Morgunblaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 8
£ MORC.risnr 4nif) ytfctndagur 11. júlí 1958 I Dtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjami Benediktsson. _átstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglysmgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. VERÐHÆKKANIRNAR BITNA Á ÖLLUM AKAFAR deilur hafa nú risið upp milli Þjóðvilj- ans annars vegar og Al- þýðublaðsins hins vegar út af farmannaverkfallinu. í forystu- grein, sem birt var í Þjóðviljan- um á miðvikudag, er deilt harð- lega á Sjómannafélag Reykjavík- ur fyrir að stofna til verkfalls á skipunum og er það fært fram, að farmenn hafi sízt af öllu á- stæðu til að kvarta, miðað við aðrar stéttir og sé þess vegna ekki ástæða sérstaklega fyrir þá að leggja út í verkfall. í fram- haldi af árásinni á sjálft Sjóm.- félagið, er svo ráðizt harkalega að Alþýðuflokknum fyrir ábyrgð- arleysi- og beinlínis gefið í skyn að það sé sjálf flokksstjórn Al- þýðuflokksins, sem beri hina raunverulegu ábyrgð á því, að farmannaverkfallið hafi skoll- ið á. í forystugrein í gær svarar svo Alþýðublaðið ádeilu Þjóðviljans. Heldur Alþýðublaðið því fram, að farmenn eigi heimtingu á að þeim verði „bætt kjaraskerðing- in samkvæmt efnahagsráðstöfun- um ríkisstjórnarinnar og stuðn- ingsflokka hennar“. ★ Þessi deila Alþýðublaðsins og Þjóðviljans talar vitaskuld sínu máli um ástandið á stjórnarheim- ilinu og þarf ekki um það að fjölyrða. En það er ein staðhæf- ing í forystugrein Alþýðublaðs- ins í gær, sem rétt er að víkja stuttlega að. Alþýðublaðið seg- ir, að það sé „staðreynd, að far- menn, einir allra stétta, búa við lakari kjör eftir efnahagsráðstaf- anirnar, sem síðasta Alþingi af- greiddi“. Þessi staðhæfing Al- þýðublaðsins er vitaskuld alröng. Allar stéttir munu telja sig búa við lakari kjör eftir efnahags- ráðstafanirnar en fyrir. Allir finna til þeirra miklu verðhækk- ana, sem dunið hafa yfir, en þó eiga þær auðvitað eftir að koma miklu betur í'ljós en nú er orð- ið. Það er einnig v’iðurkennt, af stjórnarflokkunum sjálfum, að með bjargráðunum hafi verið framkvæmd mikil gengislækkun, en hún bitnað að sjálfsögðu á öllum almenningi og kemur ekki sízt fram í stórhækkuðu verðlagi á vörum og alls konar þjónustu. Þetta er svo augljós staðreynd, að um hana þarf ekki að deila. Það er því mjög furðulegt, þegar Alþýðublaðið heldur því fram, að farmenn, einir allra stétta, búi við lakari kjör eftir efnahags- ráðstafanirnar, sem Alþingi af- greiddi. Það mun vafalaust vera rétt, sem farmenn halda fram, að kjör þeirra eru lakari nú en fyrir setningu þessara laga, en áður var. En það er staðreynd, sem aldrei er unnt að komast fram hjá, að mikil skerðing kjara hefur átt sér stað hjá öllum al- menningi, hvað snertir hinar al- mennu hækkanir og vaxandi verðbólgu, sem „bjargráðin" hafa leitt af sér. SKATTLAGNING Á ALMENNING OG ATVINNUVEGINA? t AbrÐUSTU árum hefur verzlun íslendinga lagzt í vaxandi mæli til land- anna austan við járntjald. Mikið hefur verið rætt um nauðsyn þessara viðskipta og orsakirnar til þess, að við séum í vaxandi mæli knúðir til þess að selja vörur til þessara landa og kaupa frá þeim vörur aftur á grund- velli jafnvirðiskaupa, eins og tíðkazt hefur. Á þessu máli eru margar hliðar og er ekki unnt