Morgunblaðið - 17.04.1958, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 17. apríl 1958
MORCVTSBLAÐIÐ
13
Frú Guðrún Daníelsdóttir
IjósmóBir — minning
í DAG er góður Vestfirðingur,
frú Guðrún Daníelsdóttir, ljós-
móðir, kvödd hinztu kveðju.
Hún andaðist í Landakotsspítala
8. þ.m. eftir fáfra daga þunga
lcgu.
Frú Guðrún fæddist að Kirkju-
bóli í Valþjófsdal, Önundarfirði,
19. ág. 1890. Foreldrar hennar
voru hjónin Daníel Bjarnasón og
Guðný Finnsdóttir, er þá
bjuggu þar, en fluttu síðar að
Vöðlum í sömu sveit og um 1910
að Suðureyri í Súgandafirði. Þau
hjón voru af vestfirzkum ættum,
vinsæl og vel metin af öllum.
Sex voru börn þeirra alls. Á lífi
eru nú Daníel læknir á Dalvík
og Finnur, skipstjóri, búsettur á
Akureyri. Frú Guðrún hlaut hið
bezta uppeldi hjá foreldrum sín-
um og með þeim dvaldist hún
þar til hún giftist vorið 1918, eft-
irlifandi manni sínum, Jóni S. I
Jónssyni, traustum og góðum
dreng. Sama árið fór hún til
Rvíkur að læra ljósmóðurfræði í
þágu sveitarinnar og tók ljós-
móðurpróf með 1. einkunn vorið
1919. Síðan gerðist hún ljósmóð-
ir í sveit sinni og gegndi því
starfi til 1922. Þá veiktist frú
Guðrún og fluttu þau hjón þá til
Reykjavíkur. Dvaldi hún þá all-
lengi í sjúkrahúsi, og fékk bót
meina sinna. Hóf hún þá ljós-
móðurstörf hér syðra, en maður
hennar stundaði sjóinn árum
saman. Frú Guðrún hefur því
stundað ljósmóðurstörf hér í bæ
hálfan fjórða áratug og alltaf
farnazt vel, enda vel að sér í starf
inu, vinsæl og vel metin. Hún
rækti starf sitt af alúð og sam-
vizkusemi og var gædd ríkri
ábyrgðartilfinningu. Árum sam-
an tók hún sængurkonur heim til
sín og leysti á þann hátt vand-
ræði margra. Hjúkrunarstörf
fóru henni vel úr hendi.
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en ólu upp tvær fóstur-
dætur. Kristínu Alexandersdótt-
ur, systurdóttur frú Guðrúnar og
Bertu Björgvinsdóttur, elztu
dóttur Kristínar.
Báðar hlutu þær hið bezta upp-
eldi og eru nú giftar húsfreyjur
hér í bæ og eiga mörg mannvæn-
leg börn, sem notið háfa ástríkis
Guðrúnar, sem væri hún eigin
amma þeirra.
Ekki kann ég deili á hvað Guð
rún tók á móti mörgum börnum,
en hitt veit ég að hún minntist
þeirra allra með ástúð og kær-
leika, sem eigin börn væru, enda
átti hún marga vini í þeirra
hópi.
Ég mun jafnan minnast þess-
arar frændkonu minnar sem
kvenskörungs. Hún var mikil á
velli og myndarleg í sjón, ágæt-
lega greind, allskapmikil, hrein-
lynd og djörf. Skemmtileg í við-
ræðu hélt vel á máli sínu, við
hvern sem hún átti, trygglynd og
vinföst. Hún var jafnan tengd átt
högunum sterkum vináttubönd-
um, enda eru þeir orðnir margir
Vestfirðingarnir, áem notið hafa
góðvildar og gestrisni þeirra
Aðalbólshjóna á liðnum árum.
Frú Guðrún var vel ættfróð,
sem móðir hennar og mikill unn-
andi kirkju og kristindóms, erida
uppalin í guðsótta og góðum sið-
um. Fyrir það var hún foreldrum
sínum þakklát og minntist þeirra
jafnan með ást og virðingu. —
Þau dóu bæði í hárri elli á Aðal-
bóli, fyrir nokrum árum og nutu
hjúkrunar og umhyggju þessar-
ar dóttur sinnar til síðustu stund-
ar. Guðrún rækti vel skyldur
sínar, sem dóttir, eiginkona og
húsmóðir. Allra síðustu árin var
heilsa hepnar syo biluð, að hún
gat ekki sinnt ljósmóðurstörfum,
en að heimilisstörfunum gekk
hún með óbilandi kjarki og
þreki þar til nokkrum dögum
fyrir andlát sitt.----
En nú eru þáttaskil. — Útförin
fer fram í dag frá Neskirkju.
Vinir og frændur koma saman í
kveðju- og þakkarskyni, um leið
og þeir votta öldruðum eigin-
manni, fósturdætrum og skyldu-
liði þeirra samúð sína. Eftir lifir
minningin um merka og góða
konu, sem var trú köllun sinni
og rækti skyldur sínar til hins
ýtrasta, þar til yfir lauk. Slíkra
kvenna er gott að minnast.
Ingimar Jóhannesson.
STÚLKA
vön að sníða algengan fatnað óskast strax.
Upplýsingar hjá verkstjóranum Skipholti 27.
5 eða 6 herbergja hæð
óskast keypt nú þegar
helzt á Teigunum eða Laugarneshverfinu. Sérhiti og
sérinngangur æskilegast. Tilboð óskast send Morgun
blaðinu merkt: — „1313“.
2 kjallaraíbúðir
við Njálsgötu, önnur 3 herbergi og eldhús, hin 1 her-
bergi og eidhús, eru til sölu nú þegar.
Semja ber við
Ólaf Þorgrímsson, hrl.
Austurstræti 14.
Svissneskoi og Hollensknr
Dragtir
í fjölbreyttu óivoli
*
Húseign við Efstasund
til sölu. íbúðin er 4ra herbergja íbúð á hæð og 2ja
herbergja ibúð í kjallara. Góðar geymslur. Ræktuð
og girt lóð.Góð lán áhvílandi. Útborgun tvöhundruð
þús. kr.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4. — Sími 16367.
Vorrýmingarsalan
heldur
. Nýjar gerðir teknar fram daglega
Karlmannaskór með tvöföldum leðursólum
Nú 190,00 áður 318,00
Karlmannamokkasínur með leðursólum
Nú 180,00 áður 298,00
Knattspyrnuskór verð aðeins
100,00 áður 298,00
Kvenskór með hælum
Nú 100,00 áður 266,00
Kvenskór sléttbotnaðir
Nú 100,00 áður 298,00
Drengjaskór með leðursólum
Nú 80,00 áður 247,00
Vorrýmingarsalan stendur aðeins til helgar
Opnum klukkan
Aðalstrœti 8