Morgunblaðið - 05.07.1958, Blaðsíða 1
Viðbrögðin v/ð skýrslu S. Þ.
mjög misjöfn
Talið sennilegt oð Libanonsstjórn
fallist á málamiblun
Þessi mynd er tekin af anddyri danska sendiráðsins í Moskvu
og sýnir ljóslega, að Danir njóta ekki sömu hyili í Sovét-
ríkjunum og fslendingar.
Tító ögrar öðrum
kommunistaleiðtogum
Torkennilegir kafhátar fylgdu Nasser
BEIRUT og KAIRÓ, 4. júlí. —
Stjórnin í Líbanon ákvað í dag
að vísa úr landi sjö starfsmönn-
um við sendiráð Arabíska sam-
bandslýðveldisins í Beirut. Verða
þeir að vera komnir úr landi um
hádegi á morgun. Þeir eru allir
sakaðir um „ósæmilega starf-
semi“. Er sú starfsemi m.a. í því
falin, að þeir hafi átt samstarf
við uppreisnaröflin í landinu.
Efni skýrsiunnar frá eftirlits-
mönnum Sameinuðu þjóðanna,
þar sem m.a. er komizt að þeirri
niðurstöðu, að hingað til hafi ekki
verið hægt að sýna fram á vopn-
aða utan að komandi íhlutun í
bardagana í Líbanon, hefur vakið
mikla gremju meðal forystumanna
í Beirut. Er því haldið fram þar,
að eftirlitsmennirnir hafi ekki
valdið verkefni sínu.
Sumir tala jafnvel um, að nú
verði að kveðja saman öryggis-
ráðið og senda herstyrk til að
loka landamærunum við Sýrland.
Hins vegar hefur skýrslan vakið
mikla ánægju í Kaíró, þar sem
blöðin segja frá ummælum
Hammarskjölds við fréttamenn í
gær með feitletruðum fyrirsögn-
um. Hammarskjöld endurtók að
mestu niðurstöður skýrslu eftir-
litsmannanna.
Hammarskjöld kennt um
Stjórnin í Líbanon átti lang-
an fund í dag, þar sem m.a. var
um það rætt, hvaða skref bæri að
taka næst. Hún var í stöðugu sam
bandi við Charles Malik utanrik-
isráðherra, sem er staddur í New
York. Eftir fundinn í dag sagði
landbúnaðarráðherrann að svar
stjórnarinnar við ummælum
Hammarskjölds og skýrslu eftir-
litsmannanna yrði birt í kvöld
eða í fyrramálið. Sagði hann að
eftirlitsmennirnir væru undir
KAÍRÓ, 4. júlí. — Egypzk blöð
birtu í fyrsta sinn í dag fordæm-
ingu á aftöku Nagy og félaga
hans, en þær voru kunngerðar
fyrir 17 dögum. Mohammed Auda
skrifaði grein í vikublaðið „Saba
Elkheir" og sagði m.a.: „Einu
sinni fordæmdum við aftöku
Rosenberg-hjónanna, og nú for-
dæmum við aftöku Nagys. Önnur
aftakan átti rætur að rekja til
maccarthyismans, og það er ekki
til sá hægrimaður eða vinstri-
maður, sem er ekki hneykslaður
á dauðadómi og aftöku Nagys.
Setjum svo að Nagy hafi verð-
NEW YORK, 4. júlí. — Paul
Bang-Jensen, hinum danska
starfsmanni Sameinuðu þjóð-
anna, sem vikið var frá störfum
um stundarsakir, var endanlega
sagt upp starfi sínu í gær. Bang-
Jensen skýrir svo frá, að hann
hafi féngið bréf frá Dag Hamm-
arskjöld framkvæmdastjóra í
gær, þar sem honum var tilkynnt,
að hann yrði látinn hætta störf-
beinum áhrifum frá Hammar-
skjöld og hefðu samið skýrslu,
sem væri full af mótsögnum.
Formælendur stjórnarinnar
endurtóku yfirlýsinguna frá í gær
þess efnis, að yfir -landamærin
frá Sýrlandi hefðu komið a. m. k.
