Morgunblaðið - 16.08.1958, Síða 6

Morgunblaðið - 16.08.1958, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 16. ágúst 1958 Lersner von Papen Boeselager Roosewelt Roosewelt torseti svaraði ekki Þá hefði veraldarsagan tekið aðra stefnu .44 Frásögn Ceorge H. Earte, sendimanns Roosewelts forseta SÍÐAN skýrir Earle frá því, að dag nokkurn hafi Lersner hringt til sín. Var auðheyrt á röddinni að honum var mikið niðri fyrir. Kvaðst hann nú geta lagt fram ákveðna áætlun, hvernig hagað skyldi málum og kom þeim Eaile og Lersner saman um að hittast um kvöldið á sama stað og áður. Það kom í ljós að von Papen var nýkominn frá Berlín og hafði hann komið með þessar tillögur til Istanbul. En þær voru í stór- um dráttum á þessa leið: Hitler skyldi tekinn fastur Allstór flokkur mjög áhrifa- mikilla manna í Þýzkalandi hafði svarizt í fóstbræðralag um að losa landið undan ofurvaldi nazista. Meðal samsærismanna voru Ludwig Beck, fyrrverandi yfirmaður herforingjaráðs þýzka hersins, Wolf Heinrich von Hell- dorf greifi, lögreglustjóri í Ber- lín, Gottfried von Bismarck fursti, stjórnarráðsmaður í Berlín og háttsettur herforingi, von Boeselager fríherra. Boeselager skyldi láta umkringja aðalstöðvar Hitlers í Austur-Þýzkalandi og .réðast á þær. Skyldi þá taka Hitl- er höndum og nánustu aðstoðar- menn hans. Siðan skyldu þeir hafðir í haldi og afhentir Banda- mönnum við friðarsamnmga. Beck og þeir hinir skyldu taka að sér forustu allra herja Þjóð- verja, sem þá stæðu uppi. Síðan skyldu herforingjarnir bjóða Bandamönnum skilyrðislausa upp gjöf með þeim fyrirvara að þeir hindruðu Rússa í því að fara inn í Mið-Evrópu eða lönd, sem Þjóðverjar höfðu náð á vald sitt en það eru einmitt þau lönd, sem nú eru orðin að lepp- ríkjum Rússa. Samsærismenn vildu fá skriflega staðfestingu frá Bandamönnum um, að fyrirvari þeirra væri samþykktur og lögðu þeir mesta áherzlu á, að Roose- welt skuldbindi sig í því sam- bandi: Earle segir í greininni: Allt frá þeim morgni, þegar Canaris barði á dyr mínar, var ég sannfærður um að nú vissi ég leið út úr styrjöldinni. Kommún- istarnir, sem að mínu áliti voru sízt betri en nazistar, ýrðu hindraðir í því að streyma inn í Vestur-Evrópu. Þá væri líka hægt að koma í veg fyrir til- gangslausar blóðsúthellingar og þjáningar. Eg lofaði Lersner að gera allt sem unnt væri. Innan 12 stunda var ný skýrsla enn komin á leið til Roosewelts. í þetta skipti var það ekki póst- sÞrifar úr daglega lifinu Mjólkurlaus með barn ASUMRIN er oft kvartað undan veitingahúsunum okkar úti á landi, enda er víða ýmsu ábóta- vant, þó sum uppfylli þær kröf- ur sem gera verður til veitinga- húsa. Undanfarið hafa Velvakanda borizt nokkur bréf með kvörtun- um vegna þjónustu á veitinga- húsinu á Laugarvatni. Eitt þeirra hljóðar svo: „Við hjónin ókum austur í sveitir einn daginn með tveggja ára barn okkar. Ferðinni var heitið að Laugarvatni, því þar vissum við að er greiðasala. Við komum þangað undir kl. 2, en gátum engar veitingar fengið því brytinn svaf, að því er okkur var tjáð. Nú datt okkur í hug að bíða þess að maðurinn vaknaði, og synda á meðan, en laugina fengum við ekki að fara í aí því við vorum ekki fastir hótelgestir. Klukkan 3.15 gátum við svo feng ið að kaupa kaffi og með því handa okkur hjónunum, en mjólk handa barninu fengum við ekki. Nú hafði okkur ekki dottið í hug, að ekki væri hægt að kaupa mjólkurglas á greiðasölustað uppi í sveit, og höfðum hana því ekki meðferðis úr bænum. Áður en við yfirgáfum staðinn spurðum við hótelstjórann hvort Lyngdalsheiði mundi fær bifreið- um og fengum það svar, að við skyldum bara fara þá leið og hafa svo bílinn á verkstæði í mánuð á eftir. Þetta voru síðustu orða- skiptin sem við áttum við nokk- urn mann á þeim stað. Við vild- um gjarnan koma þessari sögu okkar á framfæri, til þess að þaö komi ekki fyrir fleiri að vera á ferðinni þarna mjólkurlausir með lítil börn.