Morgunblaðið - 14.10.1958, Qupperneq 1
20 siður
Kommúnistar töpuðu 27 full-
trúum irá 6 verkalýðsfélögum
Misstu m.a. fulltrúa Iðju, Trésmiða-
félags Reykjavíkur, Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja og Véístjórafélags
V estmannaeyja
Kosningum til Alþýðusambandsþings
að Ijúka
f KOSNINGUM ÞEIM, sem fram fóru í verkalýðsfélögunum
á fulltrúum til Alþýðusambandsþings um síðustu helgi, biðu
koinmúnistar mikinn ósigur. Töpuðu þeir samtals 27 fulltrú-
um í 6 verkalýðsfélögum. Félögin, sem kommúnistar töpuðu
fuílírúum frá, voru: Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík,
sem kýs 16 fulltrúa, Trésmiðafélag Reykjavíkur, er kýs 5
fulltrúa, Verkalýðsfélag Vestmannaeyja, sem kýs 2 fulltrúa,
Vélstjórafélag Vestmannaeyja, sem kýs 2 fulltrúa, og Verka-
lýðsfélag Hnífsdælinga, sem kýs 1 fulltrúa. Ennfremur töp-
uðu kommúnistar einum fulltrúa í verkalýðsfélaginu á
Skagaströnd.
Mikið áfall
Er hér um að ræða mikið
áfall fyrir kommúnista, og
hefur aðstaða þeirra á Alþýðu-'
sambandsþingi veikzt stór-
lega við þessar breytingar,
sem orðið hafa frá því að síð-
ast var kosið til þingsins.
Kosningum til Alþýðusam-
bandsþings er nú að Ijúka.
Það vekur nokkra athygli, að
forseti Alþýðusambandsins,
Hannibal Valdimarsson, hefur
ekki verið kosinn fulltrúi á
þingið. Var hann síðast full-
trúi Baldurs á ísafirði.
TÍrslit kosningarinnar í Dags-
brún urðu þau, að kommúnistar
fengu fulltrúa sína kjörna með
svipuðu atkvæðamagni og þeir
fengu síðast við stjórnarkjör í fé-
laginu í janúar sl.
Úrslit í einstökum félögum
Hér fara á eftir úrslit í einstök-
um verkalýðsfélögum, sem kosið
var í um síðustu helgi.
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík: B-listi lýðræðissinna
hlaut 781 atkv. og alla 16 fulltrúa
félagsins kjörna.
Þegar síðast var kosið til Al-
þýðusambandsþings hlutu komm-
únistar alla fulltrúa Iðju.
Trésmiðafélag Reykjavíkur. —
Þar urðu úrslitin þau, að B-listi
lýðræðissinna hlaut 223 atkv. og
alla 5 fulltrúa félagsins kosna.
Listi kommúnista, A-listinn, fékk
205 atkv.
Við stjórnarkosningar í vetur
hlutu lýðræðissinnar 209 atkv.,
en kommúnistar 201. Við síðustu
Alþýðusambandskosningar fengu
kommúnistar alla fullti’úa félags-
ins kosna.
I Verkamannafélaginu Dags-
brún urðu úrslitin nú þau, að
listi kommúnista, A-listinn, fékk
1327 atkv., en lýðræðissinnar 831
atkv. Fá kommúnistar því alla 34
fulltrúa félagsins.
I stjórnarkosningunum á sl.
vetri fékk listi kommúnista 1291
atkv., en lýðræðissinnar 834.
Kommúnistar töpuðu þann
ig 21 fulltrúa við kosningarn-
ar í Iðju og Trésmiðafélaginu.
Mikill ósigur kommúnista
I Vestmannaeyjum
í Vestmannaeyjum biðu komm-
únistar einnig mikinn ósigur á
sunnudaginn. Þar var kosið í
tveimur verkalýðsfélögum.
í Verkalýðsfélagi Vestmanna-
eyja urðu úrslitin þau, að B-listi
lýðræðissinna hlaut 99 atkv. og
báða fulltrúa félagsins kjörna.
A-listi kommúnista fékk 88 atkv.
Töpuðu kommúnistar þarna 2
fulltrúum.
í Vélstjórafélagi Vestmanna-
eyja urðu úrslitin þau, að komm-
únistar töpuðu báðum fulltrúum
félagsins. Hlaut listi lýðræðis-
sinna þar 87 atkv., en listi komm-
únista 76 atkv.
Það þykir sérstaklega at-
hyglisvert, að aðalforingi
kommúnista í Vestmannaeyj-
um, Karl Guðjónsson, alþm.,
áræddi ekki að vera í kjöri
við kosninguna í verkalýðsfé-
laginu.
Mun hann hafa séð fram á
ófarir flokksmanna sinna og
ekki viljað taka þátt í falli
þeirra.
Töpuðu einnig í Hnífsdal
og á Skagaströnd
í kosningu á fulltrúa Verka-
lýðsfélags Hnífsdælinga unnu
lýðræðissinnar fulltrúa félagsins,
sem kommúnistar höfðu átt á
síðasta Alþýðusambandsþingi.
Á Skagaströnd fór fram alls-
herjaratkvæðagreiðsla og hlaut
listi lýðræðissinna þar 80 atkv.
og báða fulltrúa félagsins kosna.
Listi kommúnista hlaut 31 atkv.
