Morgunblaðið - 26.08.1958, Page 14
14
M O R C r N R L A Ð 1 Ð
Jjríítii'^qorur 26. ágúst 1658.
TiE sölti
alveg nýtt GiíUNDIG segulband
T. K. 830 U. — Tilboð sendist
blaðinu merkt: 86B — 6823.
ByggingaféSig verVamanna
Keflnvík tilkynnir
2ja herb. íbúö hjá félaginu er til söiu. Félagsmenn
sendi umsókn um íbúðina fyrir 1. sept. 1958 til for-
manns félagsins, Suðurgötu 46, Keflavík, sími 94.
Stúlka óskast til
afgreiðslus tarfa
hálfan dagínn
Verzl. Gunnþórunnar Halldórsd.
Uppl. á Annmannsst. 5 (steinhúsinu) milli kl.4—6.
Verzlunarpláss til leigu
á góðum stað, tilvalið til veitingareksturs. Þeir, sem
hafa áhuga fyrir þessu sendi nafn og símanúmer til
afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld merkt:
,,Góður staður — 6824“.
Einbýiish ús
TIL SÖLU. — SEMJA BEK VIÐ
Málflutningsskrifstofuna
Eggert Classen, Gústaf A. Sveinsson
Hæsi.aréttarlögmenn, Þórsharnri,
Simi 1-11-71
Tékkneskar ashest
sement plötur
Byggingaefni, sem hefur
marga kosti:
★ Létt
★ Sterkt
★ Auðvelt í meðferð
★ Eldtraust
★ Tærist ekki.
Einkaumboð
Ma»rs Trading Co.
Klapparstíg 20. Sími 1-7373.
Jókmuia Ó’afsicttir — minaing
í DAG fer fram minningarathöín
um Jóhönnu Ólafsdóttur frá
Bræðraminni, Bíldudal. Jóhanna
Ólafsdóttir var fædd á Skjald-
varafossi á Barðaströnd 15. april
1881, dóttir hjónanna Kristínar
Ólafsdóttur og Ólafs Sveinsson-
ar. Nokkurra ára gömul fluttist
hún með foreldrum sínum að
Miðhlíð á Barðaströnd, þar sem
hún svo ólst upp. Jóhanna var
hjá foreldrum sínum til tvítugs
aldurs, en þá fluttist hún til
Bíldudals. Árið 1905 giftist Jó-
hanna Gísla Jónssyni frá Innri-
Múla á Barðaströnd, sem einmg
fluttist til Bíldudals og stofnuðu
þau sér þar heimili í Bræðra-
minni. Gísli, maður hennar,
stundaði þar sjómennsku, og
þótti það skiprúm vera vel skip-
að þar sem hann var. Jóhanna
og Gísli eignuðust sex börn, fjór-
ar dætur og tvo syni, og eru þau
öll á lífi. öll eru þau gift, dæt-
urnar allar búsettar í Reykjavík
og synirnir búsettir á Bíldudal.
Jóhanna missti mann sinn 20.
júlí árið 1926, og brá þá ský fyr-
ir sólu í lífi hennar, því að Gísli
var góður og ástríkur eiginmað-
ur, og heimilisfaðir, því að vart
voru finnandi samrýndari hjón
en þau Jóhanna og Gísli voru.
Þegar Jóhanna missti mann sinn
voru fjögur börn þeirra komin
yfir fermingu, en tvær dætur
þeirra, 7 og 10 ára, ófermdar, og
átti Jóhanna þá mikið starf fyrir
höndum að ala þær upp, og að
sjálfsögðu að aðstoða hin börnin
eftir beztu getu, því að ekki vant
aði dugnaðinn og festuna í lif
Jóhönnu. Nú þegar fyrirvinna
heimilisins var fallin frá, sá Jó-
hanna mitt í söknuðinum við frá-
fall manns síns, að hún varð að
auka störf sín, og fara að starfa
við hvað sem fyrir hendi væri,
og brá hún sér þá í fiskvinnu,
því að þá var það ein heizta
vinna sem kvenfólk fékk að
starfa á þeim tíma. Því að ekki
vildi Jóhanna til þess vita að
börn sín færu neins á mis, frek-
ar en önnur börn í þá daga, þó
að þau hefðu orðið fyrir því
óláni að þurfa að sjá á bak elsku-
legum föður. Því að hann og þau
bæði voru allt fyrir sín börn.
