Morgunblaðið - 26.08.1958, Page 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
í>riðjudagur 26. ágúst 1958.
.iiistMafrife
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastióri: Sigíus Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsxngar: Arni Garðar Krxstinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innarxlands.
t lausasölu kr. 2.00 eintakið.
TÍMINN HVERFUR FRÁ ÞÖGN
TIL ÓSANNINDA
TÍMINN hefur nú hafið af-
sakanir á ferðalagi Lúð-
víks Jósefssonar austur
til Moskvu. Sú viðleitm var hafin
í forystugrein blaðsins sh föstu-
dag. Næst á eftir því að vikið
var að þingmannaförinni til Rúss
lands fyrr í sumar, segir blaðið:
„Þegar Lúðvík Jósefsson bra
sér nokkru síðar til Sovétríkj-
anna vegna tilmæla .síldarútvegs-
nefndar, sem vildi seija pangað
meiri saltsíld, var margheimtuð
skýrsla af ríkisstjórnmni og látið
álíka æðislega og verið væri að
selja landið“.
Þessa afsökunarfálms Tímans
var ekki gætt í Morgunblaðmu,
þegar þar var sl. sunnudag vikið
að þögn Tímans um þessi efni,
og er sjálfsagt að leiðrétta það.
Á sunnudaginn heldur Tíminn á-
fram vörn sinni fyrir Lúðvík:
„Hafi einhver maður brugðið
sér til Sovétríkjanna, hefur Mbl.
krafist um það skýrslu þegar í
stað, eins og þar væri einhver
stórháski á ferðum. Allt minnir
þetta á baráttuaðferðir McCart-
hys á mestu blómaárum hans“.
★
Úr því að Tíminn hefur ekki
annað fram að færa um Moskvu-
ferð sjávarútvegsmálaráðherrans,
hefði blaðinu verið sæmra að
halda þögn sinni áfram, því að
nú hefur Tíminn flúið úr skjóli
þagnarinnar í fang ósannindanna.
Síldarútvegsnefnd bar engin
tilmæli fram um för sjávarútvegs
málaráðherra til Rússlands. Það
var fyrst eftir að nefndin hafði
haft fregnir af því hjá rússneska
sendiráðinu í Reykjavík, að sjáv-
arútvegsmálaráðherra Islands
væri staddur í Moskvu, að hún
vék að því í skeyti til íslenzka
sendiherrans í Moskvu, að hann
hefði samráð við sjávarútvegs-
málaráðherra um aukna síldar-
sölu til Rússlands. Hér er því
um að ræða afsökun tilbúna
eftir á. Ósannindi, sem einungis
gera Moskvuferðalag Lúðvíks
Jósefssonar enn tortryggilegra.
★
Þá kemur það einnig óneitan-
lega úr hörðustu átt, þegar Tím-
inn sakar aðra um McCarthyisma.
Hverjir hafa reynzt staðfastari
rógberar og eindregnari andstæð-
ingar lýðræðis á íslandi en ein-
mitt aðstandendur Tímans?
Nú alveg nýlega hefur blaðið
. hagað svo orðum sínum, að ekki
er um að villast, að enn telur
það þá kjördæmaskipun mundu
vera æskilegasta, sem eins og nú
stendur mundi hafa veitt Fram-
sóknarmönnum 22 aL 42 þing-
mönnum samtals. Samkvæmt því
ætti Framsóknarflokkurinn, sem
við síðustu almennar kosningar
fékk aðeins rúm 15% allra kjós-
enda, að hafa hreinan meirihluta
á Alþingi íslendinga!
Hið ískyggilegasta er, að for-
herðing Tímamanna er slík, að
þeir skilja ekki, að þessi hugs-
unarháttur afhjúpar þá sem örg-
ustu fjandmenn lýðræðis á Is-
landi. Þeir lifa sjálfum-glaðir í
sams konar heimi fals og óheil-
inda eins og McCarthy heitinn
gerði. Engin tilviljun er, að hann
skuli oftar nefndur í Tímanum
en nokkru öðru íslenzku blaði.
Það er tungunni tamast, sem
hjartanu er kærast.
★
En þó að Tímanum farist sízt
af öllu ,að saka aðra um einræði
og óheiðarleg vinnubrögð, þá má
sú staðreynd að sjálfsögðu ekki
verða til þess, að ósanngjörnum
ásökunum sé haldið uppi gegn
Lúðvik Jósefssyni eðá nokkrum
öðrum. En getur nokkrum í raun
og veru komið til hugar, að ó-
sanngirni hafi verið sýnd í því
að óska skýringa á ferðalagi Lúð-
víks Jósefssonar til Moskvu?
