Morgunblaðið - 13.08.1958, Page 3

Morgunblaðið - 13.08.1958, Page 3
Miðvikutfagur 13. ágúst 1958 MORCVTSBL AÐIÐ 3 Á skátamóti í Skátaguðs])jónustan að morgnl sT. sunnudags. Fánar fjögurra ríkja blakta við hún. Sé ra Hannes Guðmundsson í Fellsmúla préáikar. Ljósmynd: P. Thomsen. KL. 4 á laugardaginn átti að taka á móti gestum á skátamótinu í Þjórsárdal. Ekki svo að skilja, að sigað hafi verið hundum á þá, sem komið hafa þangað á öðrum tímum. En á laugardaginn kl. 4 átti að taka sérstaklega vel á móti gestum, og ýmsir gamlir skátar og aðrir merkismenn voru þá væntanlegir á vettvang. Meðai þeirra var fréttamaður Morgun- blaðsins. En margt fer öðru vísi en ætlað er. Til að gera langa sögu stutta er bezt að geta þess strax, að um fjögurleytið á laug- ardaginn, þegar gestunum var ekið yfir allar árkvíslirnar fyrir neðan Ásólfsstaði og upp í dalinn, sat fréttamaðurinn á stól sínum í Reykjavík. Það var ekki fyrr en einum og hálfum klukkutíma síðar, að hann loks komst af stað. Bílferð austur tekur 2Vz tíma höfðu þeir sagt í Skátabúðinni. En allt getur komið fyrir á ferða- lagi, og klukkan var orðin 10 að kvöldi, þegar títtnefndur frétta- maður komst á áfangastað. Sem sagt: 6 tímum á eftir áætlun, búinn að missa af alls kyns skemmtilegheitum, en þó seztur við eld vafinn í teppi og með trefil um hálsinn. Neðan brekk- unnar, á grjóteyri við Sandá, log- aði mikill varðeldur og í brekk- unni sátu 400 til 5fl0 manns og fylgdust með því, sem fram fór. Grátið í hatt Þegar fréttamaðurmn tyllti sér voru nokkrir þýzkir skátar að syngja við eldinn. Þeir voru svart klæddir og dularfullir í húminu, en sungu af mikilli list um rauna sögu frosks nokkurs og grétu yfir örlögum hans. Ekki sást tára- flóðið þaðan, sem fréttamaður- inn sat, en það virtist vera mikið, því að einn söngmannanna hélt hatti undir augum sér. Reyndar sást hann aldrei hella úr honum á eftir. Að söng Þjóðverjanna loknum rak hvert atriðið annað: Bretarn- ir sýndu leikrit um menn, sem koma á veitingahús. Hvað viljið þið fá? spyr þjónninn. Súpu, segja komumenn. Þjónninn kem- ur með súpu í fötu og sprautar henni upp í gestina með rjóma- sprautu. Þegar þ: eynast nizkir á þjórfé, kemur pjónninn með rjómasprautuna og sýgur súpuna upp úr þeim aftur! Gamall skáti, virðulegur verzl- unarmaður í Reykjavík, sýndi „Hárið“, frægt varðeldaatriði. Hann gekk að einum áhorfenda, tók hár úr höfði honum og lék svo með það hinar íurðulegustu listir: teygði það, dró það gegnum höfuð sér, lét það standa upp í loftið og hv.er veit hvað. En það var með hárið eins og tárin hjá Þjóðverjunum: það sást ekki þaðan, sem fréttamaðurinn sat. „Eftlr melrl söng ..." Við varðeldinn var mikið sung- ið. Sérstakt blað var gefið út á mótinu og hinir kaldrifjuðu blaða menn við það lýstu söng við varð eld með þessum hætti: „Eftir meiri söng kom (leikritið) síðan söngur, svo söngur og eftir það blíðuhót langa stund, áður en hún komst í gang. Svo var sitt- hvað annað úr lagi gengið og allt sýnt með kostulegum tilburðum. Hlutu Þjóðverjarnir mikið lof fyrir frammistöðuna og var það látið í ljós með virðingarhrópum, en þau eru mörg til meðal skáta SamræSur á sunnudagsmorgni: Benedikt