að fara langt út í það mál hér. En á eitt atriði í þessu sambandi skal þó drepið. Neytendur al- mennt líta svo á að margar af þeim vörum, sem við kaupum frá Austurþjóðunum séu mun lakari að endingu heldur en sams konar vörur, sem fengist hafa frá hinum gömlu viðskiptalönd- um okkar í Evrópu, svo sem Englandi, Þýzkalandi og Norður- löndum. Á ýmsum vörutegund- um er talinn mikill munur, hvað þær eru lakari austan frá, held- ur en frá hinum gömlu við- skmt-»bióðum okkar í vestri. — ir hafa sárlega kvartað jum þessum vörum og t jérstaklega tekið fram, hvo^a ending margra þeirra sé lítil á móts við vörurnar vestan frá. Þetta mál mun aldrei hafa verið rannsakað að nokkru ráði, en vafalaust mun það rétt, að margar algengar vörutegundir austan frá eru mun lakari en þær, sem fengizt hafa frá gömlu viðskiptaþjóðunum í vestri og al- menningur hér var orðinn vanur að nota. En í þessu sambandi rís þá sú spurning, hvort með þess- um austurviðskiptum sé ekki lagður mjög mikill skattur á ís- lenzka neytendur. Og um leið rís sú spurning, hvort þessi viðskipti séu þá svo þjóðhagslega hagstæð, eins og sumir vilja vera láta. Er þá rétt að benda á, að það eru sízt af öllu eingöngu almennar notavörur almennings, sem keypt ar eru frá löndunum í austri, heldur er einnig um að ræða mjög mikið af þýðingarmiklum vörum fyrir atvinnuvegi landsins. Því er sízt af öllu að leyna, að mjög hefur einnig verið kvartað út af því, að ending sumra þess- ara vara væri lítil og miklu minni en samsvarandi vara frá hinum gömlu viðskiptalöndum í vestri. Það er engin ástæða til að draga fjöður yfir það sem bent hefur verið á hér að ofan, um að kvartað er út af gæðum ýmsra vörutegunda frá austursvæðinu. En mál þetta er þess eðlis, að það þyrfti að rannsaka gaum- gæfilega. Gera þyrfti samanburð á verði og endingu vara frá aust- ursvæðinu annars vegar og Vest- urlöndum hins vegar. Þegar sú athugun hefði farið fram, mundi fást yfirlit um það, að hve miklu leyti þessi viðskipti gætu talizt okkur hagkvæm og hvort í ein- stökum tilvikum kann að vera um að ræða að atvinnuvegirnir og allur almenningur sé þung- lega skattaður vegna viðskipt- anna austur á við. UTAN UR HEÍMI Rainier og RAINIER fursti í Monaeo og kona hans, Grace, hafa ákveðið • að auka herafla furstadæmisins börnum sínum til verndar. — Furstahjónin óttast mjög, að æv- intýramenn freistist til að ræna börnum þeirra og heimta lausn- argjald — og þegar hafa þau fengið allmörg nafnlaus bréf frá óhamingjusömum fjárhættuspil- urum í spilavítinu í Monte Carlo, þar sem þeir hafa hótað að ræna börnunum eg láta furstann á þann hátt gfeiða sér álitlegar fúlgur í sárabætur. ★ Núverandi herafli furstadæmis ins er 200 manns, sem einnig gegna starfi brunaliðsmanna við höllina. Þetta er tignarlegur flokkur, sem við hátíðleg tæki- færi klæðist einkennisbúningum frá dögum Napoleons. ★ Rainier hefur nú ritað borgar- stjóranum í Valenciennes, í nánd við belgisku landamærin, og beð- ið hann að senda sér liðsafla. — Biður hann um flokk Ijóshærðra manna, ekki eldri en 28 ára, sem eru a. m. k. sex feta háir — og Grace öttast barnarán Riinier ætlar að efla lífvörðinn börnum sínum til verndar. hafa gegnt herþjónustu í Frakk- landi. Furstinn í Monaco leitar lifvarða sinna til Frakklands