tbl. — Miðvikudagur 26. marz 1958 Brezki a skipstjórinn var sýknaður Seyðisfirði Logfræðilegt atriði, sem fd verður ú'rskurð Hæstaréttar um — segir Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæzlunnar ATHYGLISVERÐUR dómur var í gærmorgun kveðinn upp í lög- reglurétti Seyðisfjarðar yfir skipstjóranum á brezka togaran- um Junella, John F. Leighton. Var skipstjórinn algjörlega sýkn aður af öllum kæruatriðum. Veiðarfæri óhúlkuð Þór sá skipið að veiðum kl. 10,30 á laugardagskvöldið á Lónsbugt. Fyrst, þegar hann sá það, var það í mikilli fjarlægð og skyggni þá svo slæmt að varð- skipsmenn gátu ekki séð, hvort skipið var að veið'um eða ekki. Þegar komið var að brezka tog- aranum sáu varðskipsmenn strax, að veiðarfærin voru óbúlk uð. Einhver hluti af neti var á floti í sjónum við hlið skipsins. Vörpupokinn hékk uppi í gálg- anum og hlerar og bobbingar hengu utan á borðstokknum. Þá voru skipsmenn að fiskverkun á þilfari. Svo slæmt var í sjóinn að ekki var hægt að senda mann frá varð skipinu um borð í togarann til þess m.a. að ganga úr skugga um hvort fiskur á þilfari væri nýveiddur. Skipstjórinn kærður Skipstjóranum á togaranum var tilkynnt gegnum hátalara að skip hans væri tekið og honum boðið að fylgja varðskipinu. Fyrst í stað var siglt suður til Hornafjarðar til þess að komast þar í var, svo hægt yrði að setja varðskipsmann um borð í togar- ann. Það reyndist ekki hægt og var þá ákveðið að sigla til Seyð- isfjarðar. Fyrir rétti hjá bæjarfógetan- um Erlendi Björnssyni var Leighton skipstjói’i á Junella kærður, í fyrsta lagi fyrir ólög- legar veiðar í landhelgi, en til vara fyrir ólöglegan útbúnað á veiðarfærum í landhelgi. Skipstjórinn neitaði algjör- lega að hafa verið að veiðum. Hann kvað ekkert óeðlilegt við það þó skipsmenn hans hefðu verið að verka fisk um borð í skipinu því afli hefði verið mjög góður þá um daginn samtals 300 kitt. Langan tíma tæki að verka það magn. Hann gerði grein fyrir þeim „togum“, sem hann hafði ’ víslega. farið þá um daginn og gáfu þær ekki ástæðu til athugasemda. Skipstjórinn viðurkenndi hins vegar að frágangur á veiðarfær- um hefði verið eins og varð- skipsmenn greindu frá. Sannanir skortir Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að sannanir skorti fyrir að togarinn hefði verið að veiðum í landhelgi. Um hinn ákæruliðinn komst dómurinn að þeirri athyglisverðu niðurstöðu, að í reglugerðinni frá 1952 um út víkkun landhelginnar úr 3 í 4 sjómílur væri ekkert ákvæði sem bannaði að vera með óbúlk- uð veiðarfæri innan línu. Ekki væri hægt að dæma skipstjórann eftir lögunum frá 1920, þar sem skýr ákvæði eru um slíkt, sem skipið var utan hinnar gömlu landhelgislínu, og á þeim for- sendum var hann sýknaður í lög- reglurétti. Ríkissjóður var dæmdur til að greiða málskostnað, sem talinn er nema kringum 4000 kr. Skipstjórinn hafði ekki borið fram neinar skaðabótakröfur vegna handtökunnar, og tafa frá veiðum. Að lokinni dómsuppkvaðningu var togarinn laus látinn. . , Nauðsyniegt að leita álits Hæstaréttar í gærkvöldi var ekki kunnugt um hvort dómi þessum verði áfrýjað. Er Mbi. átti tal við Pétur Sig- urðsson forstjóra Landhelgis- Námskeiðið um atvinnu- og verka- lýðsmál NÆSTI fundur í stjórnmála- námskeiðinu um atvinnu- og verkalýðsmál verður haldinn í Vaihöli