Morgunblaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ Sunnan og SV-kaldi, skúrir. JllfmillJtM&Mtií 77. tbl. — Þriðjudagur 1. apríl 1958 Ræða Davíðs Olafssonar í Genf. Sjá bls. 9. Talið að Bandaríkin lýsi ákveðnum stuðningi við 12 mílna friðunarsvœði ÞAÐ er nú álitið í Washington að Bandaríkin muni innan skamms lýsa yfir fylgi við þá tillögu Kanadamanna á Genfarráðstefnunni, að heimiluð verði 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Frá þessu- er greint í fréttabréfi frá National Fisheries Instistute 1 Washington, sem eru heildarsamtök bandarískra útvegsmanna. Þann 11. marz sl. talaði Mr. Dean, fulltrúi Bandaríkjanna, á Genfarráðstefnunni, og lagði þar fram tillögur um að landhelgi yrði ekki leyfð víðari en 3 sjó- mílur. Var hann mjög mótfall- inn mikilli víkkun landhelginnar. Mr. Dean sagði einnig í ræðu sinni: — Ríkisstjórn mín skilur vel þau vandamál, sem ýmis strand- ríki eiga við að stríða, er valda því, að þau hafa framkvæmt ein- hliða aðgerðir til verndar fisk- stofninum. Erum við reiðubúnir til að stuðla að lausn slíkra vanda mála. Þrátt fyrir þessi ummæli hafa Bandaríkin enn ekki lýst berum orðum yfir fylgi við víðari fisk- veiðilandhelgi. Um viku síðar eða þann 17. marz báru Kanadamenn fram til- lögu um þriggja mílna lögsögu- landhelgi og 12 mílna fiskveiði- landhelgi, og lýsti fulltrúi ís- lands, Hans G. Andersen, yfir stuðningi við þá tillögu þann 18. marz. Fréttabréf National Fisheries Institute er gefið út 21. marz og er þar greint frá því að sterkur orðrómur sé á kreiki í Washing- ton, um að bandaríska sendinefnd in í Genf ætli að styðja mjög áveðið tillögur Kanada um þriggja mílna lögsögulandhelgi og tólf mílna fiskveiðalandhelgi. í fréttabréfinu er sagt, að ná- kvæmar fréttir liggi ekki fyrir um þetta, en útvegsmenn í Bandaríkjunum, einkum rækju- veiðimenn hafi þungar áhyggjur vegna þessarar ákvörðunar, þar sem hún myndi tákna það, að þeir misstu rækjumið, sem myndu falla undir fiskveiðiland- helgi Kanada. ISiywrjnn Ármannsson I Húsavík ■ Á SUNNUDAGINN lézt í sjúkra- hús'i hér í Reykjavík, Sigurjón Ármannsson, bæjargjaldkeri í Húsavík, rúmlega sextugur að aldri. Hafði hann verið fluttur sjúkur hingað til Reykjavíkur fyrir nokkrum vikum. Var Sigurjón vel látinn og þekktur borgari á Húsavík, og er mikill mannskaði að honum. Hefir kyrkt tvo minka í greip sinni HELLNUM, 31. marz — Það bar til fyrir stuttu að maður réði nið- urlögum minks með berum hönd- um. Var það Gunnlaugur Hall- grímsson, bóndi á Bárðarbúð á Hellnum. Gekk hann fram á mink á bersvæði á túninu. Þar sem ekkert „vopn“ var við hendina, kastaði Gunnlaugur sér á mink- inn, náði taki um háls á dýrinu og banaði því. Er þetta i annað sinn, sem Gunnlaugi tekst að drepa mink með þessu móti, en í fyrra skipt- ið réðist minkurinn til varnar, stökk upp á brjóst honum og munaði litlu að Gunnlaugur hlyti bana af. Honum tókst þó fljót- lega að vinna á dýrinu, eftir að hafa fest hendur á því. —K.K. Ný verzlun í Auslur- slræti 1 í Reykjavík