Morgunblaðið - 13.08.1958, Side 15
Miðvikudagur 13. Sgúst 1958
MORCUNBLAÐIÐ
15
Evrópumeisfaramótið i næstu viku:
Island á von í stigum — en
sigurvonir eru litlar sem engar
EVRÓPUMEISTARAMÓTIB í
frjálsíþróttum hefst í Stokk-
hólmi um næstu holgi. Það er
6. Evrópumeistaramótið sem
haldið er. Fyrst fór mótið
fram 1934 í Turin, síðan í
París 1938, í Osló 1946, Briiss-
el 1950 og Bern 1954. fsland á
núna 10 þátttakendur r mót-
inu og er það í f jórða sinn sem
ísland tekur þátt í Evrópu-
meistaramóti frjálsíþrótta-
manna.
★
Eins og áður segir verða 10 ís-
lendingar meðal þátttakenda. Þeir
eru: Björgvin Hólm sem keppir í
tugþraut, en hann náði á dögun-
um öðrum bezta árangri íslend-
ings í þeirri grein er hann keppn-
islaust hlaut 6176 stig. Pétur
Rögnvaldsson keppir í sömu
grein en bezti árangur hans er
6116 stig. Gunnar Huseby keppir
í kúluvarpi, Valbjörn Þorláks-
son og Heiðar Georgsson í stangar
stökki, Hallgrímur Jónsson i
kringlukasti, Svavar Markússon
í 800 og 1500 m hlaupi, Kristleif-
ur Guðbjörnsson í 3000 m hindr-
unarhlaupi og þá eru ótaldar Ol-
ympíustjörnurnar Hilmar Þor-
björnsson sem keppir í sprett-
hlaupum og Vilhjálmur Einars-
son sém keppir í þrístökki.
★
Á hinum fyrri Evrópumótum
sem ísland hefur tekið þátt í
hafa íslendingar tvívegis vakið
athygli. í fyrsta sinn tók ísland
þátt í mótinu í Ósló 1946. Þá
varð ísland í 14. sæti í hinni ó-
opinberu stigakeppni mótsins,
hlaut 8 stig, þar af hlaut Gunn-
ar Huseby 7 stig fyrir sigur
sinn í kúluvarpi. Finnbjörn Þor-
valdsson varð þá 6. í 100 m hlaupi
og hlaut 1 stig.
í Briissel 1950 átti ísland 10
þátttakendur. Sá hópur kom mjög
á óvænt og vann einhverja þá
mestu sigra er einn hópur ísl.
íþróttamanna hefur unnið í utan-
ferð. Tveir íslendingar urðu
Evrópumeistarar, þeir Gunnar
Huseby í kúluvarpi og Torfi Bryn
geirsson í langstökki og Örn
Clausen hlaut silfurverðlaun í
tugþraut. Fleiri fslendingar kom-
ust í úrslitakeppni m.a. í stangar-
stökki, 100 m hlaupi og 400 m
hlaupi. fsland hlaut 28 stig og
skipaði 9. sæti í stigakeppninni og
meðal þjóða sem urðu neðar en
ísland voru Noregur, Danmörk,
Pólland, Sviss, Júgóslavía, Belgía,
Austurríki og Tyrkland.
Þetta mót var okkar stærsti
fr j álsíþróttasigur.
í Bern 1954 komst enginn ís-
lendingur í sæti til að hreppa
Þróltur og fsafjörður
berjasf um sæti
í 1. deUd
S.L. sunnudag íór fram úrslita-
leikur í 2. deildarkeppninni á suð
vestursvæðinu. Mættust Reykja-
víkurfélögin Þróttur og Víking-
ur og lyktaði leik með sigri Þrótt
ar 4 mörk gegn 1.
Þróttur mætir því ísfirðingum
í keppninni um sætið sem losnar
í fyrstu deild. Hvenær sá leikur
verður er alls óákveðið enda er
áætlunin sem gerð var í vor um
leiki sumarsins gersamlega farin
úr skorðum vegna alls kyns
frestunar leikja og annarra at-
vika er borið hafa að.
stig, en þar átti ísland þó góða J
sveit manna.
★
Sigurhorfur íslendinga nú eru
ekki miklar. En liklegt má telja
— eða að minnsta kosti gera
sér vonir um — að ísland verði
nú aftur á blaði í stigakeppninni
leynilegu. Er það ekki sízt vegna
afreka Vilhjálms Einarssonar sem
sílkt er vonað. Hann hefur nú
verið í keppnisför í Svíþjóð og
síðustu fréttir af honum þar eru
þær að hann vann keppni í Boras,
stökk 15,63, sænski methafinn
stökk 15,36 og da Silva 15,25 m.
