Morgunblaðið - 17.05.1958, Síða 1

Morgunblaðið - 17.05.1958, Síða 1
20 síður 45. árgangur 110. tbl. — Laugardagur 17. maí 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins Neyðarástand í Frakklandi: Pflimlin fœr alrœðisvald í þrjá mánuði Salan hershöfðingi myndar stjórn í Alsír? PARÍS, 16. maí — Franska þingið gaf í kvöld Pierre Pflimlin, for- sætisráðherra, hálfgert einræðisvald í landinu næstu þrjá mánuði til að koma í veg fyrir að ofstækisfullir hægri menn taki völdin i sínar hendur. Á öllum helztu stöðum í Paris voru f jölmennar sveitir hermanna og lögreglu á verði meðan hið sögulega frumvarp um þriggja mánaða neyðarástand í landinu var samþykkt með 461 atkvæði gegn 114. Pflimlin, sem verið hcfnir forsætisráðherra í þrjá daga, var þreytulegur og tekinn þegar hann sagði þingheimi, að hann yrði að fá sérstök völd næstu þrjá mánuði til að kæfa „samsæri gegn lýðveldinu og ríkjandi skipulagi. Hann átti við uppreisn frönskumælandi manna í Alsír gegn ríkisstjórninni. Hin nýju völd Samkvæmt hinum nýju bráða- birgðalögum hefur stjórnin víð- tæk völd til fangelsana, húsrann- sókna, til að setja útgöngubönn, koma á ritskoðun með blöðum, útvarpi og sjónvarpi, til að láta herrétt fjalla um mál sem aðrir dómstólar fara venjulega með, til að banna útifundi og verkföll, vínveitingar og skemmtanir og til að setja sérstakar reglugerðir um búsetu manna og ferðalög. 50.000 manns á verði Hundruð lögregluþjóna með stálhjálma og vopn umkringdu þinghúsið meðan hinar heitu um- ræður fóru fram, en þær stóðu yfir í sex tíma. Allur herstyrk- ur og allt lögreglulið Parísar, samtals um 50.000 manns, stóð vörð við stjórnarbyggingar og aðra mikilvæga staði í borginni. Allsherjarnefnd í Alsír Húsmæðurnar flykktust í búð- ir og keyptu upp á skömmum tíma flestar nauðsynjavörur. Þær óttuðust að ógnanir uppreisnar- manna í Alsír mundu leiða af sér verkföll, ofbeldi og skömmt- un á nauðsynjum. Verðbréfin í kauphöllinni féllu, en hins vegar virtist enginn ótti hafa gripið um sig meðal seljenda þeirra. 1 Alsír sameinuðust allar „öryggisnefndirnar“, sem hafa verið myndaðar víðs vegar um landið siðan uppreisnin brauzt út á þriðjudagskvöld, og mynd- uðu eina allsherjarnefnd. Þessar „öryggisnefndir“ krefjast þess að de Gaulle hershöfðingi myndi sterka stjórn í París. Kommúnistar og sósíalistar styðja Pflimlin Það var de Gaulle sjálfur, sem rak þingið til róttækra aðgerða, þegar hann birti stutta yfirlýs- ingu í gær þess efnis, að hann væri reiðubúinn að taka við stjórnartaumunum. Hann hefur ekki gegnt opinberu embætti síð- an 1946, og er nú 67 ára gamall. Pflimlin neitaði því aftur í um- ræðum þingsins í dag, að hann hefði í hyggju að taka upp væg ari stefnu gagnvart Serkjum í Alsír, sem hafa barizt við Frakka í 314 ár. Pflimlin, sem er 51 árs og leiðtogi kaþólska lýðveldis- flokksins, sem er miðflokkur, sagði í ræðu sinni: „Nú er ekki tími til ræðuhalda, heldur til að- gerða“. Bæði sósíalistar og komm únistar veittu honum fulltingi. Sprengingar víða í landinu Snemma í morgun umkringdu lögreglusveitir sveitasetur de Gaulles í Auatur-Frakklandi. Nokkrum tímum áður en um- ræður þingsins hófust, sprakk sprengja í kjallaranum á sveita- setri Pflimlins og olli miklum skemmdum. Lögreglan fann tvær sprengjur, sem ekki höfðu sprung ið, í opinberum byggingum í París. I Marseille var sprengj- um varpað að aðalstöðvum komm únistaflokksins og brotnuðu rúð- ur í byggingunni við sprenging- una. Salan er varkár Einn af helztu mönnunum í sambandi við viðsjárnar í Frakk- landi