Morgunblaðið - 29.05.1958, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1958, Blaðsíða 4
MORGVTS BL AÐIÐ Fimmtudagur 29. maí 1958 I dag er 149. dagur ársins. Fimmtudagur 29. mai. Árdegisflæði kl. 2,56. Síðdegisflæði kl. 15,37. Slysavarðstofa Reykjavíkur I Heilsuverndarstöðinm er >pin all- an sólarhringinn. Læknavörður L. R (fyrir vitjanir) er á sama stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030. Næturvarzla vikuna 25.—31. maí er í Vesturbæjar-apóteki, sími 22290. — Holts-apótek og Garðsapótek eru opir á sunnudögum kl. 1—4. Hafnarfjarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kL 13—16 Næturlæknir: Ólafur Einarsson Keflavikur-apótek er opið alla virka daga kl 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kL 13—16. Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9 er opið daglega kL 9—20. nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100. I.O.O.F. 5 = 1405298% s Fl. Borðh. kl. 7. * AFM ÆLI <■ Guðjón Jónsson, trésmíðameist- an, Grettisgötu 31, er 75 ára í dag. — Frú Pálína Pálsdóttir, Vestur- braut 23, Hafnarfirði, er sextug í dag. Sextug verður föstudaginn 30. þ.m., frú Herdís Guðmundsdóttir, Lækjargötu 12B, Hafnarfirði. — Munu margir heimsækja þessa góðu konu á hinum merku tíma- mótum. — Á. IE3 Brúókaup Laugardaginn fyrir hvítasunnu voru gefin saman í hjónaband af séra Jósep Jónssyni, Sigríður S. í Fyrir börnin <■ Skjótið dósirnar I Danmörku leika börn mikið með bolta, eins og víða annars staðar — og hér kemur einn leik ur, sem dönsk börn leika mikið Hann er fólginn í því að skjóta niður dósirnar, sem þið sjáið rað- að upp á miðju hringsins í mynd- inni. Þátttakendur verða að vera a. m. k. 3, en skemmtilegra er að þeir séu fleiri. Þið dragið stóran hring, raðið blikkdósurr. upp í honum miðjum — og síðan tekur eitt ykkar að sér að reyna að verja dósastaflann, þegar þið hin kastið bolta á milli ykkar yfir hringinn og reynið að hæfa dósirnar og fella þær, þegar færi gefst. Ef „verjandinn“ reynist svo snjall að ykkur heppnast aldrei að skjóta staflann niður — þá er ekkert annað að gera en að þrengja hringinit. Hringurinn Og annan skemtilegan bolta leik getum við kennt ykkur. Hann er dálítið svipaður skeifu- kastinu. Reynið þið að ná ykkur í tunnugjörð, eða gamlan hjól- hestahring, sem teinarnir hafa verið teknir úr. Síðan standið þíð í ákveðinni fjarlægð, sem þið get- ið sjálf ákveðið, og reynið að kasta boltanum inn í hringinn — þannig að hann stanzi þar. Ef þið kastið honum of fast, þá skoppar hann aftur út úr hringn- um — og þið fáið ekkert stig, en ef þið eruð lagin — og getið látið hann hoppa inn í hringinn — og ekki lengra — þá fáið þið eitt stig. Sölvadóttir og Jón I. Júlíusson. Heimili þeirra er í Skaftahl. 29. Hjönaefni Nýlega hafa opinberað trúlof- un sina ungfrú Anna Leósdóttir, frá Hvalnesi og Agnar Hermanns- son frá Lóni í Viðvíkursveit. — Ungfrú Ásgerður Höskuldsdóttir, útstillingardama og Ölafur Har- aldsson, flugumferðarstjóri. — S.l. laugardag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Þórhalla Har- aldsdóttir, Mánagötu 17, Rvík og Hörður Bergmann, Hagamel 14, Rvík. — Einnig Ágústa Sigurjóns dóttir, Bakkastíg 4 Rvík og Sæ- vaf Þórarinsson, Þórustíg 32, Ytri-Njarðvík. Á hvítasunnud. opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Ólína Jónsdótt- ir, Eskihlíð 18A og Kristinn Krist insson, Kirkjuteig 29. Á hvítasunnunni opinberuðu trúlofun sína ungfrú Jónína Kristín Valdimarsdóttir, frá Vest mannaeyjum og Engelhart Svend sen, búfræðingur frá Hofi í Mjóa- firði. — Á hvítasunnudag opinberuðu trúlofun sína ungfrú Kolbrún Sigurðardóttir frá Keflavík og Hjálmar Vilhjálmsson (Hjálmars sonar fyrrv. alþm.), stúdent, frá Brekku í Mjóafirði. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína ungfrú Fanney Hannes- dóttir frá Akranesi og Heiðar Jó- hannsson frá Vaibjarnarvöllum í Borgarfirði. IB55S Skipin Eimskipafélug íslands K.f.: — Dettifoss fór frá Siglufirði í gær dag til Akureyrar og þaðan 29. þ.m. til Lysekil, Gautaborgar og Leningrad. Fjallfoss fór frá Hamina 27. þ.m. til Austurlands- ins. Goðafoss fór frá New York 22. þ.m., væntanlegur til Rvíkur s. 1. nótt. Skipið kemur að bryggju um kl 8,30 fh. í dag. Lagarfoss fer frá Gdynia í dag til Kaupmanna- hafnar og Reykjavíkur. Reykja- foss kom til Rvíkur 22. þ.m. frá Hamborg. Tröllafoss fór frá New York 27. þ.m. til Cuba. — Tungufoss fór frá Bremerhaven 28. þ.m. til Bremen og Hamborg- ar. Drangajökull lestar í Huil 28. þ.m. til Reykjavíkur. Skipadeild S.i.S.: — Hvassafell fór í gær frá Sauöárkróki áleiðis til Mantyluoto. Arnarfell átti að fara í gær frá Rauma áleiðis til Fáskrúðsfjarðar. Jökulfell losar á Austfjarðahöfnum. — Dísarfell fór í gær frá Reykjavík áleiðis til Hamborgar og Mantyluoto. — Litlafell kemur í kvöld til Rvíkur. Helgafell fer í kvöld frá Akureyri til Hólmavíkur og Faxaflóahafna. Hamrafell fór 27. þ.m. frá Rvik áleiðis til Ba'.umi. SkipaúlgerS ríkisins: Esja fór frá Reykjavík í gær austur um land til Akureyrar. Herðubreið fer frá Reykjavík í dag til Þórs- hafnar og Austfjarða. Skjald- breið fór frá Reykjavík í gær vest ur um land til Akureyrar. Þyrill er í Reykjavík. Skaftfellingur fór frá Reykjavík í gær til Vest- mannaeyja. Flugvélar Flugfélag íslands h.f.: — Hrím faxi fer til Oslóar, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar kl. 08,00 í dag. Væntanlegur til Rvíkur kl. Hurðin í Litla-Dal I VIÐTALI því, er Morgunblaðið átti við séra Friðrik Friðriksson í tilefni af níræðisafmæli hans á hvítasunnudag, segir hann frá því er hann dvaldi í Litla-Dal í Tungusveit í Skagafirði á barns- aldri með foreldrum sínum, að þá vann hann það afrek að bora 7 göt á hjónahúshurðina í bað- stofunni, og átti ákveðnum til- gangi að hlíta, sem þar segir. Jafnframt getur hann þess að hann hafi komið í Litla-Dal árið 1955 og séð hurðina á sínum stað Þetta var að vísu ekki alveg rétt, en skiptir þó engu máli (kannske prentvilla) því hurðina sá hann í Litla-Dal um þetta leyti. Árið 1951 keypti eg Litla-Dal og árið 1953 reif eg bæjarhús til grunna. Voru þau þá að litlu nýt, sökum aldurs. Það var einn dag um vorið, er nálega var allt í grunn rifið, að konan frá Litla-Dalskoti (nú Laugardal), Margrét Jóhanns- dóttir, kom að máli við mig og kvaðst eiga skrítið erindi og ó- vanalegt. Hún ætlaði að biðja mig að gefa sér hurðina sem verið hefði fyrir hjónahúsinu. Litum við nú á hurðina og Margrét benti á nokkur smágöt á henni og sagði að séra Friðrik Frið - riksson hefði borað þessi göt á hana, er hann dvaldi í Litla-Dal og hefði verið á 8. ári. Mér þótti sagan góð, en þó götin enn betri og hurðin hin mesta ger- semi. Þótti mér enn sannast, „að margt er það í koti karls, sem kóngs er ekki í ranni“ og sagan að vanda skemmtin og fróðleg. Er skemmst af þvi að segja að Margrét fékk hurðina, og þóttist eg þess fullviss að þá væri hún í tryggum höndum, slíkan skiln- ing sem hún sýndi á þessum minjum eftir hinn dýrðlega mann. Lét hún loks taka mynd þá af hurðinni er hér fylgir. Eftir það mun hún geymast í byggðasafni Skagafjarðar sem helgur dómur. Benedikt Gíslason frá Hofteigi. 