Morgunblaðið - 26.08.1958, Page 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. ágúst 1958.
Nær eingöngu bræðsiusíld barst
á land í síðustu viku
í SÍÐUSTU viku varð síldarafl-
inn alls 25.894 mál og tunnur, en
síldin fór að iangsamlega mestu
lyti til bræðslu. Bræðslusíldin er
leyti til bræðslu. Bræðslusíldin er
nú aðeins rúml. 200 þús. mál og
saltsíldaraflinn rúmlega 288 þús.
tn. í gær birti Fiskifélag íslands
vikuyfirlit og segir þar frá þessu,
og þar er þess einnig getið að
fjöldi skipa sé nú hættur veiðum.
Þar kemur fram, að á laugar-
dagskvöldið var Snæf ell f rá
Akureyri orðið aflahæsta skipið,
en fast á eftir, með 60 málum
minna var Víðir II úr Garði.
Bæði eru skipin með á 9. þúsund
mál. — Bæði skipin hafa einnig
landað síðan austur á Seyðis-
firði og hefur Víðir II nú náð for
ustunni aftur. Hann hefur verið
hæsta skip allt frá byrjun síldar-
vertíðarinnar. Eftir löndunina á
Seyðisfirði, er Snæfellið með
8684 mál og tunnur, en
Víðir með 8882. Önnur hæstu
skip síldveiðiflotáns eru Björn
Jónsson, Eskifirði með rúmlega
7000 mál og tn., Grundfirðingurfyrra.
II. með tæp 7500, en hann hefur
síðan landað 203 málum á Seyð-
isfirði, þá er Haförn úr Hafnar-
firði með um 7000 mál og tunn-
ur, Jökull, Ólafsvík 6916, og tog-
arinn Þorsteinn þorskabítur
6885.
Af yfirliti Fiskifélagsins sést
að síldarsöltunin er rúmlega
141,000 tunnum meiri en í fyrra,
en bræðslusíldin er aftur á móti
miKlum mun minni, og er aflinn
nú um 14.000 málum minni en í
Unglingar í hœttu á
íslandsmiðum!
Höfn , 25. ágúst.
Einkaskeyti til Mbl.
BLAÐIÐ Information skýrir
frá því í dag, að brezkir tog-
araeigendur hafi sent öllum
togurum á íslandsjniðum fyr-
irmæli í útvarpi um að senda
heim fyrir 1. september aila
unglinga, þar sem búast megi
við árekstrum. Margir togar-
anna hafa innanborðs ungl-
inga, sem vinna léttastörf eða
eru í sumarleyfi.
Landsstjórn Grænlnnds mun
krefjnst 12 mílnn Inndhe'gi
KAUPMANNAHÖFN, 25. ágúst
— NTB-Reuter — Samkvæmt
Ef bandamenn okkar
//
//
skjóta á okkur ....
Blaðamannafundur í Bonn um landhelgina
BLAÐAMANNAFUNDUR var anríkisráðuneytinu sagði hins veg
haldinn í Bonn á laugardaginn á
vegum íslenzka sendiráðsins þar.
Danska blaðið Social-Demokrat-
en hefur þessi ummæli eftir tals-
manni íslands á fundinum: Ef
bandamenn okkar skjóta á okk-
ur, erum við ekki lengur banda-
menn. Berlingske Tidende birtir
svipuð ummæli.
Social-Demokraten og Poletik-
en skýra svo frá, að talsmaðurinn
hafi verið spurður hvort ísland
myndi vilja athuga að tekið yrði
upp kvótakerfi varðandi alþjóð-
legar fiskveiðar á íslandsmiðum.
Hann svaraði: Það veit ég ekki,
en ég held, að við myndum ræða
þennan möguleika, ef við værum
spurðir. Hingað til hefur samt
ekkert ríki stungið upp á slíku
kerfi við okkur. Það er ekki talað
við okkur, því að við erum lítil
þjóð. Þess í stað vilja menn beita
okkur valdi til að fá okkur til að
breyta afstöðu okkar.
Fréttamaður Morgunblaðsins
reyndi margsinnis í gær að ná tali
af utanríkisráðherra til að spyrja
hann um þennan blaðamanna-
fund í Bonn. Tilraunirnar reynd-
ust árangurslausar. Henrik Sv.
