Morgunblaðið - 27.07.1958, Síða 17
MORCVNBZ1Ð1Ð ^
17
Sunnudagur 27. júlí 1958
Í 1 1
SKAK
m
Helgi Jónsson, bóndi
Stuðlafossi, Jökuldal
— In Memoriam —
FRÁ 22. júlí til 27. júlí tefldu Rússar og Júgóslavar landskeppni
í Júgóslavíu. Teflt var á átta
borðum og lauk keppninni með sigri Rússa 19(4 vinn. gegn 12(4.
1. Keres - Gligoric .... 2:2
2. Geller - Matanovic .. 3:1
3. Kortschnoy - Ivkow 2:2
4. Taimanof - Djuraswic 2(4:1(4
5. Boleslaws. - Trifonov. 2:2
6. Kotov - Matulovic .. 2:0
” — - Funderer .... 1:1
7. Polugajewski - Milic 2:1
” Svetin - Rabar 1:0
8. Krogius - Bertok .... 1 (4:U4
” Svetin - Bertok .... (4: (4
19%:12V£
Skákir frá keppninni hafa ekki
borizt.
Skákin sem fer hér á eftir er
tefld á skákþingi U.S.S.R. 1958
og stiðst ég við skýringar eftir
dr. Euwi, að, nokkru leyti.
kxvítt: Boris Spassky
Svart: S. Ghugowitzki.
Sikileyjartafl— (Rovzer-árás).
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. ð4 cxd4
4. Rxd4 Rf« 5. Rc3 d6 6. Bg5
e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 Bd7
(Samkvæmt nýjustu rannsóknum
er 8. .. h6 9. Bf4 ekki viðunan-
legt fyrir svartan). 9. f4 Be7 10.
Rf3 h6 (Ónauðsynlegur leikur í
þessari stöðu -10. .. b5 leiðir til
venjulegs afbrigðis). 11. Bxf6
gxf6 (Ef til vill er 11. .. Bxf6
lítið eitt sterkara 12. Dxd6 Bxc3
13. bxc3 De7 14. Dc7 b5 og Ha7).
12. f5! (Rétt meðhöndlun á slík-
um stöðum). 12. .. Dc7 (12. ..
Da5 bauð upp á meiri möguleika).
13. Kbl 0-6-0 14. Bc4 (Báðir
aðilar hafa lokið liðskipun að
mestu, og hvítur er byrjaður að
útfæra hernaðaráætlun sína, sem
er í því fólgin að þrýsta á e6, þar
til svartur sér sig tilneyddan að
gefa upp d5 reitinn). 14. . . Kb8
(Nauðsynleg trygging á kóngs-
Stöðunni. Vafasamt er 14. .. Ra5
15. Bb3 Rxb3 16. axb3 h5 17. Rd4
og hvítu riddararnir verða hættu
legir). 15. Bb3 Hc8 16. Rce2
(Spassky hyggst framfylgja hern
aðaráætluninni, en betra var
fyrst Hhfl og e. t. v. Rd4) 16. ..
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
að mjög mikið. Árið 1930 voru
íbúarnir aðeins um 10 þús. Olíu-
félögin eru líka mjög örlátir at-
vinnuveitendur. Venjulegur
verkamaður fær a.m.k. 5 sterl-
ingspund á viku, ef hann er dug-
legur og kann eitthvað fyrir sér,
hækkar kaupið fljótlega upp í
10 sterlingspund á viku.
í þessu litla furstadæmi hefir
þjóðernisstefnan vaxið hraðar en
í nokkru öðru Arabaríki. Mjög
sjaldan sést Kuwaitbúi klæðast
evrópskum fötum. í hans augum
er það heiður að bera arabiskan
klæðnað. Það má teljast tákn-
rænt, að þeir menn, sem halda
uppi lögum og reglu þar hafa
fengið menntun sína í Englandi,
en menntamennirnir fara til
Egyptalands. Þetta hefir haft sín
áhrif. Upp á vegg í skrifstofu
menntamálaráðherrans, Abdul
Azziz Hussain, hangir mynd af
Nasser. Vafalaust eru veggirnir
í skrifstofu hans olíubornir með
enskri fernisolíu, en menntun
sína hefir ráðherrann fengið í
Egyptalandi.