3000 manns, og að um 36.000 létt
og þung vopn hefðu verið send
PEKING, 4. júlí. — Ferðamenn,
sem komu til Peking frá Shang-
hai, sögðu að á síðustu vikum
hefðu hundruð manna horfið þar
í borg. Stendur þetta i sambandi
við umfangsmikla „hreinsun"
sem átt hefur sér stað síðan Pek-
ing-stjórnin auglýsti að tekin
yrði upp barátta fyrir „leiðrétt-
ingum“, til að losna við „ill öfl“
innan flokksins og embættis-
mannastéttarinnar. Er þetta gert
til að tryggja valdhafana í sessi.
Hvatti stjórnin borgarana til að
skýra stjórnarvöldunum frá grun
semdum sínum eða vitneskju um
yfirmenn, vini eða ættingja.
Á síðustu sex mánuðum hafa
ennfremur verið handteknir 20
kínverskir starfsmenn erlendra
sendiráða í Peking. Er þetta lið-
ur í viðleitni stjórnarinnar til að
efla eftirlit með þeim
mönnum sem hafa samskipti við
vestræna aðila.
Kínverska utanríkisráðuneytið
neitaði að láta uppi ástæðurnar
fyrir handtöku þriggja kín-
verskra starfsmanna hjá brezka
sendiráðinu í síðustu viku. Tveir
aðrir starfsmenn brezká sendi-
ráðsins voru handteknir fyrr á
árinu. Allar tilraunir til að kom-
skuldað líflát fyrir landráð.
Hvers vegna voru þá ekki hald-
in opinber réttarhöld í máli hans,
þannig að heimsblöðin gætu sent
fréttamenn þangað og afsannað
þær lognu sakir sem bornar voru
á Nagy-stjórnina?“.
Auda benti á, að ekki væri
hægt að afsaka aftökuna sem
„mistök byltingarinnar". Hún
væri „hreinn glæpur“.
Þessi grein birtist um svipað
leyti og Nasser fór í heimsókn
til Títós forseta Júgóslavíu. Ekk-
ert egypzkt dagblað hefur birt
ritstjórnargrein vegna aftöku
Nagys.
um þegar í stað.
Bang-Jensen hafði verið vikið
frá starfi sínu um stundarsakir
fyrir nokkrum mánuðum, þegar
hann neitaði að láta af hendi
lista með nöfnum þeirra ung-
versku flóttamanna, sem báru
vitni fyrir Ungverjalandsnefnd
S.Þ. Bang-Jensen var ritari nefnd
arinnar. Síðan var listinn brennd-
ur á þaki Aðalstöðva S.Þ.-
uppreisnarmönnum frá Sýrlandi
ásamt efnahagslegri aðstoð.
Uppreisnarmenn ánægðir
Uppreisnarmenn eru greinilega
ánægðir með skýrslu eftirlits-
mannanna. Hefur það m.a. komið
fram í breyttri framkomu gagn-
vart eftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna. Þeim var í fyrstu tekið
mjög fálega, en nú bera ólögleg
blöð uppreisnarmanna mikið lof
á þá.
Ráðstefna Bagdad-ríkjanna
Það var tilkynnt í Istambul í
dag, að leiðtogar ríkjanna fjög-
Framh. á bls. 2
ast fyrir örlög þessara manna
hafa verið árangurslausar.
Eftirlit með sendimönnum.
Þá hefur stjórnin hert mjög á
eftirliti með ferðum erlendra
starfsmanna sendisveita í Peking,
og eru þeim settar ýmiss konar
takmarkanir. Þessir starfsmenn
eru um 500 talsins. Á þriðjudag-
inn var ákveðið að þeir mættu
ekki fara nema 20 kílómetra út
fyrir borgina, en áður var þeim
leyft að fara 50 kílómetra. Þó
er þeim enn leyft að fara til kín-
verska múrsins og grafhýsa
Ming-keisaranna, sem eru um
70 km. frá Peking.
Ólga meðal bænda.
Margir setja þessar nýju var-
úðarráðstafnar stjórnarinnar í
sambandi við ólguna, sem nú rík.
ir meðal kínverksra bænda, en
þeir hafa verið neyddir til að
selja stjórninni allt korn sitt.
Kínversk blöð skýrðu frá því í
maí, að um 300 Múhameðstrúar-
menn hefðu gert uppsteit og
hrennt hús og kornhlöður í þorpi
einu nálægt Peking.
Þannig er álitið. að hinum nýju
ráðstöfunum sé ekki fyrst og
fremst stefnt gegn erl. starfs-
mönnum sendiráða, heldur miði
þær að því að herða á eftirlit-
inu með kínverskum borgurum.