Bendir þessi árangur til að ekki
hafi verið gott að stökkva, en
fyrr í förinni hefur Vilhjálmur
lengst stokkið 15,86 m en da Silva
15,91 m. — Þá eru veikar vonir
um að Hilmar komist i úrslita-
keppni og sömuleiðis binda ís-
lendingar miklar vonir við Val-
björn í stangarstökkskeppninni.
★
Sumir kunna að spyrja: Hvers
vegna að senda fleiri menn en
þessa sem einhverjar vonir eru
um að fái stig? FRÍ mun hafa
tekið tillit til þess í vali sínu á
keppendum að viku siðar er lands
keppni við Dani í Danmörku og
þurfti því hvort sem var að senda
mennina út og verður því iitill
aukakostnaður við þátttöku í EM.
Þá er og víst að hlaupararnir
tveir á lengri vegalengdum ná
betri afrekum úti en hér heima.
Það hafa þeir ætíð sýnt, enda er
veðráttan hér þeirra versti keppi
nautur. — Tugþrautarmennirnir
munu og áreiðanlega sóma sér
vel innan um beztu íþróttamenn
álfunnar og má ætla að peim
muni takast að ná 10.—15. sæti.
★
Mótið fer fram á gamla O'ym-
píuvellinum í Stokkhólnu þar
sem 5. Olympíuleikarnir fóru
— Bandarikjafloti
Framh. af bls. 1
reyni að leggja undir sig For-
mósu, því að samkvæmt gagn-
kvæmum varnarsamningi Banda
ríkjanna og Formósustjórnarinn-
ar hafa Bandaríkjamenn skuld-
bundið sig til þess að verja For-
mósu og Pescadoreseyjar, en
óljós ákvæði eru um varnir
Quemoy. Sjöundi floti Banda-
ríkjanna er á Formósusundi.
— Landhelgin
Framh. af bls. 1
sinna til þess að koma í veg fyr-
ir samkeppni um að selja sem
ódýrast. — NTB.
Síðari fregnir: Einkaskeyti fra
fréttaritara Mbl. í Höfn.
I ræðu sinni sagði danski sjáv-
arútvegsmálaráðherrann, O. Ped-
ersen, að á íslandi, einu Norður
landanna, hlyti sjávarútvegur
inn ríkisstyrk.
Davíð Ólafsson lýsti stuttlega
fiskveiðum Islendinga, aðalat-
vinnuvegi landsmanna, sem
nema hálfri milljón smálesta ár-
lega. Sagði hann, að 90% fisk
aflans væri flutt út — og sjávar-
aflinn hefði veitt íslendingum
þann auð, sem uppbygging nú-
tíma þjóðfélags krefðist.
fram 1912. Völlurinn hefur feng-
ið það orð fyrr á tímum að vera
fegursti völlur heimsins. Hann
hefur einnig verið kallaður
„Mekka íþróttanna" og Olym-
píuleikarnir sem leikvangurinn
var eiginlega byggður fyrir fóru
þar svo vel fram, að Stokkhólms-
leikarnir urðu fyrirmynd um
framkvæmd Olympíuleika um
áratugaskeið þar á eftir eða allt
til 1936.
Á þessum klassiska 46 ára
gamla leikvangi mætist nú æska
Evrópu. Margt hefur breytzt á
þessum árum og ekki sízt árang-
urinn sem íþróttamennirnir og
konurnar ná. En stáðreynd er að
þetta Evrópumót verður eitt
mesta mót frjálsíþrótta sem fram
hefur farið. Að því styður hinn
umfangsmikli og glæsilegi und-
irbúningur Svía, en takmark
þeirra er, að hvað allan undir-
búning snertir verði þetta mesta
frjálsíþróttamót sem fram hefur
farið í Svíþjóð síðan 1912 er
Olympíuleikarnir voru þar háðir.
Fari svo,
minnilegt.
verður mótið eftir-
írarnir mæta Akur-
nesingum í kvöld
í KVÖLD klukkan 8 leika írarnir |
sinn annan leik hér. Mæta þeir ,
nú fslandsmeisturunum írá
Akranesi. Ekki var er þetta var
skrifað vitað um hvernig lið íra
yrði skipað, því þeir voru í boði
menntamálaráðuneytisins í ferða
lagi og snæddu kvöldverð á
Þingvöllum.
Ekki er annað vitað en að
Akranesliðið komi til leiks
óbreytt frá síðasta leik liðsins að ^
undanskildu því að Halldór Sig- ,
urbjörnsson (Donni) mun skipa
stöðu hægri útherja.