★
Höfnin í Kuwait er ennþá
hreinleg, en pærluveiðararnir
eru orðnir mjög fáir. Þar ber nú
mest á hinum volduga hafnar-
garði, sem olíujöfrar létu gera i
nýju höfninni í Kuwait, þar sem
hægt er að lesta um 60 millj.
lesta af olíu á ári. Spurningin er
nú, hvort tekjurnar af olíunni
skipta furstann nægilega miklu
máli, til þess að rennsli olíunnar
haldi ótruflað áfram að hafnar-
garðinum mikla, hvað sem þjóð-
erniskennd og stjórnmálum líð-
ur?
exf5! (Rétt augnablik, þegar eng-
inn riddari kemst til d5). 17.
exf5 Bxf5 18. Rc3 Bf8 19. Rd4
Rxd4 20. Dxd4 Hg8 21. Dxf6 ?
(Núna fær Bf8 góða línu. Betra
var Hd2). 21. .. Bg6 22. Df2 Bg7
(Svarta peðastaðan hefur ekki
batnað, en biskupar svarts standa
ljómandi vel, og þegar allt er
dregið saman, virðast möguleik-
arnir vera jafnir). 23. Ra4
(Spassky vill leiða andstæðing
sinn út í flækjur og velur því
dálítið óeðlilegan leik). 23. ..
Hgc8 24. Hhfl He4 25. Rb6
Hce8 26. Rd5 Dc5 27. Rf4 Bd4
28. Dh4 Bc5 29. g3 a5? (Leiðir
af sér veikingu á hvítu reitun-
um). 30. a4 Hb4 (öruggara var
Bxf4) 31. Rxg6 (Þvingað, t.d. 31.
Kal Hxa4f. 32. Kbl (Bxa4 Da3)
32. .. Half 33. Kxal Da3f). 31.
.. Hxa4 32. Rxh4 (Miðað við
liðsafla stendur svartur ekki höll-
um fæti, en þegar staðan er at-
huguð kémur í ljós, að svartur
stendur sorglega illa. Hvítur er
herra yfir hvítu reitunum og þar
að auki eru svörtu peðin í hættu,
og þarfnast stöðugrar aðgæzlu).
32. .. f6 33. Rf5 h5 34. Hd5
Dc7 (Ef 34. .. Db4 35. Hb5 Dd2
36. Bd5 og sóknin er óstöðvandi)
35. Hb5 b6 36. Re3 Bd4 37.* Rd5
Dd8 38. Hf4! (Eftir þennan leik
verða f6 og b6 ekki varðir). 38.
.. Bc5 39. Hxf6 (Þetta peðstap
er ekki þýðingarmest fyrir hvít-
an, heldur að koma hrók á 7.
línuna til þess að vinna að mát-
undirbúningnum). 39. .. He2
40. Hf7 Hf2 41. Hh7 Hxh2
ABCDEFGH
42. Rxb6! (Nákvæmt reiknuð
fórn). 42. .. Bxb6 (Eða 42. ..
Dxb6 43. Hxb6 Bxb6 43. Bd5 Bc5
45. g4 h4 46. g5 og hvítur vinnur).
43. Bd5 Kc8 44. Hb7! De8 45.
H5xb6 Delf 46. Ka2 Hxc2 47.
Ha6 Hc7 48. Hb8f! Kd7 49. Hf8
Db4 50. Hf7f Kd8 51. Hf4f
(Síðasta atriði í leikfléttunni.
Ef 51. Ha8f Hc8 52. Hf8f Ke7 53.
Hfxc8 Dxa4f og svartur stendur
betur). 51. .. Dd2 52. Hf8f og
svartur gaf. T.d. 52. .. Kd7 53.
Hf7f Kd8 54. Hxd6f Kc8 55. HÍ8
mát. — IRJóh.
