Morgunblaðið - 27.07.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.07.1958, Blaðsíða 3
Sunnudagur 27. júlí 1958 woRr.T’ivnT 4nu 3 Spjallað v/ð Agnar Kl. Jónsson sendiherra: Sr. Jónas Gíslason: Ég get ekki séð, að Frakkar hafi mikilla fiskveiðihagsmuna að gæta hér við iand AGNAR Kl. Jónsson, sendiherra íslands í París hefur dvalizt hér á landi um 6 vikna skeið ásamt fjölskyldu sinni. — Ég hafði ekki komið heim í 5 ár, svo að tímí var til þess kominn, að við eyddum sumar- leyfinu hér og hittum ættingja og vini, sagði sendiherrann, þeg- ar tíðindamaður Mbl. hitti hann fyrir helgina. Það er mjög gagn- legt fyrir okkur, sem störfum í utanríkisþjónustunni, að koma heim við og við. Hjá okkur eru allir starfshættir enn í bernsku, svo að um þetta hafa ekki mynd- ast fastar venjur, en ýmis ríki ætlast til þess, að starfsmenn þeirra í öðrum löndum komi heim á nokkurra ára fresti og styrkja þá til þess. — Hvað er langt síðan þér fór- uð til starfa erlendis? — Ég fór til London fyrir 7 lA> ári. Þar var ég í hálft sjötta ár, en nú eru rétt 2 ár, síðan ég flutt ist til Parísar. Ég afhenti trún- aðarbréfið 26. júlí, sarna dag og Nasser kastaði öxinni á Súez- skurðinn. — Það hafa verið viðbrigði að fara frá Bretum yfir til Frakk- anna. — Frakkar eru gjöróiíkir Bret- um, einkennilega ólíkir, þegar þess er gætt, að hér er um ná- granna að ræða. — Frakkarnir tala meira . .. — Já, sumum finnst þeir vera dálítið gefnir fyrir málalenging- ar, segir sendiherrann og brosir, en þeir eru þægilegir í umgengni og fágaðir. — Þér eruð sendiherra í mörg- um ríkjum. — Auk Frakklands, í Portúgal, Spáni, ftalíu og Belgíu. Nauðsyn legt er að fara til þessara landa við og við. Viðskipti okkar við Portúgala eru nokkur, en opin- ber afskipti af þeim lítil. Hins vegar höfum við viðskiptasamn- ing við Spán, sem gerður er til 1 árs í hvert sinn. Verzlunin við Spán hafa dregist nokkuð saman að undanförnu, en það er von mín, að marltaðirnir í þessu gamla viðskiptalandi okkar glat- ist ekki alveg, en viðskipti inegi þvert á móti aukast aftur. Við höfum einnig nokkur skipti við ítali, en minni við Belgi. Margt má kaupa í landi þeirra, en þar er ekki markaður fyrir íslenzkan fisk. — í Belgíu eru miklir uppgangs tímar um þessar mundir. — Já, Belgíumenn hafa verið fljótir að ná sér u$p eftir styrj- öldina og virðast vera orðnir vel stæðir. Hin mikla heimssýning, sem þar stendur nú yfir, er giæsi legur vottur um dugnað þjóðar- innar. — Hafa íslendingar látið á sér bera í Frakklandi nýlega? — íslendingar áttu hlut að nor rænni málverkasýningu, sem haldin var í París fyrir skcmmu. Þótti það dágóð sýning, og fékk lofsamlega dóma. Yfir henni var nýtízkulegur blær og vakti það athygli, líkt svipmót var yfir deildum allra Norðurlandanna. Tvær ungar listakonur. Gerður Helgadóttir, og Valgerður Árna- dóttir Hafstað, efndu til sýningar á verkum sinum í Paris í vor. Það þótti nokkuð djarflega gert, en sýningin var snotur, tókst vel og fékk góða dóma. — Nú er ætlunin að efna til norrænnar list- og heimilisiðnaðarsýningar í nóvember, og er undirbúningur að þátttöku hafinn hér á landi. Líklegt er, að sýning þessi muni vekja töluverða athygli, og er þess að vænta, að íslendingar geti tekið myndarlegan þátt í henni. Af vettvangi bókmenntanna er Agnar Kl. Jónsson. sendiherra í París. þess að geta, að Atómstöðin er nýkomin út á frönsku. — Er margt um íslendinga í Frakklandi um þessar mundir? — Ekki getur það talizt. í París er nú fátt um listamenn eða náms fólk, en nokkrir stúdentar hafa verið við nám í Grenoble og Montpellier. Þó eru nokkrar ís- lenzkar fjölskyldur í París. — Frakkar hafa nýlega sent hingað mótmæli vegná stækkun- ar fiskveiðilögsögunnar. — Já, þótt mér hafi virzt Frakk ar vinsamlegir í okkar garð, hafa þeir nú sent okkur slík mótmæli. Þeir eiga að vísu nokkurn tog- araflota, en stunda