Björnsson, ráðuneytisstjóri í ut-
Reynslan gegn æsk
unni á Langardals-
vellinum í kvöld
í SAMBANDI við Unglingadag
K.S.Í. hefur síðastliðinn tvö ár
verið efnt til úrvalsliðsleikja, og
hafa þar áttst við gömul lands-
lið og unglingalandslið, eða úr-
valslið unglinga frá Reykjavík
og utanbæjarmanna.
Nú kemur landsliðið, sem færði
okkur fyrsta sigurinn í landsleik
í knattspyrnu, saman á ný og
leikur gegn úrvalsliði unglinga á
Laugardalsvellinum í kvöld.
Meðal leikmanna þess eru m.a.
þrír úr landsliðsnefndinni.
Verður fróðlegt að sjá hvernig
lið þetta nær saman gegn
„gömlu“ mönnunum. Fyrir leik-
inn leika 3. flokkar Víkings og
Þróttar og hefst sá leikur kl. 7,30.
ar við fréttamanninn, að þangað
hefðu éngar fréttir borizt um
þennan fund og lægi þ'ví ekkert
fyrir um málið.
fréttum Ritzaus Bureau í Kaup-
mannahöfn hefur landsstjórnin á
Grænlandi ákveðið að krefjast
12 mílna landhelgi kringum allt
landið, ef íslendingar og Fær-
eyingar gera alvöru úr að færa
út landhelgi sína. Gengið verður
frá sérstakri yfirlýsingu um mál-
ið af hálfu hins opinbera, og í
þeirri yfirlýsingu verður lögð
áherzla á, að landsstjórnin sé al-
gerlega sammála stefnu dönsku
stjórnarinnar og sé henni þakk-
lát fyrir að hafa bent öðrum
fiskveiðiþjóðum á þá staðreynd,
að Grænlendingar séu mjög háð-
ir fiskimiðum sínum.
Yfirlýsing brexka utan-
ríkisráðuneytisins um
landhelgismálið
BREZKA sendiráðið hefur sent
blaðinu yfirlýsingu, sem brezka
utanríkisráðuneytið gaf út á laug
ardag. Fer hún hér á eftir í laus-
legri þjðingu:
Vissar röksemdir hafa mjög ný
lega verið settar fram af fulltrúa
íslands, sem að áliti ríkisstjórnar
hennar hátignar eru áróðurkennd
ar og villandi.
Ríkisstjórn hennar hátignar
leggur sérstaklega áherzlu á, að
rétt landhelgislína skv. al-
þjóðalögum sé 3 mílur og að tak-
mörk landhelginnar séu hin
sömu og sérstakrar fiskveiðilög-
sögu, nema hlutaðeigandi ríki
hafi komið sér saman um annað.
Það er ekki rétt að halda því
fram, að alþjóðalaganefndin hafi
viðurkennt, að hvert riki hefði
heimild til að stækka landhelg-
ina í allt að 12 mílur. Alþjóða-
laganefndin lýsti yfir: „Nefndin
gat ekki tekið ákvörðun um þetta
efni og lét í ljós þá skoðun, að
málið skyldi leitt til lykta af al-
þjóðlegri ráðstefnu stjórnarer-
indreka með fullu umboði“ F.áð-
stefnan, sem hér var stungið upp
á, var Genfarráðstefnan um rétt-
arreglur á hafinu.
Genfarráðstefnan, þar sem 85
ríki áttu fulltrúa, viðurkenndi
ekki 12 mílna landheigi eða fisk-
veiðilögsögu. Ýmsar tillögur, sem
byggðar voru á 12 mílum, komu
fram, en þær fengu ekki þann
meirihluta, % atkvæða, sem kraf
izt var til að þær næðu samþykki.
Mest fylgi á ráðstefnur.ni fékk
tillaga Bandaríkjanna þess efnis,
að stærð landhelginnar skyldi
vera 6 mílur og að fiskveiðilög-
Vilhjálmur Einarsson
hlaut bronsverðlaun
STOKKHÓLMI, 24. ágúst. — Vil
hjálmur Einarsson brást ekkr
vonum íslendinga í þrístökks-
keppninni á Evrópumeistaramót-
inu. Hann stökk 16 metra og varð
þriðji í röðinni. Vilhjálmi gekk
ekki vel fyrst framan af og fyrir
síðasta stökkið var hann í 5. sæti
með 15,35 m. Er hann eini ís-
lendingurinn, sem komst upp á
verðlaunapaúinn að þessu sinni.
