Morgunblaðið - 10.05.1958, Qupperneq 16
VtÐRID
Norffan gola effa kaldi.
Léttskýjað.
105. tbl. — Laugardagur 10. maí 1958
Sfaldrað við í Afomium
Sjá grein á bls. 9.
Lögregluþjónn stórslasast í elt-
ingaleik við ökufant
UNGUR lögreglumaður í um-
ferðarlögreglu bæjarins Þorkeil
Pálsson að nafni, slasaðist mikið
í gærdag á Skúlagötunni, er hann
var að veita eftirför ökufanti
sem þar ók með 70—90 km harða.
Var lögreglumaðurinn fluttur
mikið slasaður í Landsspítalann.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
Höfuðborgamót
í Stokkhólmi
DAGANA 1.—5. júní nk. verður
norrænt höfuðborgamót haldið í
Stokkhólmi.
Þar verða rædd ýmis sameigin-
leg vandamál norrænna höfuð-
borga. Aðalumræðuefni mótsins
hefur hlotið fyrirsögnina: „Stor-
stad och trivsel“.
Mótið verður mjög viðburða-
ríkt. Flutt verða erindi og efnt
til umræðu- og fræðslufunda um
vandamál stórborganna. Skoðun-
arferðir verða farnar, m. a. um
ýmis nýjustu hverfi Stokkhólms-
borgar, svo sem Ársta og Válling-
by. Mikil hátíðahöld — Stock-
holms festspel — eiga sér stað í
Stokkhólmi einmitt þessa sömu
daga, og gefst þátttakendum móts
ins kostur á að velja um fjöl-
breytt skemmtiatriði: tónleika,
ballettsýningar og óperusýningar
í Stokkhólms-óperunni og ieik-
sýningar á Dramaten og í leik-
húsi Drottningarhólms-hallarinn-
ar.
Tíu íslendingar geta gerzt þátt-
takenður. Þátttökugjaldið er 200
sænskar krónur, og er þar inni-
falin gisting í hóteli, fæði og ferð
ir innan borgarinnar ásamt að-
göngumiðum á a. m. k. 2 hátíða-
sýningar, sem áður er getið.
Þátttaka tilkynnist eigi síðar
«n 18. maí nk. til framkvæmda-
stjóra Norræna félagsins í
Reykjavík, er veitir nánari upp-
lýsingar um mótið.
(Frá Norræna félaginu).
Þetta gerðist laust fyrir klukk
an 2 í gærdag. Löreglumaðurinn
ók á bifhjóli sínu vestur eftir
Skúlgötunni. Á móti honum
komu allmargir bílar. Einn bíll
fór þar æði geyst og renndi fram
úr öðrum bílum á mikilli ferð.
Lögreglumaðurinn mætti þessum
bíl við Vatnsstígshornið. Hann
sneri þar við og veitti ökufant-
inum eftirför. Setti hann „síren-
una“ í samband og var brátt
kominn á mikla ferð.
Inn við Vitastígshornið dró
hann uppi tvo bíla. Sá sem á eftir
fór var hávaðasamur Garrant
sendiferðabíll. Var bílstjórinn
búinn að sveigja inn í götuna,
en hann ætlaði upp Vitastíginn,
er hann heyrði í sírenu lögreglu-
hjólsins, en nam þá staðar sam-
stundis. Lögregluhjólið var þá
komið á hlið við bílinn. Þor-
kell lögreglumaður hafði sveigt
til hægri frá sendiferðabíln-
um, en tók síðan vinstri
beygju. — Rétt austan við
gatnamót Vitastígs, 7 m. frá horni
stóð vörubíll, sem einnig hafði
verið á leið austur eftir Skúla-
götunni, er hann nam þar stað-
ar. Var Þorkell í vinstri beygju
aftur inn á götuna, er mótorhjól-
ið rann inn undir pall vörubíls-
ins. Þorkell hafði hallað sér mik-
ið yfir til vinstri er hjólið rann
inn undir vörupallinn. Hann kast
aðist af hjólinu í götuna. — Lít-
illi stundu síðar komu sjúkraliðs
menn. Var Þorkell fluttur í
slysavarðstofna, en síðan í Lands
spítalann.
Þorkell slasaðist mikið. Hann
mun hafa fótbrotnað á öðrum
fæti og lærbrotnað á hinum.
Auk þess brákaðist hann á kinn-
beini og tognaði í mjöðm. Þyk-
ir sýnt að það hafi bjargað
lífi lögreglumannsins hve hjólið
hallaðist mikið er áreksturinn
varð, svo að megin höggið við
áreksturinn kom á það. T.d. brotn
uðu fjaðrahengsli og augablað
á vörubílnum og mótorhjólið
sjálft hnýttist svo við árekstur-
inn að það virðist ónýtt.
