Morgunblaðið - 16.08.1958, Side 1

Morgunblaðið - 16.08.1958, Side 1
16 síður og Lesbók 45 árgangur 184. tbl. — laugardagur 16. ágúst 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins V.-þýzkum togurum ekki veitt hervernd á íslandsmiðum vegna Jbess að ísland er bandalags- riki V.-Þýzkalands, segir talsmaður v.-býzku stjórnarinnar Kaupmannahöfn, 15. ágúst. „POLETIKEN“ hefur í dag eftir talsmanni v-þýzku stjórn arinnar, að V-Þjóðverjar hafi ekki í hyggju að veita togur- um sínum á íslandsmiðum vopnaða vernd. ísland er bandalagsríki V-Þýzkalands, sagði talsmaðurinn, og við verðum að taka tillit til þess, að tilvera íslands byggist nær eingöngu á fiskveiðum. Lét hann og í ljós þá von stjórn- ar sinnar, að takast mætti að jafna deilurnar fyrir 1. sept. Þá sagði „Poletiken“ einnig, að Faisal til Kairó KABIO, 15. ágúst. — Faisal prins, forsætisráðherra Saudi-Arabíu, kom í dag flugleiðis til Kairo til viðræðna við Nasser einræðis- herra Egyptalands. landhelgismálið yrði vafalaust rætt á ráðherrafundirium í Od- ense, enda þótt ráðherrarnir væru ekki að flíka því. Nú væri mikil áherzla lögð á að mynda umræðugrundvöll fyrir 1. sept- ember — og væri þess beðið með mikilli eftirvæntingu, hvort sam komulag tækist með Norðurlönd- unum um að eiga frumkvæðið að nýjum umræðum um landhelgis- málin á alþjóðlegum vettvangi. Þrátt fyrir yfirlýsingu Islendinga um að þeir hefðu nú beðið nógu lengi eru talin líkindi til þess, að hægt verði að fara samningaleið- ina. Aksel Larsen neitað um að skrita í ,Land og Foik' Verður hann rekinn fyrir titóisma? Kaupmannahöfn, 15. ágúst. Einkaskeyti til Mbl. BLÖÐIN skýra svo frá, að á fundi miðstjórnar kommúnista- flokksins danska hinn 24. ágúst nk. verði gert út um örlög Aksels Larsen, formanns flokksins. Segja þau og, að Larsen hafi sent skipulagsnefnd flokksins skýrslu, en nefndin hafi neitað að senda miðstjórninni þessa skýrslu Hvers vegna fór Lúðvík til Moskvu en ekki á fund sjávarúfvegs- málaráðherranna ? Stjórnarblöðin þegja enn um ferðir hans STJÓRNARBLÖÐIN halda áfram í gær þögn sinni um ferðir Lúðvíks Jósefssonar. Þjóðviljinn kvartar þó í forystugrein sinni um „heiftarlegar og ómaklegar árásir“ á Lúðvík. Af því tilefni verður að spyrja: Er það satt eða ekki, að Lúðvík hafi hinn 11. ágúst s. 1. verið staddur í Moskvu? Ef það er satt, af hverju er það Unnusturnar komust að hernaðarleyndarmálum LONDON, 15. ágúst. — Eitt Lund únablaðanna skýrir frá því, sem það segir eitt „mesta öryggis- vandamál síðari ára í samskipt- um Breta og Bandaríkjamanna". Mergurinn málsins er sá að samkv. staðhæfingu blaðsins vita tvær starfstúlkur á veitingahúsi Færeyingar fá ekki nægilegan varð- skipaflota Kaupmannahöfn, 15. ágúst. Einkaskeyti til Mbl. FORINGI dönsku landhelgis- gæzlunnar skýrir svo frá, að auka þurfi flota þann, sem gætir land- helginnar umhverfis Færeyjar, ef hún verður færð út í 12 mílur. Danski flotinn sé hins vegar ófá- anlegur til þess að ljá fleirí skip í þessu skyni — og svo geti farið, að miklum erfiðleikum verði bundið að gæta 12 mílna land- helgi við Grænland, einmitt af þessum ástæðum. Fjórar leiðir GENF, 15. ágúst. — Sérfræðing- ar austurs og vesturs á sviði kjarnorkuvísinda ljúka nú senn viðræðum sínum í Genf um leið- ir til þess að fylgjast með tilraun um með kjarnorkusprengjur. Fullvíst er talið, að til greina komi aðallega fjórar leiðir: 1. Hljóðbylgjumælingar í Iofti og undir sjávaryfirborðinu. 