Morgunblaðið - 16.08.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.08.1958, Blaðsíða 8
8 MORGUWBLAÐIÐ Laugardagur 16. ágúst 1958 fluírgiœMaMfo Otg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk. Framkvæmdastióri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. UTAN UR HEIMI Síðasti píslarvottur Austur-Evrópu Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Knstmsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalst.ræti 6 Sími 22480 AsKriftargjald kr 35.00 á mánuði innaniands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. UTSVÖRIN í REYKJAVIK UTSVARSSKRÁ fyrir Reykjavíkurbæ hefur nu verið lögð fram og stend ur kærufrestur yfir. Þegar rætt er um útsvörin, er rétt að gera sér grein fyrir útsvarsstiganum sjálfum, sem er sá grundvöllur, sem notaður er við álagningu út- svaranna. Útsvarsstiginn hefur tekið nokkrum breytingum frá því sem var á sl. ári og má þá nefna það, að ekki er nú lagt á lægri tekjur en 25 þúsund krón- ur í stað 17 þúsund króna tekna áður, sem voru útsvarsskyldar. útsvarsstiginn var svo allur lækkaður á bilinu frá 25 þúsund króna tekjum og upp í 60 þúsund króna tekjur, en eins og nú er orðið, er mjög stór hópur ein- staklinga, sem útsvör eru lögð á samkvæmt útsvarsstiganum einmitt á þessu tekjubili og njóta sérstaklega láglaunamenn og raunar allmiklu stærri hópur góðs af þessari lækkun á útsvars stiganum. Þá var frádráttur sjó- manna aukinn og einnig heimil- aður 50% frádráttur af tekjum, sem konur vinna fyrir utan heimilis. Loks fá einstæð for- eldri og aðrir einstaklingar, sem halda heimili og framfæra skylduómaga sína, dregnar 7500 kr. frá tekjum sínum og auk þess kr. 1733 fyrir hvern ómaga á heimilinu og er hér um nýja reglu að ræða. Til nánari skýringar á því, hvernig lækkunin lýsir sér á hinum lægri tekjum, má geta þess að samkvæmt útsvarsstig- anum 1957 nam útsvar á 25 þús. kr. nettótekjur 1840 krónum, en er nú eftir breytinguna á útsvars stiganum kr. 940.00. Á 30 þús. kr. nettótekjur voru í fyrra lagðar 2690.00 krónur en nú 1870.00 Kr. og a 40 þúsund króna nettótekj- ur voru í fyrra lagðar krónur 4390.00 en nú 3890.00 kr. Þetta eru aðeins lausleg dæmi um það. hvernig lækkun útsvarsstigans kemur niður í einstökum tilfell- um, þegar um einstaklinga er að ræða. Nokkur breyting var einnig gerð á álagningunni hvað varð- ar félög og er þar helzt að geta þess, að 10% lækkun var gerð á veltuútsvari og heimilaður frá- dráttur á ýmsum gjöldum frá heildarveltu áður en veltuút- svarið er lagt á. ★ Eins og öllum er ljóst, hafa orðið gífurlegar hækkanir nú á árinu vegna ráðstafana ríkis- stjórnarinnar og eru þó ekki öll kurl komin til grafar enn. Þegar gengið var frá fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfirstandandi ár, var gert ráð fyrir að hækkunin af völdum þessara ráðstafana næmi 11,8 milljónum eða um það bil 5% af þeirri útsvarsupphæð, sem nú hefur verið lögð á. Ef þessi útgjöld vegna ráðstafana ríkisstjórnarinnar hefðu ekki komið tii, hefði verið unnt að komast hjá þeirri hækkun um 3,8%, sem leggja varð ofan á út- svarsstigann og ennfremur hefði verið hægt að lækka hann enn frekar en gert var. Það er svo augljóst sem verða má, að fjár- hagur Reykjavíkur er ekkerí fyrirbrigði, sem er aðskilið frá öðru, sem í þjóðfélaginu gerist á því sviði og hlýtur að draga mjög dám af þvi, sem er uppi á teningnum hvað varðar al- menna stefnu í fjármálum hjá því