Morgunblaðið - 03.10.1958, Síða 13

Morgunblaðið - 03.10.1958, Síða 13
Föstudagur 3. október 1958 'UORGV1VBL4ÐIÐ 13 Vistheimilið Breiðavík. — Húsið lengst til vinstri, er þriðji hluti þess húss sem þar er ráðgert að rísi í framtíðinni, búið er að ganga frá múrhúðun á einni hæð í þessum hluta, og vonandi dregst það ekki lengi að það verði gert íbúðarhæft. Vistheimilið í eftir Þór Jónsson, Látrum Breiðuvík ÞAÐ var fyrir nokkru að ég las í Tímanum viðtal, er blaðamaður hafði haft, 2. júní, við kunningja minn, Hinrik Bjarnason, sem ver- ið hefur skólastjóri á vistheim- ilinu Breiðavík, síðastliðna tvo vetur. Viðtalið snýst um vist- heimilið og veru Hinriks þar. Blaðamaðurinn tekur það fram, að blaðið leggi engan dóm á þá gagnrýni, sem þar kemur fram af hendi skólastjóra. Ráðamenn heimilisins virðast vera á sömu skoðun og blaða- maðurinn, ég hef ekki heyrt eða séð þá leggja neinn dóm á þetta viðtal. Þess vegna vil ég sem áhorfandi bæta aðeins við lýs- ingu Hinriks, því mér finnst hún geta verið villandi að sumu leyti, og likleg til að valda óánægju hjá þeim foreldrum, sem eiga börn í vistheimilinu, og ekki hafa getað komið því við að skoða það með eigin augum, og fylgjast með líðan drengjanna þar. Ég hef allt frá byrjun þessa máls fylgzt með því af áhuga, eins og fleiri hér í sveitinni, og er því engan veginn sama hvernig fer með rekstur þessa heimilis, þótt ég geti þar engu um ráðið og æski þess heldur ekki. En þess æski ég, málefnisins vegna, að þeir, sem segja frá því opinberlega, segi eins frá kostum þess og því sem veí fer og göll- um þess og því, er verr fer, en það virðist oftast auðfundið í flestum málum. Á þetta finnst mér nokkuð skorta hjá kunningja mínum, Hinrik. Þekki ég hann þó ekki fyrir það, að það sé vilj- andi gjört heldur af athugunar- leysi, eða þá að blaðamaðurinn, sem viðtalið hafði, hefur ekki munað eftir því, að leita eins eftir því sem vel fór, og fallið gæti aðstandendum barnanna betur í geð. Allt í nNiurníðsIu Þegar bygging þessa vistheim- ilis var hafin, var Breiðavík eyði- jörð, og í svo mikilli niðurníðslu, sem ein jörð getur verið. Á það jafnt við um jörðina sjálfa, sem hús og önnur mannvirki, sem á jörðinni voru. Það þurfti því að byrja á að reisa allt upp frá grunni. En fyrstu vistmennirnir komu jafnt og fyrsta efnið kom til byggingarinnar, og mun það einsdæmi með slíka stofnun, að byrjað sé að reka hana um leið og byrjað er að byggja. Ekkert hús var þá inn í að fara til íbúðar nema einn lítinn torfbæ, og eitt herbergi, sem not- hæft var að kalla, í gömlu stein- húsi, sem til var á staðnum, en löngu orðið óhæft til íbúðar. Bílvegur var þá ekki kominn að Breiðavík, svo allir aðdrættir urðu að fara fram sjóleiðis og takast í land fyrir opnu hafi. — Engin nema þeir, sem að þessu unnu, geta gert sér það ljóst hvaða erfiðleikum þetta olli. Húsnæði enn of lítið En þótt mikið átak hafi verið gert í húsnæðismálunum í Breiða vík, þá er húsnæði þar enn of lítið. Það er verið að byggja yfir fólk og fénað, en það hefst ekki fyrir það fjármagn, sem til bygg- inganna er veitt. Vistmönnum fjölgar, starfsfólki fjölgar, og fénaði fjölgar eftir því sem ræktun eykst, en í henni hafa orðið stórstígar framkvæmd ir, við tilkomu stórvirkra véla, enda möguleikarnir miklir. Hús- næðisskortur «r þvi tilfinnanleg- ur