Waage, forseti ÍSt (einn af gestunum á skátamótinu), frú Ilrefna Tynes, vara- skátahöfðingi, og Páll H. Pálsson, mótsstjóri Ljósm.: Mbl. kom söngur, síðan sungu Engl- endingarnir, síðan sungu Þjóð- verjarnir og svo söng sjálfur móts stjórinn ... “ Meðal annarra atriða, sem þarna gat að líta, var „Gamla Maja“, og voru Þjóðverjarnir þar að verki. Gamla Maja er bíll Hjálparsveitar skáta, og var Þjóð verjunum ekið í honum um Suð- Vesturland, áður en mótið hófst. Bifreiðin virðist nokkuð við ald- ur og orðin kenjótt. Þjóðverjarnir sögðu frá ferðum sínum með því að leggjast undir regnkápur. Skyldu fjórir tákna hjól bilsins en sá fimmti vélina. Svo kom fararstjórinn og lék bílstjórann. Athugaði hann ásigkomulag bíls- ins og vitanlega voru öll dekk vindlaus. Varð að dæla í þau lofti með handafli. Tók það langan tíma, enda seig úr þeim flestum jafnóðum. Með því að fara vel að dekkunum með klappi og elskulegum orðum tókst þó að lokum að fá þau sæmilega hörð, en þá var vélin eftir — og að sjálfsögðu þurfti að sýna henni og mismunandi áhrifamikil, Ekki létu Þjóðverjarnir við leikinn sitja, heldur sungu þeir lag eftir sjálfa sig við texta eftir sjálfa sig um títtnefndan bíl. Að lokum mynduðu skátarnir hring um varðeldinn, tókust í hendur og sungu. Mótstjórinn mælti að því loknu: Skátar, verið viðbúnir. Og skátarnir svöruðu: Ávallt viðbúnir. Síðan var gengið til náða. Vaknað við lúðraþyt Kl. 8 á sunnudagsmorgun vakn aði fréttamaðurinn við lúðraþyt. Þótti honum það nokkuð grimmi- legar aðfarir á sunnudegi, en sef- aðist, þegar honum var sagt, að menn hefðu fengið að sofa háif- tíma lengur en venjulega til há- tíðabrigða. Var ekki um annað að gera eri hlíta mótsreglunum, en þar stendur: „Allir verða að fara á fætur, skilyrðislaust, þegar merkið er gefið. Þá eiga menn að þvo sér, en að því loknu snæða menn morgunverð, en á hverjum morgni verður það hafragrautur, mjólk og brauð.“ Kl. 9 voru fánar dregnir að hún við hátíðlega athöfn. Tveir skátar frá hverju landi, sem full- trúa átti á mótinu, gengu fram, tóku við fánum sínum og drógu þá að hún meðan blásið var í lúður. Allt um kring stóðu móts- menn og heilsuðu að skátasið. Eftir þetta fór fram tjaldskoðun, en kl. 11 var guðsþjónusta í brekkunni neðan undir aðalfána- borginni. Prédikaði séra Hannes Guðmundsson, Erlendir skátar lásu pistil og guðspjall á þýzku og erisku. í messulok talaði frú Hrefna Tynes vara-skátahöfðingi og minntist dr. Helga Tómasson- ar skátahöfðingja. Var þetta virðuleg athöfn. Á grasgeira við Sandá Fréttamaðurinn átti tal við ýmsa skáta áður en hann hélt heim upp úr hádegi. Mótsstjóri er Páll H. Pálsson skrifstofu- stjóri, gamall og reyndur skáti. Hann sagði, að Skátafélag Reykja víkur héldi móti þetta, en það efnir til móta þau ár, sem ekkj eru haldin alþjóðamót eða lands- mót. Að þessu sinni eru um 165 skátar á mótinu, þar af 10 Þjóð- varjar, 28 Englendingar og 14 Bandaríkjamenn, og eru þeir allir af Keflavíkurflugvelli. Mótið hófst sl. fimmtudag, en því lýkur í dag. Margir þátttakendanna fara þá á Kjöl og koma til Reykja víkur á föstudagskvöld. Dagskrá mótsins var fjölbreytt. Gengið var á nálæg fjöll og á mánudaginn átti að fara