opinbera. Afleiðingarnar af þeim hækkunum, sem stofnað er til, hlutu því að leggjast með miklum þunga á Reykjavíkurbæ og koma fram í hærri útsvörum en annars hefðu þurft að vera. ★ Engum er það ljósara en ráða- mönnum Reykjavíkurbæjar, hve útsvarsbyrðin er orðin þung. — Þetta kemur tilfinnanlega við alla, en þó. að sjálfsögðu einna verst við þá, sem lágar tekjur hafa. Það er í samræmi við það, sem reynt hefur verið svo sem frekast er unnt, að lækka út- svarsstigann á hinum lægri tekj- um, eins og bent hefur verið á hér að ofan. Má telja, að ef út- svarsstiginn hefði ekki verið lækkaður, eins og gert var nú á hinum lægri tekjum, hefði verið unnt að komast hjá því álagi of- an á útsvarsstigann, sem grípa varð til, eins og áður var sagt, til þess að ná þeirri upphæð, sem gert var ráð fyrir í fjárhags- áætlun bæjarins. ★ Almenningur skilur afstöðu bæjarfélagsins vel og metur þá viðleitni, sem höfð er til þess að halda útsvörunum niðri, svo sem verða má. Það er ekki líklegt að það fái mikinn hljómgrunn hjá almenningi, þegar Þjóðvilj- inn reynir nú eins og svo fjölda mörg undanfarin ár að vekja tortryggni hjá bæjarbúum ; út af útsvörunum og telja að ( mikill hluti þeirra gangi í það : sem kallað er sukk o'g óráðsía; bæjarfélagsins. Nefnir blaðið1 þar sérstaklega til skrifstofu-1 kostnaðinn. Um það má strax segja, að á árinu 1957 var stofn- uð sérstök nefnd til þess að at- huga skrifstofuhald bæjarfélags- ins og gera tillögur til sparnaðar í því sambandi. Kommúnistar eiga fulitrúa í þessari nefnd og hefur hún haldið marga fundi, en fulltrúi kommúnistanna aldrei mætt. Sýnir það betur en nokkuð annað heilindin í stóryrðum kommúnistanna um sukkið í rekstri bæjarins. Annars er það skemmst að segja, að ekki minna en helmingur allra útgjalda bæj- arins er beinlinis ákveðinn með lögum frá Alþingi. Þess utan eru svo vitaskuld geysimiklar fjár- hæðir til alls konar framkvæmda í þágu bæjarbúa almennt, sem ekki er talinn nokkur vegur að komast hjá. Fer þá að verða heldur litill hluti eftir til þess að eyða að óþörfu og „sukka“ með, eins og Þjóðviljinn talar um. Ef litið er til rekstrar ríkis- ins, þá hafa rekstrarútgjöld þess hækkað miklu meira á undan- förnum árum en hjá Reykjavík- urbæ og talar það líka sínu máli í þessu sambandi. Á það má svo að lokum minna, sem oft hefur verið bent á áður, að núverandi stjórnarflokkar hafa hvað eftir annað fellt til- lögur Sjálfstæðismanna um nýja tekjustofna handa bæja- og sveitafélögum, til þess að unnt sé að létta útsvarsbyrðina svo um munar. Sýnir það betur en nokkuð annað heilindin í því, þegar blöð þessara flokka eru að tala um hina óhæfilegu útsvars- byrði. Þegar til á að taka að lækka hana, þá eru þeir ekki við- mælandi um það. IMRE NAGY, forsætisráðherra hins frjálsa Ungverjalands, sem líflátinn var fyrir nokkru, verð- ur minnzt sem gamals bolsévikka, er tekinn var af lífi, vegna þess að hann gerðist boðberi mannúð- ar í heimi kommúnismans. Nagy barðist með bolsévikkum í rússnesku byltingunni og gerð- ist meðlimur Kommúnistaflokks Rússlands árið 1918 og hélt áfram að vera kommúnisti allt til þess dags, er hann var tekinn af lífi, 62ja ára að aldri. Oft var sagt, að hann væri „ólæknandi draum- óramaður", vegna þess að hann forðaðist að horfast í augu við staðreyndirnar, sem blöstu við í stjórnarkerfi kommúnista, í þeirri veiku von, að hægt væri að koma á kommúnisma á mann- úðlegan og lýðræðislegan hátt. Hin