eins og Hinrik tekur réttilega fram. En þær byggingar, íem þegar eru komnar, eru vandaðar og vel frá þeim gengið, þótt ann- að mætti álita eftir umsögn Hin- riks, sem telur íbúðina allt að því óíbúðarhæfa vsgna raka, og gefur ekki á þvi frekari skýringu. Þessi umsögn skólastjórans hvetur eng- an til að flytja til Breiðavíkur og gerast þar starfsmaður. En sem betur fer er þetta ekki rétt í alla staði. Að vísu hefir borið á raka á útveggjum við gólf, þegar kaldast hefur verið, og er það ekkert einsdæmi; en í þessu tilfelli mun það stafa af því, að miðstöðvarketill sá, er byrjað var með, fullnægði ekki hitaþörfinni, þegar bæði húsin komu á kerfið. Á þessu var ákveðið að ráða bót með því að setja svo stóran ketil í þá byggingu, sem nú er í smíð- um, að hann fulinægði allri hita- þörfinni í byggingunni eins og hún er hugsuð, og einnig í þeirri, sem þegar er fullgjörð. Sá ketill er þegar teki* í notkun, en ekki búið að tengja hann miðstöðvar- kerfi umræddrar íbúðar. Tel ég ólíklegt að Hinrik hafi verið ó- kunnugt um þetta, því þeir 3—4 menn sem hann telur, að stað- aldri hafi unnið að byggingunni síðastliðinn vetur, unnu meðal annars að uppsetningu þessa ket- ils og miðstöðvarkerfis út frá honum. Mög'uleikarnir á læknisaðstoð Hinrik telur það miklum vand- kvæðum bundið að ná til læknis frá Breiðavík, og þangað sé lang- timum saman með öllu ófært. Þeir, sem ekkert þekkja til, gætu dregið af þessu ranga ályktun, foreldrar gætu fyllzt kvíða yfir því, að eiga barn sitt þar sem illmögulegt væri að ná til læknis hvað sem fyrir kæmi, svo við skulum áthuga þetta nánar. Skóla .skoðun barna fer vitanlega fram í Breiðavík svo sem annarsstað- ar. Símasamband er við Breiða- vík eins og aðra bæi í þessari sveit. Er það frá 9,30 að morgni til 23 að kvöldi alla virka daga, en styttri tima á helgum dögum, en hvenær sem er á sólahringnum er hægt að ná símasambandi við lækni okkar, ef þörf gerist. Bíl- vegur er kominn að Breiðavík hvern dag að vetrinum og oftar ef þörf gerist. Mér finnst því ekki ástæða til að kvarta undan sambandsleysi við okkar ágæta lækni. Einnig hefir hann lyfja- kassa víða um sveitina með alls konar meðulum, sem hann getur vísað á til þess að flýta fyrir ef með þarf, og spara fólki það ó- mak að ná meðulum frá Patreks- firði. Sé flugveður tekur það Björn Pálsson eina klukkustund að fljúga frá Reykjavík til Breiða víkur, en þar getur hann lent á útfjari og hefir gjört það oft og mörgum sinnum, þótt ekki hafi verið í sjúkraflugi. Ég tel enda eru þeir það og þess full þörf. Hinrik telur heimilið mjög ein- angrað, svo að óæskilegt sé og geti verið mjög viðsjárvert, og valdi því meðal annars, að erfið- leikar séu um öflun hæfs starfs- fólks. Þar er ég honum heldur ekki sammála. Um starfsfólkið hef ég áður getið, og ég tel heim- ilið hæfilega einangrað, til þess að drengirnir geti ótruflaðir not- ið þeirra góðu uppeldisáhrifa, sem þeir eiga að verða fyrir á heimilinu. Skólastjórinn hefir látið fylgja viðtalinu nokkrar myndir af nem endum sinum, sem teknar eru við heldur kuldalegt umhverfi, eða að vetrinum, en þær tala samt sínu máli og eru honum ekki að öllu leyti sammála. En hann hefir ekki haft tækifæri til að taka myndir af nemendum sinum að sumrinu við hlýlegra umhverfi, því Breiðavík hefir fleiri hliðar en