Morgunblaðið - 29.05.1958, Síða 11
Fimmtudagur 29. maí 1958
MORCIllSBl 4 ÐIÐ
11
„Bjargráðafrumvarpið" felur í sér
stórfelldar álögur á sjávarútveginn
Ríkisstjórnin hefur rofið samninga vid
útvegsmenn
Rœða Sigurðar Ágústssonar á Alþingi
SIGURÐUR AGÚSTSSON hélt ræðu í Neðri deild Alþingis í gær
við 2. umræðu um „bjargráða“-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Eins
og kunnugt er, hefur frumvarpi þessu verið ætlað fyrst og fremst
að bjarga út.flutningsframleiðslu landsins. Sigurður lýsti því hins
vegar í ræðu sinni, að með frumvarpinu stefndi ríkisstjórnin að
því að leggja þyngri álögur en nokkru sinni fyrr á útflutnings-
atvinnuvegina, sjávarútveg og landbúnað. Fara hér á eftir nokkrir
kaflar úr ræðu Sigurðar:
Nauðþurftir útvegsins
skattlagður
Þeir ráðherrar, sem mælt hafa
með samþykkt frumvarpsins hafa
verið með ýmsar fullyrðingar um
ógæti þess — og þá miklu bless-
un og bætta fjárhagsafkomu, sem
af því muni l^ga fyrir atvinnu-
vegina og allan landslýð.
Mér er óskiljanlegur slíkur
málflutningur. Það þarf mikil
brjóstheilindi til að halda því
fram, að það sé til blessunar
fyrir aðalatvinnuvegi þjóðarinn-
ar, að lagt sé 55% yfirfærslugjald
á allar nauðþurftir þeirra.
Það á að auka framleiðslu
sjávarafurða með því að fram-
kvæma þær aðgerðir af háifu
ríkisvaldsins að skattleggja all
ar nauðþurftir sjávarútvegsins
með 55% yfirfærslugjaldi. Á
þénnan hátt, segir í greinar-
gerð með frumvarpinu, á að
setja hömlur á ofnotkun veið-
arfæra og olíunotkun hjá fiski
skipaflotanum.
Þetta er hæpinn málflutning
ur sem ég veit að muni reyn-
ast erfitt að sannfæra ísl. sjó-
mannastéttina um — að með
því að stytta línuna, fækka
netunum á þorsk- og síldveið-
um, spara olíunotkun — og
að sjálfsögðu að fækka þar
með róðrardögum — eigi að
vera unnt að fá meiri afla á
fiskiskipin!!
Því er beinlínis haldið fram í
greinargerð með frv., að með
55% yfirfærslugjaldinu, eigi þessi
árangur að nást. Þeir sem hafa
rekstur útgerðarinnar með hönd-
um í dag leggja ekki trúnað á
slíka fjarstæðu — og ég fullyrði,
að sjómennirnir okkar séu á sama
máli um rökþrot þessara fullyrð-
inga í greinargerðinni.
Færeyingar útilokaðir
Til að tryggja rekstur fiski-
skipanna á svo að leggja 55%
yfirfærslugjald á þann gjaldeyri,
sem færeyskir sjómenn fá yfir-
færðan af aflahlut eða kaupi sínu
á fiskibátunum og togurunum.
Ég óttast að með þessari ákvörð-
un séu stöðvaðir allir möguleikar
ísl. útgerðarmanna með ráðn-
ingu færeyskra sjómanna á fiski-
skipin — sem mun hafa þær
afleiðingar, að fjöldi fiskibóta og
nokkrir togarar munu verða að
stöðva rekstur sinn, vegna vönt-
unar á sjómönnum.
Hækkun álags til Fiskveiðisjóðs
Þá er gert ráð fyrir 55% álagi á
útflutningsgjald sjávarafurða
samkv. 1. gr. laga frá 1957, en
ólagið skal renna til Fiskveiða-
sjóð Islands.
Þessi vinnubrögð eru fráleit.
Hækkunm, sem frv. gerir ráð
fyrir á útflutningsgjald sjávar
afurða nemur rúmlega 1,5% í út-
flutningsprocentu. Til að tryggja
reksrarafkomu sjávarútvegsins
hyggst hæstv. ríkisstjórn að
leggja á sjávarútveginn, ekki ein-
vörðungu 55% yfirfærslugjald,
heldur og einnig 55% hækkun á
útflutningsgjald af sjávarafurð-
um.
