Morgunblaðið - 17.04.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
Hægviðri. Vestan kaldi eða
stinningskaldi. Skúrir
Ráðamenn
Alþýðubandaiagsins og komm-
únista. Sjá bis. 10,
Háloflsbelgur frá flugvellinum
fór upp í 46 km Hæ6 á 100 min
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, liefur Magnús Jónsson
fengið mjóg lofsamlega dóma fyrir söng sinn í II Trovatore
eftir Verdi, sem nú er sýnt í Konunglega í Kaupmannahöfn.
Myndin hér að ofan sýnir þau Magnús Jónsson og Bonna
Söndberg, sem fara með aðalhltutverkin í óperunni. Magnús fer
i«eð hlutverk Manricos og Bonna Söndberg með hlutverk
Leonoru.
Konserfuppfœrsla á
Carmen í nœstu viku
Amerísk söngkona komin — Stefán Islandi
og þýzkur hljómsveitarstjóri vœntanlegir
Keflavíkurvelli 16. apríl.
Á KEFLAVÍKURVELLI er rekin
háloftastöð, sem annast veður-
athuganir er gerðar eru með sér-
stökum mælitækjum, sem send
eru upp með loftbelg.
Er stöðin rekin sameiginlega af
Veðurstofu íslands og veðurþjón
ustu varnarliðsins.
Við háloftastöðina vinna 7 ís-
lenzkir veðurathugunarmenn, er
hafa verið þjálfaðir til þess starfa
á Keflavíkurflugvelli. Mánudag-
inn 14. apríl sl. náði loftbelgur
frá háloftastöðinni á Keflavíkur-
velli 151.864 feta hæð, en þetta
mun vera methæð slíkra loft-
belgja frá veðurathugunarstöðv-
um við norðanvert Atlantshaf eða
1 Evrópu.
Mesta hæð sem vitað er, að
slíkir veðurathugunarbelgir hafi
náð áður, er 156.495 fet. en það
gerðist á Johnston Island í Kyrra
hafi árið 1957.
Veðurbelgir þessir eru gúmmí-
belgir fylltir af helíum, en neðan
í þeim hanga athugunartækin,
I GÆR var samþykkt samhljóða
á fundi í sameinuðu Alþingi svo-
hljóðandi þingsályktunartillaga
frá fjárveitinganefnd:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta fram fara
athugun á ákvæðum almanna-
Konan lézt
í fyrrinótt
KONAN, sem varð undir strætis
vagninum í fyrrakvöld, frú Mar-
ía Jónsdóttir, Arnarhóli við Breið
holtsveg, lézt laust eftir miðnætti
í fyrrinótt.
í gærdag var rannsókn málsins
haldið áfram og gaf sig fram
við rannsóknarlögregluna fólk,
sem séð hafði er slysið varð. Bar
það, að kápa konunnar hefði orð-
ið á milli þá er hurðinni var Iok-
að. Konan hafði dregizt stuttan
spöl með vagninum, áður en hún
varð undir afturhjóli hans. Far-
þegar, sem í vagninum voru er
slysið varð, gáfu eínnig skýrslur
um að þeir hefðu ekki orðið þess
varir er slysið varð. Rannsókn-
arlögreglan kannaði ýtarlega ör-
yggisútbúnað vagnsins og varð
þar ekkert að fundið.
Frú María Jónsdóttir lætur eft-
ir sig eiginmann, Júníus Ólafsson
og uppkomin börn.
Uppgripaafli lijá
netjabátum
frá Akranesi
AKRANESI, 16. apríl — Upp-
gripaafli var hjá netjabátunum
hérna í gær, og fengu 17 bátar
samtals 350 lestir.- Það jafngildir
20,6 lestum að meðaltali á bat.
Aflahæstir voru Sigurvon með
43 lestir, Sæfaxi með 33,5 og
Böðvar með 26,5. Hjá fjórum
netjabátanna var fiskurinn
tveggja nátta, en hjá hinum 13
þriggja nátta gamall. Reknetja-
bátarnir þrír létu reka í nótt.