kuldahliðina, þar sem skóla- stjórinn hefir verið fjarverandi að sumrinu, og er það miður. Ef vel ætti að vera þyrftu drengirn- ir að njóta návistar fræðara sinna einnig að sumrinu. Sumarið er sá tími, sem dreng- irnir hafa mest frjálsræði, og verða minna varir við húsnæðis- skortinn, og það er talið kann, að vera ábótavant við aðbúð þeirra, er ég, sem alinn er upp í sveit, kem þó ekki auga á. ekki alltaf hægt. Starf *g leikur Það er ekki rétt hjá Hinrik, að hingað til hafi drengirnir ekki Meiri fjárveitingar þörf Þetta málefni sem fleiri misstu góðan fulltrúa af Alþingi, þegar Gísli Jónsson fór þaðan. Enginn maður hefur betur en hann, vak- ið athygli þings og pjóðar á því hver nauðsyn það er að hafa | slík heimili bæði fyrir drengi og stúlkur. Þetta heimili hefir kostað mik- ið fé eins og að líkum lætur. Fjárveiting til þess hefur alltaf reynzt of lítil miðað við þörf- ina. Oft hafði þó fyrrverandi stjórenendum heimilisins tekizt með harðfylgi að knýja fram meira fé en gjört var ráð fyrir á fjárlögum, og þannig þokað lengra í áttina. Þessir erfiðleikar á að fá fé til stofnunarinnar, og þar af leiðandi seinagangur á nægjan- legu húsnæði, mun hafa valdið því að fyrrverandi stjórnarnefnd og brautryðjendur starfsins sögðu af sér störfum, sem mér þykir miður. Ný nefnd hefur verið skipuð, er hún skipuð fólki á Patreksfirði og er Ágúst Péturs- son, sveitarstjóri, formaður henn- ar. Finnst mér og ef til vill fleir- um að heimilið hefði iítið tjón af hlotið.'þótt einn nefndarmanna hefði verið kjörinn úr þeim hreppi, sem heimilið er starfrækt i, til dæmis sóknarpresturinn. En viðkomandi ráðuneyti hefur ekki séð ástæðu til þess. En sjálf- sagt er þetta vel valin nefnd, sem líkleg er til að fá ríkissjóð til þess að leggja fram nægjan- Guðmundur Jónatansson, gamall sjósóknari að sunnan, leggur frá landi með vistdregni urdir árum. Einhverntíma hefði honum þótt þetta smávaxnir ræðarar og liðléttir til að taka brimróður, en skipshöfnin er lukkmleg. það þvi eingöngu af viljaleysi, ef skólastjóri í Breiðavik getur ekki haft nauðsynlegt samband við lækni okkar. Hinrik fullyrðir i viðtali sínu, að þessi stofnun verði aldrei til fyrirmyndar sem uppeldisstofnun nema sá háttur sé hafður á að ala fyrst upp starfsfólkið áður en tekið sé til við uppeldi drengj- anna. Ágætis starfsfólk Ég vil ekki hafa á móti sér- menntuðu fólki við þessa stofn- un eða aðrar að vissu marki og tel það sjálísagt og nauðsynlegt. Þessi stofnun hefir verið sérstak- lega heppin með starfsfólk, þrátt fyrir þau vandkvæði sem skóla- stjórinn telur á að fá fólk til að dvelja þar. Þangað hefur valizt frá því fyrsta, ekki einungis gott fólk heldur ágætis fólk, þótt ekki hafi það haft sérmenntun í þessu fagi nema þá kennararnir. Ég hef kynnzt flestu fólki, sem þarna hefir verið all náið, og skal segja sem er og enga dul á draga, að mér hefir virzt að beztu og varanlegustu áhrifanna, sem eins og að öðrum bæjum hér í j drengirnir hafa orðið fyrir, hafa sveit. Það má segja að þessi veg- ur sé opinn til Patreksfjarðar 8 mánuði ársins og tekur þá 1—lVs tíma að fara þá leið. Hina 4 mán- uðina má búast við honum lok- uðum af og til, all oftast er þó hægt að fara á bíl frá Breiðavík og inn að Patreksfirðinum eða í þeir orðið fyrir frá húsmæðrun- um, sem þarna hafa gengið þeim í