Ég held að þessi vinnubrögð
hæstv. ríkisstjórnar séu ekki tij
þess fallin að auka henni traust,
hvað sem öðru líður, og var þess
þó full þörf. Það skal viðurkennt,
að Fiskveiðasjóður íslands þarfn-
ast meira fé til umráða, til að
geta sinnt þeim margþættu verk-
efnum i þarfir sjávarútvegsins,
sem sjóðnum er ætlað. Fn ég
Sigurður Ágústsson
heid að fáir íslomdingar hefðu
lagt trúnað á það, að til að auka
Fiskveiðasjóði nauðsynlegt fjár-
magn til sinna þarfa, yrði reynt
að taka það með þessum hætji,
eða með álögum í formi hækk-
aðs útflutningsgjalds á sjávaraf-
urðir.
Ráðherrar þeir, sem hér hafa
talað halda því fram, að með
samþykkt þess mundi hefjast stór
kostleg þróun í efnahags- og at-
vinnumálum þjóðarinnar. Út-
gerðin muni stór aukast og þar
með aukin atvinna hjá öllum al-
menningi — og fullar búðir varn-
ing fyrir fólkið.
ÞaS er hins vegar álit mitt,
að þær aðgerðir, sem hæstv.
ríkisstjórn hyggst að ná fram
með samþykkt þessa frv., hafi
í för með sér aðra og verri
tíma fyrir allan landslýð. í
kjölfar þessara aðgerða hæstv.
ríkisstjórnar munu óhjákvæmi
lega sigla minnkandi þátttaka
í aðalatvinnuvegi þjóðarinn-
ar, sjávarútveginum, atvinnu-
leysi og vöruþurrð og þar með
svartamarkaður í stærri stíl en
nokkru sinni hefir þekkst hér
á landi.
Stórfelld hækkun
á verði fiskiskipa
Ríkisstjórnin hefir staðið að
samningum um kaup á 12 vél-
skipum 240 smál. frá Austur-
Þýzkalandi. Atvinnutækja-
nefnd, sem hefir á hendi, á
vegum ríkisstjórnarinnar, út-
hlutun þessara skipa, hefir
tjáð mér, að henni hafi borizt
mikið fleiri umsóknir um kaup
á þessum skipum, en tala
þeirra nemur. Upplýst var, að
kaupverð skipanna myndi
nema um 4,2 til 4,5 millj. kr.
Ef lítið eða ekkert af andvirði
skipanna hefir verið yfirfært,
mun yfirfærslugjaldið hækka
verð þeirra um 2,3 til 2,5 millj.
kr. á skip — og verður þá
endaniegt verð þeirra ca. 6,5
til 7 miilj. kr.
Það er gert ráð fyrir að þessi
12 skip komi til landsins á næstu
mánuðum og eiga þau öll að vera
komin hingað heim fyrir áramót.
Það hlýtur að valda miklum vand
kvæðum fyrir væntanlega kaup-
endur þessara báta að komast frá
kaupum á þeim — þó að mér sé
fyllilega ljóst, að þá fyrst harðn-
ar á dalnum, er eigendur skip-
anna eiga að fara að greiða af-
borganir og vexti af endanlegu
stofnverði þeirra ásamt yfir-
færslugjaldi. Endanlegt kaupverð
þessara báta, sem ég hefi nefnt
hér, verður að teljast hrein fjar-
stæða, og þá sérstaklega vegna
hins óeðlilega háa yfirfærslu-
gjalds. Það mun og sýna sig, að
væntanlegir kaupendur skipanna
munu ekki hafa ráð á að ganga
frá kaupunum, nema að rikis-
valdið veiti þeim stórvægilega
fyrirgreiðslu í einni eða annari
mynd.
Það er spá mín, sagði Sigurður,
að þær aðgerðir, sem væntanlega
verða lögfestar á næstu dögum,
eftir að frumvarp það sem hér
er til umræðu verður samþykkt,
sé fyrirboði um stórkostlega
hrörnun á sviði alls athafnarlífs
hér á landi — og muni þó koma
þyngst niður á aðalatvinnuvegun-
um, landbúnaði og sjávarútvegi.
Samþykkt frv. mun hafa í för
með sér lamandi áhrif á allt fram
tak — og þó að hæstv. ríkisstjórn
hafi í umræðum hér í hv. deild
viðurkennt, að gera megi ráð
fyrir að þessar aðgerðir, sem frv.
fjallar um, muni aðeins duga
fram á haustið — hefir hún þó
Á FUNDI neðri deildar Alþingis
í fyrrakvöld fór fram 3. umræða
um efnahagsmálafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar. Við það tækifæri
flutti Sveinn Guðmundsson ræðu
qt að fyigja úr hlaði breytinga-
tillögu, sem hann fl’utti ásamt
Áka Jakobssyni. Tillagan fjallaði
um 6% útflutningssjóðsgjald það,
sem að undanförnu hefur bætzt
við 3% söluskattinn, og sem skv.
