Morgunblaðið - 03.10.1958, Side 19
Föstudagur 3. október 1958
MORCUTSBLAÐIÐ
19
Ástralía og Nýja Sjáland
sfyðja stefnu Dulles
WASHINGTON, 2. okt. — Ástra-
lía og Nýja Sjáland ákváðu í dag
að taka undir áskoranir Banda-
ríkjastjórnar til kínverskra komm
únista að hætta nú þegar hinum
vopnuðu árásum sínum á eyjarn-
ar Quemoy og Matsu. Telja stjórn
ir Ástralíu og Nýja Sjálands að
framferði kommúnista að undan-
förnu sé alvarleg ógnun við frið-
inn í heiminum. Kom þessi af-
staða fram á funrdi Anzus varnar-
bandalagsins, sem haldinn var í
Washington.
tJtlán byrjuð
H AFN ARFIRÐI — Hið nýja
bæjar- og héraðsbókasafn var
opnað til útlána 1. okt. og verður
það opið í vetur alla virka daga
kl. 2—7 síðd., nema laugardaga,
þá'kl. 2—5. Þrjú kvöld vilcunnár
er það opið kl. 8—10 e. h. Les-
stofan er opin á sama tima, en
þar liggja frammi öll dagblöðin,
tímarit ýmis konar, orðabækur,
fræðibækur o. fl. — og einnig eru
að sjálfsögðu lánaðar bækur úr
safninu.
Á fyrsta degi var mjög góð
aðsókn að bókasafninu, og voru
þá t. d. lánaðar út 100 bækur.
— Allt fyrirkomulag og skipulag
er þar með ágætum og húsrými
mikið og hið þægilegasta í alla
staði. Sömuleiðis er lestrarsalur-
inn mjög nýtízkulegur og öllu
þar mjög haganlega fyrir kom-
ið. — Bókavörður er sem fyrr
Anna Guðmundsdóttir og vara-
bókavörður Þóroddur Guðmunds
son skáld, sem kennt hefir í
Flensborgarskóla, en fengið
lausn frá kennslu í vetur.
Á fundinum mættu Richard
Casey utanríkisráðherra Ástralíu,
Walter Nash forsætisráðherra
Nýja Sjálands og John Foster
Dulles utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
í tilkynningu sem gefin var út
við lok fundarins segir m. a. að
Ástralía og Nýja Sjáland styðji
bandarísku stjórnina í tilraunum
hennar til að koma á friði á
Formósu-sundi. Fagna ráðherr-
arnir því að viðræður fara nú
fram í Varsjá miili fulltrúa
Bandaríkjanna og kínversku
kommúnistastjórnarinnar, þar
sem reynt er að finna friðsam-
lega lausn málsins. Gagnrýna
þeir harðlega framkomu kin-
verskra kommúnista, sem hafi
hafið valdbeitingu í landvinninga
skyni.
Telja ráðherrarnir, að þessi
valdbeiting sé brot á ölium þeim
grundvallarreglum, sem heims-
friður byggist á, alveg án tiilits
til þess hvorum beri að hafa yfir-
ráð yfir þrætueyjunum. Lýsa þeir
því yfir að það eigi ekki að líðast,
að hervaldí sé beitt til landvinn-
inga.
TÓKÍÓ, 2. okt. — (Reuter). —
Japanska stjórnin svaraði í dag
orðsendingu Sovétstjórnarinnar.
Rússar höfðu mótmælt því að
Bandaríkjamenn notuðu japansk-
ar eýjar á Kyrrahafi til árásar-
aðgerða gegn Kína. Japanir vísa
nú þessari ásökun á bug. Benda
þeir á það, að friðsamlegt hafi
verið á Formósusundi, þar til
fyrir skömmu að kínverskir
kommúnistar hófu hernaðarað-
gerðir með heiftarlegri skothríð
á eyjarnar Quemoy og Matsu. —
Námuslys
í Júgóslavíu
BELGRAD, 2. okt. (Reuter). —
Sprenging varð í morgun í kola-
námu við Podvis í Serbíu,
skammt frá búlgörsku landamær
unum. Þegar þetta gerðist voru
188 námumenn í námugöngunum,
f lestir þeirra í • 600 metra dýpi.