aðallega veið ar við Nýfundnaland, en lítt eða ekki á íslandsmiðum. Get ég því ekki séð, að Frakkar hafi mikiila fiskveiðihagsmuna að gæta hér við land. — Það hefur verið róstusamt í frönskum stjórnmálum að und- anförnu. — Það má segja, að vandræða- ástand hafi ríkt í stjórnmálum á Frakklandi um skeið. Fram- kvæmdavaldið hefur verið svo veikt, að kjölfestu hefur skort í landsstjórnina. Reynt hefur ver- ið að fá þessu breytt, en án árang urs til þessa, en stjórnarskrár- breytingarnar, sem de Gaulle vinnur að, munu /afalaust miða að því að styrkja framkvæmda- valdið. Annars er Alsír-málið erfiðasti vandinn, sem Frakkar eiga við að stríða. Satt að segja virðist hann næstum óleysanleg- ur, en allir vinir Frakka vona, að leið finnist út úr ógöngunum, sagði sendiherraan að lokum. Sparifatakristindómur 8. sunnud. eftir tirinitatis. — Matt. 7, 15—23. FLESTALLIR menn eiga sín spariföt. Við þekkjum öll og vit- um, til hvers þau eru notuð. Á sunnudögum og stórhátíðum og einnig endranær, þegar við vilj- um gera okkur einhvern daga- mun, förum við í sparifötin. Við tökum okkur þá frí frá hvers- dagsstritinu, förum úr hversdags- flíkunum, vinnufötunum, og klæð umst beztu fötunum, sem við eig- um. Það gerir allt miklu hátíð- legra en ella. Sparifötin setja sinn svip á allt. Ragnar Stefánsson ofursti, María Sveinbjörnsdóttir kona hans og börn þeirra: Ragnar Daníel, Stefán Brandur, Sólveig og Jón Sveinbjörn. Myndin var tekin í Hafnarfirði í fyrradag, skömmu áður en þau fóru af landi brott. (Ljósm.: vig.) Ragnar Stefánsson lœtur af störfum á íslandi KAGNAR STEFÁNSSON ofursti í Bandaríkjaher fór af landi brott í fyrrakvöld eftir um 2ja ára dvöl á íslandi. Ragnar er sem kunnugt er Seyð firðingur, sonur Jóns „Filippseyja kappa“ Stefánssonar og Sólveig- ar Jónsdóttur frú Múla. — Hann fór til Ameríku 10 ára, en hefur dvalizt hér langdvölum síðar, því að hann var. hér samfleytt árin 1942—1952. Hann kom aftur 1956 til starfa í upplýsingadeild varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Það kann að þykja dálítið und- arlegt í kristilegri hugleiðingu að minnast á spariföt, en mér | finnst guðspjall dagsins gefa ríkt tilefni til þess. Mér finnst svo oft, að of margir menn líti kristin- dóminn svipuðum augum og spari fötin sin. Á stórhátíðum og stund um jafnvel einnig á sunnudögum þykir þeim tilhlýðilegt og sjálf sagt að koma í Guðs hús, hlusta á Guðs orð eða lesa sjálfir í því. Þá hugsa margir um heilaga hluti. Og þetta er allt ágætt, svo langt sem það nær. En svo virðist oft eins og krist- I indómurinn vilji gleymast í I hversdagsönnunum, daglega strit inu. Þá er eins og að fullu gleymt það, sem á helgum degi var heyrt eða lesið um Guð og boðskap hans til okkar mannanna. Og oft nær sú gleymska fram að næsta helgum degi, þegar huganum á ný er beint til Guðs stutta stund. Er þá kristindómurinn ekki orðinn eins konar spariflík, sem tekin er fram á helgum dögum og menn fara þá í til hátíðabrigða, en leggja þess á milli til hliðar og hengja inn í skáp. Þar má hann bíða, þar til næst verður þörf á honum. Þá verður hann tekinn fram á ný. Þannig virðist þessu alltof oft farið í lífi okkar. En er þetta rétt? Er kristindómurinn gefinn okkur mönnunum til þess eins, að hann skuli vera okkur eins kon- ar viðhafnarbúningur eða spari- flík, sem við getum klæðzt endr- um og eins til hátíðabrigða? í guðspjalli dagsins svarar Jes- ús þessu skýrum orðum, er hann segir: „Ekki mun hver sá, er við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá, er gjörir vilja föður míns, sem er í himnunum". Það eitt nægir aldrei í kristi- legu tilliti að vera með nafn Guðs á vörunum, þegar okkur finnst það eiga við. Hver krist- inn maður hlýtur í öllu lífi sínu, ekki aðeins á sunnudögum og hátíðum, heldur alla daga jafnt að keppa eftir því að gjöra vilja Guðs, í öllu lífi sínu og starfi. Allt