40. gr. frv. á einnig að verða
hér eftir. Lögðu þeir Sveinn og
Áki til, að undanþegnar gjaldinu
skyldu vera:
a) Efnivara, sem iðnaðarmenn
og iðnfyrirtæki selja í sambandi
við iðn sína.
b) Vinna og þjónusta látin í
té af iðnaðarmönnum og iðnfyrir-
tækjum.
Sveini Guðmundssyni fórust
orð á þessa leið:
Breytingartillaga sú, sem hér
er flutt í tveimur liðum, fjallar
um mál, sem mikið hefur verið
til umræðu meðal iðnaðarmanna
og landsmanna allra að undan-
förnu. Veldur því m.a. Hæsta-
réttardomur, sem féll í marzmán-
uði sl., þar sem raftækjaverk-
stæði S.Í.S. var gert að greiða
til rikissjóðs 9% söluskatt og út-
flutningssjóðsgjald af efnivörum,
er verkstæðið hafði útvegað við-
skiptamönnum sínum. Með dómi
þessum er því slegið föstu að
innheimta beri 9% af allri efni-
vöru, sem iðnaðarmenn og iðn-
fyrirtæki láta i té, ásamt vinnu
og þjónustu. Hér er um slíkt ó-
réttlæti að ræða, að vafasamt er,
hvort heppilegt sévfyrir löggjaf-
ann að mismuna þjóðfélagsþegn-
um með þessum hætti.
Skal ég nú færa að því nokkur
dæmi.
Ef viðskiptavinur leggur sjálf-
ur til efni og greiðir vinnulaun-
in, er engin skattskylda.
Ef verkstæðið útvegar það af
eigin birgðum, eða frá öðrum,
þótt án álagningar sé, þá ber
að innheimta 9% gjaldið
til ríkisins hjá viðskiptavininum.
reynt að mæla þeim bót, sem
spor í rétta átt.
Stór auknar greiðslur
Sigurður Ágústsson minnti á
það, að Lúðvík Jósepsson hefði
upplýst í ræðu er hann flutti
fyrir nokkrum dögum, að tekjur
Útfl.sjóðs hefðu numið 508,7
millj. kr. á árinu 1957. Hins vegar
taldi ráðherra, að gera mætti ráð
fyrir að tekjur Útfl.sjóðs á ár-
inu 1958 kæmu til að nema 1155
millj. kr Þessar stórauknu tekj-
ur til Útflutningssjóðs og sem að
sjálfsögðu verða mun hærri á
meðal annars að afla með 55%
yfirfærslugjaldi af öllum rekstr-
arvörum atvinnuveganna.
Kemur þetta hvað harðast nið-
ur á sjávarútveginum og land-
búnaðinum, þó að þeim sé það
að nokkru bætt með hækkuðum
útflutningsbótum á útfl. afurðir.
Samningsrof ríkisstjórnarinnar
Sigurður Ágústsson rakti það
að um síðustu áramót hefði ríkis-
stjórnin gert samninga við Lands
samband íslenzkra útvegsmanna,
sem skyldu gilda allt árið 1958.
Nú væri það ljóst, að með þessu
frumvarpi væri ríkisstjórnin að
rjúfa þá samninga. Samningsrof
ríkisstjórnarinnar eru fólgin í
eftirtöldu:
1. ) Að fella niður greiðslu
á vátryggingariðgjöldum fiski-
bátanna frá 15/5. og fram til
áramóta, en samningur kvað á
um að iðgjöldin skyldu greidd
af Útflsj. allt árið 1958.
2. ) Að ráðuneytið lofaði að
beita sér fyrir því, að lánveiting-
ar og lánskjör bankanna til út*
vegsmanna yrðu ekki óhagstæð-
ari á árinu 1958 en þau voru á |
Ég vil lýsa á hvern hátt þessi
óréttmæta skattheimta er lögum
samkvæmt framkvæmd við hús-
byggingar almennt. Verktakar,
Sveinn Guðmundsson
sem taka að sér slík verk í á-
kvæðisvinnu eiga að innheimta
hjá viðskiptamanninum, eiganda
hússins, 9% af allri umsamdri
upphæð verksins. Taki verkkaup
inn hins vegar starfsmenn verk-
taka í beina þjónustu sína, eins
og nú er gert í stórum stíl, þá á
hann samkvæmt lögum ekkert að
greiða. Og hvaða þróun er þetta
svo að taka á sig almennt? Þá,
að verkkaupinn verður sjálfur
að vera á þönum í útvegunum,
sem hann ber ekki sama skyn á
og fagmaðurinn.
Ef komið er með bifreið til við-
gerðar, verður eigandinn sjálfur
að kaupa varahlutinn í verzlun-
inni og afhenda hann viðgerða-
verkstæðinu. Húsbyggjandinn
verður sjálfur að kaupa rafmagns
efnið í bygginguna, en getur ekki
notað fagþekkingu rafvirkja-
meistarans, nema ríkið komi þar
inn á milli með 9% galdi.
