Morgunblaðið - 13.08.1958, Side 16
Fornleifagröftur á Arnarhóli
í rábi er aó grafa eftir Arnarhóls-
tröðum, sem Jbar hafa legið frá
landnámstið
í RÁÐI er á næstunni að hefja.verði bæjarins Lárusi Sigur-
gröft á Arnarhóli í Reykjavík I björnssyni kom mál þetta fyrst
og rannsaka hinar fornu Arnar-
hólstraðir, sem talið er víst, að
séu allt frá tíð Ingólfs landnáms-
manns Arasonar er hafi látið
leggja þær og notað sem umferð-
arveg. Rannsóknir þessar fara
fram á vegum Minjasafns Reykja
víkurbæjar í samráði við bæjar-
ráð og þjóðminjavörð.
Til tals 1956
Samkv. upplýsingum frá safn-
Portoroz
til tals haustið 1956. Þá sam-
þykkti bæjarráð að rannsókn
skyldi hafin á Arnarhólströðum
— þá einnig með samþykki þjóð-
minjavarðar — að grafið skyldi á
tveimur stöðum í hólinn eftir
tröðunum — sem reyndar enn í
dag sézt greinilega móta fyrir í
suðausturstefnu yfir hólinn. —
Ekki varð þó úr frekari fram-
kvæmdum í þetta skipti, aðallega
vegna þess, að menn, færir um
að leysa verkið af hendi, voru
þá ekki fáanlegir.
í FRAMHALDI af frétt af þriðju
og fjórðu umferð, sem birtist í
blaðinu í gær: Þriðja umferð —_ um
Fisher og Rosetto gerðu jafn-
tefli, Sanguinetti og Cardoso
gerðu jafntefli. — Fjórða umferð:
Larsen vann Neykirch og Panno
vann Cardoso.
NÝJUSTU FREGNIR:
í FIMMTU umferð er tefld var
í gær fóru leikar þannig: Petros-
jan vann Matanovic, Friðrik vann
Cardoso, Szabo vann de Greiff,
Tal vann Filip, Larsen vann
Fiirster. Sanguinetti vann Ney-
kirch, Averbakh vann Rossetto,
Panno og Glicoric — biðskák,
Benkö og Bronstein — biðskák,
Sherwin og Pachman — biðskák,
Fisher átti frí. — Reuter.
★
Það er athyglisvert hve margir
vinningar eru þegar komnir í
fimmtu umferð. — í samtaii, sem
birzt hefir í júgóslavneska b!að-
inu Borba við skákstjórann á
mótinu í Portoroz, Englending-
inn Golombeck, telur hann þá
Petrosjan og Gligoric líklegasta
til sigurs í mótinu.
AMMAN, 12. ágúst: — 50—60
bandarískir borgarar búsettir í
Amman munu fara að ráði Banda
ríkjastjórnar og hverfa hið fyrsta
úr landi.
Grafið á tveimur stöðum
Nú hefir málið verið tekið upp
að nýju og hefir framkvæmd
rannsóknarinnar verið falin ung-
fornleifafræðingi, Þorkeli
Grímssyni, sem kom heim á s.l.
ári frá námi erlendis og er nú
í þjónustu hjá Minjasafni bæjar-
ins. Hefir Þorkell þegar gert
áætlun um verkið og að fengnu
samþykki bæjarins verður hafizt
handa. Gert er ráð fyrir að graf-
inn verði þverskurður yfir hólinn
— þvert yfir traðirnar á tveim-
ur stöðum — þangað til komið er
ofan í óhreyfða mold. Komi í ljós
upphleðslur og nokkuð heillegar
traðir er ekki ósennilegt að þær
verði látnar halda sér sem göngu
stígur yfir hólinn. ic Yrði þar
vafalaust komin fram í dagsljósið
hin elzta umferðargata á íslandi
— sú sama er Ingólfur og menn
hans fóru eftir fyrir meira en
1000 árum. Þykir líklegt að Ing-
ólfur hafi einmitt valið bæjar-
stæði sitt með tilliti til þess hvar
fært myndi yfir lækinn, sem þá
var díki djúpt og mikið og erfitt
yfirferðar nema helzt í grennd
við ósinn en einmitt í þá stefnu
liggja Arnarhólstraðir ic Verður
vafalaust fylgzt með þessum
rannsóknum af almennum áhuga.
Skipstjóri Northern Sky
dœmdur í 100 þús. kr. sekt
— fyrir landhelgisbrot og ósœmilega tram-
komu við skipherra og áhöfn á Oðni
SEYÐISFIRÐI, 12. ágúst — Síð-
degis í dag var dómur kveðinn
upp í máli Alberts Williams
Kissack, skipstjóra á enska tog-
aranum Northern Sky.
