Morgunblaðið - 17.05.1958, Page 10

Morgunblaðið - 17.05.1958, Page 10
10 MUKliLlStiLAÐIÐ Laugardagur 17. maí 1958 tltg.: H.f. Arvakur, Reykjavllr Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson Cábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, sími 33045 Auglýsmgar: Arni Garðar Kristmsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýs’ngar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjalo kr. 30.00 á mánuði innaniands. 1 lausasölu kr. 1.50 eintakið. UTAN ÖR HEIMI STEINAR FYRIR BRAUÐ HIN langþráðu „bjargráð'* ríkisstjórnarinnar hafa nú loksins séð dagsins ljós. Eins og kunnugt mun hafa verið undanfarnar vikur, er þar ekki um nein ný úrræði að ræða, heldur eru þar farnar „troðnar slóðir", hækkaðir styrkir til út- flutningsframleiðslunnar, en jafn framt lagðir á nýir skattar, sem nema hundruðum milljóna króna. Það hefur að sjálfsögðu ekki komið neinum á óvart, þótt eng- ar töfralækningar á efnahags- vandamálunum felist í hinum nýju bjargráðum. Slík töfra- meðul eru ekki til, og verða hvorki fundin upp af núverandi ríkisstjórn né öðrum. Ávirðing stuðningsmanna ríkis stjórnarinnar er ekki fólgin í því, að töfraúrræðin hafa ekki fund- izt, heldur í hinu að slíkum úr- ræðum var lofað, og í skjóli þeirr ar blekkingar hefur ríkisstjórnin komizt til valda. Launamenn og aðrir, sem fram til síðustu kosninga hafa lagt eyru við lýðskrumi kommúnista og annarra, þreifa nú á því, hverj ir menn þeir eru til þess að standa við sín stóru gylliloforð, frá því þeir voru í stjórnarand- stöðu. Fyrir síðustu kosningar var kjörorð kommúnista: Gegn gengisfellingu og kjaraskerð- ingu. Allar ráðstafanir til úr- lausnar vandamálum útflutnings- atvinnuveganna, sem gerðar voru á vegum fyrrverandi ríkisstjórn- ar, voru að þeirra dómi í raun inni óþarfar, framkvæmdar vegna fjandskapar þeirrar ríkis- stjórnar í garð vinnandi fólks. Hið óbrigðula ráð til þess að forð ast vaxandi dýrtíð og rýrðan kaupmátt launa var það að fleyta kommúnistum til valda. Þjóðinni til ógæfu lögðu nógu margir eyrun við þessum áróðri til þess að vinstri stjórnin eða „stjórn hinna vinnandi stétta ‘ komst til valda. Kommúnistar fengu tækifæri til þess að standa við loforð sín um stöðvun dýrtíð- ar og aukinn kaupmátt launa. Nú hefur vinstri stjórnin verið við völd í tæp tvö ár, svo að tíma- bært er nú, ekki sízt eftir það að „úrræðin" miklu eru komin fram, að bera saman loforð og efndir þeirra, sem að henni standa. Hefur kaupmáttur launa auk- ízt? V-stjórnin lét það verða sitt fyrsta verk að svipta launþega með bráðabirgðalögum sex vísi- tölustiga-uppbót á laun, sem þeim bar samkvæmt gildandi launa- og kjarasamningum. Næsta skrefið var svo jólagjöfin um næstsíðastliðin áramót. Brýn- ustu nauðsynjum var að vísu hlíft að verulegu leyti við þeim álögum, þannig að þær höfðu ekki mikil áhrif á vísitölu fram- færslukostnaðar til hækkunar. En þeim mun þyngri álögur voru lagðar á aðrar vörur, sem að vísu hafa lítið eða ekkert gildi í vísi- tölunni, en almenningur kaupir þó og neytir. Sú kjaraskerðing, sem fram- kvæmd var með vísitölubinding- unni og jólagjöfinni hefur þó að dómi ríkisstjórnarinnar ekki ver- ið talin nægja til þess að lagfæra efnahagsmálin. Nú þessa daga er enn á ný verið að samþykkja á Alþingi nýjar álögur er skipta hundruðum milljóna króna. Sam- kvæmt greinargerð þeirri, er fylgir þessum tillögum, á kaup- máttur launa þó að haldast ó- breyttur næstu mánuði og er þá að sjálfsögðu miðað við visitölu framfærslukostnaðar. En hver trúir því að álögur, er skipta hundruðum milljóna, komi ekki við almenning í landinu? Þannig hefur þróunin verið hvað snertir kjör launafólksins síðan V-stjórnin tók við völdum. En hefur þá dýrtíðin verið stöðvuð? Blöð stjórnarflokkanna keppast nú einmitt við að lýsa því yfir, að verðstöðvunarstefnan sé úr sögunni og ný verðhækkunar- alda muni senn skella yfir. Þann- ig hefur gengið með framkvæmd þess loforðs V-stjórnarinnar. En hefur þá gengisfellingu verið forðað? Á pappirnum er hið skráða gengi krónunnar að vísu það sama og var, þegar V-stjórn- in kom til valda. En svo óraun- hæft sem hið skráða gengi var orðið eftir jólagjöfina 1956, er hverjum manni auðsætt nú, að hið skráða gengi er nú pappírs- gengi og ekkert annað en pappírs gengi. Eftir samþykkt þess frum- varps sem nú liggur fyrir verður nefnilega svo komið, að alls eng- ar gjaldeyrisyfirfærslur fara nú fram á þessu skráða gengi Minnsta* yfirfærslugjald, sem krafizt verður, er 30%, en allur þorri af gjaldeyrisyfir- færslum er með 55% yfirfærslu- gjaldi. Auk þess er lagt 22—62% innflutningsgjald á verulegan hluta innflutningsins. Það er því aðeins orðaleikur og blekking, ef því er haldið fram, að gengið hafi haldizt ó- breytt í tíð V-stjórnarinnar. — Einnig þetta síðasta af stóru lof- orðunum, fyrir kosningarnar 1956, hafa kommúnistar þannig bersýnilega svikið. Vandamál efnahagslífsins eru vissulega mikil og lausn þeirra er miklum örðugleikum háð, hverjir svo sem við þau glíma. En þeir sem á sín um tíma hafa komizt til valda í skjóli óraunhæfra gylliloforða, hafa orðið að svíkja öll sín gefnu heit og reynzt hafa ófærir um að marka nokkra heilsteypta stefnu í efnahagsmálum eða á öðrum sviðum, verðskulda sízt það traust þjóðarinnar, að hún feh þeim forystu .nálefna sinna. Það verður og með hverjum deginum Ijósara að V-stjómin hefur með öllu glatað því trausti sem hún í upphafi kann að hnfa notið meðal kjósenda þeirra flokka, er að henni standa. Þegar það kom í ljós að ríkis- stjórnin hafði svikið öll sín lof- orð og bæjarstjórnarkosningarn- ar sýndu stórkostlegt fylgistap stjórnarflokkanna, kröfðust Sjálf stæðismenn þess að málunum yrði skotið undir dóm alþjóðar í nýjum kosningum. Sú krafa er enn í fullu gildi og hlýtur nú að fá nýjan byr eftir að uppgjöf rík- isstjórnarinnar í efnahagsmálun- um er komin í Ijós. Ríkisstjórnin leiðir þjóðina lengra og lengra út í öngþveiti og efnahagslegt kvik- syndi. Er ekki reynslan af V stjórninni orðin nógu löng? Þjóð- in á skilyrðisiaust að fá tækifæri til að fella sinn dóm. UNDANFARIÐ hefir komið til töluverðra óeirða í tveimur stærstu borgum Líbanons, Beirut og Trípólí. Róstur þessar munu m. a. eiga sér þá orsök, að einn helzti stjórnmálaflokkur lands- ins hefir lýst sig andvígan því, að Camille Chamoun forseti verði endurkjörinn til næstu fjögurra ára, en hann á að láta af embætti í ár. Chamoun hefir ekki endan- lega ákveðið að fara fram á end- urkjör, en fylgismenn hans hafa gefið í skyn, að hann muni fara fram á stjórnarskrárbreytingu fyrir þinglok í vor til að geta beðið þingið að kjósa sig forseta I annað sinn. Róstur þessar þykja tíðindum sæta, þar sem Líbanon hefir und- anfarið verið eitt friðsamasta rík ið fyrir botni Miðjarðarhafsins, enda eru Líbanonsbúar taldir einhver bezt menntaða Araba- þjóðin. Þessir afkomendur hinna fornu Fönikíumanna eiga sér merka sögu. ★ ★ ★ Líbanonsbúar segja, að Guð hafi skapað Líbanon, áður en hann skapaði jörðina, og hafi hann ætlað að nota landið sem i fyrirmynd að öðrum löndum. En Hann virðist þó hafa lagt landið frá sér á rangan stað, bæta þeir við. Og rétt er það, að Líbanon er um margt mjög ólíkt nágranna löndunum. Allur svipur landsins er annar, og íbúarnir hugsa, hegða sér og greiða atkvæði á annan hátt en nágrannarnir. Landið líkist í senn Sviss og Riviera-str.öndinni Líbanon er eins og mikil vin, umkringd brennheitum, þurrum eyðimörkum. í Líbanon eru há fjöll, sum yfir 10 þús. fet á hæð, nóg af vatni og grænir skógar, og svo mikið snjóar á hálendinu, að þar er miðstöð skíðaíþróttarinnar á svæðinu fyrir botni Miðjarðar- hafsins. Ferðamönnum þykir landið líkjast í senn Sviss og Riviera-ströndinni. Ekki er því að undra, þó að Líbanonbúar haldi því fram, að þar hafi aldin- garðurinn Eden verið en ekki í írak, eins og aðrir vilja halda fram. ★ ★ ★ fbúar landsins kalla sig Araba, tala arabisku og eru aðilar að Arababandalaginu, en sagnfræð- ingar segja að aðeins 5% af ara- bisku blóði renni í æðum þeirra. Líbanon er eina landið meðal Miðausturlanda, þar sem kristin trú má sín mest allra trúar- bragða, eina landið þar sem Mú- hameðstrú er ekki ríkistrú. Líb- anonbúar eru bezt menntaða Ar- abaþjóðin, 80 af 100 eru læsir og skrifandi, en meðal annarra Ar- abaþjóða munu um 80 af 100 vera ólæsir og óskrifandi. Þar hafa orðið töluverðar framfarir í þjóð félagsmálum. Líbanon var eitt fyrsta Arabaríkið, er veitti kon- um kosningarétt, og konunum í Líbanon er alveg óhætt að ganga í bikinibaðfötum, þó að kynsyst- ur þeirra í ýmsum öðrum Araba- löndum verði enn að ganga með slæðu fyrir andlitinu. í Líban- on eru góðir vegir, og bygg- ingar þeirra eru svo ný- tízkulegar, að erlendir húsameist arar leggja leið sína þangað til að skoða byggingarstíl þeirra. Sjálfstaett ríki í 12 ár Fyrir 12 árum varð Líbanon sjálfstætt og hafði þá ekki verið sjálfstætt rílci síðan 800 árum fyrir Krists burð. Þó að lýðræðið þar sé ófullkomið á vestrænan mælikvarða, hefir Líbanonbúum þó tekizt bezt í því efni meðal Arabaþjóðanna. Landið liggur fyrir botni Mið- jarðarhafsins norður af ísrael, það er um 120 mílur á lengd og um 30 mílur á breidd. Eiginlega má skipta landinu í fjórar lengj- ur. Strandlengjan er mjög frjó- söm, en víða er mjög skammt milli fjalls og fjöru. Hér bjuggu forfeður Líbanonbúa, Fönikíu- menn og hér reistu þeir 3 glæsi- legar borgir Tyrus, Sidon og Byblos. Því næst tekur við Líban onfjallgarðurinn. Nafn landsins er dregið af snjónum í fjöllunum, af semitíska orðinu laban, sem merkir „að vera hvítur“. Hinum megin við fjallgarðinn er Beka- dalurinn, sem er frjósamasti hluti landsins. Munnmælasögur segja, að örkin hans Nóa hafi lent hér, og hér hafi Kain og Abel búið. Menn eru jafnvel fúsir til að sýna ferðamönnum gröf Nóa! Fjórða lengjan meðfram landa- mærum Sýrlands er hrjóstrugt svæði, sem gefur lítið af sér. Syðst á þessu svæði eru upptök árinnar Jórdan. Fjallgarðurinn hefir haft mjög mikla þýðingu fyrir Líbanonbúa sögulega séð. Hann hefir orðið til þess, að skipti þeirra við aðrar þjóðir hafa fremur beinzt vestur á bóginn en austur á bóginn. Og torfærur hans hafa verið varnar- múr fyrir ofsótta kristna menn