Morgunblaðið - 29.05.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.05.1958, Blaðsíða 1
20 síður 45. árgangur 118 tbl. — Fimmtudagur 29. maí 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins De Gaulle í Forsetar þingdeilda ræða við hann um stjórnar- myndun Fjölmenn mótmælaganga gegn de tiiaufile í París i gær PARÍS, 28. maí. — Charles de Gaulle hershöfðingi fór frá sveita- setri sínu klukkan rúmlega fimm e. h. í dag eða um svipað leyti og mikill mannfjöldi safnaðist saman á Place de la Nation til að ganga lylktu liði gegnum Parísarborg til Place de la Repubiique og hrópa kjörorðið: „Lengi lifi lýðveldið“. De Gaulle fór frá sveitasetri sínu skömmu eftir að hann hafði átt viðræður við einasta núlif- andi marskálk Frakklands, Alp- honse Juin, sem sagður er hafa mikil áhrif innan hersins, enda þótt hann gegni ekki lengur opin- bei’U embætti. Er talið sennilegt að Juin marskálkur hafi hvatt de Gaulle til að taka við stjórnar- □- -□ SÍÐUSTU FKÉl’TIR Tilkynnt var eftir niiðnætti í nótt að de Gaullc hefði hafið viðræður við þá Le Troquer og Monnerville forseta beggja deilda þingsins. □- -□ taumunum, svo komið verði í veg fyrir að franski hezinn klofni. Ennfremur herma fréttir, að de Gaulle hafi áður átt langar við- ræður við hinn 81 árs gamla Georges Catroux hershöfðingja, sem um eitt skeið var sendiherra Frakka í Moskvu. Catroux var út- nefndur landsstjóri í Alsír árið 1956 af stjórn Mollets, en sagði starfinu lausu sex dögum síðar án þess að hafa farið til Alsír. Hópgangan í París, sem „Nefnd in til verndar lýðveldinu" stóð fyrir í dag, var farin að tilhlutan fulltrúa frá sósíalistum, katólska lýðveldisflokknum, frjálslynda flokknum og tveimur litlum mið- flokkum. Kommúnistar stóðu ekki opinberlega að göngunni, en þeir hvöttu fylgismenn sína til að taka þátt í henni. Verkalýðssamtökin þrjú, hið kommúníska, sósíalist- íska og katólska, stóðu einnig að göngunni. Viðbúnaður Coty, Frakkiandsforseti, átti í morgun fund við forseta lýðveld- isráðsins, Gaston Monnerville, en síðar ræddi hann við ýmsa póli- tiska leiðtóga, meðal þeirra Moll- et foringja sósíalista og Pinay, foringja íhaldsmanna. Það var á- lit flestra stjórnmálafréttaritara í París í dag, að þessum umræðum yki með því, að Coty bæði de Gaulle að mynda stjórn. Á yfirborðinu var allt með kyrrum kjörum í París í dag, en stórir flutningabílar með sveitum öryggislögregluþjóna stóðv á helztu stöðum borgarinnar, m. a. við þinghúsið. Tilbiga unt sameiginlega sleinuskrá Þingflokkur sósíalista átti í morgun 90 mínútna fund, en þar voru ekki gerðar neinar ályktanir. París Mollet átti að skýra þingflokkn- um frá viðræðum sínum við Coty kl. 8 í kvöld. Jacques Duclos, þing leiðtogi kommúnista, hefur sent „Nefndinni til verndar lýðveld- inu“ bréf, þar sem hann fer þess á leit að haldinn verði fundur til að ganga fi'á stefnusikrá sem orð- ið geti grundvöllur lýðræðis- stjórnar í landinu. Sósíalradíkali- flokkurinn hefur hafnað þessari tiilögu, en leiðtogi hans Edouard Daladier hafði gefið þingmönn- um hans