Erlendur Björnsson, bæjarfó-
geti á Seyðisfirði, dæmdi hinn
42 ára gamla skipstjóra í 100
þús. kr. sekt fyrir landhelgis-
brot. Þetta var fyrsta brot, en
undir venjulegum kringumstæð-
um er sektin þá 74 þús. kr.
Vegna hinnar dólgslegu fram-
komu togaraskipstjórans við
varðskipsmenn á Óðni og þess,
að hann neitaði að hlýða fyrir-
skipunum skipherrans á varð-
skipinu varð sektin svo há.
Neitaði sakargiftum
Fyrir rétti neitaði skipstjórinn
að hafa verið að veiðum innan
landhelgi, en dómari vefengdi
eigi mælingar varðskipsmanna.
Framfœisluvísitalon 202 sfiig
Hefir hœkkað um 3 sfig — og kaupvísitalan
um 2 stig
SAMKVÆMT frétt frá viðskipta-
málaráðuneytinu hefur vísitala
framfærslukostnaðar í Reykja-
vík fyrir ágústmánuð verið
Játaði innbrot
í sumarbústaði
TEKIZT hefur að upplýsa innbrot
ið sumarbústaðinn við Selja-
brekku í Þingvallasveit, sem sagt
var frá í blaðinu s.l. laugardag.
Var þar stolið viðleguútbúnaði,
fatnaði og mat og skotið með
riffli gegnum rúður. •— Tvítugur
piltur úr Reykjavík hefur játað
á sig verknaðinn. Jafnframt hef-
ur hann játað að hafa brotizt inn
í sumarbústað nálægt Gufunesi.
Stal hann þar mat og víni. Jepp
ann sem hann fór á austur í Þing
vallasveit, tók hann við sumar-
bústaðinn í Gufunesi. Hann hefur
skilað þýfinu aftur að víninu und
anteknu. Piltur þessi hefur áður
komizt í bækur lögreglunnar.
reiknuð út. Reyndist hún vera
202 stig eða þremur stigur hærri
en í júlímánuði, en þá var hún
199 stig.
Kaupgreiðsluvísitalan fyrir
tímabilið 1. september til 30.
nóvember 1958 verður 185 stig —
hækkar um tvö stig samkvæmt
ákvæðum 55. gr. laga nr. 33,
1958, um útflutningssjóð o. fl.,
en þar er svo ákveðið, að kaup-
greiðsluvísitalan skuli standa í
183 stigum þar til framfærslu-
vísitalan komist í 200 stig — þá
skuli kaupvísitalan haldast i
hendur við framfærsluvísitölu —
þ. e. hækka um eitt stig fyrir
hvert stig, sem framfærsluvísi-
tálan fer yfir 200.
WINCHESTER, Englandi, 12.
ágúst: — 34 ára gömul kona fæddi
í dag fjórbura í sjúkrahúsi hér.
Eitt barnanna fæddist andvana,
en hinum þrem líður vel. Eru það
tvær stúlkur og drengur. Dreng-
urinn fæddist fyrst og vó tólf
merkur, en stúlkurnar vógu tólf
og átta merkur.
Aftur á móti viðurkenndi Kis-
sack, að möskvastærð á botn-
vörpu hans væri of lítil, en rann-
sókn leiddi í ljós, að stærðin var
100 mm í stað -lögskyldra 110
mm.
Bannaði alla aðstoð
í sambandi við framkomu
skipstjórans má geta þess, að
hann bannaði öllum skipsmönn-
um sínum að vinna handtak á
togaranum, eftir að varðskips-
menn höfðu tekið að sér stjórn
hans, eða veita þeim á nokkurn
hátt aðstoð á meðan siglt var til
Seyðisfjarðar.
Með sáralítinn afla
Togarinn var með sáralítinn
afla innanborðs. Var hann met-
inn á 10 þús. kr. Hins vegar voru
veiðarfæri hans metin á 81 þús.
kr., en þau, ásamt afla, voru gerð
upptæk til landhelgisgæzlusjóðs.
Kissack skipstjóri áfrýjaði
dómnum. Umboðsmaður togara-
eigandans hér í Reykjavík, Geir
Zoega, forstjóri, setti tilskilda
tryggingu og var þá Northern
Sky frjáls ferða sinna, en hann
sigldi brott frá Seyðisfirði milli
kl. 7 og 8 í gærkvöldi.
„Hefurðu séð kartöflugrasið á Sprengisandi?“ sagði skipsmaður
á annarri „Breiðinni", við ljósmyndara Mbl. fyrir skömmu. —
Hann átti við þetta gras, sem hefur smeygt sér út um gat á
stálþilinu á þeirri bryggju í Reykjavík, sem að réttu lagi heitir
Gróíarbryggja, en allir kalla Sprengisand. Við steinsteyptan
bryggjukantinn efst á myndinni er niðurfall. Þar hefur kartafla
farið niður, en ekki komizt alla leið í sjóinn, heldur spírað
innan um alls kyns úrgang, og nú hefur grasið troðið sér út
þangað, sem ljóss nýtur Ljósm. vig.