Líðan Þorkels var eftir atvik-
um í gærkvöldi.
Það er af ökufantinum að
segja, að lögreglan telur að þar
hafi verið á ferðinni tvítugur
piltur sem búið er að svipta öku-
leyfi ævilangt. í gærkvöldi hóf
rannsóknarlögreglan leit að pilt-
inum og bílnum.
Samkeppni Afmælissjóðs útvarpsins:
64 lög við kvœði Jónasar
SKILAFRESTUR er nú útrunn-
inn í samkeppni Aímælissjóðs
útvarpsins um lög við kvæði
Jónasar Hallgrímssonar. Alls
bárust 64 lög, en ekki er vitað
hversu tónskáldin eru mörg, því
að nöfn þeirra fylgja í lokuðum
einkennisumslögum, en lögin
send inn undir dulnefnum. Flest
lögin eru einsöngslög með píanó-
undirleik. en mörg eru einnig fyr
ir blandaðan kór og fyrir karla-
kór og nokkur hljómsveitarverk.
Dómnefndarmennirnir, dr.
Páll ísólfsson, Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari, Fr. Weiss-
happel pínóleikari og Guðmund-
Fékk reiðhjdl lónnð hjó litlum
dreng og skiluði því ekki oitur
HINN 1. maí síðastl. var átta ára
drengur niðri við Hjörn. Hann
hafði farið þangað á nýlegu hjóli
sínu vestan úr bæ til þess að gefa
öndunum. Við Tjörnina hitti
hann dreng, sem var á líku reki
og hann. Þeir tóku tal saman, en
ekki vissi þó hjóleigandinn hvað
hann hét þessi drengur. Inn í um-
ræðurnar dróst reiðhjólið og
ágæti þess. Varð það úr að eig-
Björgunarsfarfið viS
Lálrabjarg í Oamla bíói
’SLYSAVARNADEILDIN Ingólf-
ur gengst fyrir sýningu á kvik-
myndinni Björgunarstarfið við
Látrabjarg, í hinni þýzku út-
gáfu. Sýningin fer fram í Gl.
bíói kl. 3 í dag og verða miðar
seldir við innganginn. Óskar
Gíslason tók mynd þessa á sínum
tíma, en þýzka útgáfan er stytt
og tekur sýningin um klst. Höfðu
margir óskað eftir að sjá myndina
í þessari útgáfu og því er hún
sýnd nú. Jafnframt verður sýnd
ný mynd um notkun gúmbjörg-
unarbáta.
andinn leyfði drengnum að reyna
það. Steig sá á bak því og hjólaði
inn í umferðina. En hann kom
ekki aftur með hjólið og siðan
hefur ekkert til þess' spurzt.
Þetta var rautt drengjahjól með
hvítum aurbrettum, „Olimpic".
Litli drengurinn hefur verið nær
óhuggandi síðan hann tapaði
hjólinu sínu. Nú eru það tilmæli
lögreglunnar til þess sem hjólið
tók, að hann skili því aftur. t.d.
niður að Tjörn. Eins vill lögregl-
an biðja foreldra að athuga þetta
mál, svo og aðra er upplýsingar
gætu gefið um hvar hjólið sé
niðurkomið.
Liíðrasveilm heim-
sækir tvö úthverfi
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur ætl-
ar í dag að heimsækja tvö út-
hverfi bæjarins og leika þar fyr-
ir íbúana. — Ef þetta mælist vel
fyrir, munum við síðar smám
saman halda útihljómleika í öðr-
um úthverfum bæjarins, sagði
Magnús Sigurjónsson formaður
Lúðrasveitar Reykjavíkur, blað-
inu í gær. í dag heimsækir Lúðra
sveitin Langholtshverfið og mun
leika við Langholtsskólann kl. 4.
Síðan fer hljómsveitin að Háa-
gerðisskóla og byrjar að leika þar
kl. 5 í dag.
Bókaupphoðí dag
SIGURÐUR Benediktsson efnir
til bókauppboðs í Sjálfstæðishús-
inu kl. 2 í dag. — Bækurnar verða
til sýnis kl. 10—1 á uppboðsstað.
M.a. verður selt: Óðinn (allt, sem
út kom), Láki (gamanblað útg.
1919), Tímarit Jóns Péturssonar,
Víg Snorra Sturlusonar, sérprent-
un á kvæði Matthíasar, (útg. Eski
firði 1879), frumútg. á ljóðum
Kristjáns Jónssonar og Bjarna
Thorarensen o. fl. skálda, Lög-
fræðingur Páls Briem, Dýravin-
urinn (allur), Eimreiðin (öll,
með kápum). Alls verða slegin
158 númer.
ur Matthíasson tónlistarkennari
eru nú að fara yfir lögin og er
gert ráð fyrir að það taki nokk-
urn tíma, vegna þess hve þátt-
takan er mikil.