Jafnhliða því sem Jóhanna gekk
að störfum utan heimilisins hafði
hún skepnur um að hugsa, því
að þau áttu allan sinn búskap
nokkrar kindur, sem Jóhönnu
þótti svo vænt um og hafði gam-
an af að sinna um. Heldur en að
hætta að hafa kindurnar lagði
hún þeim mun meira að sér, og
heyjaði og sinnti sínum skepn-
um í hjáverkum. Enda sást Jó-
hanna á Bræðraminni, eins og
hún var alltaf kölluð, sjaldan
eða aldrei óstarfandi, enda hefði
hún illa kunnað við það á meðan
henni fannst að hún hefði þrek
til að starfa. Það má segja um
hana eins og ýmsa fleiri, að
henni hefur aldrei þótt dagurinn
nógu langur, til þess að geta lok-
ið þeim störfum, sem fyrir henm
lágu. Jóhanna átti marga og
góða kunningja á Bíldudal, unga
sem aldna, sem munu senda
henni hlýjar kveðjur fyrir
trausta og góða vináttu, og það
veit ég, að enginn á nema ljúfar
minningar um Jóhönnu frá
Bræðraminni. Árið 1948 fluttist
Jóhanna til Reykjavíkur með
yngstu dóttur sinni, sem hún
hefur alla tíð verið samvistum
með, því að þær hafa aldrei skil-
ið fyrr en ævi Jóhönnu var á
enda runnin. En þó að hún hafi
verið inni í heimili yngstu dótt-
ur sinnar, þá hefur hún átt því
láni að fagna að vera mitt á
meðal dætra sinna allra, og þær
litu til hennar svo að segja dag-
lega, svo að sjálfsögðu hafa þær
mæðgur átt margar ánægjulegar
stundir saman núna síðustu árin,
eins og endra nær, og munu þær
þakka sinni ástríku og umhyggju
sömu móður fyrir elskulegar
samverustundir. Nú þegar Jó-
hanna hefur kvatt þennan heim
og flutt inn á annað tilveruskeið.
þá vitum við, að hún hefur feng-
ið ánægjulega heimkomu, og við
vitum, að þar hefur verið tekið
á móti henni með opnum örmum
af elskulegum eiginmanni, sem
hefur sjálfsagt þráð komu henn-
ar og aðrir ástvinir hennar, sem
fluttir hafa verið á undan henni
yfir landamærin, hafa einnig gert
henni heimkomuna bjarta og
glæsilega. Einnig veit ég að Jó-
hanna hefur sjálf búið sig undir
flutnínginn með sinni traustu og
bjargföstu trú á lífið eftir dauð-
ann. Svo að endingu vil ég
kveðja þig, Jóhanna, fyrir hönd
ástvina þinna, og allra kunn-
ingja, með þessum orðum skálds-
ins:
Far þú í friði, friður guðs þig
leiði.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Vinur.
— Iþróttir
» Framh. aí bis 6
tímann 23,6 datt og fór út af
braut sinni og var dæmdur ur
og fékk því ekkert stig fyrir
grindahlaup.
Eftir 6 greinar var Pétur kom-
inn í 8. sæti og Björgvin í 16.
Ekki gekk Pétri verr í næstu
grein, kringlukasti. Hann náði
ágætri seríu, 31,34, 38,07, 39,46 og
hafnaði í 5. sæti í kringlukasti.
Björgvin tókst sæmilega. Átti
ógilt fyrst, 34,51 síðan og loks
35,74. Hann varð 14. í kringiu-
kasti.
Kuznetsov vann 48,57, Kahma
46,65, Möhring 45,60, Becvarovsky
41,82, Lassenius 39,68, Pétur sem
fyrr segir Kamerbeek 39,41,
Meier 39,07, Palu 39,07, Timme
37,62, Kling 37,60, Persson 37,40,
Haarr 36,46, Björgvin 35,74,
Brodnik 35,46, Staub 35,37,
Tschudi 34,83, Högheim 31,91 og
Muchitsch 29,36.