Síldaraflinn 443.861 mál
og tn. um síðustu helgi
I SÍLDARSKÝSLU Fiskifélags
ins segir að óhagstætt veður hafi
verið fyrstu daga vikunnar og
engin veiði norðanlands. Austan
lands var einnig bræla, en dálít-
ill afli í Vopnafirði. Mjög kalt
var í veðri.
Aðfaranótt 7. ágúst kom upp
síld mjög grunnt norðan Langa-
ness, nánar tiltekið út af Svína-
lækjartanga og inn með nesinu.
fram eftir degi 8. ágúst Lítil
veiði var laugardaginn 9. ágúst,
þó fengu nokkur skip veiði út af
Mánareyjum og N. af Rauðanúp-
um. Vikuaflinn nam 62.301 máli
og tunnu.
Síðastliðinn laugardag 9. ágúst
á miðnætti var síldaraflinn orð-
inn sem hér segir: (tölurnar í
svigum eru frá fyrra ári á sama
Var allgóð veiði á þeim slóðum tíma).
í salt ............... 263.255 uppsaltaðar tunnur (124.814)
í bræðslu ............ 168.983 mál (435.913)
í frystingu............. 11.623 uppmældar tunnur ( 12.681)
Samtals mál og tunnur 443.861
(573.408)
215 skip hafa aflað 500 mál og^
tunnur eða meira og birtist skrá
yfir afla þeirra á bls. 14.
Aflahæstu skipin eru: Víðir II,
Garði 7002 mál og tunnur, Snæ-
ell, Akureyri 5871, Grundfirðing-
ur II, Grafarnesi 5796, Haförn,
Hafnarfirði 5496, Jökull, Ólafs-
vík 5479, Björg, Eskifirði 5341,
Þorsteinn þorskabítur, Stykkis-
hólmi 5135 og Faxaborg, Hafnar-
firði 5022.
Leikhús Heimdallar:
,Haltu mér - slepptu mér'
fœr mjög góðar viðtöKur
Hafið þið séð
R-1638
í FYRRAKVÖLD var sendiferða
bifreiðinni R-1638 stolið, þar sem
hún stóð við húsið Skúlagötu 55.
Bifreiðin er blágræn að lit og af
Fordson gerð. Hún hafði,. ekki
fundizt í gærkvöldi.
úti á landi
AÐ UNDANFÖRNU hefur franski
gamanleikurinn „Haltu mér —
slepptu mér“ eftir Claude Magni-
er, sem fyrir skömmu var sýnd-
ur í Sjálfstæðishúsinu á vegum
Heimdallar, verið sýndur víða á
Norður- og Austurlandi.
Frábærar viðtökur
Þau Lárus, Helga og Rúrik hafa
að undanförnu ferðazt um og
haldið sýningar. Nú þegar hef-
ur leikritið verið sýnt á Sauðár-
króki, Húsavík, Vopnafirði, Seyð-
isfirði (tvisvar), Reyðarfirði, Eski
firði, Neskaupstað (tvisvar), Skjól
brekku í Mývatnssveit og á Ak-
ureyri (þrisvar). í kvöld verður
sýning á Dalvík. Hefur hvar-
vetna verið húsfyllir og undir-
tektir áhorfenda frábærar. Má
því með sanni segja, að leikritið
hafi farið sigurför um landið.
Sýning í Reykjavík
á sunnudagskvöld
Fer nú senn að líða að því að
höfuðstaðarbúum gefist kostur á
að sjá þennan bráðfyndna gaman
leik að nýju. Næsta sýning hér
í bænum verður n.k. sunnudags-
kvöld. Síðar í vikunni verður
skýrt frá aðgöngumiðasölu og
næstu sýningum.
Skemmtiför Hvalar
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
fer þriggja daga skemmtiför á
Þórsmörk. Lagt verður af stað
föstudaginn 15. þ. m. frá Sjálf-
stæðishúsinu kl. 9 f. h. — Gist
verður í hinum ágæta skála
Ferðafélagsins.
Félagskonum er heimilt að
taka með sér gesti, og allar upp-
lýsingar gefa: María Maack, Þing
holtsstræti 25, Gróa Pétursdótt-
ir, öldugötu 24 (simi 14374),
Kristín Magnúsdóttir, Hellu-
sundi 7 (sími 15768) og Lóa
Lúters, Sörlaskjóli 90 (sími
17648). Farmiðar verða seldir í
dag og á morgun á framan-
greindum stöðum og í verzlun
Egils Jakobsens.