skýrslu um málið. Öháði íhaldsmaðurinn Paul Reynaud, fyrrum forsætisráðherra, hefur skorað á sósíalista að taka ekki endanlega afstöðu gegn því að de Gaulle verði falin stjórnarmynd- un. Hann sagði að de Gaulle gæti afstýrt borgarastyrjöld auk þess sem hann hefði heitið að virða stjórnarskrána. Ef sósíalistar snerust gegn honum, gæti það leitt Framh. á bls. 19 Fyrsta myndin af fyrsta opinbera fundi Þjóðlegu öryggisnefnd- arinnar í Alsír. Frá vinstri: Sid Cara, Soustelle, Salan hershöfð- ingi, Massu hershöfðingi og Leon Delbecque, hinn borgaraiegi leiðtogi nefndarinnar. svíkja Júgóslava um lán sem þeir lofuðu BELGRAD, 28. maí — Rússar hafa gert fyrstu ráðstöfun sína til að einangra Júgóslavíu efnahagslega, en eins og kunnugt er hefur enn komið upp hugsjónafræðilegur ágrein- ingur milli þessara landa. I orðsendingu, sem Andrei Grómýkó utanríkisráðherra Rússa afhenti júgóslavneska sendiherranum í Moskvu, segir að frestað hafi verið um fimm ár að láta koma til framkvæmda sáttmála um lán, sem Rússar og Austur-Þjóðverjar höfðu samþykkt að veita Júgóslövum til langs tíma í því skyni að reisa áburðarverk- smiðjur og orkuver og endurbæta námuútbúnað. Lánin áttu að nema 285 milljónum dollara, og voru samningar um þau undirritaðir 12. janúar og 2. ágúst 1956. Júgóslavneska fréttastofan Tanyug segir, að ákvörðunin um Þessa „frestun“ hafi verið tekin af Rússum og Austur-Þjóðverjum án sam- ráðs við Júgóslava. AFP-fréttastofan skýrir frá því, að ráðamenn í Jugoslaviu liti svo á, að þetta geti haft víð- tækar afleiðingar fyrir efnahags- lega uppbyggingu Júgóslavíu. I orðsendingu Rússa er minnzt á þann möguleika að Júgóslövum verði bættur skaðinn með því að þeir auki vöruskipti sín við Rússa á grundvelli gildandi sátt- mála um vöruskipti, en þetta mun hvergi nærri vega á móti áhrifunum af „frestun11 lánanna. Fréttaritari Reuters í Belgrad símar, að þetta muni enn auka viðsjárnar með Rússum og Jugó- slövum, auk þess sem öll sú fyr- irhöfn sem Júgóslavar hafa liaft af undirbúningi væntanlegra framkvæmda sé unnin fyrir gýg. Júgóslavar liafa ekki enn tckið við neinum rúblum eða auslur- þýzkum mörkurn, en þcir hafa þegar tekið við rússneskum upp- dráttum að verksmiðjum og orku verum og unnið að undirbúningi framkvæmdanna undanfarin tvö ár. Fáheyrð vinnubrögð sjávarúfvegsmálaráð- herra í landhelgis- málinu SKRÍPALEIKUR kommúnista og sjávarútvegsmálaráðherra þeirra með ianunelgismálið verður sífellt ábyrgðarlausari og furðulegri. Lúðvík Jósefsson, maðurinn, sem þykist vilja einingu um þetta stórmál, lætur blað sitt dag eftir dag halda uppi blekkingum um afstöðu Sjálfstæðismanna til þess. Og á sama tíma, sem stjórnarflokkarnir allir tala um nauðsyn samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn um málið, segja blöð þeirra frá því, að samkomulag hafi verið undirritað milli allra stjórnarflokkanna sl. laugardag um birtingu, gildistöku og efni nýrrar friðunarreglugerðar. Blað sjávar- útvegsmálaráðherra, „Þjóðviljinn“, bætir því svo við að það birtir sjálfa reglugerðina í gær. Þessi