Hér er því algjör öfugþróun
á ferð, sem löggjafinn hefur
árinu 1957, svo og að samræmd
yrðu vextir og lánskjör þeirra til
útvegsmanna. Þrátt fyrir hækkun
á fiskverði til hlutasjómanna og
annars aukins tilkostnaðar við
rekstur útgerðarinnar, hefir út-
vegsmönnum og vinnslustöðvum
enn ekki tekist að fá lagfæringu
á útlánum bankanna, til sam-
ræmis þessum aukna tilkostnaði.
3.) í bréfi L.Í.Ú. til hæstv.
sjávarútvegsmálaráðuneytis dags.
31. des. sl. segir meðal annars:
„Tilboð hæstv. ríkisstjórnar
var lagt fyrir fulltrúafund L.Í.Ú.
sem haldinn var í gær og var
gerð eftirfarandi samþykkt í
trausti þess að samningar tækj-
ust milli ríkisvaldsins og fisk-
kaupenda:
„Fulltrúafundur L.Í.Ú. sam-
þykkir fyrir sitt leyti þann starfs
grundvöll fyrir vélbátaútveginn,
sem fellst í bréfi sjávarútvegs-
málaráðuneytisins dags. 30. des.
1957, að því tilskyldu að fjárhags
afkoma vélbátaútvegsins verði
ekki rýrð með nýjum álögum af
hálfu ríkisvaldsins á árinu 1958
frá þvi sem fellst í nefndu
bréfi“.“
Þessu skilyrði var ekki mót-
mælt af hæstv. ráðuneyti, enda
var sjávarútvegsmálaráðh. sam-
ur, koma í hús, pakka henni og
trúa L.Í.Ú. Á þessum forsendum
þykkur því í samtölum við full-
mæli sín til allra meðlima innan
L.Í.Ú. að hefja róðra strax upp úr
áramótunum.
Verður að telja, að þar sem
hæstv. ríkisstjórn neitaði ekki
kröfu L.Í.Ú. í þessu efni, hafi
hún þar með undirgengist, að
engar breytingar yrðu fram-
kvæmdar á árinu 1958 af hennar
Framh. á bls. 12.
áreiðanlega ekki reiknað með við
setningu laganna.
Það er einnig annað mjög alvar
legt, sem þessi lög hafa ýtt und-
ir. Einstaklingar, sem vinna sjálf
stæðir sams konar verk og skatt-
skyld eru hjá fyrirtækjum, sleppa
algjörlega við að innheimta skatt
inn.
Hefur þetta orðið til þess, að
slíkar ófullkomnar vinnustofur
hafa þotið upp í öllum iðngrein-
um, fagmennirnir tvístrast oft frá
þjóðnýtum störfum, en ríkið
missir af þessum illa séða skatti.
Sama þróun er stórlega farin að
gera vart við sig í verksmiðju-
iðnaðinum.
í byrjun árs 1957 fóru fram
viðræður við fjármálaráðuneytið
um þetta mál, án þess að þær
leiddu til niðurstöðu og nú hefir
iðnaðarmálaráðherra verið skrif-
að um málið. Að því bréfi standa
m.a. Vinnuveitendasamband ís-
lands, Vinnumálasamband S.Í.S.,
Landssamband iðnaðarmanna,
svo og ýmis sérgreinafélög innan
iðnaðar.
Framkomin tillaga er alminnsta
bót, sem hægt er að bera fram
til leiðréttingar á þessu misræmi,
og eins og nú er komið, má reikna
með, að þessi tillaga feli ekki í
sér nema tiltölulega smávægi-
lega skerðingu á tekjum ríkis-
sjóðs, þar sem landsmenn hafa
með fyrrnefndum hæstarétlar-
dómi endanlega vaknað, ekki að-
eins til umhugsunar, heldur emn
ig til varnar þessu herfilega mis-
rétti — og hver greiðir 9% meira
en hann þarf samkvæmt lögum?
Eg skal sleppa því nú að ræða
um söluskattinn almennt á ann-
arri þjónustu eða framleiðslu.
Hann er allur óréttmætur, þótt
hér keyri um þverbak. Ég þyk-
ist vita, að fjármálaráðherra telji
sér ekki fært að mæla algjörlega
með afnámi hans nú, enda þótt
ég treysti því, að hann og aðrir
hv. alþingismenn veiti þessari til-
lögu liðsinni.
Ræða Sveins Guðmundssonar á Alþingi:
Óréttmœt gjaldheimta ríkissjóðs af
efnivöru og þjónustu iðnaðarins