við Suðurgötu í kvöld ki. 8,30. Gunnar Thoroddsen borgar- stjórl mun pá flytja fyrirlestur um ræðumennsku. Nauffsynlegt er að þátttakendur mæti stund- gæzlunnar í gær um dóm þennan og áhrif hans á landhelgisgæzl- unni, komst forstjórinn að orði á þessa leið: „Mér eru ekki fullkunnar dóms forsendur né aðstæður. Ég býst við að hér sé um að ræða ein- hvert lögfræðilegt vafaatriði, sem mjög er knýjandi að fá álit Hséstaráttar um, og það sem allra fljótast, vegna fram- kvæmdar á landhelgisgæzlunni umhverfis landið". Lýðræðissiniiar í meirililuta í stjórn og trtmað- armamiaráði FÍH AÐALFUNDUR Félags ísl. hljóm listarmanna var haldinn s.l. laugardag. Unnu lýðræðissinnar þar kosningasigur og tókst að ná meirihluta í stjórn félagsins. Þorvaldur Steingrímsson var kosinn varaformaður, Svavar Gests ritari og Hafliði Jónsson gjaldkeri. Gunnar Egilsson var liins vegar endurkosinn formað- ur og þá komst einn maður í við- bót í stjórn með hlutkesti úr hópi vinstri manna, Jón Sigurðs- son meðstjórnandi. Varastjórn og trúnaðarmanna- ráð er eingöngu skipað lýðræð- issinnum. Gat Gunnar þess í skýrslu sinni, að allir sjóðir hefðu verið tæmdir. Eru skuldir félagsins svo gífurlegar að annað eins mun tæplega hafa þekkzt í neinu verkalýðsfélagi hér á landi. • Með hinum nýja meix-ihluta í stjórn og trúnaðarstöðum félags- ins má vænta þess að rofi til í málefnum félagsins. Hi *oss ílutt út frá Akranesi AKRANESI, 24. marz. í gær- kvöldi kom Akraborg hingað til Akraness, með háfermi á þiljum. Var það efni í hestagrindur, sem setja á upp í lest m.s. Hvassa- fells, sem hingað er væntanlegt á morgun. Skipið á að taka hér a.m.k. 50 hross til útflutnings og verða þau flutt til Hamborgar. —Oddur. Skemmtifundur Minkur unninn Einn daginn er það fálki, sem gerist heimaríkur í höfuðborg- inni, annan daginn er það skað- ræðiskvikindið minkur. — Hann lagði leið sína inn í bæinn í gær- morgun. Mun hans fyrst nafa orðið vart í námiunda viö hegn- ingarhúsið við Skólavörðustíg, en hann var á Hallveigarstign- um er iögreglan fékk tilkynningu um að hann léki lausum hala. Eftir eltingaleik króuðu lögreglu menn minkinn inni í geymslu á baklóð reiðhjólaverksmiðjunnar Fálkinn við Laugaveginn og þar var hann skotinn. Vaí þetta stórt dýr. Þetta mun vera i fyrsta skipti sem minkur er drepinn á götu í Reykjavík. Drengur held- ur á dýrinu, og gefur myndin nokkra hugmynd um stærð dýrs- ins. Norræna félagsins NORRÆNA félagið í Reykjavík efnir til skemmtiíundar í Tjarn- arcafé niðri föstud. 28. marz Kl. 20,30. Skemmtifunduriim hefst á því, að Magnús Gíslason, fram- kvæmdastjóri félagsins, flytur ávarpsorð, síðan les Erik Sönder- holm sendikennari við Háskóla íslands smásögu eftir danska nóbelsverðlaunaskáldið Johannes V. JenSen. Því næst sýnir Vigfús Sigurgeirsson litkvikmynd frá heimsókn forsetahjónanna til Finnlands órið 1954 og auk þess kvikmynd frá heimsókn finnsku forsetahjónanna til íslands á sl. sumri. Að lokum verður stiginn dans. Gestakort (verð 25 kr.) verða afhent við innganginn. Fé- lagsmenn eru sérstaklega hvatt- ir til að fjöimenna og taka með sér gesti. Áiiöfn bandarísku flutningaflugvéiarinnar á Reykjavíkur- flugvelli í gærkveldi. Flugstjórinn er lengst til vinstri. Stærð hjóisins gefur góða hugmynd um, livíiíkt bákn flugvélin er. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) I nnflutnmgsskrifsfofur utan R.víkur hafi sjálf- Stceðan ákvörðunarrétt Á FUNDI efri deildar Alþingis í gær fór fram 3. umr. um frum- varpið um fjölgun innflutnings- skrifstofa. Gunnar Thoroddsen tók til máls og lýsti tveim breytingatil- lögum frá þeim Jóhanni Þ. Jósefs syni. Hin fyrri var á þá leið, að ekki skyldi lögákveðið, að slíkar skrifstofur utan Reykjavíkur mættu ekki vera fleiri en þrjár og mest ein í hverjum lands- fjórðungi. — Gat ræðumaður þess, að staðhættir væru sums staðar þannig hér á landi, að takmörkunin í frumvarpinu gæti verið óeðlileg. Síðari tillagan var á þessa leið: „Þær afgreiðslur, sem þannig eru settar á stofn, skulu fá sjálfstæð- an rétt til úthlutunar innflutn- ings- og gjaldeyrisleyfa eftir því, sem nánara verður ákveðið í reglugerð". Gunnar Thoroddsen j benti á, að starfsemi skrifstof- Styrkir til þýzku náms ÞÝZK stjórnarvöld hafa boðizt til að veita ungum, íslenzkum þýzkukennara eða námsmanni, er leggur stund á nám í þýzkri tungu styrk til að sækja sumar- námskeið, er haldin verða við háskóla í sambandslýðveldinu á sumri komanda. Styi’kurinn nemur 450 þýzkum mörkum, og á hann að nægja fyr ir dvalarkostnaði og þátttöku- gjaldi í slíku námskeiði. Um- sóknareyðublöð og upplýsingar um námskeið þau, sem um er að ræða, fást í menntamálaráðu- neytinu. Umsóknir skulu hafa borizt til ráðuneytisins fyrir 10. apríl næstkomandi. (Frá menntamálaráðuneytinu). Lisfamannaklúbburinn ræðir nýju menningar- sjóðslögin í KVÖLD — eins og alla miðviku daga — verða umræður í Lista- mannaklúbbnum í baðstofu Nautsins og hefjast kl. níu stund- víslega. Málshefjandi er í þetta sinn Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra og umræðuefnið verður: „Nýju lögin um Menn- ingarsjóð.og áhrif þeirra á starf- semi íslenzkra listamanna og út- breiðslu íslenzkrar listmenning- ar“. anna myndi ekki koma að gagni, nema þær gætu tekið sjálfstæð- ar ákvarðanir, og yrðu þeim væntanlega úthlutað ákveðnum gjaldeyrisupphæðum til ráðstöf- unar. Björn Jónsson kvað tillögur þessar fremur til bóta, en vildi ekki gera mikið úr þýðingu þeirra. Báðar tillögurnar voru síðan samþykktar samhljóða og sent neðri deild með 9 atkv. gegn einu. Ekki liægt að semja sumaráætlun EINS og skýrt var frá í Mbl. á sunnudaginn, hefur Flugfélag ís lands orðið að leggja öðrum flugbáta sinna, vegna þess að gjaldeyrisfærsla til skoðunar á bátnum hefur ekki fengizt. Flugbátar Flugfélagsins eru tveir og eru þeir m.a. í förum til ísafjarðar og Siglufjarðar. Vegna þess að enn hefur ekki tekizt að fá umræddan gjaldeyi’i til skoð- unar ó flugbátnum, hefur ekki reynzt mögulegt fyrir Flugfélag- ið að semja sumaráætlunina til þessara tveggja kaupstaða. Allar flugsamgöngur þangað standa nú og falla með þeim eina flug- báti, sem í notkun er. 18 báfar með 180 lestir AKRANESI, 24. marz. — Akra- nesbátar, sem í gær voru á sjó, 18 talsins, lönduðu hér alls 180 lestum af fiski. Sigurvon var með mestan afla, 21 lest, Ásbjörn 18,7 og Heimaskagi 18 lestir. —Oddur. Spilobvðld HAFNARFIRÐI. — Félags- vist Sjálfstæðisféiaganna er í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst kl. 8,30. Eins og venjulega verða verðlaun veitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.