Morgunblaðið - 27.09.1958, Side 3

Morgunblaðið - 27.09.1958, Side 3
Laugardagur 27. sept. 1958 MORCUNBLAÐÍB 3 Ný framhaldssaga hefst í blaðinu í dag í DAG hefst í blaðinu ný fram- I gerðist þreyttur á lífinu þar, haldssaga, sem vakið hefur mikla athygli úti um heim. Heitir hún „Brúin yfir Kwai-fljótið“ og er eftir franska rithöfundinn Pierre Boulle. Saga þessi hefur nýlega verið kvikmynduð og myndin hlotið hið mesta lof. Verður sag- an hér í blaðinu prýdd myndum úr kvikmyndinni. Pierre Boulle, höf. sögunnar, er fæddur í Avignon í Frakklandi. Hann lærði verkfræði og hóf starf á gúmmíekru í Malaya ár- ið 1936. Á stríðsárunum gekk Boulle í her frjálsra Frakka og var sendur í hættulegan leiðang- ur til Indókína, þar sem hann var tekinn til fanga, ekki þó af Japönum, eins og sagan um brúna yfir Kwai-fljótið gæti gefið til kynna, heldur af frönsku Vichy- stjórninni. Eftir stríðið komst hann aftur til plantekrunnar, en og árið 1948 ákvað hann að verða rithöfundur — „gegn allri skynsemi", segir hann. Hann býr nú í París með systur sinni, og er orðinn frægur höfundur. Sjálf- ur segist hann hafa það fram yfir aðra rithöfunda, að hann hefur aldrei skrifað staf um veru sína í fangabúðum. Út hafa komið 8 bækur eftir Pierre Boulle, og er STAKSTEINAR Hluti frímerkjasýningarinnar é>- Fyrsta frtmerkjasýningin hér á landi opnuð í Bogasat Þjóðminjasafnsins í DAG verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins fyrsta frí- merkjasýningin, sem haldin er hér á landi. Ber hún nafnið „Frímex 1958“, og verður hún sett kl. 2 síðdegis að viðstöddum boðsgestum, en opnuð almenningi kl. 4. Á sýningu þessari gefur að líta mörg eftirtektarverð söfn innlendra og erlendra frímerkja og hafa þegar verið veitt verð- laun og heiðursskjöl fyrir beztu einkasöfnin. í sýningarskrá segir: „Þegar Félag frímerkjasafnara ákvað að beita sér fyrir frímerkjasýningu hér á landi, var tvennt haft í huga. í fyrsta lagi að kynna fólki helztu frímerkjasöfn, sem hér eru til, og í öðru lagi að vekja áhuga manna á frímerkjasöfnun og gildi hennar". Frímerkj un»m á sýningunni er einkar smekklega komið fyrir á 122 römmum, sem standa á miðju gólfi og fylla Bogasalinn. Skipu- lagningu og uppsetningu önnuð- ust þeir Guðmundur Kr. Krist- insson arkitekt og Diter Rot, teiknari. Er frímerkjasöfnunum komið þar fyrir í fimm deildum, sem bera heitin: íslenzk frímerki, Erlend frímerki, Flugfrímerki, „Motive“-söfn og Umslög o. fl. í forsal Þjóðminjasafnsins er komið fyrir sýningu Póststjórn- arinnar. Eru þar sýnd öll íslenzk frímerki, sem út hafa komið, þar á meðal hið dýrmæta 10 aura frí- merki frá 1902—3. Er það safn utan samkeppni frímerkjasýn- ingarinnar. Þar er einnig sýning- arborð, þar sem sýnd er prentun- araðferð á 25 kr. Bessastaðafrí- merkinu. Fremst í anddyrinu er svo póststofa. í sambandi við sýningu þessa, sem mun verða opin í a.m.k. hálfan mánuð frá kl. 2—10 e.h., er söludeild, þar sem höfð verða til sölu umslög með álímdum nýju 10 aura