— Sildin
Frh. af bls. 2.
unarsíld á sunnudagsnótt og
sunnudag: Hannes lóðs 200, Gunn
ar 300, Stella 100, Álftanes 200,
Svanur SH 120, Hrönn SH 420,
Sæljón 400, Svalan 150, Stjarnan
120, Garðar 300, Hamar 350, Goða j
borg 250, Þorbjörn 250, Suður-!
ey 100, Ófeigur III 130, Ólafur
Magnússon 300, Von TH 200 og
700 mál í bræðslu, Helga TH 100, 1
Bjarni Jóhannesson 200, Vilborg
250, Guðmundur Þórðarson 500,
Ásgeir 230, Erlingur III 200. j
Á Hjalteyri lönduðu um helg-
ina eftirtalin skip: Egill Skalla-
grímsson um 1100 mál og tunn-
ur, Rifsnes um 500 mál og tunn-
ur, Höfrungur 351 mál, Bjarmi
45 mál, Guðfinnur 112 mál.
Einar Ásmundsson
hæstaréttarlögmaður.
Hafsteinn Sigurðsson
héraðsdóinslö^inat.ur
Sími 15407, 19813.
Skrifstofa Hafnarsírati 5.
PILTAR. yú&TZ
fFPlO ÉIGIP UNNUSrUNA /f/
ÞA A ÉC HRINCANA //// ,
^ v/pWsrrMf/V------■
Mínar beztu þakkir flyt ég öllum þeim, er sýndu mér
vinsemd á níræðisafmæli minu þann 28. f.m.
Kristín Eiríksdóttir, Bergstaðastræti 7.
Innilegar þakkir til vina minna ættingja og barna
minna, sem heimsóttu mig eða sendu mér skeyti og
gjafir á sextugsafmæli mínu 3. ágúst s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Eyvindur Júlíusson, Siglufirði.
IBUÐ
Ný glæsileg 4 herbergja íbúð í 4 hæða fjölbýlishúsi
við Álfheima til leigu í 1—1 Vá ár, eða til áramót-
anna 1959—60. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins
merkt: „fbúð — 6673“.
Iðnaðarhúsnæði
200 til 300 ferm. iðnaðarhúsnæði óskast til kaups
eða leigu. Tilboð sendist í pósthólf 1343 fyrir 20.
þ.m.
Verzlunarpláss
Allt að 100 fermetra verzlunarpláss óskast nú þegar
eða síðar. Þarf að vera við aðalgötu. Tilboð sendist
blaðinu merkt: „Fyrirframgreiðsla — 6676“.
Eiginkona mín
HÖLMFRfÐUR JÓNSDÓTTIR
Lönguhlíð 17,
andaðist að heimili sínu 11. þm. Jarðsett verður frá
Fossvogskirkju föstudaginn 15. þ.m. kl. 3 e.h.
Hannes Jónsson.
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
frá Bíldudal,
andaðist að heimili sínu, Barmahlíð 34, Reykjavík að
morgni hins 12. þ.m.
Börn og tengdabörn.
Hjartkær eiginmaöur minn og faðir okkar
SIGURSTEINDÓR EIRlKSSON
andaðist þriðjudaginn 12. ágúst.
Sigríður Jónsdóttir,
Ástráður Sigursteindórsson, Bjarni Sigursteindórsson.
Maðurinn minn
JÓN GESTSSON
Öldugötu 53,
lézt að Elli og hjúkrunarheimilinu Grund 11. þ.m.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Maðurinn minn faðir okkar og sonur minn
HAFLIÐI HAFLIÐASON
Skipholti 20,
lézt á Landakotsspítalanum 11 ágúst.
Ólöf Guðjónsdóttir,
Aldís Hafliðadóttir, Guðjón Hafliðason,
Aðalheiður Hafliðadóttir, Aldís Sigurðardóttir.
Eiginmaður minn
MAGNtJS INGIMUNDARSON
fyrrum bóndi að Fremri-Brekku,
andaðist að heimili sonar míns, Skeiðarvogi 157, Reykja-
vík, fimmtudaginn 7. ágúst síðastliðinn.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
15. ágúst næstkomandi kl. 1,30 síðdegis.
Ragnheiður Magnúsdóttir.
Þökkum auösýnda samúð við fráfall og jarðarför
ÞÓRUNNAR AÐILS
bankafulltrúa.
Sérstaklega þökkum við samstarfsfólki hennar við
Landsbanka íslands.
Else og Geir Aðils, Nanna og Jón Aðils.