mikla skyssa hans í augum Moskvuvaldsins var, að hann var ófús að fallast á að lúta stjórn Sovétríkjanna. Ókunnugt er, hvar eða hvenær hin leynilegu réttarhöld yfir þeim Nagy Nagy og Pal Maleter, frelsishetj- unni í uppreisninni og varnar- málaráðherra í stjórn Nagys, og líflát þeirra fór fram, en lítill vafi er á því, að verkinu var stjórnað frá Moskvu, á sama hátt og hin djarfa frelsisbylting í nóvember 1956 var bæld niður af rússneskum herjum. Nagy var tvisvar forsætisráð- herra kommúnistastjórnar Ung- verjalands — frá 1953 til 1955 og aftur í fáeina daga í byltingunni 1956. í bæði skiptin leitaðist hann við að auka frelsi fólksins, sem hann stjórnaði, og draga úr of- ríki Moskvuvaldsins í landinu. f bæði skiptin var hann hrakinn úr stjórn með aðstoð rússnesku valdhafanna, sem stjórnuðu ætt- landi hans. Nagy var síðast kjörinn for- sætisráðherra Ungverjalands 24. október 1956, annan dag ung- versku frelsisbyltingarinnar. Þjóðin hafði krafizt þess, að hann tæki aftur við völdum. Ungverski kommúnistaflokkurinn gekk að því í þeirri von, að vinsældir Nagys myndu stuðla að því að binda endi á hina andrússnesku uppreisn. En fyrstu fjóra dagana eftir að hann tók við embættinu, var honum í raun og veru haldið sem fanga í aðalbækistöðvum flokksins. Þegar hann var látinn laus, varð hann vM kröfum þjóðar- innar og gerðist leiðtogi hennar. En hann átti ekki eftir að kemba hærurnar í forsætisráð- herrastólnum. í dögun 4. nóv, þegar Sovétherir höfðu hafið öfluga skyndiárás ó Búdapest, ávarpaði Nagy þjóð sína í út- varpi í síðasta sinn sem forsætis- ráðherra og sagði: „í dögun í morgun réðust sovézkar hersveit- ir inn í höfuðborg okkar, aug- sýnilega í þeim tilgangi að koll- varpa hinni löglegu lýðræðis- stjórn landsins". Fáeinum mínútum síðar var lesin upp áskorun í Búdapesí- útvarpinu frá Nagy forsætisráð- herra til Maleters hershöfðingja um að hverfa aftur til varð- stöðvar sinnar. En svo fór, að ekkert svar kom — Nagy vissi ekki, að rússneski leynilögreglu- foringinn Ivan Serov hafði tekið Maleter til fanga á miðnætti, eftir að Rússar höfðu boðið hon- um að mæta til viðræðna um brottflutning Rauða hersins frá Ungverjalandi. En það átti líka fyrir Nagy að liggja að verða fyrir slíkum svik- um, enda þótt það tæki Rússana nokkra daga að koma því í kring. Hinn 4. nóvember, þegar augljóst var orðið, að uppreisnarmenn myndu bíða ósigur og sovézkir skriðdrekar höfðu yfirbugað hina löglega skipuðu stjórn hans, leit- aði forsætisráðherrann athvarfs í sendiráði Júgóslavíu í Búda- pest. Rússarnir og hinir ung- versku skósveinar þeirra gerðu allt hvað þeir gátu til að lokka hann út. Janos Kadar, sem tók við forsætisráðherraembættinu af Nagy, skrifaði júgóslavnesku stjórninni og sagði, að ungverska stjórnin hefði „ekki í hyggju að framkvæma neinar refsiaðgerðir gegn Imre Nagy og félögum hans vegna verka þeirra“ og gætu þeir því „óhindraðir snúið heim til sín“. Þegar Nagy og félögum hans hafði þannig verið heitið griðum, fóru þeir ó brott úr sendi róðinu næsta dag. En ekki voru þeir fyrr stignir út úr sendiráðs- byggingunni en rússneskir her- menn gripu þá og fluttu þá nauð- uga til Rúmeníu. Talið er, að þar hafi Nagy verið haldið, þang- að til réttarhöldin fóru fram, sem leiddu til lífláts hans. En hvers vegna var það, að ungverska þjóðin treysti Nagy, sem verið hafði kommúnisti ævilangt, og trúði því, að hann gæti leitt hana úr myrkrum