samkvæmt hliðstæðum venjum Páfagarðs, að leita lífvarða í Sviss. Prinsessur í hjóna- bands hugleiðingum STÖÐUGT er rætt um ástir kóngafólksins — í gær voru það Margrét og Townsend, í dag Ir- anskeisari og Soraya og á morg- un Margrét Svíaprinsessa og Douglas Home. Margar kvaðir og margir ókostir fylgja frægðinni og tigninni og ásta- og einkamál konungborinna eru ekki látin í friði frekar en um væri að ræða kvikmyndaleikara, sem elskast oftar — giftast og skilja oftar en nokkrir aðrir. Og nú hafa heimsblöðin enn einu sinni gætt sér á nýjum kon- unglegum ástum. Þar er um að ræða Désirée, „litlu systur“ Mar- grétar Svíaprinsessu og Simeon, fyrrum konung í Búlgaríu. í Sviþjóð er þess almennt vænzt, að þær Margrét og Désirée opinberi trúlofun sína samtímis — og sú stund sé ekki langt undan. Simeon er 22 ára og missti ríki sitt, þegar komm- únistar brutust til valda í Búlgaríu. Hann hefur að undan- förnu dvalizt í Svíþjóð í annað sinn — og verið langdvölum með Désirée. Simeon er góðvinur Bertil Bernadotte greifa, sonar Bernadotte, sem myrtur var í Palestínu árið 1948. Talið er, að Margrét Désirée hafi kynnzt Simeon fyrir milligöngu Bertils. Simeon hefur „Krusjeff gaar atter lös paa spritten", stóð undir þessari mynd í dönsku blaði. Eins og kunnugt er flutti Krúsjeff mikla bindindisræðu á dögunum og varaði menn við vodka, en sjálf- 1 ur er hann kunnur fyrir að hafa dálæti á þeirri veig. annars verið búsettur á Spáni —. og dvalizt þar með móður sinni. Sænsku stórblöðin hafa sína út- sendara á hnotskógi eftir fregn- um af Douglas Home í London, en nú hafa þeir tapað slóðinni — og fullyrða blöðin, að Home sé ekki lengur í Englandi. Full- yrða þau og, að hann ætli að hitta Margréti í Danmörku ein- hvern næstu daga — og búast þá fastlega við að til tíðinda dragi. Þá má bæta hér við, að Mar- grét á enn tvær systur, Birgittu, sem er 21 árs og ekki hefur enn gefið neitt tilefni til að ætla, að trúlofun hennar sé skammt und- an — og Kristínu, sem er 14 ára. Tvö bréf í viðbót LUNDÚNUM, 9. júlí. — Starfs. maður í rússneska sendiráðinu hér kom í dag með tvö bréf í viðbót, sem hann sagði að hefðu verið send til sendiráðsins. í báð- um þessum bréfum segjast bréf- ritarar munu verða í flugvélinni sem varpar kjarnorkusprengju yfir Ermarsundi í þessum mán- uði. Þeir segjast vera bandarískir flugmenn, eins og bréfritari fyrsta bréfsins, sem sent var fyrir nokkru, eins og skýrt hefur verið frá í fréttum. Bandaríska stjórn- in segir, að bréf þessi séu ekki rituð af bandarískum flugmönn- um. Hér séu brögð í tafli. Lacfone — nýff lyfl LUNDÚNUM, 9. júlí. — Prófessor Milton Friedman við New York University College of Medicine sagði hér í borg í dag, að nýtt efni, Lactone — eins konar sykur efni — hefði gefið góða raun, þegar það hefði verið reynt við krabbameini í blöðru. Prófessor- inn sagði, að lyfið hefði raunar verið svo áhrifamikið. að hann mælti með því, strax og það kærai á markað. ★ WVASINGTON, 7 júlí NTB, — Reuter. — í dag undirritaði Eisenhower Bandaríkjaforseti lögin, er veita Alaska sömu rétt- indi og öðrum fylkjum í ríkja- sambandinu. Alaska verður form lega 49. fylkið, eftir að fylkisþing þess hefir samþykkt lögin, en það verður sennilega í haust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.