geysi- mikla gönguför að Hjálp, Þjófa- fossi, Tröllkonuhlaupi, Stöng, í Gjána og að Háafossi. Ýmsir leik- ir og handíðir hafa verið sýndar og kenndar, á sunnudaginn ætl- uðu Bretar t. d. að baka brauð | yfir eldi í allra augsýn, Þjóð- verjar að sýna, hvernig þeir tjalda heima hjá sér, þar sem tjöldin eru hengd í tré, og Frh. á bls. 14. Við varðeldinn. Einar Logi Einarsson, bökin á nokkrum áheyrendum. varðeldastjóri — og Ljósm.: P. Thomsen. S TA K S T EI\A lí Ekki eins ljúft og þeir létu Hannes á horninu hirtir i pistl- um sínuin í Alþýðublaðinu í gær þetta: „Vísnavinur segir í bréfi: „Hefurðu heyrt að Karl Kristjáns son alþingismaður Þingeyinga hafi kvatt Emil Jónsson, forseta sameinaðs Alþingis og formann hinnar mikiu Rússlandsfarar um daginn með þessari vísu er för- inni lauk hér á flugvellinum: Þó um loftsins létta svið liðugt Faxinn rynni, hafði hann ekki að háifu við. heimþrá minni — og þinni. Þeir, sem þekkja Karl munu skilja, að hann hafi verið búinn að fá nóg af veizluhöldunum og „própagandanum" og heimþrá hans komin á flughraða. Og lík- lega hefur hann komizt að því sama hjá Emil sjálfum. Er þá vísan bæði sönn og snilldarvel kveðin“. Eftir þessu hefur austurförln ekki verið öllum þingmönnunum eins ljúf og þeir létu, ef marka mátti faguryrði Ernils Jónssonar í veizlum austur þar. Hvað um það. Heim komust þeir og nú er Lúðvík staddiur í slóð þeirra í Moskvu í því skyni að taka lánið margþráða. Borguðu undir þá alla leið heim Mikið skal til mikils vinna. En þegar lesin er vísa Karls skilja menn betur niðurlag viðtals hans við Tímann hinn 20. júlí s. 1., þar sem Karl segir: „Risna og móttökur með mikl- um höfðingsbrag. Þegar við litum á farmiðann frá Moskva heim- leiðis, kom t. d. í ljós, að fulltrú- ar Æðsta ráðsins höfðu greitt fargjöld fyrir okkur alla leið til Reykjavíkur og borgað einnig yfirvigtargjöld vegna farangurs okkar. Slík var rausn þeirra frá fyrsta degi heimsóknarinnar til hins síðasta“. Karl hefur auðsjáanlega verið orðinn smeykur um, að farareyri skorti til heimferðarinnar og hann yrði að dúsa í sæluríkinu þangað til Lúðvík kæmi til að taka lánið. Er utanríkisráðherrann „ að svíkja málstað íslendinga“? Alþýðublaðið ræðir í forystu- grein sinni í gær síðustu skrif Þjóðviljans um landhelgismálið og segir: „Þjóðviljinn gerir mikið veður út af þeirri fregn Alþýðublaðsins síðastl. laugardag, að landhelgis- málið sé um þessar mundir rætt af fulltrúum Atlantshafsbanda- lagsins i París. Hagar Þjóðvilj- inn sér svipað venju og gerir þetta að árásarefni á utanríkis- ráðherra. Telur blaðið, að með þessum umræðum sé á einhvern hátt verið að svíkja málstað ís- lendinga". Sjálft telur Alþýðublaðið: „— — — ekki nema eölilegt, að landhelgismálið sé rætt innan vébanda Atlantshafsbandalagsins og i höfuðstöðvum þeirra. — — Það er annað að hlusta á mál- flutning og setja fram sjónarmið en makka“ um mál. Samningar koma ekki til sögu fyrr en um eitthvað er að semja“. „Viðbrögð Þjóðviljans við um- ræddri fregn Alþýðublaðsins um umræður um málið í Atlantshafs- bandalaginu eru ekki þess eðlis, að þær örvi til samheldni og ein- drægni“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.