Eldar loguðu í námunni lengi
dags, en með skjótum aðgerðum
tókst að bjarga flestum námu-
mönnunum. Síðast þegar til var
vitað höfðu 30 námumenn þó far-
izt en 17 voru enn innikróaðir.
Sprengingin í námunni varð á
— S. U. S. siða
Framh af bls. 8
veginn gengt hlutverki sínu með
því framlagi sem nú er.
Nýr stúdentagarður og félags-
heimili er mjög brýnt hagsmuna-
mál stúdenta nú. Síðastliðin 2 ár
hefur Stúdentaráð átt í lang-
vinnri baráttu við yfirvöldin tii
þess að fá leyfi fyrir heppilégum
happdrættisvinning og skyldi
ágóða varið til þess að hefja
byggingu nýs stúdentagarðs. —
Skilningsleysi stjórnarvalda á
máli þessu hefur hefur orðið til
þess, að framkvæmdir hafa dreg-
izt mjög á langinn.
Sl. vetur var merkilegum
áfanga náð í hagsmunabaráttu
stúdenta, en þá fengu stúdentar
fulltrúa í háskólaráð. Bjarni
Beinteinsson stud. jur. gegndi
því starfi sl. vetur, en sæti hans
hefur Birgir ísl. Gunnarsson nú
tekið.
Hér hefur einungis verið drep-
ið á hið helzta í starfi Stúdenta-
ráðs, en af nógu er að taka, sagði
formaður að lokum.
Septembermót frjálsíþró ttamanna og
fugþraut R.víkurmótsins um helgina
EINS og kunnugt er átti hið svo-
nefnda Septembermót frjáls-
íþróttamanna að fara fram um
seinustu helgi, en vegna óhag-
stæðs veður, sem hafði gert
stökkbrautir og hlaupabrautir
íþróttavallarins ónothæfar, þá
varð að fresta þessari keppni til
n. k. laugardags.
X stað eins dags móts, sem á-
kveðið hafði verið, þá fer nú
keppnin fram um helgina á tveim
dögum og verður mótið haldið í
sambandi við tugþrautarkeppni
Meistaramóts Reykjavíkur.
Keppnin í hinum ýmsu grein-
um verður sennilega mjög
skemmtileg eg hafa hinir ungu
íþróttamenn okkar í hyggju að
reyna að hnekkja nokkrum
gildandi Islandsmetum.
í 400 metra greindahl., 2000
metra hlaupi, sleggjukasti og jafn
vel í hástökki er búizt við nýj-
um íslandsmetum. — í grindahl.
mun Guðjón Guðmundsson KR
keppa, en hann hefur tvívegis
Þorvaldur Ari Arason, hdl.
LÖGMANNSSKRIFSTOFA
Skólavörðustís 38
c/e Páli Jóh—Porletfsson tlj. - Pósth 621
Simar IS416 og 15417 - Símnefni. 4»i
ÖRN CLAUSEN
heraðsd ómslögxnað ur
Malt'utningsskrií stofa.
Bankastræti 12 — Sím: 18499.
hlaupið 400 metra grindahlaupið
á aðeins 1/10 hl. úr sek. skemur
en gildandi Islandsmet. Svavar
Markússon KR, sem nýlega er
komin heim úr keppnum sínum
erlendis og þá síðast á Rudolf
Harbig-mótinu í Dresden, mun
reyna ásamt Kristleifi Guðbjörns
syni KR að hnekkja metinu í
2000 metrum. Þórður B. Sigurðs-
son KR bætti íslandsmetið í
sleggjukasti fyrir 3 dögum og
kastaði sleggjunni 52.30 metra,
sem var nokkrum cm. betra en
eldra gildandi met hans. Mun
hann reyna aftur við metið á
laugardaginn. Jón Pétursson er
meðal keppenda í hástökkinu og
hefur hann stokkið 1.93 metra
í sumar en gildandi íslandsmet
er 1.97 m.