Svanur var þeirra hæstur með
40 tunnur síldar. — Oddur.
sem vega 1250 grömm. Tæki þessi
senda frá sér upplýsingar um
hita, rakastig og loftþrýsting. Sér
stök móttökutæki í háloftastöð-
inni rita upplýsingar þessar nið-
ur en síðar er unnið úr þeim af
veðurathugunarmönnum. Enn-
fremur eru sérstök radartæki í
háloftastöðinni, sem gera mönn-
um kleift að fylgjast með ferð-
um loftbelgsins á leið hans upp
í háloftin. Er þannig hægt að afla
upplýsinga um hraða og stefnu
þeirra vinda er hann mætir á
leið sinni.
Það tók lofbelginn, sem setti
hæðarmetið á mánudaginn var,
aðeins 100 mínútur að stíga þessa
rúmlega 46 kílómetra, en þar
uppi var ofsarok á vestan eða
87 hnúta vindur.
Þegar metið var sett, þá var
íslenzk vakt á háloftastöðinni eða
þeir veðurathugunarmennirnir:
Stefán Ólafsson, Þórarinn Hjör-
leifgson og Þórður Guðmunds-
son.
tryggingalaga um lífeyrisgreiðsl-
ur með það fyrir augum að bæta
hlut lífeyrisþeganna. Verði sér-
staklega athugað, hvort unnt sé:
1. að hækka grunnupphæðir
elli-, örorku- og barnalíf-
eyris,
2. að heimila allt að tvöföldun
barnalífeyris vegna munað-
arlausra barna,
3. að greiða að einhverju leyti
lífeyri með barni látinnar
móður,
4. að jafna að einhverju eða
öllu leyti aðstöðu hjóna og
einstaklinga gagnvart trygg
ingarlögunum“.
Tillögu þessa bar nefndin fram,
er hún hafði athugað tillögu um
hækkun elli- og örorkulífeyris
frá Jóhönnu Egilsdóttur og til-
lögu um endurskoðun á ákvæð-
um um barnalífeyri, sem flutt var
af Ragnhildi Helgadóttur, Jó-
hönnu Egilsdóttur og Öddu Báru
Sigfúsdóttur. — Kemur tillaga
nefndarinnar í stað þéssara
tveggja tillagna.
Bezti afladagur
Grundarfjarðar
báta
GRUNDARFIRÐI, 16. apríl —
Bezti afladagur Grundarfjarðar-
báta var í gær. Alls bárust a
land 147 lestir af sjö bátum eða
21 lest til jafnaðar á bát. Afla-
hæstir voru Farsæll með 36 lestir
og Grundfirðingur II með 27 lest-
ir. Geysimikil atvinna er nú í
Grundarfirði við hagnýtingu sjáv
araflans. — Emil.
Á ÞINGFUNDI í gær var tillaga
Jóhanns Jósefssonar og Karls
Guðjónssonar um að hraða lagn-
ingu raflínu til Vestmannaeyja
samþykkt með breytingu, sem
EFTIR því sem blaðið hefir
frétt mun von á konsetrtupp-
færslu á óperunni Carmen,
eftir Bizct i Austurbæjarbíói,
jafnvel í næstu viku. Er það
Sinfó.xíuhlómsveitin, sem
gangast mun fyrir þessari
sýningu.
Lýst eftir hjóli
ELLEFU ÁRA gamall fatlaður
drengur átti leið inn í Vesturver
í gær. Meðan hann var inni,
hvarf reiðhjól hans, rautt kven-
hjól með hvítum aurhlífum. Þeir,
sem vita, hvað af hjólinu hefur
orðið, ættu að hringja í síma
3-45-11.
Missir hjólsins kemur sér mjög
illa fyrir drenginn, sem ella
verður að fara um göturnar við
tvær hækjur.
□-----------------------n
ALÞINGI samþykkti í gær þings
ályktunartiliögu um að safnað
skyldi heimildum um sögu Is-
lands í báðum heimsstyrjöldun
um. Féllst það þar með á tillögu
Benedikts Gröndal svo og á breyt
ingu á henni, sem nefnd lagði til
eftir ábendingu menntamálaráðs.
fjárveitinganefnd lagði til, að
gerð yrði. Felldar voru tillögur
nokkurra þingmanna um við-
auka vaiðandi raflínur í öðrum
háruðurn. Alimiklar og heitar
umræður urðu um málið.