er Raoul Salan hershöfð- ingi, yfirmaður frönsku hersveit- anna í Alsír. Bæði Pflimlin og leiðtogar uppreisnarmanna hafa fengið honum í hendur yfirstjórn allra mála í Alsír, bæði hernað- arlegra og borgaralegra. Salan hefur látið í ljós samúð með de Framh. á bls. 19 Hfffreiðsla bjartf- ráðanna dregst FYRSXA umræða um efna- hagsmálafrumvarp ríkisstjórn arinnar, sem hófst sl. miðviku dag, stóð allt til kl. 3 þá um nóttina. Hún hófst síðan aftur eftir hádegi í gær og hélt á- fram með stuttum hléum all- an daginn. Er þingmenn komu úr mat- arhléi kl. 9 í gærkvöldi var útbýtt nýju frumv. frá Ey- steini Jónssyni, fjármálaráð- herra. Var þar farið fram á, að ríkisstjórninni yrði heimil- að að stöðva tollafgreiðslu á aðfluttum vörum, þar til efna hagsmálafrumvarpið hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu á Alþingi. Eins og áður hefur verið skýrt frá í Mbl., voru samþ. lög sl. mánudag um slíka stöðvun tollafgreiðslna út þessa viku. Nú er ljóst orðið, að frumvarpið verður ekki af- greitt fyrr en í næstu viku. var afgreitt á 3 fundum I hvorri þingdeild í gærkvöldi og samþykkt sem lög. Síðan hófst aftur umræða um efnahagsmálin og stóð hún enn, er blaðið fór í prentun nokkru eftir miðnætti, en bú- izt var við, að umræðunni lyki í nótt og frumv. færi til nefnd ar. Áformað hafði verið að Ijúka afgreiðslu málsins í dag, en það mun tefjast fram í næstu viku. Þingfundir verða ekki í dag, en nefndir munu starfa. Frá fyrstu ræðunum um efnahagsmálin var sagt í Mbl. í fyrradag. í dag er sagt frá málinu á þessum stöðum í blaðinu: Almennt yfirlit bls. 2 Ræða Ásg. Sigurðss. — 3 — Björns Ólafss. — 8 — Ólafs Björnss. — 8 — Ingólfs Jónss. — 11 — Magn. Jónssonar — 11 Frumvarp fjármálaráðherrau — Jóns Pálmasonar — 18 1 s í i } s J ) í ) ) ) \ s i i s s i i s s í s s i i s s s i s s i i s s s de Gaulle Hægrimenn mæltu aftur a móti með því, að de Gaulle yrði feng- in völdin í landinu. Pflimlin sagði að ýmsir borgaralegir leið- togar hefðu reynt að skapa „styrjaldarástand“ í Frakklandi og Norður-Afríku, en hann nefndi engin nöfn. Höfuðspurningin Eftir því sem á hinar heitu umræður leið varð sú spurning allsráðandi, hvort veita skyldi Pflimlin einræðisvald eða reyna að fá de Gaule til að taka við stjórnartaumunum, en andstæð- ingar hans hafa sakað hann um einræðisbrölt og þykir sumum það kaldhæðnislegt eins og mál um er nú komið. de Gaulle sakaður um samsæri Þegar fulltrúadeildin hafði samþykkt neyðarástandið og ein- ræðisvald stjórnarinnar, var frum varpið sent til efri deildar í flýti til endanlegs samþykkis. de Gaulle hefur fengið áskor- anir úr ýmsum áttum um að taka af skarið um að hann vilji taka í taumana. Á aðalstöðvar hans í París var stanslaus straumur símtala -og símskeyta þar sem hann var hvattur til að tala aft- ur og vera þá skýrari í máli. Leiðtogar sósíalista og kommún- ista sögðu í umræðum þingsins, að de Gaulle væri vitorðsmaður uppreisnarmanna í Alsír sem hefðu að markmiði hrun lýð- veldisins. Stuðningsmenn hans báru þessar sakargiftir til baka af miklum hita. Enn er barizt í Líbanon stjórnin neitar að segja af sér Stjórnarhersveitir berjast við uppreisn- armennf sem hafa komið til landsins frá Sýrlandi BEIRUT, 16. ihaí — Þingið í Líbanon kom saman til auka- fundar í dag að ræða hið ai- varlega ástand í landinu. Sið- degis í dag lýsti stjórnin því yfir, að hún mundi ekki segja af sér, eins og uppreisnar- menn hafa krafizt, og ákærði hún stjórn Arabíska sam- bandslýðveldisins enn einu sinni fyrir íhlutun í innan ríkismál landsins og að halda uppi ógnarástandi í landinu Var yfirlýsing þessa efnis les- in upp í útvarpið í Beirut í kvtíld. Síðar um kvtíldið flutti forsætisráðherrann, Sami El Solh, ávarp til þjóðarinnar og skoraði á mcnn að láta af of- beldisverkum. 