og kr. 2.25 hesta- merkjunum, sem gefin eru út í dag, og verður hægt að fá þau með sérstimpli sýningarinnar. Fyrstadagsstimpilinn verður aft- ur á móti að fá á Pósthúsinu í Reykjavík. í söludeildinni fást einnig sýningarskrár, nýjasta heftið af fagblaði frimerkjasafn- ara, sem í þetta sinn kemur út í sambandi við sýninguna, póst- kort jneð mynd af tveimur drengj um að skoða frímerkjasafn, en stækkuð mynd af drengjunum blasir við framan við dyr Boga- salarins, og loks lítið hefti með nýju frímerkjunum tveim, en það er hugsað sem minjagripur fyrir þá sem sækja sýninguna, en eru ekki frímerkjasafnarar. Meðan frímerkjasýningin stend ur yfir, verða á kvöldin sýndar kvikmyndir og haldnir fyrirlestr ar til fræðslu um frímerki. Eins og áður var getið, hafa verið veitt verðlaun og heiðurs- skjöl fyrir beztu söfnin á sýningu þessari, samkvæmt úrskurði 5 manna dómnefndar. í flokkn- um „íslenzk frímerki" voru veitt tvenn verðlaun. 1. verðlaun hlaut Brynjólfur Sveinsson, Ólafsfirði, en í safni hans eru næstum öll ísl. frímerki frá upphafi, öll ónot- uð. 2. verðlaun hlaut Karl Þorsteins. Fyrir íslenzk frímerki hlutu þrír menn heiðursskjöl. Fyrstu verðlaun fyrir erlend frí- merki komu í hlut Guðmundar Árnasonar, en hann á safn norskra frímerkja frá upphafi og eru öll merkin notuð. Auk þess þótti bezt frá því safni gengið. 2. verðlaun hlaut Guido Bern- höft og 3. verðlaun Karl Þor- steins. Heiðursskjöl fengu 10 menn. f flokknum „Flugfrímerki" hlutu Sigmundur Ágústsson og Árni Jónsson 1. og 2. verðlaun og 1 maður fékk heiðursskjal, og fyr ir „Motiv“-söfn fengu Sigurður Ágústsson og Ágúst Sigurðsson Lætur af störfum 1. verðlaun og Sr. Jónas Gísla- son í Vík 2. verðlaun. f þeim flokki hlutu 3 heiðursskjöl. Félag Frímerkjasafnara, sem að þessari sýningu stendur, var stofnað 11. júní 1957 og voru stofnendurnir 35 að tölu. Stjórn félagsins skipa eftirtaldir menn: Guido Bernhöft, Guðmundur Árnason, Sigurður H. Þorsteins- son, Magni R. Magnússon og Jónas Hallgrímsson. Sýningar- og framkvæmdanefnd skipa Jónas Hallgrímsson, Guðmundur Árna- son og Leifur Kaldal, en fram- kvæmdastjóri er Þór Þorsteins. Pierre Boulle Brúin yfir Kwai-fljótið tvimæla- laust þeirra þekktust. Vonum við að lesendur blaðsins hafi gaman af að kynnast hinum furðulega, stolta brezka ofursta, sem er aðalpersónan í sögunni, og samföngum hans. BELGRAD, 25. sept. — NTB — Reuter. — Norski forsætisráð- herrann Einar Gerhardsen kom síðdegis í dag til Belgrad. Mun hann dveljast í 8 daga í Júgó- slavíu. Júgóslavneski varaforset- inn, Kardelj, tók á móti Ger- hardsen á flugvellinum. Á morg- un mun Gerhardsen ræða við Kardelj, en á laugardaginn ræðir hann við Tító. SjÖtugur í dag Valdimar Kristjánsson KARL O. BJARNASON, vara- slökkviliðsstjóri hér í Reykjavík, hefur fyrir nokkru beðizt lausnar vegna heilsubrests. Karl O. Bjarnason, sem um langt árabil hefur verið vara- slökkviliðsstjóri, gerðist bruna- vörður þegar eftir brunann mikla, er Hótel Reykjavík