Þegar er komin hingað
bandarisk söngkona, sem fer
með titilhlutverkið. í kvöld
er Stefán Islandi væntanleg-
ur frá Kaupmannahöfn og
ennfremur hljómsveitarstjóri
frá Hamborg.
Meðal annarra, setm fara
með veigamikil hlutverk, eru
Guðmundur Jónsson, Árni
Jónsson og Guðmunda Elías
dóttir.
SNEMMA á yfirstandandi þingi
bar Bjarni Benediktsson fram
þingsályktunartill. um, að birtar
skyldu skýrslur um framlag
ríkissjóðs til lækkunar á vöru-
verði. Skyldi þar sundurliðað,
hve hátt framlag er greitt vegna
hverrar vörutegundar, og hver
áhrifin yrðu, ef greiðslunum
yrði hætt.
Fjárveitinganefnd fékk tillög-
una til athugunar, og hefur hún
skilað áliti. Lagði hún til, að
tillagan yrði afgreidd með rök-
studdri dagskrá, þar sem skýrsla
um þetta efni hefur verið birt í
Hagtíðindum, eftir að tillagan
kom fram, „og í trausti þess, að
framvegis verði birtar allar breyt
ingar á þessu framlagi, jafnóðum
og þær koma til framkvæmdá'.
Málið var rætt á þingfundi í
gær. Bjarni Benediktsson kvaðst
álíta þessa afgreiðslu fullnægj-
andi, þar sem tillagan hefði þeg-
ar náð tilætluðum árangri og
ætlazt væri til, að þingið léti
Margrét prinsessa
sæmd stórkrossi
Fálkaorðunnar
I TILEFNI af 18 ára afmæli
Margrétar prinsessu, ríkisarfa
Dana, í gær, sendi forseti Islands
Friðrik konungi og Ingrid drottn-
ingu heillaóskir með kveðjum til
krónprinsessunnar.
Forsetinn hefur ennfremur
sæmt Margréti prinsessu stór-
krossi hinnar íslenzku fálkaorðu,
og afhenti sendiherra íslands í
Kaupmannahöfn henni heiðurs-
merkið í gær.
Frá orðuritara.
Svæiingatæknir að
Hvítabandsspítala
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn, var rætt um
ráðningu svæfingalæknis að
Hvítabands-sjúkrahúsinu. Höfðu
yfirlæknir sjúkrahússins, Kj'ist-
inn Björnsson og borgarlæknir,
Dr. Jón Sigurðsson, sent bæjar-
ráði bréf um þetta mál. Sam-
þykkti bæjarráð að ráða slíkan
sérfræðing að spitalanum, er auk
■ /æfinga annist rannsóknar-
störf við sjúkrahúsið.
„Maður og kona" í
Bæjarbókasafns-
garðinum
FYRIR nokkrum árum urðu
snarpar blaðadeilur út af högg-
myndinni „Maður og kona“ eftir
Tove Ólafsson. — Hafði högg-
myndin verið gefin Þjóðleikhús-
inu, en í odda skarst út af því er
hún var flutt til í Þjóðleikhús-
inu. Gefendur vildu eigi á þá
ráðstöfun fallast. Þau urðu svo úr
slit málsins að gefendur létu
fjarlægja höggmyndina úr Þjóð-
leikhúsinu.
Nú er höggmynd þessi aftur
komin á dagskrá. Á fundi bæjar-
ráðs er haldinn var á þriðjudag-
inn, var samþykkt að velja högg
myndinni stað í hinum fallega
garði Bæjarbókasafnsins við
Þingholtsstræti.
uppi vilja sinn á þann hátt, sem
væri jafnbindandi fyrir ríkis-
stjórnina og samþykkt tillögunn-
ar hefði verið. — Var tillagan
síðan afgreidd með samhljóða at-
kvæðum eins og fjórveitinga-
nefnd lagði til.
Revíusýning
í KVÖLD verður revían „Tungl.
ið, tunglið, taktu mig“ sýnd fyrir
meðlimi Heimdallar og gesti
þeirra. Sýningin hefst kl. 8 e. h.
Nokkrir miðar verða seldir í
Sjálfstæðishúsinu í dag.
— BÞ.
Endurskoðun úkvæðu
um líieyrisgreiðslur
Hraðað verði lagningu
raflínu til Vestm.eyja
Birfar séu skýrslur um
greiðslur lil að lækka vöruverð