Gunnar Huseby átti við ofur-
efli að etja í kúluvarpinu og náði
ekki sínu bezta.
saga skyldi vera viðurkennd 6
mílur lengra út. Þó skyldu ríki
hafa áframhaldandi rétt til veiða
innan hinna ytri 6 mílna, ef þegn
ar þeirra hefðu stöðugt veitt á
þessum hafsvæðum, svo sem
brezk skip hafa gert við ísland
í margar kynslóðir. Þessi tillaga
Bandaríkjanna, sem stjórn henn-
ar hátignar studdi, fékk 45 at-
kvæði gegn 33, en 7 sátu hjá.
Engin önnur tillaga fékk fylgi
helmings þeírra þjóða. sem full-
trúa áttu á Genfárráðstefnunni.
Ráðstefnan mælti með því, að
Allsherjarþingið skyldi taka til
athugunar að kalla saman aðra
ráðstefnu til að gera frekari til-
raun til að komast að alþjóðlegu
samkomulagi.
Ríkisstjórn hennar hátignar
hefur aldrei viðurkennt 12 mílna
takmörk, hvorki fyrir landhelgi
né fiskveiðileiðsögu, nokkurs
staðar í heiminum. Það er ekki
rétt að halda því fram, að ríkis-
stjórn hennar hátignar hafi við-
urkennt 12 mílna mörkin, sem
stjórn Sovétríkjanna tók upp.
Beinn fyrirvari um rctt varðandi
takmörk landhelginnar var gerð-
ur, þegar fiskveiðasamningurinn
milli Bretlands og Sovétríkjanna
var undirritaður 25. maí 1956. Að
því er varðar röksemdir, sem
snerta það, að Island sé háð fisk-
veiðunum við strendur landsins
og nauðsyn þess að koma í veg
fyrir ofveiði þar og tryggja hæfi-
lega vernd, , er þess að geta, að
ríkisstjórn hennar hátignar hef-
ur oftsinnis boðið íslenzku stjórn
inni að taka ásamt öðrum hlutað-
eigandi ríkisstjórnum þátt í við-
ræðum um samkomulag sem
myndi tryggja framtíð fiskveið-
anna kringum ísland og taka til-
lit til, að Islendingar eru háðir
fiskimiðum sínum. Þetta hefur
ríkisstjórnin gert með hliðsjón
af því, sem samþykkt var á
Genfarráðstefnunni. Enda þótt
íslenzka ríkisstjórnin hafi ekki
enn sem komið er lýst sig reiðu-
búna að eiga hlut að slíku sam-
komulagi, heldur ríkisstjórn
hennar hátignar áfram að athuga
allar leiðir til að finna lausn fyr-
ir lok þessa mánaðar, sem allar
viðkomandi ríkisstjórnir geta
fallizt á.
Við mundum ekki .virða
alþjóðadómsfólinn,
— segir fulltrúi brezkra togaraeigenda
RÍKISÚTVARPIÐ flutti þessa
fregn í gærkvöldi:
Fréttaritari frá danska blaðinu
Vestkysten, sem staddur er í
Grimsby, hefir átt tal við fulltrúa
togaraeigenda þar. Fréttaritarinn
spurði fulltrúann m.a. þessarar
spc-ningar: f blaðinu „Manchest-
er-Guardian“ hefir verið minnzt
á alþjóðadómstólinn í Haag, sem
möguleika á lausn þessa máls,
hvað halda Grimsby-menn um
það?
Fulltrúi togaraeigenda svaraði
þessu til: Við getum aðeins sagt,
að ef úrskurður Haag-dómstóls-
ins gengi á móti okkur, mundi
hann gera meira ógagn en gagn,
vegna þess að togararnir mundu
ekki hlíta honum.
100 brezkir togarar
komnir undir íslands-
strendur
UM BORÐ í brezka togaranum
„Coventry City“, 25. ágúst. Reiut-
er (George Bishop). — Þessi tog-
ari, sem er 546 smálestir, ásamt
um 100 öðrum brezkum togurum,
sem sigla á íslandsmið samkvæmt
innsigluðum skipunum frá brezka
flotanum, kom til hinna köldu
norðlægðu miða í dag.
Togararnir eru frá þremur ensk
um hafnarborgum og eru á leið
til miða, sem íslenzk stjórnar-
völd hafa lýst bannhelg fá 1.
september.