2. Mælingar geislavirkni lofts- ins. 3. Mæling jarðhræringa. 4. Kafsegulgeislamælingar. í London um símanúmer í leyni- legri bandarískri eldflaugastöð í Noregi. Stúlkur þessar eru 23 og 24 óra. Unnustar þeirra eru bandarískir hermenn, sem áður voru í Bretlandi, en síðar fluttir til hinnar leynilegu eldflauga- stöðvar í Noregi, segir blaðið. Önnur stúlkan á að hafa talað meira en 12 sinnum í síma við unnusta sinn í leynistöðinni í Noregi, en hin lagði land undir fót í sumarleyfinu og dvaldist með sínum skammt frá leynistöð- inni. í tilkynningu frá aðalstöðvum Bandaríkjaflughers í Bretiandi í dag sagði, að verið væri að rann- saka málið. sem upplýsti það m. a., að Larsen hafi verið neitað um að skrifa í Land og Folk, aðal- málgagn danskra kommúnista. Larsen er sakaður um að vera áhangandi endurskoðun- arstefnunnar svonefndu, af því að hann hefur ekki fordæmt Tító og stefnu hans. Larsen hefur hins vegar sagt, að herferð Moskvu- valdsins gegn Tító minni á stalin- ismann — og danskir kommún- istar megi ekki vera viljalaus verkfæri í höndum rússneskra kommúnista. Informationen segir í dag, að nú sé þessi vesæli flokkur að j klofna allur og verða að engu. Örlög hans séu ráðin. Búlganin þá „heiftarleg og ómakleg árás“ að segja frá því? Veit Þjóðviljinn, að það var Tass-fréttastofan rússneska, sem fyrst skýrði frá þessari fregn? Síðan var hún tekin í fréttaskeyti Reuters og birt víðs vegar um heim. Ætlar Þjóðviljinn að reyna að telja íslendingum trú um, að allir þessir aðilar hafi með sjálf- sagðri fréttaþjónustu sinni ver-ið að gera „heiftarlega og ómaklega árás“ á Lúðvík Jósefsson? Væntanlega treystir Þjóðvilj- inn sér ekki til að halda þvílíkri fósinnu fram. En af hverju hefur þá hvorki hann né nokkurt hinna stjórnarblaðanna sagt frá ferða- lagi Lúðvíks? Og hvernig stend- ur á því, að ríkisútvarpið skuli taka þátt í þögninni? Er það af eigin hvötum? Vegna lélegrar fréttaþjónustu? Eða er það fyrir bendingar frá æðri stöðum? En ríkisstjórnin mun ekki kom- ast hjá því að gera grein fyrir ferðum sjávarútvegsmálaráðherr ans. Hvert er hans eiginlega erindi austur til Moskvu? Og hvers vegna mat hann meira að fara þangað nú en að mæta á fundi sjávarútvegsmálaráðherra Norð- urlanda og reyna að vinna þá til stuðnings við okkur í land- helgismálinu? Bulganín sendur í útlegð LONDON, 15. ágúst. — Tass- fréttastofan skýrði frá því í dag, að Bulganin, fyrrum forsætisróð- herra Ráðstjórnarinnar, hefði ver ið leystur frá störfum banka- stjórnarformanns ríkisbankans — og honum hefði verið feiigið nýtt starf. Verður hann sendur frá Moskvu og mun fá formannsem- bætti í efnahagsnefnd Stavropol- héraðs, 800 mílur suður af Moskvu. Bulganin er nú 63 ára. Hann var forsætisráðherra frá febrúar 1955 þar til í marz sl., er Krúsjeff tók við forsætisráðherraembætti jafnframt aðalritarastörfum í kommúnistaflokknum, en báðum þessum embættum gegndi Stalin sem kunnugt er. Þá var Bulganin fengin staða bankastjórnarfor- manns, en nú hefur hann verið sendur burt úr höfuðborginni. I tilkynningu Tass-fréttastof- unnar sagði, að forseti æðsta ráðs ins hefði leyst hann frá störfum Fullvíst þykir, að farþegar og áhöfn hafi vitað hvert stefndi GALWAY, írlandi, 15. ágúst. — Það var þögull hópur manna, sem stóð á hafnarbakkanum í Galway í kvöld og tók á móti nokkrum þeirra skipa, sem tóku þátt í leit- inni að braki úr hollenzku Con- steUation-flugvélinni, sem fórst undali írlandsströnd í fyrrinótt með 99 manns innanborðs. 