líf hans á að vera þjónusta við Guð. Annars væri trú hans dauð, aðeins fánýt varajátning, sem fengi að launum hið harða Nú hefur honúm verið falið starf í flutningadeild hersins í bækistöð í Greenville í Suður-Karólínuríki. „Við verðum oft að skipta um störf í hernum og læra nýja hluti“, sagði Ragnar við fréttamann frá Morgunblaðinu, sem hitti hann að máli í fyrradag. Ragnar kvaðst hafa haft ánægju af starfi sínu á Islandi. Undanfarnar vikur hefur hann verið í fríi og notaði þá tímann til að ferðast norður í land með fjölskyldu sinni. Kon hans er ís- lenzk, María Sveinbjörnsdóttir, og eiga þau hjós 4 börn. „Skilaðu kveðju til vina og kunningja með þakklæti fyrir samvistirnar", I sagði Ragnar Stefánsson að lok- svar Jesú: „Aldrei þekkti ég yð- ur“. Þess vegna getur kristindómur- inn aldrei verið okkur nein spari flík, aðems ætluð til hátíðanota. Sannur kristindómur er líf, líf í samfélagi við lifandi frelsara, iíf í Guði. Það er ekkert svið mann- legs lífs, sem Guð gerir ekki til- kall til hjá okkur. Hann krefur okkur til algerrar þjónustu við sig, ekki aðeins við og við. Ekkert er undanskilið. Þetta finnst okkur mönnunum oft harðir kostir. Við viljum ráða okkur til þjónustu við Guð að ainhverjum hluta lífs okkar. Okk- ur finnst miklu þægilegra að geta stundum átt frí frá þjónustunni við hann, þegar við eins og mætt- um „slappa af“. Okkur finnst kröfur Guðs oft vera svo þung- bærar og erfiðar. Mörgum fer því eins og sumum lærisveinum hans forðum, sem sögðu: Hörð er þessi ræða. Hver getur hlýtt á hana? Þá fóru margir þeirra frá hon- um og voru ekki framar með honum. Þess vegna hefur aldrei skort á það, að margir menn reyndu að lagfæra boðskap kristindóms- ins, gera hann aðgengilegri fyr- ir okkur mennina. Það eru fals- spámennirnir, sem Jesús varár við í upphafi guðspjallsins. Allt frá fyrstu kristni og til okkar daga hafa fjölmargir menn kom- ið fram með nýjar kenningar í nafni Jesú Krists. Þeir hafa reynt að deyfa sárustu broddana í boð- skap hans, dregið úr erfiðustu kröfunum og á ýmsan hátt reynt að gera kristindóminn þægilegri fyrir okkur mennina. Þær skortir ekki í samtíð okk- ar, raddirnar, sem segja, að margt í kenningu Guðs orðs sé orðið úrelt og samrýmist ekki þekk- ingu og viti hins upplýsta nú- tímamanns. Því verði að endur- skoða kristindóminn og færa hann til samræmis við nýjustu þekkingu og vísindi mannanna. Slíkar raddir hafa heyrzt á öll- um öldum, allt frá holdsvistar- dögum Jesú sjálfs. Og þessar nýju kenningar mannanna, þessi nýi kristindóm- ur, hefur að ýmsu leyti verið að- gengilegri og þægilegri fyrir okkur mennina heldur en sá boð- skapur, sem Biblian flytur okkur eftir Jesú Kristi. Og höfundar hans hafa oft verið harla ánægðir með verk sín. En eitt hefur gleymzt. Hér voru komin mannaorð í stað þeirrar opinberunar, sem Guð hafði sjálf ur gefið fyrir Jesúm Krist. Og allar slíkar kenningar falla undir þann dóm Jesú, sem hann kveður upp í upphafi guðspjallsins. Hér eru falsspámenn á ferð. Og við eigum að gæta okkar fyrir þeim. Við mennirnir verðum að skilja, að við getum aldrei breytt neinu í þeim boðskap, sem Guð hefur flutt okkur. Okkar er að- eins að veita boðskap hans við- töku eða hafna honum. Við verð- um einnig að skilja það, að krist- indómurinn verður að fá að móta allt líf okkar. Við verðum að gera vilja Guðs, sem er í himn- unum. Það þýðir ekkert að lofa Guð á helgum dögum, ef hið daglega líf okkar ber honum ekki vitni. Það væri aðeins varajátning. Þjónum Guði í öllu okkar lífi. Biðjum hann um kraft og styrk til þess að ganga þá vegu og vinna þau verk, sem hann ætlar okkur. Vörumst að ætla okkur þá dul að vita betur og geta betur en Guð sjálfur. Þá verður trú okkar enginn „sparifatakristindómur", heldur lifandi trú, sem ber vitni þeim Guði, sem við þjónum. Tónas Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.