Skipstjórinn á þessu skipi, Ivan
Barss, 52 ára gamall og fæddur
í Kanada, hefur innsigluð fyrir-
mæli um hvað hann eigi að gera
1. september, þegar fimm herskip
úr verndarflota Breta munu vera
til taks og fylgja togaraflotanum
á miðin til að verja hann gegn
hvers konar íhlutun af hálfu
hinna átta litlu skipa úr strand-
gæzlu íslands.
Áhöfnin á „Coventry City“ er
19 menn. Þeir hafa sagt mér að
þeir búizt við „dálítilli tilbreyt-
ingu“ í þessari ferð. Togararnir
eru venjulega úti 19 til 23 daga
í einu, og fara 8 þessara daga
í siglingu til og frá miðunum.
Togaraskipstjórar rœddu
við togaraeigendur áður
þeir lögðu af stað
en
GRIMSBY, 25. ágúst — NTB-
Reuter — Frá því var skýrt í
Grimsby í dag, að togaraskip-
stjórarnir, sem fóru til íslands-
miða í dag, hafi átt langan fund
við togaraeigendurna áður en
þeir lögðu upp. Voru skipstjór-
unum þá fengin í hendur inn-
sigluð fyrirmæli brezku flota-
stjórnarinnar. Um 150 brezkir
togarar eru nú á leið til íslands-
miða, og er haft fyrir satt að
meirihluti þessara skipa muni
hiklaust virða að vettugi bann
íslenzkra stjórnarvalda við veið-
um innan 12 mílna fiskveiðiland-
helgi.
Alls hafa sex ríki lýst því yfir,
að þau muni aðeins virða núver-
andi 4 mílna landhelgi Islands.
Þessi ríki eru Bretland, Frakk-
land, Vestur-Þýzkaland, Belgía,
Holland og Spánn.
NESKAUPSTAÐ, 25. ágúst. —
Um helgina hafa landað hérna:
Kambaröst 600 mál, Sæfaxi 150,
Þráinn 200, Von er á Grundfirð-
ing II með allmikla síld. Síldin
hefur veiðzt út af Glettinganesi.
Fréttir hafa borizt af að bátar séu
í mikilli síld við Papey, en síldin
er smá og erfið viðfangs. Hafa
margir bátar beðið um aðstoð.
— Formósa
Framh. af bls. 1
árás á eyjarnar. Froskmenn
kommúnista reyndu að komast á
land á Tatan-eyju, en þeir voru
hraktir aftur í sjóinn.
Sjöundi floti Bandaríkjanna,
sem var dreifður víða um Kyrra-
hafið, hefur verið kvaddur sam-
an. Ennfremur hefur flotadeild-
um við Japan, Hawaii og Filipps-
eyjar verið stefnt til Formósu.
Japanar uggandi
f Tókýó létu starfsmenn land-
varnarráðuneytisins í ljós miklar
áhyggjur vegna þessa ástands.
Hernaðarleiðtogar Japans munu
eiga ráðstefnu á miðvikudaginn
við æðstu herforingja Bandaríkj-
anna í Austur-Asíu, þeirra á með-
| al Harry D. Felt flotaforingja,
yfirmann bandaríska flotans á
Kyrrahafi.
Wallace Beakley flotaforingi,
yfirmaður sjöunda flotans, sagði
í dag að flotaæfingar Bandaríkja
manna og þjóðernissinna mundu
fara fram við Fang Liao á Suður-
Formósu í næstu viku.
Heilög skylda!
Blöðin í Peking réðust í dag á
Bandaríkjamenn fyrir ögrun við
kínversku stjórnina við strendur
meginlandsins. Þau bæta því við,
að bandarískar flugvélar hafi
hvað eftir annað farið í könnun-
arflug inn yfir meginlandið.
„Sjöundi flotinn getur ekki fót-
um troðið kínversku þjóðina. Það
er heilög skylda okkar að frelsa
Quemoy, Matsu og Taiwan (Form
ósu)“, segir „Frelsisblaðið" í
Peking.
Öll blöðin í Peking lögðu á-
herzlu á, að aðgerðir kommún-
ista væru fyrst og fremst í hegn-
ingarskyni, en ekkert þeirra gaf
í skyn að hér væri um að ræða
undirbúning allsherjarárásar.