Morgunblaðið - 17.05.1958, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.05.1958, Blaðsíða 9
9 Laugarctegur 17, maí 1958 UORCVNBLAÐ1Ð Sœrmindur Steingnms son málarameisfari — minning SIÐASTL,. föstudag fór fram ut- för Sæmundar Steingrímssonar er andaðist í Landsspítalanum 8. þ. m. Saemundur var fæddur á ísafirði ■20. ágúst 1913. Eftirlifandi móðir hans er Kristjana Katarínusar- dóttir, faðir hans var Steingrímur Benediktsson, sem lézt árið 1934. t>egar Sæmundur var aðeins ungur drengur varð hann að sjá á eftir föður sinum til vistar á heilsuhæli langt fjarri heimili, konu og börnum og nokkrum ár- um síðar lát föður síns. Það var því hlutskipti drengsins að reyna að afla fjár móður sinni til hjálp- ar. Hann vann þá hjá frænda sín- um, Guðmundi Sæmundssyni xnálarameistara og gerðist síðar nemandi hans og lauk námi með góðum vitnisburði árið 1935. Að námi loknu vann hann um eins árs bil á ísafirði, en eins og svo margra ungra manna, freistaði höfuðborgin hans, aðallega þó til að geta aðstoðað móður sína bet- ur, því nú var faðir hans látinn fyrir ári síðan. Ástríki sonar og móður var alla tíð til fyrir- myndar. Mér er það enn minnis- stætt að er ég var lítill drengur, fannst mér það ákaf- lega merkilegt og heillandi að eiga nafna, sem var í mín- um augum pínulítill, þó ég væri ekki nema fjórum árum eldri. Mér fannst að hann hlyti að vera mjög fallegur og góður drengur. Síðar var mér send mynd af hon- um og þá fékk eg vissu mína um hve fallegur hann var, og þegar kynni okkar hófust, þá báðir komnir á þriðja áratuginn, sannfærðist eg um hve góður drengur hann var. Trú mín á pínulitla nafna mínum var sönn og hrein. Hið sanna og rétta átti bústað í hjartanu. Foreldrar hans og mínir voru mikið vinafólk allt frá þvi að eg man fyrst eftir mér og þegar hann fluttist til Keykjavíkur ár- ið 1936 var hann til húsa hjá foreldrum mínum um tveggja ára skeið, og unnum við oft hjá sama málarameistaranum og áttum því margt sameiginlegt á þeim árum. Þá kynntist eg nafna mínum mjög vel og fann þá hvern mann hann hafði að geyma. Hann var mjög hlédrægur, stilltur og orð- var, lítið fyrir að láta bera á sér, hjálpsamur, enda var hjartalag hans viðkvæmt. Eg hygg að hann hafi ekki átt marga vini, en sanna og trygga, eins og hann var sjálf- ur gagnvart vinum sínum. Prúðmennska í framkomu var honum meðfædd og snyrti- mennsku í klæðaburði og í allri framkomu á vinnustað, var við- brugðið, í þau 22 ár sem hann var hér búsettur var hann góðúr liðsmaður málarafélaganna, stóð við skuldbindingar og skyldur samtakanna, hafði sínar skoðanir á málefnum, þó ekki léti hann þær í ljós í ræðuformi á fuhdum eða í kappræðum manna á milli. Hann gekk í Málarameistarafélag Reykjavíkur árið 1947. Sæmundur kvæntist aldrei en son átti hann sem nú er 21 árs, mesti efnispiltur. Þegar við nú kveðjum hann er minnipgin um góðan dreng um- vafin þakklæti eftirlifandi móð- ur, sonar, systra, frænda, vina og kunningja. 1 nafni Málarameistarafélags Reykjavíkur færi ég þér þökk fyrir gott samstarf og allt það, sem þú lagðir fram stétt okkar til sóma og virðingar. Vertu sæll nafni minn. Sæm. Sigurðsson. INCCLF5 i Alþýðuhúsinn við Hverfisgötu opnar daglega kl. 8,30 árdegis. Almennar veitingar allann daginn Heitur matur framreiddur á hádegi kl. 11.45—2 e.h. að kvöldi kl. 6—8 s.d. Góð þjónusta Sanngjarnt verð. Reynið viðskiptin. INGÓLFSCAFÉ. Mœðradagsblóm einnig garðblóm og trjáplöntur. Opið yfir helgina. Laugavegi og Miklatorgi. Sóknorneinð Akrnneskirkju Vill ráða mann til starfa við kirkjugarðinn í Görðum frá 1. júní n.k. Upplýsingar varðandi starfið veitir Karl Helgason símstjóri. Akranesi 14. maí 1958. Afgreiðslusfarf Reglusamur, roskinn maður óskast til afleysinga á Sérleyfisstöð okkar. Upplýsingár milli kl. 6—7 s.d. Bifreiðastað Steindórs Hafnarstræti 2. IVfatsvein, stýrimann og hásets vantar á snörpunótaskip. Upplýsingar milli kl. 6—8 í síma 33428.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.