Þarf frekar vitnanna við um að
.hér sé þörf nánari skýrslu, en
sú staðreynd, að þegar Tíminn
loksins rýfur þögn sína, skuli
hann skýra gersamlega ósatt frá
tilefni fararinnar? Og ef Tíminn
hélt ástæðuna vera þá, sem
hann nú segir, af hverju var hún
þá dulin svo lengi? Hvað var
hægara en að kveða hinar „æðis-
legu“ spurningar Morgunbíaðsins
niður með því að segja strax og
afdráttarlaust það, sem Tíminn
hugði sig vita um málið?
Lots þegar stjórnarliðið er knú
ið til frásagna af ferðalaginu, þá
eru skýringarnar augljóslega ó-
sannar. Ef það á að gefa til kynna,
að einhver „stór háski sé á ferð-
um“, að óskað er frásagnar af
opinberri heimsókn íslenzks ráð-
herra til Moskvu, hvað er þá lík-
legra til að efla grunsemdir um
háskann, en að þegja fyrst og
vera síðan staðinn að ósannind-
um um skýringuna?
★
En hér er meira í húfi. Það er
ekki einungis, að sjávarútvegs-
málaráðherra íslands hafi verið í
opinberri heimsókn í Moskvu,
sem fyrst var reynt að leyna
fyrir almenningi á íslandi og síð-
an var sagt rangt til um, heldur
varð þessi heimsókn til þess, að
ráðherrann sótti ekki fund, þar
sem embættisskylda hans sagði
til um, að hann ætti að vera. Það
var fundur sjávarútvegsmálaráð-
herra Norðurlanda og fiskimála-
ráðstefnan í sambandi við hann.
Á þeim fundi var landhelgis-
málið rætt, þvert ofan í það, sem
Þjóðviljinn, málgagn sjávarút-
vegsmálaráðherra, vildi' telja
mönnum trú um. Þarna var ein-
stakt tækifæri til að reyna að
afla málstað okkar fylgis með-
al valdamanna í þessum efnum.
Það góða tækifæri var vanrækt,
og ekkert stjórnarblaðanna hefur
haft kjark til að gera þjóðinni
grein fyrir því. En erlend blöð,
þ. á. m. fremstu blöð Norður-
landa, hafa ekki farið dult með,
hversu skaðsamleg hagsmunum
íslands Moskvuför sjávarútvegs-
málaráðherrans nú hafi verið.
Morgunblaðið gerði í fyrstu
ráð fyrir, að Moskvuferð Lúðvíks
Jósefssonar hefði verið farin án
vitundar samráðherra hans. í því
ósamþykki væri að leita skýring-
anna á hinni langvinnu þögn
stjórnarblaða og ríkisútvarps um
ferðalagið. Afsakanir Tímans nú
sýna, að Framsóknarráðherrarntr
vilja taka ábyrgð ferðarinnar á
sig. Þeim mun athyglisverðara
verður ferðalagið og því torh yggi
legra sem eina afsökunin er fólg-
in í ósannindum.
IITAN UR HEIMI
Vegna tómlœtis Bandaríkiamanna
verður að kasta 25 milij. doilara
virði af Salk-hóluefni
ÁRIÐ 1954 urðu 12.000 Banda-
ríkjamenn hart úti at vömum
lömunarveiki. I ár eru mun minni
brögð að lömunum og dauðsföll-
um vegna þessarar válegu veiki
— og það, sem af er þessu ári er
vitað um 1.200 tilfelli. Ýinsir eru
þeirrar skoðunar, að Salk bólu-
efnið sé að útrýma lömunarveik-
inni, en bandarískir læknar vilja
ekki samþykkja það. Aðalástæð-
an er sú, að fólk e*- tregt til þess
að láta sprauta sig með lyfinu
— og þar að auki hefur það sýnt
sig, að bóluefnið veitir ekki al-
gera vörn. Það er því ástæðulaust
að vera of bjartsýnn, segja lækn-
arnir.
★
Það er upplýst vestanhafs, að
einungis 50 milljónir manna hafa
| fengið þrjár sprautur af Salk-
bóluefninu, en sem kunnugt er
J nær efnið ekki fullum tilgangi
sínum fyrr en eftir að mannslík-
j aminn hefur fengið þrjár sprauí-
j ur með ákveðnu millibili. Þrátt
I fyrir mikinn áróður og sifellda
i hvatningu hafa Bandaríkjamenn
j ekki látið bólusetja sig í jafn-
| miklu mæli og æskilegt væri —
j og búizt hafði verið við. Læknar
: eru því byrjaðir að vara fólk við
— og segja, að erfitt gæti orðið
[ að veita öllum Salk-efnið, ef löm
unarveikifaraldur kæmi skyndi-
I lega upp í Bandaríkjunum, því að
, nú verður dregið mjög úr fram-
: leiðslu efnisins.
★
bóluefni,
25 millj. dollara að verðmæti,
liggja nú undir skemmdum, því
að efnið verður óvirkt, ef það er
geymt í meira en sex mánuði.