brann, í aprílmánuði 1915. Tók Karl virk- an þátt í slökkvistarfinu, en bruni þessi er hinn mesti, sem orðið hefur í sögu Reykjavíkur. Um leið og Karl gerðist brunavörður, gekk og í þjónustu slökkviliðsins Anton Eyvindsson varðstjóri, er einnig var við slökkvistarfið í hin um mikla bruna. Þannig hefur Karl nú, er hann lætur af störfum, verið bruna- vörður í rúmlega 43 ár í DAG er Valdimar Kristjánsson umsjónarmaður íþróttaheimilis knattspyrnufélagsins Vals að Hlíðarenda við Laufásveg, sjöt- ugur. Valdimar er borinn og barn- fæddur í hinni söguriku Þing- vallasveit, að Kárastöðum, en þar bjuggu foreldrar hans. Valdimar hafðj þegar í æsku mikinn áhuga á smíðum, og á unga aldri nam hann húsasmíði. Stundaði hann þá atvinnu um árabil, bæði hér í Reykjavík og víðar, en hingað fluttist Valdi- mar árið 1919 og hefir verið búsettur hér upp frá því. • Um skejð varð hann að hætta húsa- smíðum vegna veikinda, en tók til við þær aftur, er heilsan leyfði. Valdimar fluttist að Hlíðarenda árið 1940 eða skömmu eftir að sá staður komst í eigu Vals, með það fyrir augum að byggja þar upp félags- og íþróttaheimili. Um leið og Valdimar fluttist að Hiíð- arenda, gerðist hann að nokkru leyti starfsmaður Vals, en frá árinu 1948 hefir hann verið um- sjónarmaður staðarins og gætt þar húsa og íþróttavalla og ann- arra mannvirkja af mikilli trú- mennsku og áhuga. Að Hlíðarenda sækir mikill fjöldi eldri og yrtgri pilta til æf- inga, mest þó að sumri til, eins og að líkum lætur, en einnig mik- ið að vetrinum, til fundahalda og ýmiss konar félagsstarfsemi. Má því segja að margt sé þar um manninn, alla tíma ársins. Lætur að líkum, að mikið starf og margþætt, hvíli á þeim sem valizt hefir þar til umsjónar og fyrirsvars. En það lysir Valdi- mar — Valda, eins og hann jafn- an er nefndur í hópi Valsmanna — hversu vel honum tekst að halda þar öllu i röð og reglu þrátt fyrir þrengsli, án þess að til nokkurra árekstra komi, við einn eða neinn, í þeim fjölmenna hópi ungra pilta, sem sækja stað- inn, er þar þó eins margt sínnið sem skinnið. Leikur það og ekki á tveim tungum, aó Valdimar nýtur mikilla vinsælda og al- mennra í störfum sínum hjá þeim æskumönnum, er sækja fé- lagsheimili Vals. En þess skal getið að Valdimar hefir ekki ver- ið einn um vandasamt starf, kona hans, Helga Sigurbjörnsdóttir, hefir staðið við hlið hans og verið honum einkar samhent um að láta allt umsjónar- og eftirlits- starf að Hlíðarenda,- fara sem allra bezt úr hendi. Þá hefir frú Helga séð um allar veitingar að Hlíðarenda, í sambandi við sam- komur og fundi þar, og gert það með eindæma myndarbrag. Þeim Helgu og Valdimar hefir orðið tveggja sona auðið, sem báðir eru hinir mestu myndarmenn, svo sem þeir eiga kyn til. Eg vil leyfa mér á þessum tímamótum í ævi Valdimars Kristjánssonar að árna honum og fjölskyldu hans allra heilla og þakka fyrir ágætt samstarf og viðkynningu á liðnum árum. Lifðu heill, Valdi. Einar Björn.sson. „Engum blöðum um það að fletta“ Alþýðublaðið kemst m. a. áð orði á þessa leið í gær: „Það er engum blöðum um það að fletta, að ríkisstjórninni hefur ekki tekizt það, sem var aðal- grundvöllurinn að stofnun henn- ar, að stemma stigu við vaxandi dýrtíð, —“ Bragð er að þá barnið finnur. Forystumenn Alþýðuflokksins hafa hingað til remhzt við það eins og rjúpa við staur að telja þjóðinni trú um að vinstri stjórn- in hafi haldið einkar vel á stjórn efnahagsmálanna. Á s. 1. vori lét Alþýðublaðið eins og stórkost- leg tímamót væru í vændum í þessiu máli. Það var áður en „bjargráð" ríkisstjórnarinnar litu dagsins ljós á Alþingi og meðal þjóðarinnar. Nú verður aðalmál- gagn Alþýðuflokksins að lýsa því yfir, að „það sé engum blöðum um það að fletta að ríkisstjórn- inni hefur ekki tekizt það, sem var aðalgrundvöllurinn að stofnun hennar, að stemma stigu við vaxandi dýrtíð“. Þetta er svo merkileg yfirlýsing af hálfu eins stuðningsblaðs ríkisstjórnarinnar að ætla mætti að hún boöaði ein- hver tímamót í íslenzkum stjórn- málum, ekki sizt, þegar málgagn stærsta stjórnarflokksins, Alþýðu bandalagsins, hefur einnig lýst því yfir, að ríkisstjórnin hafi á s. 1. vori „horfið frá verðstöðv- unarstefnunni", og hellt nýrri verðbólguöldu yfir þjóðina. Er „aðalgrundvöllur- inn“ þá ekki bruninn? •Mörgum mun nú verða á að spyrja: Ef ríkisstjórninni hefur ekki tekizt það, sem var „aðal- grundvöllurinn að stofnun henn- ar“, hlýtur þá ekki grundvöllur hennar að vera hruninn? Ber stjórninni þá ekki að koma fram fyrir þjóðina og lýsa því hrein- lega yfir, að forsendan fyrir áframhaldandi starfi hennar sé brostin? Hún muni þess vegna segja af sér og gefa þjóðinni kost á að velja sér nýja forystu. En enginn skyldi samt ætla, að leiðtogar Framsóknarflokkslns sem forystu hafa í vinstri stjórn- inni muni mæta yfirlýsingum málgagna Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins með þessum hætti. Þeir Hermann og Eysteinn munu þvert á móti vilja sitja sem fastast og halda áfram að reikna það út með forseta Al- þýðtusambandsins, hvernig hægt verði að halda stjórnarræksnlnn á floti enn nokkra mánuði með „nýjum álögum á alþýðuna". Hiiororun harmi gegn En eina huggun á þó Alþýðu- blaðið í gær um leið og það lýsir yfir því að „aðalgrundvöllurinn að stofnun" vinstri stjórnarinn- i ar sé hruninn. Það segir að stjórn. inni hafi tekizt „síðan hún tók | við völdum“ að „tryggja meirl vinnufrið í landinu en áður var l °S það er geysilega þýðingarmik- ið. Áður logaði allt i verkföllum og þjóðin tapaði ógurlega á því. Engin teljandi verkföll hafa orðið eða stöðvun atvinnuveganna, síð- 'an hún tók við“. Þegar nánar er aðgætt getur þessi staðhæfing Alþýðublaðsins ekki orðið því langvinn huggun. Allir íslendingar vita, að vinnu- friðurinn hefur sjaldan verið ó- traustari en einmitt á valdadög- um vinstri stjórnarinnar. Fjöldi verkfalla, þar á meðal hið lengsta, sem um getur í sögunni hér á landi, hafa verið háð sl. tvö ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.