“ Enn um danslög KONA nokkur hringdi til Vel- vakanda og langaði til að leggja orð í belg, varðandi dans- lögin í útvarpinu. Hún kveðst nú orðið sjaldan heyra í útvarpinu danslög, sem sungin séu með ís- lenzkum textum. Laugardags- kvöldið 2. ágúst segist hún ekki hafa heyrt eitt einasta lag með íslenzkum texta allt kvöldið. Á sunnudagskvöldið hlustaði hún ekki allan tímann, því hún þurfti að skreppa frá, en meðan hún hlustaði var leikið eitt lag, sem Erla Þorsteinsdóttir söng. Allt hitt voru erlend lög með erlend- um sönglagatextum. Finnst henni að ekki megj svo til ganga, að danslögum með ís- lenzkum textum sé stungið al- gerlega undir stól. Vatnið bindur göturykið IÞURRKUNUM í sumar hef- ur verið óvenjulegt ryk í þeim hverfum, þar sem götur eru ekki enn mal- bikaðar. Fíngerða rykið rýk- ur upp, í hvert sinn sem bill ekur um götuna. Þetta er að sjálfsögðu slæmt, einkum þar sem börn eru að leik úti allan daginn. Tilefni þess að ég fer að rninn- ast á þetta er það, að daglega sé ég íbúana í húsi við eina slíka götu, bregða sér út með garð- slöngu um hádegið og sprauta á götuna fyrir framan sitt hús. Þetta er ekki nema fimm mín- útna verk, og rakinn bindur ryk- ið á götunni, svo það fer ekki upp í vitin á krökkunum á með- an. Þetta ættu fleiri að gera. flugvél utanríkisráðuneytisins, sem skýrslan fór með, heldur fór hún á vegum hers og flota. Ég vildi ekkert eiga á hættu og taldi öruggara að skýrslan kæmist í réttar hendur með slíkri ferð. Fyrir öllu var að öðru leyti vel séð. Von Papen hafði umráð yfir flugvél og þegar samþykki Roosewelts lægi fyrir skyldi ég fara á lítinn einkaflugvöll fyrir utan Istanbul. Lersner stakk upp á að ég skyldi ekki vera i ein- kennisbúningi mínum, ,heidur her Sibari grein mannabúningi, sem ég hafði rétt til að bera. Yfir hermannabún- ingnum skyldi ég bera regnkápu, eins og sjóliðsforingjar nota og mundu þá tignarmerkj mín ekki sjást. Ég hlaut að gera ráð fyrir því, að ef til vill kæmi ég aldrei aftur. Flugið til Berlínar mundi taka 6 klukkustundir en síðan skyldi ég hitta Helldorf og Bis- marck á tilteknum stað norðar- lega í Berlín. Þar skyldi ég afhenda þeim tveim hina skrif- uðu tryggingu, sem beðið var um. Það var hið eina, sem þeir biðu eftir. Innan fárra stunda mundi Boeslager síðna taka aðalstöðvar Hitlers og þar með var leikurinn hafinn. Síðan liðu margir dagar og Lersner spurði sifellt, hvort nokk uð fréttist. Flugvélin beið — allt var tilbúið, ef eitthvað gerðist. Ég sat við skrifborð mitt og mér leið verr og verr m°ð hverjum deginum. Ekkert svar barst við neinu af því, sem ég hafði skrifað til Washington. Svarið, sem barst Loks kom svar frá forsetanum og var það stutt: „Allar áætlanir varðandj mögulegan frið verða að leggjast fyrir æðsta yfirmann Bandamanna í Evrópu, Eisen- hower hershöfðingja." Á diplomatisku máli þýddi þetta endanlegt nei. Jafnvei þó að við hefðum þegar í stað lagt málið fyrir Eisenhower, þá hefði svo þýðingarmikið mál þegar far ið beint frá honum til Roosewelts forseta. Svar forsetans þýddi þess vegna það, að hann vildi ekkert skipta sér af þessum tilraunum. Ég reyndi ekki til þess að út- skýra þetta fyrir Lersner, það hefði verið tilgangslaust. Lok þessarar sögu eru mér enn eins og martröð, skrifar Earie. í maí 1944 flaug ég til Washing- ton. í fundaherbergi nokkru í Hvíta húsinu hitti ég flotamála- íðherrann, James Forrestal. Það var 5 árum áður en hann framdi sjálfsmorð, sem mjög var umtal- að í heimsfréttunum. Ég skýrði honum frá áhyggjum mír •’T> varðandi Rússland. „Guð minn góður, George“, sagði hann, „þú, ég og William Bullit erum þeir einu af þeim, sem hafa samband við Roose- welt, og ekki lokum augunum fyrir því, hvað rússnesku komm- únistarnir raunverulega eru“. Hjá Roosewelt forseta Þegar ég svo hitti forsetann, leit hann mjög vel út og virust vera fullur af trúnaðartrausti gagnvart framtíðinni. „Þú skalt alveg hætta að gera þér nokkrar áhyggjur, George", sagði hann, „við undirbúum nú innrás í Nor- mandí, og hún getur ekki mis- tekizt. Þýzkaland hlýtur að gef- ast upp innan fárra mánaða“. „Herra forseti", svaraði ég, „hin raunverulega hætta stafar ekki frá Þýzkalandi. Hún stafar frá Rússlandi!" F. D. R. brosti. „George, Rúss- land er þjóðland 180 milljóna manna, sem tala 120 mismunandi tungur og mállýzkur. Eftir stríðið mun það springa í þúsund mola, rétt eins og þegar skilkarl hreklc- ur upp af standinum, vegna of mikils snúningshraða." Sendur í „útlegð“ í febrúar 1945 hafði ég ekkert lengur að gera í Istanbul, svo eg bað um að ég yrði fluttur til og í marzmánuði var ég kominn til Bandaríkj anna. Ég ætlaði mér að ferðast um Ameríku til þess að segja þjóðinni sannleikann um Rússland. Ég vildi vara hír.n frjálsa heim við hættunum, sem stöfuðu af því að gera eitt eða annað bandalag við kcmmúnista. Forsetinn átti nú ekki eftir að Framh. á bls. li Rústir í þýzkri borg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.