SL. laugardag var opnuð í Aust- urstræti 1 ný verzlun. Nefnist hún Sport og verzlar með sport- vörur. Eigandi verzlunarinnar er Hákon Jóhannesson. Hann skýrði svo frá við opnun verzlunarinn- ar að takmarkið væri að þarna yrði fullkomin sportvöruverzlun. Fyrst um sinn er aðaláherzlan lögð á veiðistangir og veiðiútbún- að, ferðafatnað og útbúnað allan og allt er snertir ferðalög, enda fer nú tími ferðalaganna senn í hönd. Síðar verða á boðstólum alls kyns íþróttavörur, t. d. til badmintoniðkunar, knattleika o. fl. — Húsnæði verzlunarinnar er smekklega útbúið og að öllu leyti hið snyrtilegasta. YFulltrúaráðs- fundur í kvöld Jóhann Hafstein rœðir stjórnmálaviðhor! /P Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna efnir til fundar í Sjálf- stæðishúsinu í kvöld kl. 20,30. Á fundinum verða til um- ræðu flokksmál, en að þeim loknum mun Jóhann Hafstein, alþingismaður, flytja ræðu um stjórnmálaviðhorfið. Er ekki að efa að fulltrúar muni fjölmenna ár fundinn, þar sem nú mun ríkja mikill áhugi meðal manna á þróun stjórn- máianna. Fuiltrúar eru beðn- ir um að mæta stundvíslega og sýna skirteini við inngang- inn. Myndir þessar eru teknar í Þjóðleikhúsinu á frumsýningu ball- ettanna. Grein um sýninguna er á bls. 6. Bæríim vill kaupa Engey, en ekki ... Á FUNDI bæjarráðs er haldinn var á föstudaginn, var lagt fram á ný og rætt bréf landbúnaðar- ráðuneytisins um makaskipti á Engey og Korpúlfsstöðum. Frá því hefur áður verið sagt hér í blaðinu. Á þessum fundi bæjar- ráðs var samþykkt viljayfirlýs- ing í málinu, þess efnis að bæj- arráð vilji ekki að bærinn láti Korpúlfsstaði af hendi, en það ítrekar tilmæli sín, um að ríkið selji Reykjavíkurbæ Engey. Bygging Búnouoriélagshnssins -------------------------- Skemmtilegar kvik- myndir Vilhjálms VILHJÁLMUR Einarsson, hinn kunni íþróttakappi, er jafnframt góður myndasmiður. Sl. sunnu- dag frumsýndi hann kvikmyndir er hann hefur tekið á ferðalögum sínum til ýmissa stórmóta. Var þar fyrst kvikmynd um förina til Melbourne 1956, síðan um för til Moskvu, til Varsjár, til Búkarest og til Aþenu. Var nær húsfyllir sýningargesta á sunnudaginn. Myndir Vilhjálms eru einkar skemmtilegar. Hann sér fleira en mjög skemmtilega íþróttakeppni, þó slíkt sé uppistaða myndanna. Hann fer með sýningargesti sína um borgir og sveitir viðkomandi landa, sýnir þeim líf framandi þjóða og kemur auga á það fal- lega og það nýstárlega. Hann flytur sjálfur skemmtilegar skýr- ingar með myndunum. í dag og á morgun sýnir hann myndir sínar í Nýja Bíói kl. 5 og 7 báða dagana. Óska eftir landi fyrir kirkjugarð STJÓRN kirkjugarðanna hér í Reykjavik hefur skrifað bæjar- ráði. Er sótt um land undir fram- tíðarkirkjugarð fyrir Reykjavík og nágrenni. Á fundi bæjarráðs á föstudaginn var, var erindi þessu vísað til skipulagsnefndar. 