Unnu lýðræðissinnar þarna eitt
sæti af kommúnistum.
í verkalýðsfélaginu í Borgar-
nesi fór einnig fram allsherjar-
atkvæðagreiðsla. Hlaut listi lýð-
ræðissinna þar 63 atkv. og full-
trúa félagsins kosinn. Listi komm
únista hlaut 36 atkv.
Þá voru fulltrúar lýðræðis-
sinna einnig kosnir í Verkalýðs-
félagi Austur-Eyjafjallahrepps í
Rangárvallasýslu og í Verkalýðs-
félagi Vatnsleysustrandar í Gull-
bringusýslu.
Loks var kosið í Verkalýðsfé-
laginu Baldri á ísafirði sl. laugar-
dag, er kaus 4 fulltrúa. Var sjálf-
kjörmn listi, er stjórn félagsins
stóð að.
í Verkalýðsfélaginu Hvöt á
Hvammstanga voru einnig sjálf-
kjörnir tveir fulltrúar á Alþýðu-
sambandsþing.
Víttur fvrir
j
unmiælin
KAIRÓ, 13. okt. — í dag vora
samþykktar samhljóða vítur á
fulltrúa Túnis í fastaráði Araba-
bandalagsins fyrir ummæli hans
í gær. Hann sagði þá, að Ara-
bíska sambandslýðveldið vildi
stjórna öllu í Arababandalaginu
og talaði undir rós um ofríki
Nassers. — Fulltrúi Túnis fór
heim í dag um svipað leyti og
fundur fastaráðsins hófst. Á
fundinum var samþykkt að
strika ummæli hans út úr gerða
bók ráðsins. Egypzk blöð réðust
í dag heiftarlega á Túnisstjórn,
kölluðu hana jafnvel handbendi
heimsvaldasinna.
Fjórburar
DETROIT, 13. okt. — í dag fæddl
frú Julia Ullman fjórbura, allt
stúlkubörn. Fæðingin gekk að
óskum og heilsast móður og dætr
um vel.
Lík páfa flutt til Péturskirkjunnar. Byggingin í baksýn er Colosseum.
Pius páfi XII. jarðsettur
Hœttan liðin hjá við
Formósu
WASHINGTON, 13. okt. —
Stjórnmálamenn í Washing-
ton eru þeirrar skoðunar, að
hættan á Formósusundi sé
liðin hjá í þetta skipti. Eins
og kunnugt er af fréttum,
ákvað Pekingstjórnin að fram
lengja vopnahléð um tvær
vikur enn. Gert er ráð fyrir,
að Bandaríkjastiórn muni nú
reyna að fá Chiang-Kai-Shek
til að minnka stórlcga her-
styrk þjóðernissinna á hinum
umdeildu eyjum. Auk þess
muni Bandaríkjastjórn
minnka til muna herstyrk
sinn á Formósu. — Utanríkis-
ráðherra Filippseyja sagði í
kvöld, að vopnahléð væri ár-
angur af málamiðlunarstarf-
semi Breta, Indverja og
Norðurlandaþjóðanna.
i gær
RÓM, 13. okt. — í dag var Pius
páfi XII. lagður til hinztu hvilu
í Péturskirkjunni í Róm. Athöfn-
in tók 3 klst. í kór sátu kardí-
nálar og fulltrúar erlendra ríkja.
— Athöfnin fór fram fyrir fram
an altari kirkjunnar. Lík páfa
var lagt í trékistu og utan um
hana var sett blýkista (um 1 lest
á þyngd) og yzt var loks kista úr
bronsi. Kisturnar voru steyptar
í gólfið undir kirkjunni, ekki
langt frá gröf Péturs postula.
★
Péturskirkjunni var lokað um
hádegi og biðu þá enn um 40 þús.
manns úti fyrir, sem höfðu ekki
haft tækifæri til að votta páfan-
um hinztu virðingu. Ekki löngu
síðar hófst útfararathöfnin með
því, að páfinn var kistulagður.
Athöfnin hófst með því, að tónað
var „Miskunna þú oss, drottinn"
og tekið undir af kór „Miskunna
þú þig yfir oss, drottinn, sam-
kvæmt þinni miklu náð“. Þá
stóðu fyrirmenn á fætur og sex-
tán burðarmenn af aðalsættum
báru líkbörur páfa upp að altar-
inu. Lífvörður gekk með börun-
um. Við háaltarið stóð skrúðhús-
vörður páfa, hollenzki biskupinn,
Van Lierde, sem hellti vígðu
vatni á andlit páfa og söng hina
gömlu bæn, „Sieut Cervus“.
Frh. á bls. 19.
★---------------------------*
Þriðjudagurinn 14. október
Efni blaðsins er m. a.:
Bls. 3: Kosning forseta Alþingftg
— 6: Kvennaskóli Húnvetninga,
Blönduósi.
Skákbréf frá Munchen.
— 8: Frú Guðrún Jónasson fyrr-
verandi bæjarfulltrúi látin.
Happdrætti Háskóla ía-
lands.
— 10: Samtal við Karl Guðmundi
son k nattspy rnuþjálfara f
Noregi.
— 11: Páfa minnzt í Eandakote-
kirkju.
— 12: Hlustað á útvarp.
— 18: Maraþonhlaup í myrkri tf
frosti.
*---------------------------*