■ Á laugardaginn kl. 2 hefst mót-
ið með keppni í 100 metrum,
langstökki, kúluvarpi, hástökki
og 400 metra hlaupi, en þetta eru
tugþrautagreinarnar. — Aðrar
keppnisgreinar á laugardag verða
2000 metra hlaup, 400 metra
grindarhlaup, 200 metra hlaup
unglinga.
Á sunnudag kl. 2 fer seinni
hluti tugþrautarinnar fram með
keppni í 110 mtr. grindarhl.,
kringlukasti, stangarstökki, spjót
kasti, 1500 mtr. hlaupi. Aðrar
greinar verða 800 mtr. hlaup
unglinga og 1000 mtr. boðhlaup.
Einnig getur verið að fram fari
keppni í 300 metra hlaupi eða
800 metra hlaupi, ef næg þátt-
taka fæst.
Skráðir keppendur á mótinu
eru um 60.
Afgreiðslustúlkur
óskast hálfan daginn í verzlunina Tízkuna og’ Herra-
tízkuna Laugavegi 27. Umsækjendur komi til viðtals
í Herratízkúna í dag kl. 6—7. Fyrirspurnum ekki
svarað í síma.
Lokað í dap
frá kl. 2,30—4,30 e.h.
vegna jarðarfarar.
Klæðaverzíun
Andrésar Andréssonar
Af alhug þakka ég börnum mínum og öðrum skeyti,
gjafir og blóm á 95 ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Stefánsdóttir.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á 85 ára
afmæli mínu 20. sept. síðastliðinn, þakka einnig skeyti.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sigurðardóttir, Smyrilsveg 29.
Beztu þakkir færi ég ykkur öllum sem heimsóttu mig,
færðu mér gjafir, blóm og sendu mér skeyti á áttræðis-
afmælinu mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Magdalena Brynjólfsdóttir, Skagabraut 35, Akranesi.
Maðurinn minn og faðir okkar
ÞOKIJNDl H JÖHANNSSON
frá Hvammi, Fáskrúðsfirði, sem lézt laugardaginn 27.
sept. verður jarðsunginn laugardaginn 3. október.
Athöfnin hefst í Búðarkirkju kl. 1 e.h.
Jarðsett verður að Kolfreyjustað.
Guðlaug Magnúsdóttir og börn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför litla drengsins okkar
BENEDIKTS SVAVABS
Magdalena Benediktsdóttir, Tyrfingur Tyrfingsson,
Þórhöfn, Ytri-Njarðvík.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
JÓNU HEEOADÖTTUK
Reynimel 35.
Sérstaklega viljum við þakka Ólöfu og Magnúsi Andrés
syni. Ennfremur öllum þeim mörgu vinum, er sýndu
henni umhyggju í erfiðum veikindum.
Aðstanilendur.
Þökkum innilega samúð við fráfall og jarðarför manns-
ins míns, föður, tengdaföður og afa
JÖNS EIRÍKSSONAR
skipasmiðs, Hjallavegi 9.
Magnea Torfadóttir, Geir R. Jónsson,
Torfhildur I. Jónsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson,
Kristján V. Jónsson, Lovísa Helgadóttir,
og barnabörn.
Þökkum innilega samúð við fráfall og útför mannsins
míns, föður okkar og tengdaföður
MAGNCSAR SVEINSSONAR
Leirvogstungu.
Sérstaklega viljum við þakka sveitungum margháttaða
aðstoð og rausn.
Steinunn Guðmundsdóttir, Hlynur Magnússon,
Selma Bjarnadóttir, Guðmundur Magnússon,
María Ágústsdóttir, Haraldur Magnússon.
Hjartanlega þökkum við öllum sem sýndu okkur samúð
og hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns,
föður, tengdaföður.afa, langafa og bróður okkar
ÁSBJÖRNS PÁLSSONAR
frá Sólheimum, Sandgerði,
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Þorbjörg Snorradóttir,
Sigríður Ásbjörnsilóttir, Eggert Ólafsson,
Jónína Ásbjörnsdóttir, Magnús Loftsson,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna.