Morgunblaðið - 17.05.1958, Page 20
VEÐRIÐ
Vaxandi austan átt, stinnings-
kaldi og dálítil rigning, hlýnandi.
Líbanon
Sjá bls. 10.
Sprengjukastari handieUintn í
porti lögreglustöÖ varinnar
Hann var annar tveggja sem kasfaði
sprengju á „Steininn" á dögunum
Fundur um iandhelg-
ismáiið ki. 2 í dag
Haldinn í Sjálfstœðishúsinu á vegum
Heimdallar
PILTUR nokkur situr nú bak við
lás og slá í „Steininum". Hann er
annar tveggja, sem fyrir nokkru
vörpuðu mjög öflugri sprengju á
fangahúsið við Skólavörðustíg-
inn, „Steininn", en sú sprengja
var svo öflug að hún hefði getað
orðið mannsbani. Þá var þessi
sami piltur handtekinn fyrir
nokkrum nóttum við lögreglustöð
ina, og er hann talinn hafa ætlað
að sprengja dínamitsprengju þar
í stöðinni.
Það var skýrt frá því í blöðun-
um í annarri viku maímánaðar,
að varpað hefði verið sprengju á
þak „Steinsins" hinn 4. maí. Þá
tókst ekki að hafa hendur í hári
sprengj ukastarans.
Seint að kvöldi miðviku-
dags gengu tveir piltar, 15 og 16
ára, fram hjá lögreglustöðinni. Þá
tóku þeir eftir því að piltur með
hönd í fatla stóð í anddyri húss-
ins og var með sprengju og virt-
ist þeim hann vera að kveikja i
henni. Annar stóð fyrir utan stöð-
ina, en við það að fyrrgreindir
tveir piltar sáu þá með sprengj-
una, löbbuðu þeir í burtu frá lög-
reglustöðinni.
Svo sem stundarfjórðungi síðar
verður piltunum tveim, þessum
15 og 16 ára, aftur gengið fram
hjá porti lögreglustöðvarinnar,
sem veit mót Hafnarstræti. Pilt
arnir sáu strax að þar í portinu
voru sömu mennirnir og þeir
höfuð nokkru áður séð í anddyri
lögreglustöðvarinnar — og með
sprengjuna. Þeir sáu að þeir voru
þar enn eitthvað að bjástra við
sprengjuna. Unglingarnir hröð-
uðu nú för sinni inn í stöðina og
gerðu þar viðvart, en lögreglu-
menn þustu þegar á vettvang og
sprengjumennirnir voru hand-
teknir í portinu.
★
Lögreglumennirnir gerðu þeg-
ar leit á sprengjumönnunum og
fundu þeir dínamittúbu og tund-
urþráð með hvellhettu.
Við yfirheyrslur í máli piltanna
í gær, tókst að ljúka að mestu
frumrannsókn málsins. — Piltar
þessir sem báðir eru í skóla hér
í Reykjavík. Sá sem lögreglan I
tók dínamittúbuna af, er hinn'
sami og fyrir nokkrum dögum
brauzt í ölæði í gegnum gler í
hurð á læknavarðstofunni og
skaddaðist þá illa á hendi.
Pilturinn kvað það ekki hafa
verið ætlun sína að sprengja
dínamitið inni í lögreglustöðinni,
heldur hafi hann ætlað að hræða
félaga sinn. En tundurþráðurinn
sýndi að eldur hafði verið borinn
að honum, en slokknað aftur. —
Piltur þessi kann að fara með
slíkt sprengiefni, en að hann
var nú handlama hefur bersýni-
lega háð honum nokkuð. Hann
gerði sér fullkomlega ljóst að svo
mikill er sprengikrafturinn í
dínamittúbunni, að sprengjan
hefði auðveldlega getað orsakað
manntjón. Tundurþráðurinn var
það langur að sprengingin hefði
Hoppdrættið
ALLT Sjálfstæðisfólk er minnt á
happdrættið. — Þeir, sem fengið
hafa miða, eru beðnir að gera
skil sem fyrst. í dag verður opið
tU kl. 5.
Happdrættisnefndin.
orðið 30 sek. eftir að byrjað var
að loga í honum.
★
Húsrannsókn var gerð hjá þess-
um náungum og í fórum þeirra
fundust 19 dínamittúbur og 2
kveikjuþræðir.
Við rannsókn málsins féll grun
ur á pilta þessa að þeir hefðu
verið að verki, þá er sprengjunni
var varpað á „steininn" á dögun-
um. Pilturinn, sem var með dína-
mitsprengjuna í lögreglustöðinni
viðurkenndi, að hafa verið þar að
verki með öðrum pilti. Sá var
einnig tekinn fyrir rétt. Hann
gaf þær upplýsingar um sprengi-
efnið, að hann hefði verið við
refadráp úti á landi og hefði hann
þá komizt yfir dínamitið. Hann
hafði verið með aðalsprengju-
manninum er sprengjuár'ásin var
gerð á „Steininn" á dögunum. —
Þegar það gerðist höfðu alls ver-
ið fjórir piltar saman og hafi það
verið uppástunga margnefnds
Á FUNDI bæjarstjórnar Kópa
vogs í gær samþ. meirihlutinn
stórfelldar álögur á alla þá, er
byggja yfir sig í Kópavogi.
Hér eftir skal greiða í bygg-
ingalóðaskatt 5 þús. kr. af ein-
býlishúsi, 7 þús. kr. af tveim-
ur íbúðum, síðan 1000 kr. af
íbúð þar umfram.
Þá var samþ. stórhækkun á
lóðaleigu, það er að tvö- til
þrefalda leiguna frá því sem
veíið hefur.
Takmörkun á eignarrétti
Einnig var samþ. að bærinn
skuli hér eftir hafa forkáupsrétt
að öllum húsum, sem seld eru áð-
ur en þau eru fokheld. Hins veg-
ar var þess ekki getið hvort
byggingarskatturihn yrði þá end
urgreiddur, eða hvort hann verð-
ur innheimtur tvisvar.
Sveinn S. Einarsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi
það, að jaínumfangsmikið mál
og þetta væri afgreitt án þess að
hafa svo mikið sem komið fyrir
fund í bæjarráði, heldur laumað
pilts, er var með sprengjuna 1
vasanum, að varpa sprengju inn í
fangagarðinn við „Steininn“, en
sprengjan hafi óviljandi farið upp
á þakið. Þessi piltur kveðst hafa
farið upp á garðinn til þess að
sannfæra sig um að enginn væri
á ferð í gaiðinum. Þeir bundu
síðan tvær dínamittúbur saman,
kveiktu í þeim og vörpuðu að
fangahúsinu. Hinir piltarnir
tveir höfðu neitað að koma
nærri og haldið sig í fjar-
lægð, þá er sprengjan sprakk. —
Þessi piltur segist hafa varpað
sprengjunni á „Steininn“, en það
segist hinn raunar líka hafa gert.
Öllum piltunum nema þeim
sem skoðaður er aðalhvatamað-
urinn að sprengjukastinu og til-
rauninni til að sprengja dínamit-
sprengjuna í lögreglustöðinni,
var sleppt, en hann var settur í
gæzluvarðhald. — Það er skoðun
rannsóknardómarans, að það sé
órvekni unglinganna tveggja að
þakka, að takast skyldi að af-
stýra því, að lögreglustöðin yrði
fyrir stórskemmdum af völdum
sprengingar.
inn á fund í bæjarstjórn öllum að
óvörum. Krafðist hann þess að
hafðar yrðu tvær umræður um
málið, þar sem hér gæti verið
um milljóna álögur að ræða utan
fjárhagsáætlunar. Sveinn bar
einnig fram fyrirspurn til bæjar-
stjórnar hve miklar tekjur væru
áætlaðar samkv. þessum nýja
íikatí'u Við því fengust engin
svör, en bæjarstjóri hafði fyrr á
fundinum látið orð falla að því
að úthluta þyrfti á þessu ári allt
að 200 lóðum. Sveinn benti á að
ekki væri óeðlilegt að áætla að
2 íbúðir yrðu í hverju húsi að
jafnaði og mundi þá skatturinn
nema um 1 milljón og 400 þús.
kr. í ár. Einnig spurði Sveinn
með hvaða kjörum bærinn ætti
að hafa forkaupsrétt að ófullgerð
um húsum. Þau svör fengust við
því að það yrði eftir mati, sem
meirihlutinn í bæjarstjórn setti
reglur um.
Nánar verður sagt frá fundin-
um í „Vogum“, blaði Sjálfstæðis
manna, sem kemur út í næstu
viku.
KL.' 2 í dag hefst almennur
fundur á vegum Heimdallar
í Sjálfstæðishúsinu. — Rætt
verður um landhelgismálið.
Frummælendur verða Magn-
ús Jónsson, alþingismaður, og
tveir af fulltrúum íslands á
sjóréttarráðstefnunni í Genf.
þeir Davíð Ólafsson, fiski-
málastjóri, og Jón Jónsson,
forstöðumaður fiskideildar
Atvinnudeildar Háskólans.
Eins og kunnugt er, eru
fulltrúar íslands á Genfarráð-
stefnunni nýkomnir heim, og
Á MORGUN er mæðradagurinn,
hinn árlegi fjáröflunardagur
Mæðrastyrksnefndar. Tilgangur-
inn með fjársöfnun Mæðrastyrks
nefndar er sá, eins og kunnugt er,
að geta veitt einstæðum og fá-
tækum mæðrum tækifæri til að
dveljast í sveit að sumrinu sér til
hvíldar og heiisubótar.
