Morgunblaðið - 29.05.1958, Page 13
Fimmtudagur 29. maí 1958
MORC IJ1\RL4Ð1Ð
13
tlelgileikurinn verði
fluftur í höfuðstaðnum
FYRIR HÖND allra þeira sem
ekki urðu aðnjótandi hátíðastund-
ar í Bessastaðakirkju, sl. sunnu-
dag, er helgileikur séra Jakobs
Jónssonar, „Bartimeus blindi“,
var þar fluttur, vil ég leyfa mér
að bera fram þá einlægu ósk, að
hann verði éndursýndur, áður en
Of langt líður, í höfuðstaSnum.
Svo vel vill til, að hér hefur
risið af grunni kirkja, sem er
hin ákjósanlegasta til flutnings
slíkra helgileika, á ég þar við
Neskirkju.
Þó ég hafi ekki átt þess kost að
sjá leikinn, þekki ég handritið, og
veit að það felur í sér möguleika
til áhrifaríkrar helgistundar,
bæði frá listrænu og trúarlegu
sjónarmiði, og fátt veit ég meira
aðkallandi fyrir sálir okkar, en
einmitt það.
Hér hefur kirkjan öðlazt stór-
kostlega möguleika á að ná til
fólks sem árum saman, og alla
ævi, hefur saknað fegurSar í
lútherskum guðsþjónustum, fólks
sem þráir, í hljóðleik, að lyfta
hug til hæða, í helgidómi kirkj-
unnar.
Erlendis er venjan sú, að með-
limir kirkjulegra leikfélaga annist
flutning helgileika sem þessa, og
hefur fólkið þá fengið tilsögn í
leiklist og framsögn, en hér á
landi eru slík félög ekki til, og
var því leitað til starfandi leik-
ara, sem að sögn merkra manna,
fóru mjög fallega, Iátlaust og ein-
læglega með athöfnina, enda er
það beinlínis jkilyrði, ella hverfur
einfaldleikinn, sem er meginatriði
listformsins, en leikarar eru, svo
sem alkunna er, í öllum löndum,
mjög religiös stétt manna.
Eg vil svo að lokum, endurtaka
ósk mína, öllum til handa, að
helgileikurinn verði fluttur í höf-
uðstaðnum — og það sem allra
fyrst.
Steingertiur Guðmundsdótlir.
Sauðburður gengur
vel eftir atvikum
SAUÐÁRKRÓKI, 27. maí. —
Indælisveður var ner í- gær og
má segja, að jörðin hafi byrjað
að grænka, um leið og veðrið
batnaði. Mun kaldara er í dag,
norð-austan nepja.
Sauðburður er kominn nokkuð
langt. Hefir hann gengið vel eitir
atvikum, en miklir erfiðleikar
eru því samfara að hafa verður
fé í húsi. Hefir því mikið gengið
upp af heyjum. Set.ja menn nú
allt traust sitt á það. að veðráttan
fari batnandi innan skamms. þar
sem vænta má mikilla vandræða,
ef svo heldur fram sem horfir.
Matsveina- og
veitingaþfónaskólinn
Sýning verður á prófborðum.
framreiðslunema og köldum réttum matreiðslunema
í húsakynnum skólans í Sjómannaskólanum kl. 3—4
i dag.
SKÓLASTJÓRI.
IJthlutunarskrifstofa
Reykjavíkur
Hér með er vakin athygli almennings á því að skrif-
stofan er flutt úr Austurstræti 10 í Hafnarstræti 20.
(Hótel Heklu). Fer afhending skömmtunarseðla
fram á venjulegum skrifstofutíma (gengið inn frá
Hafnarstræti)
tJthlutunarskrifstofa Reykjavíkur.
ALLT A SAMA STAÐ
Af hverju að vera í vafa? — Það er óþarfi, ef „Dagbók bílsins“ eða KIENZLE TACHOGRAPH er í bifreiðinni.
Sýnir nákvæmlega, hve hratt hefir verið ekið hverja stund dagsins, hve iengi heíir verið numið staðar. Sýnir einnig vegalengdina sem ekin
hefir verið og á hve löngum tíma. Sýnir ef vagninn hefir verið skilinn eftir I gangi og margt fleira, t.d. kviknar rautt ljós ef of hratt er ekið.
Kienzle Tachograph ökuritinn er þegar í notkun hjá Sth*ætisvögnum Reykjavíkur. Olíu-
félögunum, Vegamálastjóra, Mjólkursamsölunni, Smjörlíkisgerðunum, Eimskipafélagi ís
lands, Lögresrlunni og fleiri stcirum fyrirtæk ium, er vilja fylgjast með bílstjórum sínum.
ATVINNUREKENDUR: Þetta er tækið sem e»r bæði yður og bifreiðastjóranum í hag.
í nýju umferðarlögunum segir, að í fólksbifreiðum, sem flytja mega yfir 30
t'arþega, skal vera ökuriti, er sýni farna vegalengd og hraða bifreiðarinnar
á hverjum tíma.
Ástæðan fyrir því að hann er á
móti, verður greinileg eftir að litið
hefir verið á hans helming af
Tahcograph skífunni.
Ástæðuna fyrir því að hann er
með er auðvelt að skilja ef at-
huguð er skua hans.
Hann keyrði eins
og hann ætti lífið
að leysa. Það hlaut
að enda með skelf
ingu. Enda sýnir
skífan hvað gerðist.
Klukkutíma töf.
Það er ekkert, á
móti því að taka sér
hvíld, en allt hefur
sína stund og stað
og ófyrirgefanlegt
er að skilja vé'lina
eftir í gangi.
Eins og bandóður
maður steig hann
benzínið í botn, þá
hemlana og síðan
afturáfullaferð. Ár
angur: Eyðilegging
vélar og hjólbarða
Skífan hans sýnir
það einnig.
Jáfnt og vel keyrlr
hann, enda sannar
skífa hans það.
Hann eyddi ekkl 6-
þarfa tíma í hleðshl
eða afhleðslu.
I
Að dagsverki loknu
skilaði hann skíf-
• unni. Hann fékk
auðvitað hrós fyrir
ágæt vinnubrögð.
H.F. EGILL VILHJÁLMSSON, Laugaveg 118, Sími 2-22-40