SKÁKÞRAUT
ABCBEFGH
Hvítur mátar í 3 leikum.
að auglýsing í stærsta
og útbreiddasta blaðinu
— eykur söluna mest —
— Sími 2 -24- 80 —
í KVÖLD barzt mér sú fregn,
að Helgi á Stuðlafossi hefði látizt
árla í morgun í bílslysi á Jökul-
dal. Ég varð hljóður við fregn
þessa. Ekki af því að slysin séu
svo fátíð, né af hinu, að hér hefði
hlynur horfið í blóma lífs, því
að Helgi var fullra sextíu ára að
aldri. En það grípur mig jafn-
an geigur, þegar skarð verður
í röðum dalafólksins, og einkum
þegar svo skyndilega ber að, að
ætla má að eyða verði eftir, sem
óvíst er hvort fyllt verður.
En auk þessa var Helgi mér
nokkuð kunnur hin síðustu ár.
Hann var aaaður myndarlegur,
karlmannlegru:, hress í bragði,
æðrulaus, ræðinn og skemmtileg-
ur, opinskár, hæglátur þó, og
virtist ýmsum um of. Kjarkmað-
ur hinn mesti og ódeigur er á
reyndi.
Hann var gæddur ýmsum þeim
kostum, er drjúgir reynast dala-
bóndanum, og í mínum augum að
ýmsu leyti ímynd þess íslenzk-
asta er prýðir sveitafólkið. Helgi
var prýðisvel gefinn, svo sem
hann átti kyn til og mér vakti
hann traust við fyrstu kynni. Að
honum er mannskaði.
Býlið hans, Stuðlafoss, er að
vísu rýrt, en hefir ýmsa kosti,
jafnhliða annmörkunum og
gestinum sást gjarnan yfir
annmarkana, er Helgi birtist
á hlaði, hlýr og alúðlegur,
með gestrisnina á báðum hönd-
um. Og eitt er víst: Ég verð dap-
ur í huga, er ég næst ríð þar
um hlað, ef rödd auðnarinnar
niðar þar í djúpri þögn.
Helgi á mörg spor í heiðinni
ofan við Stuðlafoss. Þau spor
fyrnast brátt, þótt sólin haldi
áfram að kyssa víðilaufið á vor-
in og snækófið strjúki hæðirnar
og melabörðin í langnætti vetr-
arins.
Vonandi fóstrar stuðlabergið
hjá Stuðlafossi nýjan bónda, sem
leggur nýjar slóðir um mjúkar
heiðar, og heldur uppi heiðri
dalabæjanna íslenzku.
Með þá von í brjósti, sendi ég
þér, Helgi Jónsson, hlýja kveðju
með þakklæti fyrir okkar kynni,
sem stækkuðu sjónarsvið mitt á
ýmsan hátt.
Konu hans og dwtrum sendi
ég hjartanlega samúðarkveðju.
Skriðuklaustri, 19. júlí
Jónas Pétursson.
Hjá okkur fáið þé«r
Egilsdrykki
og fleiri gæðavörur
Veifingastofan Asinn
Grensásveg 26.
Verksmiðju og saumastofu verðier
lokað
vegna sumarleyfa 28. júlí til 5. ágúst.
Afgreiðslan opin kl. 1—4 daglega.
GóBfteppagerðin hf.
Skúlagötu 51
Ungur maður
með bílstjóraréttindi óskast strax til a£-
greiðslustarfa á benzínafgreiðslu í Reykja
vík. Upplýsingar á skrifstofu vorri,
Hafnaa-stræti 5.
*
Olíuverzlun Bslands hf.
Pappírsvörur
BRÚN UMSLÖG, 5 stærðir
HVÍT UMSLÖG, 5 stærðir
FLUG UMSLÖG, 3 stærðir
SKRIFBLOKKIR, 4 stærðir
MILLEMETRAPAPPÍR, 3 stærðir
HILLUPAPPÍR, margar gerðir
VÉLRITUNARPAPPÍR, kvart og folio
SMJÖRPAPPÍR í rúllum og örkum *
ANDLITSÞURRKUR í rúllum
SERVIETTUR, hvítar og mislitar
UMBÚÐAPAPPÍR í rúllum og örkum
KRAFTPAPPÍR í rúllum 100 cm. s -
TOILETPAPPÍR
óffcfert ^JCrió tjánóóon, CJo lif.