★
Mæðrablómið verður á morgun
til sölu í öllum barnaskólunum í
Reykjavík, skrifstofu nefndar-
innar að Laufásvegi 3 og í Kópa-
Þjóðhálíðardagur
Norðmanna í dag
f DAG er 17. maí, þjóðhátíðardag-
ur nor»iku þjóðarinnar. Af því til-
efni fer frain atliöfn við leiði
norskra hermanna í Fossvogs-
‘kirkjugarði. Verða Iagðir blóm-
sveigar á leiði þeirra, m. a. af
norska sendiherranum, Torgeir
Anderson Hyst og af hálfu félags
Norðmanna hér í Reykjavík. Enn
fremur munu liinir norsku full-
trúar á fundi norrænna embætt-
ismanna, sem hófst hér i gær,
verða þar viðstaddir.
Gróðurselning í
Heiðmörk hafin
TRJÁGRÓÐURSETNINGIN í
Heiðmörk á þessu vori er nú
hafin. Norðmenn búsettir hér í
Reykjavík, sem félagar eru í
Normanslaget fóru í Heiðmörk á
uppstigningardag og voru þar við
gróðursetningu. í dag munu nokk
ur félög fara í Heiðmörk og verð-
ur lögð áherzla á að ljúka nú
sem fyrst gróðursetningunni og
væntir Skógræktarfélag Reykja-
víkur þess, að Heiðmerkurland-
nemar komi við fyrstu hentug-
leika til starfa.
standa nú yfir umræður um
stækkun landhelginnar. —
Landhelgismálin eru eitt af
mestu velferðarmálum þjóðar
innar, og varðar því miklu, að
fólk geri sér grein fyrir máls-
atvikum öllum. Þarf ekki að
efa, að margt manna verði á
fundinum í dag, enda gefst
þar einstakt tækifæri til að
hlýða á menn úr hópi þeirra,
sem málinu eru kunnugastir.
Allt Sjálfstæðisfólk er vel-
komið, meðan húsrúm leyfir.
vogsskólanum, og hefst salan kl.
9 árdegis. Konur og börn munu
einnig bjóða vegfarendum blóm
til kaups á götum bæjarins, og
er ekki að efa, að þeim verður að
vanda vel tekið af bæjarbúum.
Einnig eru það tilmæli Mæðra-
styrksnefndar, að mæður sendi
börn sín til að selja blóm.
★
Eins og bæjarbúar vita, er svo
að segja lokið byggingu Mæðra-
heimilisins að Hlaðgerðarkoti í
Mosfellssveit. Þó er ýmislegt ó-
gert t.d. hefir lóðin umhverfis
húsið enn ekki verið lagfærð, og
ýmislegt vantar enn í innbú heim
ilisins. í fyrra var byggingunni
að svo miklu leyti lokið, að þar
gátu dvalizt 25 mæður með 33
börn um tveggja mánaða skeið.
Einnig dvaldist þar hópur ein-
stæðra mæðra í 8 daga.
Takist sala mæðrablómanna
vel á morgun, má búast við, að í
sumar geti fleiri konur og börn
dvalizt lengri tíma að Hlaðgerð-
arkoti en í fyrra. Dvölin að Hlað
gerðarkoti er mæðrunum algjör-
lega að kostnaðarlausu, og stend
ur Mæðrastyrksnefnd allan
straum af rekstri heimilisins.
★
Verð mæðrablómsins verður
10 kr. í fyrra söfnuðust 83 þús.
kr. á mæðradaginn. Þess má geta
að bómaverzlanir hafa opið til
kl. 2 á morgun, og 15% af söiu-
ágóðanum renna til starfsemi
Mæðrastyrksnefndar.
Danir unnu
í GÆR lék danska handknatt-
leiksfólkið síðustu leiki sína hér
og mætti úrvalsliðum Reykja-
vtkur. Unnu Danir leikina — í
karlaflokki með 25:19, og í
kvennaflokki með 10:9. Danska
fólkið heldur heim í dag. Karl-
arnir hafa engum leik tapað,
unnið 3 en gert 1 jafntefli. —
Dönsku stúlkurnar hafa unnið 3
leiki og tapað einum.
Færeyingarnir, sem verið hafa á vélbátum og togurum hér í
vetur, hópast nú heim. Þeir hafa margir haft góðar tekjur af
störfum sínum. Nú er mjög ósennilegt talið, að Færeyingar muni
leita eftir vinnu hér á landi næsta vetur, því að nú er
búið að ákveða að þeir skuli greiða af kaupi sínu 55 prósent
„bjargráðaframlag“. Hér sjást nokkrir með sjópokana sína á
leið niður að „Drottningunni" í gær, en hún sigldi áleiðis til
Færeyja í gærkvöldi með um 200 manns innanborðs.
Ný bjargráð í Kópavogi
Bæjarstjórn sainþ. stórfclldar álögur
ásamt takmörkun á eignarrétti
Mæðradagurinn á morgun