móðurstað, þótt ekki hafi þær verið sérmenntaðar. Ég álít því, að siðan að þarna fóru að vera tveir kennarar hafi drengirnir ekkert liðið fyrir skort á sér- menntuðu fólki, og tveir kennar- örlygshöfn, því snjó hefir verið ; ar yfir 12—15 drengjum á sama rutt af þeirri leið 2—3 á vetri, en heimili, ættu að geta verið þeim bátur heldur uppi ferðum yfir , svolítið meira en kennari getur fjörðinn að örlygshöfn annan I venjulega verið sínu skólabarni, farið á sjó, þótt það hafi ekki verið í hans tíð, þá var það þó í tíð Bergsvins Skúlasonar að farið var á sjó með drengina og þannig aflað fisks fyrir heinýlið. í seinni tíð hefir enginn verið til að fara á sjó með drengina vegna annríkis við byggingar og jarð- rækt, og það því að mestu fallið niður og er það verr farið. Að sumrinu vinna drengirnir að hvers konar bústörfum, öflun heyja og öðru er tilfellur. Þess utan fá þeir að leika sér eftir því, sem þeir hafa getu og vilja til, fara í gönguferðir með sjón- um, á berjamó og margt fleira. Þá fá þeir að fara á flestar meiri- háttar samkomur innan sveitar- innar, svo sem sumarfagnað, leik- sýningar, 17. júni o. fl. Að vetr- inum fá þeir að fara á jólatrés- samkomu, sem er haldin sameig- inlega fyrir alla sveitina. Auk þess fer bústjórinn stundum um helgar með þá í ökuferðir um sveitina og næsta nágrenni henn- ar, sem drengirnir hafa mjög gaman af. Sem sagt, allt er gert er aðstæður leyfa til að drengj- unum verði dvölin þarna sem ánægjulegust, og þeim geti liðið sem bezt. Það sem mest er þó þvi til fyrir stöðu er húsnæðisskortur að vetrinum eins og skólastjórinn tekur réttilega fram. En þrátt fyrir allt er árangurinn eins og legt fé til að bæta fljótt og vel úr húsnæðisþörf heimilisins, en það tel ég fyrsta skilyrðið til þess að góður árangur náist. Mitt álit á þessum málum er það, að við sem menningarþjóð, er hefir sýnt það í verki að hún vill á allan hátt búa sem bezt að sínum þjóðfélagsþegnum, ungum sem gömlum, sjúkum sem lieil- brigðum, getum ekki án þess verið að eiga slík heimili bæði fyrir drengi og stúlkur, sem lík- leg eru til af einhverjum ástæð- um að villast af hinum almenna lífsvegi inn á hættulegar brautir, sem aldrei verður komið í veg fyrir að liggi útfrá hinum rétta og æskilega vegi, er kennimenn þjóðarinnar eru alltaf að vekja athygli okkar á. En reynslan hef- ur sýnt okkur, að þeir, sem út á hinar hættulegu brautir villast á barnsaldri, halda eftir þeim í flestum tilfellum, ef ekkert er aðgert, sér og þjóðinni til tjóns, þar til það er um seinan að snúa við. Umrædd heimili ættu því að verða þessum unglingum sem varða við veginn, er þeir gætu áttað sig og komist aftur á rétta leið. En menningarþjóð, hlýtur að krefjast þess, að nægjanlegt fé sé lagt fram af sameiginlegum sjóði hennar svo hægt sé að gjöra þessa vegvísa svo úr garði að menningarbragur sé að. Þannig á, og getur menningarþjóð komið hann segir frá. Og óhaett er að ; til móts við þá hugsjónamenn og fullyrða að drengjunum líður j konur, sem hér eru að varða veg- þarna mjög vel. Sumir af þeim, sem farnir eru, hafa skrifað bú- «tjóranum, og beðið hann að taka sig aftur, en því miður er það inn fyrir framtíðina. Engin veit hvaða barnið villist næst, þar ræður oft tilviljun ein. Látrum í september 1958.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.