Meðal Kínverjanna, sem unnu
hjá erlendum sendiráðum og
voru handteknir, voru menn sem
höfðu lengj haft samskipti við
vestræna menn, og voru þeir því
ekki vel til þess fallnir að fá
„nýtt uppeldi“ kommúnistaflokks
ins.
PARÍS, 4. júlí. — Dulles utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna kom
til Parísar í dag til viðræðna við
de Gaulle forsætisráðherra
Frakka. Munu þeir hefja viðræð-
ur sínar á morgun. Ennfremur
mun Dulles eiga fund við Mur-
ville utanríkisráðherra Frakka.
Hann lýkur opinberri heimsókn
sinni á miðnætti á morgun.
Áður en Dulles fór frá Was-
hington í gærkvöldi sagði hann,
að hann mundi ekki ræða Alsir-
málið við franska leiðtoga, en
gaf í skyn að kjarnorkumálin
mundu tekin til umræðu ásamt
ýmsum alþjóðlegum vandamál-
um.
Þegar Dulles kom til Parísar
kv.aðst hann sannfærður um, að
viðræðurnar mundu verða opin-
skáar og gagnlegar. Hann bar de
Gaulle persónulegar kveðjur frá
TJENTISTE, 4. júlí. — Tító for-
seti Júgóslavíu hélt ræðu í dag í
þorpinu Tjentiste og ráðlagði þá
leiðtogum annarra kommúnista-
ríkja að hætta árásum sínum á
Júgóslava, því þeir yrðu ekki
brotnir á bak aftur. Ræðan var
haldin í tilefni af 15 ára afmæli
orrustunnar við Sutjeska, þar
sem skæruliðar Títós og þýzki
herinn áttust við.
Eisenhower forseta og lýsti yfir
þeirri sannfæringu sinni, að vin-
áttubönd Frakka og Bandaríkja-
manna mundu enn styrkjast við
þessa heimsókn. Murville utan-
ríkisráðherra tók á móti Dulles
á Orly-flugvellinum, en þeir
munu ræðast við eftir hádegi á
morgun, þegar Dulles hefur lokið
viðræðum við de Gaulle.
Neyddu skipstjórann
tit að sigla í land
RÖNNE, 4. júlí. — í dag kom
til Rönne á Borgundarhólmi
pólskur togari og lagðist þar að
bryggju. Höfðu þrír menn af
áhöfninni neytt skipstjórann til
að sigla til lands. Báðust þeir allir
hælis sem pólitískir flóttamenn
af dönskum stjórnarvöldum.
í för með Tító var Nasser for-
seti Arabíska sambandslýðveldis-
ins, en hann er í tveggja vikna
hálfopinberri heimsókn í Júgó-
slavíu.
Forsetanum var vel fagnað
þegar þeir fóru um vigvöllinn,
en þar féllu um 8000 af þeim
20.000 skæruliðum sem Þjóðverj-
ar höfðu umkringt, áður en þeim
tókst að rjúfa hringinn, sem
þýzki herinn hafði slegið um þá.
Vill stuðning Nassers.
Tító nefndi ekki neitt ríki með
nafni, en sagði að margir erlend-
ir leiðtogar skildu Júgóslava
ekki. „En ég get sagt öllum, sem
líta til okkar með tortryggni eða
fölskum efasemdum, að Júgó-
slavía er sósíalistaríki, og við
munum byggja upp sósíalismann.
Ekkert, engin hindrun, getur
leitt okkur af þeirri braut“, sagði
hann.
Sagt er, að Tító sé mjög liug-
leikið að fá siðferðislegan styrk
hjá Nasser, ekki sízt vegna þess
að Nasser var í opinberri heim-
sókn i Moskvu fyrir rúmum mán.
uði.
Viðstaddir hátíðahöldin voru
allir leiðtogar júgósiavneska
kommúnistaflokksins og um 50
þúsund fyrrve'randi skæruliðar.
Var ræðu forsetans ákaft. fagnað.
Ókunnir kafbátar.
Blað eitt í Kaíró skýrði frá því
Framh. á bls. 2
Aftaka Nagys nú fyrst
fordœmd í Egyptalandi
Bang-Jensen rekinn
Miklar hreinsanir í Kína
Ferðalög erlendra sendimanna takmörkuð
Dulles rœðir við de Caulle