ánauðar árið 1956? Á fullorðins- árum dvaldist hann um langt skeið í Sovétríkjunum eins og títt er um leiðtoga A-Evrópulanda. Á fyrstu árunum eftir stríð gegndi hann veigamiklu starfi í Ungverjalandi við framkvæmd jarðabótastefnu kommúnista, og hann var jafnframt hægri hönd ungverska einræðisherrans og Stalinistans Matyas Rakosis við framkvæmd hinnar svonefndu „salami-stefnu“, sem fólst í því að uppræta alla helztu andkomm- únistaflokka landsins með því að sneiða af þeim smátt og smátt eins og af pylsubút. En árið 1948 var Nagy þegar farinn að gagnrýna þau bola- brögð, sem Rakosi beitti til þess að koma á samyrkjubúskap, og hina ómannúðlegu herferð gegn bændum, Þegar Nagy tók við af Rakosi sem forsætisráðherra, hinn 4. júlí 1953, beitti hann sér fyrir „nýrri stefnu“, þar sem lögð var meiri áherzla á framleiðslu mat- væla og neyzluvarnings og dreg- ið úr iðnvæðingarkapphlaupinu. Hann sagði samyrkjubændum, að þeir gætu yfirgefið samyrkju- búin, ef þeir vildu — og innan sex mánaða var um það bil helm- ingur þeirra á burt. Hann lét loka fangabúðunum og dró úr veldi leynilögreglunnar. En í apríl 1955, þegar Sovét- ríkin sneru baki við „nýju stefn- unni“, hröklaðist Nagy úr for- sætisráðherrastólnum, og var hann sagður hafa þverskallazt við að framkvæma skipun Sovét- stjórnarinnar um að beina aftur allri orku landsmanna að þunga- iðnaði. Tæpu ári síðar — í janúar 1956 — var Nagy rekinn úr Kommúnistaflokknum og sakað- ur um að „aðhyllast skoðanir and-marxista“ og vera „títóisti, þjóðernissinni og hægrisinni", en sjö mánuðum síðar, aðeins tveim- ur mánuðum áður en frelsis- byltingin hófst, var hann tekinn aftur í flokkinn. Svo fór þó, að tveimur árum síðar var hann líflátinn fyrir sumar af þessum sökum. Paul Ignotus, ungverskur rit- höfundur, sem flúði til hins frjálsa heims, þegar byltingin hafði verið bæld niður, segir m. a. í skrifum sínum um Nagy, að „skoðanir hans, persónuleiki og jafnvel útlit voru mótuð af þeirri stétt þjóðfélagsins, sem honum fannst standa næst sér, ungversku bændastéttinni. Hann var gildvaxinn maður og hæglát- ur, heilbrigður og góðmannleg- ur — og hófsmaður að eðlis- fari“. Eftirfarandi setning er úr greinargerð Nagys, „Imre Nagy um kommúnisma“, sem smyglað var til Vesturlanda og gefin út í fyrra. Þessi orð Nagys hefðu eins vel getað átt við um rétt- arhöldin, sem hin ungverska leppstjórn lét halda yfir honum, enda þótt þau séu skrifuð 1955. Greinin hljóðar svo: „Það er ekki samræmanlegt al- mennu siðgæði, að æðstu stöður landsins . séu skipaðar mönnum, sem stjórna og setja á svið sýnd- arréttarhöld yfir fjölda fólks, mönnum, sem bera ábyrgð á pyndingum og dauða saklausra manna ....“. Rússar dæmdu Nagy segir Voroshilov — Nagy var fifl. Okkar menn dæmdu hann — e. t. v. of hart, því að hann var venjulegt fífl. Þegar ég var í Ungverjalandi eftir stríðið hjálpaði Nagy, sem kallaði sig kommúnista, okkur ekki hið minnsta. Þetta sagði Voroshilov. for- seti Ráðstjórnarríkjanna, í stuttri ræðu, sem hann flutti í ungversku sýningarhöllinni á heimssýningmnni í Brússell, en Voroshilov hefur síðustu dagana verið að skoða sýning- una. Þetta er í fyrsta sinn, sem einn af leiðtogum Ráðstjórn- arinnar viðurkennir, að það hafi verið Rússar, en ekki-Ung verjar, sem dæmdu Nagy. En sá fyrirsláttur Voroshilovs, að Nagy hafi verið „fífl“ hefur enga þýðingu — og engin áhrif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.