Eftir 7 greinar var Pétur 9. með
4995 og Björgvin 17. með 4408.
Þeir töpuðu því báðir einu sæti
í kringlukastinu.
Stangarstökkskeppnin hófst á
tveim stöðum og á mismunandi
,,hæðum“ og flýtti það mjög
fyrir. Samt var komið fram yfir
hádegi þegar bæði Pétur og
Björgvin voru búnir, en ýmsir
áttu þá nokkuð eftir.
Byrjunarhæðin var 2,50 í
flokknum, sem Pétur og Björgvin
voru í. Þeir byrjuðu þó ekki fyrr
en á 2,70 og fóru báðir í fyrsta
stökki. Næst var 2,90 og þá hæð
felldi Björgvin þrisvar og var úr
stangarstökkinu. en Pétur flaug
yfir og sömuleiðis yfir 3,10 og
3,20. Þrívegis felldi hann 3.30.
Björgvin var óheppinn í stang-
arstökkinu. Hann var yfir 2,90,
má ég segja, öll skiptin en felldi
af óskiljanlegum klaufaskap.
Eftir á sagði hann, að það væri
eins með stangarstökkið og lang.
stökkið, að aldrei hefði atrennan
hjá sér verið hin rétta.
Pétur átti góða tilraun við 3 30
í þriðja stökki, en felldi með
mjöðm á niðurleið.
Pétur varð 14. í röðinni með
sína 3,20 metra en Björgvin rak
lestina. Hæst stökk Möhring
Þýzkalandi 4,10 og Högheim Nor-
egi stökk sömu hæð. Þá fyrst
komst hann fram fyrir Björgvm.
Kuznetsov stökk 4,00, Meier 3,80,
Becvarovsky, Staup, Persson og
Brodnik 3,70; Palu, Haarr, Lass-
enius og Kahma 3,60, Tschudi
3,50, Pétur og Muchitseh 3,20,
Kamerbeek og Kling 3,10 og
Hólm 2,70.
í spjótkastinu náðu Islending-
arnir sér sæmilega upp og nú í
fyrsta sinn í þrautinni náði Björg
vin betri árangri en Pétur. Þó er
afrek Péturs betra miðað við
fyrri afrek þeirra. Björgvin
varð 10. með 54,08 og Pétur
12. með 53,21. Lengst kastaði
Kahma Finnl. 65,66, Haarr Noregi
61,41, Brodnik 60,48, Lassenius
60,44, Kamerbeek 60,30, Kuznets-
ov 59,42, Palu 57,47, Persson
55,80, Möhring 54,49, þá Björgvin
og Högheim með 54,08 og síðan
Pétur.
1500 m hlaup tugþrautarinnar
varð einhver skemmtilegasta
grein hennar. Skipt var í 4 riðla
og hver um sig var tvírýnn og
jafn þó yfirleitt teygðist úr þeim,
eins og sést á úrslitunum. 1. riðill;
Meier 4:20,6, Tschudi sama tíma,
Lassenius 4:42,3 og Kuznetsov
5:00,0. 2. riðill: Palu 4:17,9, Ka-
hma 4:18,3, Kamerbeek 4:35,4,
Becvarovsky 4:45,0, Möhring
* 5:00,8. 3. riðill: Muchitsch 4:14,9
og vakti geysilega athygli fyrir
sprettinn sem hann hljóp kepprús
laust, Brodnik 4:38,5, Staub
4:52,6, Pétur 4:54,1, Persson
5:09,8. 4. riðill Björgvin 4:30,6,
Vana flakara
vantar strax
Hraðfrystihusíð Frost hf,
Hafnarfirði — Sími 51)165
Húseignin Njúlsg. 10
til sölu. 1 húsinu eru tvær 3ja herb. íbúðir og ein
2ja. Upplýsingar gefa:
Vilhjálmur Björnsson, sími 11519 og
EIGNARMlnHJN, Ausiurstr. 14,
sími 15535.
STRAUN I NG
OÞÖRF