Ríkisútvarpið bauð til þessar-
ar keppni í vetur fyrir áramót á
vegum Afmælissjóðs síns og eru
verðlaunin alls 11.500.00 kr.
Tónskáldunum var frjálst að
velja sjálf texta við lögin, en út-
varpið benti þó sérstaklega á
nokkur kvæði og kvæðaflokka,
sem það taldi heppilegast að fá
lög við. Verðlaunin verða veitt í
tvennu lagi, fyrir kvæðaflokka
og fyrir einstök kvæði, en tón-
skáldin gátu sjálf valið það form,
sem þau nota.
Útvarpið mun síðar flytja
helztu lögin, sem fram koma.
Happdrættíð
Op/ð til kl. 5 í dag
ALLT Sjálfstæffisfólk er minnt á
happdrættiff. Þeir, sem fengiff
hafa miffa, eru beffnir aff gera
skil sem fyrst. 1 dag verffur opiff
til kl. 5. Þeim, sem erfitt eiga
meff aff koma greiffsiu til skrif-
stofunnar, er bent á aff hringja
í síma 17104 og verffur þá sent
til þeirra eftir andvirffi miðanna.
Happdrættisnefndin.
Brezkir sjónvarps-
meim í efnisleit
BREZKA útvarpið BBC hefur
tilkynnt Ríkisútvarpinu að það
sendi hingað nú í maí, eins og
áður hafði verið ráðgert, flokk
sjónvarpsmanna til þess að taka
upp ýmislegt efni hér. Stjórnandi-
flokksins er Murray Brown, og
verða þeir hér væntanlega dag-
ana 11. til 16. maí.
Fékk ekki að taka rússneska
eiginkonu sína með sér til íslands
UNGUR verkamaður hér í
Reykjavík, sem í fyrrasumar tók
þátt í vináttuleikum æskunnar
austur í Moskvu, hefur nú fengið
að kynnast annarri hlið ráðstj érn
arskipulagsins. þar eð rússnesk
yfirvöld bönnuðu honum fyrir
nokkru að taka með sér hingað
heim eiginkonu sína rússneska.
Maður sá, sem hér um ræðir,
heitir Ólafur Eggertsson Bnern,
24 ára, til heimilis að Bergþ-t-u-
götu 11. Hann var í hópi þeirra
íslendinga, er i fyrra sóttu
„Heimsmót æskunnar" í Moskvu
Þar kynntist Ólafur ungri rúss-
neskri kennslukonu og felldu þau
hugi saman.
í febrúarmánuði síðastliðnum
fór Ólafur austur til Rússlands
til að sækja unnustu sína. Þar
eystra voru þau gefin saman.
Ólafur sendi kveðjur heim
til sín, er þau höfðu verið gefin
saman og skýrði frá því, að hann
myndi koma heim með konu sína
Fyrir um mánuði kom hann
svo heim úr brúðkaupsförinni tii
Rússlands, en hin rússneka kona
hans var eigi í fylgd með honum.
Skýringin á því er sú, að því
er Morgunblaðið hefur fregnað,
að konu Ólafs var neitað um
brottfararleyfi frá Ráðstjórnar-
ríkjunum. En þau hjónin munu
hafa von um það, að yfirvöldin
veiti konunni leyfi til þess að
hverfa til manns síns einhvern
tíma næsta haust.
Helsingör og KR keppa í kvöld
I KVÖLD kl. 8,30 hefst að Há-
logalandi handknattleikskeppnin
milli íslandsmeistaranna KR og
dönsku meistaranna, Helsingör.
Bæði karla- og kvennaflokkur
félagsins eru hingað komnir í boði
KR, en KR-ingar gistu Helsingör
á sl. ári. í kvöld verða tveir leikir.
Fyrst leika kvennaflokkarnir. —
Eru dönsku stúlkurnar taldar
vera annað bezta kvennalið Dan-
merkur. KR-stúlkurnar veita
þeim vafalaust harða keppni. —
Lítill munur var á liðunum, er
þau kepptu í Helsingör.
Dönsku piltarnir eru sumir
hverjir meðal snjöllustu hand-
knattleiksmanna heíms. Átca
þeirra hafa leikið í danska lands-
liðinu og 6 þeirra voru valdir í
lið Dana til heimsmeistarakeppn
innar, en þar komust Danir mjog
langt. Helsingör-liðið vann KR
í Helsingör en þó ekki með ýkja
miklum mun. Ætla má að liðin
verði jafnari nú og veldur húsið
þar mestu um, því Danir eru ó-
vanir svo litlum velli. En víst
mun marga fýsa að sjá þessa
snjöllu leikmenn í keppni hér.