50 þús. kr. fjár- festiiigarleyfi Á FUNDI bæjarráðs er haldin var á föstudaginn, var lögð fram tilkynning frá Innflutningsskrif- stofunni, þar sem tilk. er að leyfð ar séu framk’væmdir við Gnoðar- ' vogsskóla. Er leyfið bundið við 50 þús. kr. fjárfestingu í þessu | skyni. I --------------------- Nýr geymir í stöð Skeljungs OLÍUFÉLAGIÐ Skeljungur sem á olíustöðina miklu í Skerjafirði, hefur fengið leyfi til þess að byggja til viðbótar við benzín og olíugeyma stöðvarinnar einn geymi. Var leyfið samþykkt á fundi bæjarráðs á föstudaginn. Verður síðan frá leyfinu gengið í samráði við slökkviliðsstjóra, til tryggingar á öllum öryggis- búnaði eldsvarnarkerfisins í stöð- inni. FRUMVARPIÐ, sem la^,dbúnað- arnefnd neðri deildar flytur um x/a% viðbótargjald af söluvörum landbúnaðarins, kom til 1. umr. á föstudag. Skv. frumv. á að inn- heimta gjald þetta á árunum 1958—61 og láta það renna til Búnaðarfélagsins og Stéttarsam- bands bænda til að reisa hús þeirra við Hagatorg í Reykjavík. Jón Sigurðsson flutti framsögu ræðu um frumv. Sagði hann, að það væri flutt skv. beiðni stjórn- ar Búnaðarfélags íslands og hefði frumv. verið samþykkt á síðasta búnaðarþingi með 21 atkv. gegn 2. Hús það, sem Búnaðarfélagið reisti sér af miklum stórhug um síðustu aldamót, er nú orðið með öllu ófullnægjandi, sagði Jón, og hafa húsnæðisvandræðin haft truflandi áhrif á starfsemi félags- ins. Árið 1956 var ákveðið að byggja nýtt hús, og hófust fram- kvæmdir þá um haustið. Hefur þeim verið haldið áfram eftir því sem leyfi hafa fengizt. Bæjar- stjórn Reykjavíkur lét í té lóð á góðum stað og ber að þakka það. Að húsbyggingunni standa Bún aðarfélagið og Stéttarsamband bænda. Enn er til allmikið fé í sjóði. en fyrirsjáanlegt er, að það hrekkur engan veginn til. Með því viðbótargjaldi, sem frumv. fjallar um, er talið tryggt, að húsið komist upp, og var síðasta búnaðarþing nokkurn veginn ein huga um álagningu þess. Þar sem um er að ræða skatt á bændur sjálfa virðist afstaða þingsins benda til, að skilningur sé ríkj- andi meðal þeirra á nauðsyn málg ins. Ingólfur Jónsson kvaðst ekki lýsa sig andvígan þessu gjaldi, en sagðist hafa orðið þess var, að ýmsir bændur vildu vita, hvað húsið við Hagatorg ætti að kosta upp komið, hve mikinn hluta þess samtök bænda þyrftu til sinna nota, hve mikið fé væri nú fyrir hendi og hve langan tíma myndi taka að byggja húsið. Bað Ingólfur um upplýsingar um þessi atriði, þó að ekki yrði unnt að veita þær, fyrr en síðar við meðferð málsins. Þá kvaðst Ihg- ólfur álíta, að hið nýja gjald, sem bætist við það Vz% gjald til bún- aðarmálasjóðs, sem áður hafa ver ið ákvæði um í lögum, yrði um 2 millj. kr. á ári. Jón Sigurðsson kvaðst ekki hafa fullkomnar upplýsingar um þessi mál við höndina, og teldi hann því rétt að láta ekki uppi tölur við þessa umræðu. Styrk skipt milli bliiidrafélagaima Á FUNDI bæjarráðs á föstudag- inn, var samþykkt tillaga borg- arlæknis varðandi skiptingu styrks, sem bæjarsjóður veitir tii blindrastarfsemi hér í bænum. Blindrafélögin eru tvö sem kunn ugt er, Blindravinafél. íslands og Blindrafélagið, og fá þau hvort um sig 10 þúsund krónu styrk úr bæjarsjóði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.