Morgunblaðið - 02.04.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.04.1958, Blaðsíða 10
10 MORCVNRT 4Ð1Ð Miðvik'udagur 2. apríl 1958 tttg.: H.l. Arvakur, ReykjavRc. Framkvæmdastjóri: Sigt'us Jónsson. Aðamtstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, simi 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstrætí 6. Sími 22480 Askriftargjalci kr. 30.00 á mánuði innaniands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. HÖRMULEGUR ATBURÐUR ígaBTITAN ÚR HEIMII Þeir œtluðu til liðs við Casfro á Kúbu, en ferð þeirra lauk í fangelsi í Texas 1 garðinum við Cameronfangelsið í Brownsville í Texas sungu liðsmenn Castros þjóðsöng Kúbu fullum hálsi, áður en þeir voru settir í gæzluvarðhald. as, og þaðan var því komið um 1 finnst, að verið sé að skerða rétt borð í Oríon. indi okkar. Við berjumst fyrirlýð FLUGSLYSIÐ á Öxnadals- heiði s. 1. laugardag er svo hörmulegur atburður að engri furðu sætir þótt hann veki í senn sorg og óhug alþjóðar. Fjórir ungir og efnilegir mennta- menn stíga upp í flugvél og fljúga norður yfir heiðar til þess að heimsækja vini og félaga í skóla sínum. Rétt áður en takmarki ferðarinnar er náð fellur flugvél þeirra til jarðar og hinir ungu og glæsilegu stúdentar bíða allir bana. Beiskur harmur er kveðinn að ástvinum þeirra, venzlafólki og félögum. Slíkir atburðir hljóta óhjá- kvæmilega að hvetja til íhugun- ar um það, hvort nægilega strang- ar reglur hafi verið settar hér á landi um einkaflug. íslendingar verða að gæta þess, að veðrátta lands þeirra er óblíð og umhleyp- ingasöm. Sá, sem stígur upp í litla einhreyfilsvél að vetrarlagi í bezta flugveðri verður alltaf að reikna með því að á örskömm- um tíma geti breytzt veður í lofti, Hriðardrög og eljagangur yfir hinum hrikalegu fjallgörð- um, sem fljúga verður yfir víðs- vegar um land gera oft ekki boð á undan sér, jafnvel þótt veður- frétta hafi verið leitað áður en flugferðin hófst, og þær verið gefnar af samvizkusemi og ábyrgðartilfinningu. f>að er athyglisvert að Akur- eyrarflugvöllur gerði s. 1. laug- ardag árangurslausa tilraun til þess að kalla flugvél hinna ungu stúdenta upp til þess að skýra þeim frá slyddu- og hríðaréljum á Öxnadalsheiði og vara þá við þeim. En ekkert samband náðist við flugvélina. Margt bendir því til þess að hún hafi lent í dimm- YFIRLÝSING Alþýðublaðs- ins um að „mikil síldveiði myndi sennilega gera ís- lenzka ríkið gjaldþrota“ á sér áreiðanlega engan líka í íslenzkri stjórnmálasögu. Eitt af aðalmál- gögnum vinstri stjórnarinnar lýs- ir því yfir fullum fetum, að af- leiðingin af stefnu stjárnarinnar í efnahagsmálum sé engin önn- ur en sú, að velgengni atvinnu- veganna, mikil síldveiði eða jafn- vel góð grasspretta myndu „gera íslenzka ríkið gjaldþrota“H Hafi þjóðin verið í nokkrum vafa um það áður, hvílíka ógæfu vinstri stjórnin hefur leitt yfir hana, þá hlýtur sá efi nú að sópast burtu. En ætla mætti, að þegar mál- gögn ríkisstjórnarinnar hafa gert sér það ljóst, hvert stefna henn- ar hefur leitt þjóðina þá reyndu þau að benda á nýjar leiðir út úr vandræðunum. En það hafa þau ekki getað