77 fallnir A þingfundinum í dag átti að greiða atkvæði um traust stjórnina, en það var ekki hægt vegna þess að deildin var ekki ályktunarhæf. Fjölmargir þing- menn voru fjarverandi. Ekki er vitað, hvenær atkvæðagreiðslan getur farið fram. — Búizt var við því, að þingmenn stjórnarand- stöðunnar mundun krefjast þess að stjórnin segði af sér, en úr því varð ekki. Allur þingtíminn fór í þjark og hvíslingar og o- formlegar umræður um ástandið í landinu. Á fundinum var skýrt frá því, að samkvæmt opinberum skýrslum um óeirðirnar hefðu n7 menn verið drepnir undanfarna viku og 280 særðir. Stjórnin hefur tögl og hagldir ráðinu í Beirut bréf, þar sem hann kveðst harma þau of- beldisverk, sem beinzt hafa að sendiráðinu undanfarna da'ga. í höfuðborginni, enda er herinn á hennar bandi, en fréttamenn segja, að uppreisnarmenn hafi náð einhverri fótfestu í suður- hluta landsins. Þar hafa þeir haft í frammi ofbeldisverk í dag. Útgöngubann hefur verið sett á þessum slóðum. í dag kveiktu óeirðarseggirnir í aðalstöðvum bandaríska olíufélagsins Aramco og hafa hótað að eyðileggja öll tæki félagsins. Bardagar á landamærum Sýrlands og Líbanons 1 fregnum frá norðurhluta landsins segir, að komið hafi til átaka milli stjórnarherja og meira en 1000 uppreisnar- manna, sem komið hafa frá Sýrlandi. Einnig hefur komið til bardaga í miðhluta lands ins. Útgöngubann ríkti í Beirut í dag. Hermenn höfðu nákvæmt eftirlit með vegfarendum, stöðv- uðu marga, spurðu þá ýmissa spurninga og létu þá sýna vega bréf. Sendiráð Breta og Bandaríkja- manna í Beirut hafa lýst því yfir, að ekki sé ráðgert að flytja brezka og bandaríska þegna frá Líbanon. Þó herma fregnir frá Möltu, að Miðjarðarhafsfloti Breta hafi lagt úr höfn í Valetta í dag, a. m. k. sólarhring á undan áætlun. Ekki þykir ósennilegt, að honum sé ætlað að vera viðbúinn að aðstoða brezka þegna í Líban- on, ef þurfa þykir. Einnig komu margar herflutningavélar til Kýpur í dag. Leiðtogi stjórnarandstöðunn ar í Líbanon, Saeb Salem, hef- ur skrifað bandaríska sendi- Egypzka fréttastofan í Kairó segir, að fylgismenn eins af leið- togum stjórnarandstöðunnar, Ke- mal Jumblatt, sem handtekinn var í vikunni, hafi náð á sitt vald norðvesturhluta Líbanons. Frétta- stofan segir ennfremur, að stjórn- arhersveitir þar hafi krafizt þess, að uppreisnarmenn legðu niður vopn, en án árangurs. Jumblatt er leiðtogi hins sósíalíska fram- faraflokks og keppinautur Cam- ille Chamouns forseta. Fréttir i stuttu máli • MOSKVU, 16. maí — Spútnik þriðji, sem vegur hálft annað tonn og var sendur á loft af Rússum í gær, fer nú umhverfis jörðina nálega 14 sinnum á sól- arhring. Segja rússneskir vísinda menn, að gervimáninn, sem einnig er nefndur „bíllinn fljúg- andi“ muni haldast á lofti um sjö mánuði. í þessum gervihnetti eru engin lifandi dýr, en mikið af vélum, sagði Feodorov próf. yfirmaður gervihnattarannsókna Rússa. Hann neitaði að segja hve mörg „þrep“ hefðu verið á eld- flauginni, sem skaut gervimán- anum á loft. # LONDON, 16. maí — Það var tilkynnt í London í kvöld, að allöflugur herstyrkur yrði send- ur frá Bretlandi til Kenya í næsta mánuði. Á hann að vera þar til taks, ef til frekari tíðinda dreg- ur í Aden eða annars staðar á Arabíuskaga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.