23,45 í kvöld. Flugvélin fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08,00 í fyrramálið. — Gullfaxi fer til Lundúna kl. 10,00 í dag. — Væntanlegur aftur til Reykjavík- ur kl. 21,00 á morgun. — Innan- landsflug: 1 dag tr áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Patreksfjarðar, Sauðárkróks og Vestmannaeyja (2 ferðir). — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Fagurhólsmýrar, Flateyrar, — Hólmavikur, Hornaf jarðar, ísa- fjarðar, Kirkjubæjarklausturs, — Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þingeyrar. Loftleiðir h.f.: — Edda kom til Reykjavíkur kl. 08,15 í morgun frá New York. Fer til Osló, Kaup mannahafnar og Hamborgar kl. 09,45. Hekla er væntanleg kl. 19,00 í kvöld frá Stafangri og Osló. Fer til New York kl. 20,30. Ymislegt OrS lí/sins: — Fwriö og lærið hvað þetta þýðir: Miskunnsemi þrái ég, en ekki fóm, því að ég er eklci kominn til þess að kalla rétt- láta heldur synda/ra. (Matt. 9, 13) Kangæingafélagið fer í skóg- ræktarför á Heiðmörk kl. 2 e.h., laugardaginn 31. maí, frá Varðar húsinu og biður félaga sína að f jöl menna. 1 Vatnaskóg fara Skógarmenn KFUM um helgina og verða þeir við trjágróðursetningu aila næstu viku. Hafa Skógarmenn beðið Dagbókina að vekja athygli þeirra unglinga, sem hafa hug á að taka þátt í trjágróðursetningunni, að hafa sem fyrst samband við skrif stofu K.F.U.M. Náltúrulækningafélag Reykja- víkur efnir til þriggja daga sýni- kennslu í matreiðslu grænmetis. Námskeiðið hefst n. k. mánudag kl. 2 í Austurbæjarskólanum. — Upplýsingar í síma 14088. Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík minnir félagskonur á fundinn í kvöld kl. 8,30, í Iðnó, uppi. — Munið að gera ski! í happdrætti Sjálfstæðisflo’kksins. Andrew Carnegie: „Ofdrykkjan hefur eyðiiagt líf fleiri manna, en nokkuð annað“. — Umdæmisstúk- Læknar fjarverandi: Eiríkur Björnsson, Hafnarfirði um óákveðinn tíma. Staðgengill: Kristján Jóhannesson. Jónas Sveinsson til 31. júli. — Staðgengill: Gunnar Benjamins- son. Viðtalstími kl. 4—5. Ólafur Helgason óákveðinn tíma. Staðgengill Karl. S. Jónas- son. Sigurður S. Magnússon frá 16.—31. maí. — Stg. Tryggvi ÞorsteinSson, Vesturbæj arapóteki, sími 15340. FERDINAND Reiðin fær utrás Söfrt ÍNátturugripusafnið: — Opið a sunnudögum kl. 13,30—15 þriðju- dogum og fimmtudögum kl. 14—15 Listasafn Linars Jónssonar, Hnit björgum er opið kl. 1,30—3,30 á sunnudögum og miðvikudögum. Þjóðminjasafnið er opið sunnu- daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu daga og laugardaga kl 1—3. Bæjarbókasafn Reykjavíkur, sími 1-23-08: Aðalsafnið Þingholtsstræti 29A. Útlánadéild: Opið alla virka daga kl. 14—22, nema laugardaga 13—16. — Lesstofa: Opið alla virka daga kl. 10—12 og 13—22, nema laugardaga kl. 10—12 og 13—16. Útihúð Hólmgarði 34. Útlánad. fyrir fullorðna: Opið mánudaga kl. 17—21, miðvikudaga og föstu- daga kl. 17—19. Útlánad. fyrir bórn: Opið mánudaga, miðviku- daga og föstudaga kl. 17—19. Útibúið Hofsvallagötu 16. Út- lánad. fyrir börn og fullorðna: Opið alla virka iaga, nema laug- i ardaga, kl. 18—19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.