gert. Alþýðublað- ið hefur að vísu talað um það undanfarið að „nýjar leiðir“ skyldu reyndar, „a. m. k. nýtt form“. „Nýtt form“ á hverju? Sjálfu uppbótakerfinu, sem bæði Tím- inn og Alþýðublaðið segja að hafi „gengið sér til húðar“ og hafi það í för með sér að velgengni atvinnuveganna myndi setja land ið á hausinn. viðri yfir heiðinni og flugmað- urinn hafi þá reynt að snúa við. En þá hafi það verið orðið of seint. í hinum þröngu, snævi þökktu dölum hins mikla fjall- garðs milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar er erfitt að hafa örugga stjórn á flugvél á mikilli ferð þegar land, loft og snær renna saman. Við slíkar aðstæð- ur verða slysin á einu auga- bragði. Endurskoðun á reglum um einkaflug Það er ástæða til þess, að end- urskoðun fari fram á reglum þeim, sem gilda hér um einka- flug og e. t. v. einnig hinum al: mennu reglum um farþegaflug í landinu. Einskis má láta ófreist- að til þess að skapa sem mest öryggi í þessum efnum. Flest flugslys, sem orðið hafa hér á landi eiga að meira og minna leyti rætur sínar í því, að ein- hverra varúðarreglna hefur ekki verið gætt sem skyldi. Einnig gæti komið til mála að banna einkaflug milli landshluta á litl- um flugvélum algerlega yfir há- veturinn. Slíkt bann næði að sjálfsögðu ekki til sjúkraflugs, sem stjórnað er af æfðum og reyndum flugmönnum, enda þótt á litlum flugvélum sé. Aðalatriðið er að fyllstu varúðarreglna sé ávallt gætt i öllu flugi. Þrátt fyrir hinar miklu tæknilegu framfarir á sviði flugsins og sívaxandi öryggi er þörf strangra reglna um allt, sem að flugferðum lýtur. Er verið að undirbúa ,,nýtt form“ á uppbótarken-fið? Enda þótt málgagn kommún- ista segi, að orðræður Alþýðu- blaðsins um „þriðju leið“ Al- þýðuflokksins séu „skrum og mannalæti" virðist þó margt benda til þess að stjórnarflokk- arnir séu nú að reyna samninga um „nýtt form“ á uppbótarkerf- ið. í því felst þó engin grund- vallarbreyting. Nýir skattar og tollar verða lagðir á þjóðina til þess að unnt verði að rísa undir sívaxandi hallarekstri framleiðsl- unnar og greiðsluhallabúskap ríkisins. Ekkert nýtt gerist, eng- in „ný leið“ eða „varanleg úr- ræði“ finnast. Þannig fær íslenzka þjóðin stöðugt gleggri mynd af þeirri upplausn og úrræðaleysi, sem mótar allt starf og stefnu vinstri stjórnarmnar. Stjórnin gerir þó allt sem hún getur til þess að dylja hið raunverulega ástand efnahagsmálanna fyrir fólkinu. Þjóðin fær ekki að kynnast áliti og tillögum sérfræðinga stjórn- arinnar í þessum málum. Slík stjórn getur ekki notið trausts nokkurs hugsandi manns. FYRIR nokkru tóku 35 spönsku- mælandi New Yorkbúar sig sam an um að fara til Kúbu og ganga þar í lið með uppreisnarforingj- anum Fidel Castro. Ævintýra- mennirnir náðu samt aldrei leið arenda, því að sl. fimmtudag voru þeir handteknir á skipi sínu af mönnum úr strandverði banda- ríska flotans. Voru þeir allir settir í gæzluvarðhald ásamt skip stjóranum og þriggja manna áhöfn. Skip þeirra, sem heitir Orion kvað áður hafa verið not- að til rækjuveiða, en nú var það hlaðið vopnum handa Castro, og mun kaupmaður nokkur frá Mexi kó City hafa lagt