og aðra, sem ekki áttu samleið með sínum tíma, enda er mikið um sértrúarflokka í landinu. ★ ★ ★ f fjallagarðinum uxu líka — og vaxa enn hin frægu sedrusviðar- tré, sem eru eins konar þjóðar- tákn. Sedrusviðartrén vilja allir erlendir ferðamenn sjá, og í egypzkum hieroglífum frá 2650 f. Kr. er sagt frá því, að egypzkur faraó hafi pantað 40 skipsfarma af sedrusviði 600 þús. ferðamenn komu til landsins síðastliðið ár Höfuðborgin Beirut er mikill ferðamannabær. Þar er gríðar- stór flugvöllur og um hann er mjög mikil umferð, enda koma þangað flugvélar frá 55 flugfélög um. Sl. ár komu um 600 þús. ferðamenn til landsins, en það mun vera tæplega helmingur af íbúatölu Líbanons. Til Þess að hýsa þennan mikla ferðamanna- straum hafa verið reist mjög glæsileg gistihús. í glæsilegustu gistihúsunum eru herbergin loft- kæld, aukasími í baðherberginu og kæliskápur í hverju herbergi. í Beirut eru á boðstólum vörur frá öllum löndum heims, banda- rískt hnetusmjör, styrjuhrogn frá Rússlandi, franskt kampavín og vodka Kádiljálkar frá Detroit og Skodabílar frá Tékkóslóvakíu og svo mætti lengi telja. Snemma á árinu 1959 á að opna spilavíti við fallega vík rétt fyrir norðan Beirut, og ekki mun það draga úr ferðamannastraumnum. Talið er, að spilavítið muni kosta sem nemur 6 milljónum dala, 50% af ágóðanum á að renna til ríkisins og verður notaður til þjóðfélagslegra umbóta. Aðgangs skilyrði fyrir borgara í Líbanon eru með nokkuð sérstökum hætti, þar sem þeir einir fá að taka þátt í fjárhættuspilinu, er sannað geta, að þeir greiði sem nemur 5 þús. dölum í tekjuskatt á ári. Það hefir um langt skeið verið tízka í landinu að svíkja undan skatti. Ef til vill vonast yfirvöld- in til þess, að þetta ákvæði valdi straumhvörfum í skattamálunum. Sedrusviðartré, rómversk hof og rústir Þrennt er það, sem einkum laðar ferðamenn til Líbanoh: Sedrusviðartrén, rómversku hof- in í Baalbek og rústirnar í Bybl- os. Undanfarið hafa ítrekaðar til- raunir verið gejðar til að vernda sedrusviðartrén, sem miskunnar- laust hafa verið höggvin frá upp- hafi. Einhver þekktasti sedrus- viðarlundurinn er í grennd við Becharre, en þar standa nú að- eins um 400 tré. Nokkur þeirra munu vera um 1000 ára gömul eða meira. Stjórnin í Líbanon hefir nú látið gróðursetja þúsund ir nýrra sedrusviðartrjáa, og hafa Bandaríkjamenn veitt þeim fjár- hagslega aðstoð til þessa. Munn- mæíasögur segja, að Baalbek hafi verið reist af Kain 133 árum eftir sköpun heimsins. Rómverskir keisarar létu reisa þar mjög fal- leg hof á 1. og 2. öld e. Kr. Sagt hefir verið — með nokkrum ýkj- um að vísu — að þau séu „tignar legustu rómverskar fornminjar í heiminum, þó að Róm sé talin með.“ Þar er haldin árlega Baal- bekhátíðin svokallaða. Byblos, sem nú ber nafnið Jebail, er lítil syfjuleg" hafnarborg. Fornleifa- fræðingar' hafa m. a. grafið þar upp rústir frá 3200 f. Kr. Stafróf Fönikíumanna Vestrænar þjóðir eiga forfeðr- um Líbanonbúa, Fönikíumönn- um, margt gott að þakka. Föni- kíumenn fluttu með sér vestur á bóginn lengdar- og breiddar- mál, notkun sjókorta, purpura- rauðan lit og sennilega ræktun olífa og annarra aldina og talna- kerfi, er byggðist á tölunni 12. En langmikilvægast af þessum gjöf- um Fönikíumanna, er þó stafróf það, sem Fönikíumenn tileinkuðu sér og við notum enn í dag, nokk- uð bætt og aukið. Framh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.