40—50 skip, fiskiskip, kaupskip og herskip, tóku þátt í leitinni í dag og fundizt hafa 35 lík. Auk þess fundust ýmsir hlutar flug- vélarinnar — þ. á, m. mikill hluti stélsins, hjól og rifrildi úr flug- mannsklefanum auk sæta, svæfla og smávegis af farangri farþega. 12 læknar svo og flugvélasérfræð ingar frá Hollandi eru komnir til írlands til þess að rannsaka fund- inn — og strax verða gerðar til- raunir til þess að slæða brak flug- vélarinnar upp af sjávarbotni. Ýmsar getur eru leiddar að or- sök slyssins. Að svo stöddu er ekki hægt að segja neitt ákveðið því að rannsókn er skammt á veg komin. Talsmaður flugfélagsins hefur látið þá skoðun sína í ljós að ekki sé loku fyrir það skotið að hér hafi verið um skemmdar- verk að ræða — og er verið ao rannsaka líftryggingar hinna látnu til þess að ganga úr skugga um það, hvort einhver kynni að hafa komið vítisvél inn í flugvéi- ina í von um að auðgast á líf-. tryggingu einhvers farþega. Margt bendir til þess, að far- þegar og áhöfn hafi áttað sig á því hvert stefndi — og einnig þykir sýnt, að flugmaðurinn hef- ur ætlað að reyna nauðlendingu á sjónum. Óskiljanlegt þykir hins vegar, að loftskeytamaður flug- vélarinnar hafi ekki reynt að láta vita af því, að hætta var á ferð. Jafnframt telja flugfróðir menn, sem fylgzt hafa með leit- inni og rannsökuðu brakið sem fannst, að flugvélin hafi verið á mikilli ferð, þegar hún kom í sjó- inn, sennilega steypzt — og einn- ig bendir allt til þess að spreng- Framh. á bls. 2 í bankanum, og arftaki hans þar verði A. K. Korovushkin, sem er lítt þekktur og ekki meðlimur miðstjórnarinnar. Efnahagsnefnd sú, sem Bulgan- in er nú skipaður í, er ein af 105, sem settar hafa verið á laggirnar í Ráðstjórnarríkjunum í sam- bandi við áætlun Krúsjeffs um að dreifa skrifstofubákninu í Moskvu út á landsbyggðina. Ljóst þykir, að nú er sömu ráðum beitt við Bulganin og Molotov, Malenkov, Zhukov, Shepilov og Kaganovitj hafa ver- ið beittir á 12 sl. mánuðum. Eirg- inn vafi leikur á því, að Krúsjeff stendur að baki þessum „útlegðar dómum“. Ekki er fyllilega ljóst hvað liggur að baki útlegð Bulganins, en m. a. er sagt, að hann hafi verið óákveðinn í stuðningi sín- um við Krúsjeff, er hann útskúf- aði þeim Molotov, Malenkov, Kag anovitj og Shepilov — og Krús- jeff telji sér nú ávinning að því að fjarlægja hann frá Kreml. Makarios fær að fara til Kýpur, e i LONDON, 15. ágúst. — Macmill- an tilkynnti í kvöld, að Makariosi yrði heimilað að hverfa aftur til Kýpur jafnskjótt og hermdar- verkum yrði hætt á eyjunni og friður kæmist á. Foot, landsstjóri Breta á Kýpur, ritaði Makariosi jafnframt bréf þar sem hann hvatti biskupinn til þess að sýna samkomulagsvilja og taka hönd- um saman við Breta og vinna að Á þann eina háu Kýpurdeilunnar friði á Kýpur. mundi lausn fást. Makarios tilkynnti í kvöld að hann væri andvígur hinum nýju tillögum Macmillans um framtíðarstjórn Kýpur, þær væru óaðgengilegar. Gríska stjórnin mun sömu skoðursar — og tyrkneska stjórnin fellir sig ógjarnan við annað en að eyjunni verði skipt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.