voppin til. All- ir, sem voru á skipinu, voru ákærðir fyrir að hafa brotið hiut leysislög Bandaríkjanna. Gáfust upp mótspyrnulaust Tvö skip úr strandverði Banda ríkanna frá Port Isabel í Texas reyndu að stöðva Orion við mynni Brazosfljótsins úti fyrir Padreeyjú við vesturströnd Tex- as. En skipverjar á Orion létu viðvörunarskotið sem vind um eyrun þjóta, Urðu strandmenn- irnir að skjóta á skipið sjálft og komust um borð í Orion í dögun á fimmtudagsmorgun, og slcip- verjar gáfust upp mótspyrnu- laust. Orion er skráð í Nicara- gua. Skipverjar voru klæddir olíu- göllum, en báru um handlegginn einkennisbönd hreyfingarínnar sem kennd er við 26. júlí og er einkennismrki uppreisnarmanna. sem berjast á Kúbu undir forustu Castro gegn stjórn Fulgencio Batista forseta. Skipstjórinn og þriggja manna áhöfn Orions er frá Ecuador. í lest skipsins voru vélbyssur. rifflar og létt vopn, auk þess skot færi og ýmiss konar birgðir. Um svipað leyti og skipið var stöðvað, var maður að nafni Antoníó de Conde handtekinn í grennd’við Brownsville í Texas. De Conde er eigandi sportvöru- verzlunar í Mexikó City, og mun hann hafa séð um kaup á vopnum og birgðum fyrir skipverjana á Orion. Flutti hann vopnin og birgðirnar til Brownsville í Tex- Foringinn — bygpingar- verkamaður frá N Y. Foringi ævintýramannanna um um borð í Oríon er 34 ára að aldri og heitir Arnaldo Barron. Sagð- ist hann vera byggingaverka- maður frá New York. Barron er kvæntur og á tvö börn. Er hann fæddur á Kúbu, en fluttist til Bandaríkjanna og gerðist banda- rískur ríkisborgari. Spöruðu við sig í marga mánuði til að geta keypt vopnin Sagði Barron, að þeir félagar hefðu ætlað að fara til aðalbæki stöðva Casti'os í Oriente Province á Austur-Kúbu. Tíu gúmmíbát- ar fundúst um borð í Oríon, og munu þeir hafa ætlað að ná landi á Kúbu á þeim. Barron mótmælti handtökunni kröftuglega. „Mér ræði á Kúbu, og Bandaríkjamenn ættu að réttu lagi að hjálpa okk- ur“, sagði hann. Kvað hann þá félaga hafa sparað við sig í marga mánuði til að geta aflað þeirra 20 þúsund dala, sem greiða þurfti fyrir vopnin, er nú voru gerð upp tæk. Barron spáði því, að ekki mundi líðá á löngu, þangað til að gerð yrði uppreisn á Kúbu gegn stjórn Batista. Skurðlæknir og ptrestur með í förinni Þeir félagar eru á aldrinum 17 —53 ára, og eru þeir úr ýmsum stéttum. Einn þeirra er skurð- læknir, dr. Carlos Torrens, ann- ar prestur, séra Ignacio Mosqu- eda. Þeir eru allir frá Kúbu nema einn, sem er frá Puerto Rico. Og allir segjast þeir hafa tekið útlegð fram yfir það að búa áfram á Kúbu undir stjórn Bat- ista. Fóru þeir landleiðina frá New York til Brownsville í Texas. I Tékkóslóvakíu er enn haldið við þeim sið að míla páskaegg. Þetta hefur verið gert kynslóð fram af kynslóð, og enn er sá siður hafður í heiðri jafnt af ungum sem gömlum. Iiér sjást tékkneskar konur á ýmsum aldri búnar fallegum þjóðbúningum sitja við að mála páskaegg eins og önirnur þeirra hafa gert um aldaraðir. Myndin er tekin á heimili í Ostrozska í Tékkóslóvakíu. YFIRLÝSING SEM A SER ENGAN LIKA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.