vinnubrögð eru vissulega fyrir neðan allar hellur og ekki samboðin neinum þeim, sem í raun og veru vildi þjóðareiningu um framkvæmdir í landhelgismálinu. Frá því hefur áður verið skýrt, bæði hér í blaðinu og í sumum mál- gögnum stjórnarflokkanna, að ágreiningur hefur ekki ríkt milli ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um aðal- efnisatriði nýrra friðunarráðstafana. Þess vegna eru blekk- ingar og rógur kommúnista um afstöðu Sjálfstæðisflokksins í landhelgismálinu ennþá svívirðilegri og ábyrgðarlausari. EOKA boðar morðöld NÍKÓSÍU, 28. maí — Samtök uppreisnarmanna á Kýpur, EOKA-félagsskapurinn, sendi í dag út flugmiða, þar sem leið- toginn Digenis kapteinn segir, að héðan í frá verði allir andstæð- eða sair z r þeir I_..uni að tilheyra. Segir Digenis, ð EOKA-menn hafi drepið s\ kara, sem voru meðlimir bæði vinstri og hægri flokka. Nú virðist margt tsnda til þess, að vinstri flokkar verndi svikara, segir Di Blaðafregn borin til baka □ Þess hefur verið getið í einu Kaupmannahafnarblaðanna, að v-þýzka stjórnin hafi krafizt þess, að kjarnorkueldflaugastöðvum yrði komið upp á Borgundai'- hólmi. Talsmaður v-þýzka varnar málaráðuneytisins hefur borið þessa fregn til baka —• og ságt hana tilhæfulausa með öl'lu: Borg undarhólmur sé danskt land — og Danir ráði einir hvernig þeir verji sitt land. Færeyingar fagna víkkun land- helginnar v/ð eyjarnar KAUPMANNAHÖFN, 28. maí — Blaðið Information skýrir frá því, að ákvörðun dönsku stjórnarinn- ar um að krefjast nýrra samn- ingaviðræðua við Breta um víkk- un fiskveiðilandhelginnar við Færeyjar hafi vakið mikla ánægju í Færeyjum. Kristian Djurhuus lögmaður er væntanlegur til Hafnar innan skamms til að ræða við stjórn- ina um það, hvernig gerð skuli grein fyrir sjónarmiðum Dana og Færeyinga varðandi 12 mílna landhelgi. Dimmalætting skrifar í dag, að sú víkkun landhelginnar, sem ís- n Paul-Emil Victor hefur látið svo um mælt, ao heimshotm muni hækka um 30 fet — og all- ar hafnarborgir heims fari í kaf, ef altur ís á Grænlandi yrði bræddur. lendingar hafi boðað, muni án efa leiða til þess að brezki fiski- flotinn sæki miklu meira á færeysk mið en hann hefur gert hingað til. Það muni svo leiða til þess að fiskstofn Færeyinga rýrni enn meir en orðið er. —Páll. GervihnötturSnn komst ekki á braut sína CAPE CANAVERAL, 28. maí — 1 nóvt sem leið skaut bandariski flotinn enn á loft Vanguard-eld- flaug með gervihnetti, en þegar hún var komin í 3200 kílómetra hæð fór eldflaugin af braut sinni og brann til agna. Eicttiauginni var skotið upp kl. 3,46 eftir meðaltíma Greenwich. Gervihnötturinn var 9.48 kg. að þyngd og heyrðust hljóðmerki frá honum á tímanum frá kl. 3,50 til 4,08. I dögun, þegar ekki heyröist neitt frekar frá honum, sögðu visindamennirnir að til- raunin til að koma gervihnettin- um á braut sína hefði misheppn- azt. Dr. John P. Hagen, sem er yfirmaöur tilraunanna með Vanguard-skeytin, sagði frétta- mönnum nokkrum tímum eftir að eldflauginni hafði verið skotið Frh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.