Salk
Framleiðendur draga því saman
seglin, þeir hafa orðið fyrir miklu
fjárhagslegu tjóni — og hyggjast
ekki hefja framleiðsluna af full-
um krafti fyrr en landsmenn sýna
meiri áhuga á bólusetning-
unni. Hætt er við, að sá áhugi
geri ekki vart við sig fyrr en í
óefni verður komið: Nýr faraldur
gýs upp. En þá er líka um sein-
an að átta sig, því að það tekur
sjö mánuði að framleiða birgðir,
sem ættu að nægja.
Bandarískir læknar brýna það
mjög fyrir löndum sínum, að
lömunarveikin hafi alls ekki ver-
ið sigruð. Það hefúr jafnvel vak-
ið ugg, að af 201 skráðu mænu-
veikistilfelli í Bandaríkjunum
síðustu viku voru 90% alvarleg
lömunartilfelli, en hlutfallstalan
hefur ekki verið svo há lengi vel.
En verra er það, að jafnvel
þeir, sem fengið hafa Salkbólu-
efnið hafa lamazt vegna veik-
innar — og þykir allt benda til
þess, að ástæðan sé, að umrædd-
ir sjúklingar hafi ekki fengið
nægilega mikið bóluefni, hafa
vanrækt að láta bólusetja sig
þrisvar. Ljóst er því, að læknar
telja nauðsynlegt, að fólk, sem
á annað borð lætur bólusetja sig,
láti umfram allt gera það þrisvar.
En sérfræðingar viðurkenna
hins vegar ekki, að bólusetning-
arnar þrjár veiti fólki algert ör-
yggi gegn lömunarveikinni. Lækn
ir einn, sem stendur mjög fram-
arlega á þessu sviði hefur látið
svo ummælt, að bólusetningarnar
þrjár veiti örugglega 90% ör-
yggi. Hann segir þá fyrstu veita
30% öryggi, aðra 70% — og
þriðju 90%, eins og fyrr segir.
Sumir hafa orðið fyrir vonbrigð-
um, hafa haldið, að Salk-efnið
veitti algert öryggi, og þess vegna
trassað að láta bólusetja sig, eða
skellt skollaeyrum við öllu sam-
an. En sérfræðingurinn bendir á,
að betra sé að hafa 90% vörn
gegn þessum hræðilega sjúk-
dómi en enga.
Stœrsti og fullkomnasti kafbátur
Bandaríkjamanna
Á DÖGUNUM hleyptu Banda-
■ríkjamenn áttunda kjarnorku-
i knúna kafbátnum af stokkunum.
Þessi er langsamlega stærstur, en
verið er að smíða annan enn
stærri. Kafbáturinn heitir Triton.
Hann er 5.900 lestir og 447 fet á
lengd. Næststærsti kjarnorkukaf-
bátur Bandaríkjamanna er meira
en 100 fetum styttri. Hann heitir
Seawolf og er 3.400 lestir að
stærð. Aðrir kjarnorkukafbátar
Bandaríkjamanna eru: Nautilus
3.200 lestir, Skipjack 2.830 lestir
og Skate, Swordfish, Sargo og
Seadragon — allir 2.360 lestir.
Triton er einnig fyrsti kjarn-
orkukafbáturinn sem hefur tvo
lrjarnorkuofna innanborðs — og
hann er jafnframt fyrsti kafbát-
urinn, sem hefur þrjú þilför.
Allir fyrri kafbátar, sem smíðaðir
hafa verið, hafa haft eitt eða tvö
þilför.
Triton verður búinn öllum full-
komnustu „sjón“- og „heyrn“-
tækjum sem framleidd hafa ver-
ið fyrir kafbáta, en miklar fram-
farir hafa orðið á þeim sviðum
síðustu árin. Triton verður einn-
ig búinn fjarstýrðum flugskeyt-
um og tækjum til þess að fylgjast
með gervihnöttum. Hann verður
fullkomnasti kafbátur Banda-
ríkjamanna — og að því er þeir
telja, fullkomnasti kafbátur, sem
smíðaður hefur verið. Myndin »r
tekin, er bátnum var hleypt af
stokkunum í Groton í Connecti-
cut.
Leifa hœlis
STOKKHÓLMI, 25. ágústJNTB- -
Reuter. Pólsk seglskúta með sjö
karlmenn og eina konu innanborðs
kom í dag til Nynáshamn í Sví-
þjóð. Áhöfnin hélt bgint á lög-
reglustöðina og fjórir af henni
báðu um hæli í Svíþjóð, en hin
fjögur vildu sigla heim til Pól-
lands aftur, meðal þeiri'a 23 ára
gömul stúlka. Fjói'menningarnir,
sem vilja ékki fara heim eru ein-
ustu meðlimir áhafnarinnar, sem
kunna nokkuð í siglingafræði og
sjómennsku.