Morgunblaðið - 14.10.1958, Qupperneq 3
Þriðjudagur 14. okt. 1958
UORCVISBL 4Ð1Ð
3
Blaðamennirnir ýktu
ummœli sjómannsins
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt bréf frá Victor Smith, brezka
togarasjómanninum, sem skorinn
var upp á Patreksfirði fyrir
nokkru. — Segir hann þar
að brezku blöðin hafi gert meira
úr ummælum sínum um hjúkr-
unarkonuna Þó. u Magnúsdóttur
en efni stóðu til. Fer meginhluti
bréfsins hér á eftir í íslenzkri
þýðingu:
„Þér munið ef til vill eftir
hinni stuttu, en ákaflega ánægju-
legu heimsókn minni á Islandi.
Síðan ég kom til baka hefi ég
lent í hræðilegum vandræðum.
Sjáið þér til, brezku blöðin
náðu í mig og vildu fá hjá mér
frásögn, og þar sem mig langaði
til að sýna fólki á fslandi, sem
hér átti hlut að máli, þakklæti
mitt og láta almenning í Bret-
landi vita hversu vel var farið
með mig, þá voru blöðin áhrifa-
ríkasta tækið. Ég sagði þess
vegna frá því hve góðir allir
hefðu verið mér, en þau hafa
gert meira úr ummælum mín-
um en efni stóðu til,
sérstaklega í sambandi við
Þóru, hjúkrunarkonuna sem í
hlut átti. Sjáið þér til, ég sagði
6ara að mér fyndist hún dásam-
leg manneskja, og ég verð henni
og lækninum eilíflega þakklátur
Sjómannsekkjan Hólmfríður
Oddsdóttir, hlaut DAS-íbúð-
ina að Selvogsgrunni 11, 3.
okt. sl. og er frúín í eldhúsi
sínu þar er myndin var tekin.
Bróðir Hólmfríðar, Jón Odds-
son, er rak útgerð í Englandi
í mörg ár, hefur gefið þrjár
herbergisgjafir til dvalar-
heimilisins að Hrafnistu.
Æfingar liafnar
fyrir það sem þau gerðu fyrir
mig.
Jæja, ég þykist vita að þér
kannizt við blöðin hérna og vit-
ið hvernig starfsaðferðum þeirra
er háttað. Þess vegna munuð þér
ef til vill skilja tilfinningar mín-
ar, þegar ég hef skýrt yður frá
vandamáli mínu.
Brezku blöðin hafa gert ein-
hverjá stórkostlega rómantíska
sögu úr sambandi okkar Þóru.
Og ég tek mér það ákaflega
nærri, því ég skil hvað Þóru
mun finnast um það. Þetta hlýt-
ur að vera ákaflega leiðinlegt og
óþægilegt fyrir hana, eins og það
líka er hvað mig snertir. Það
var aldrei ætlun mín að láta
slíkt koma fyrir, því ég ber virð-
ingu fyrir Þóru og tilfinningum
hennar. Þér getið því rétt ímynd-
að yður hvað ég tek mér þetta
nærri. .
Mínar eigin tilfinningar í garð
einhverrar manneskju eru mitt
einkamál og svo er um tilfinning-
ar Þóru líka, skyldi ég halda.
Þess vegna vil ég ekki að neinn
verði til þess að særa hana á
nokkurn hátt.
Ef nokkur tök væru á, mundi
ég koma aftur til íslands og í
sjálft sjúkrahúsið, þar sem ég
mundi útskýra málið fyrir Þóru,
því ég vil að þetta verði leið-
1 rétt.
Gætuð þér nú ekki hjálpað
mér í þessu vandamáli með því
að hafa samband við Þóru og
segja henni það sem ég hef skrif-
að og útskýra fyrir henm hvað
mér finnst um þetta allt.
Ef þér gætuð gert þetta fyrir
mig, væri ég yður eilíflega þakk-
látur“.
Þetta höfum við gert, og hér
fær Þóra skýringar piltsins.
hjá SH
HAFNARFIRÐI —- Æfingar eru
nýlega hafnar hjá Sundfélagi
Hafnarfjarðar, og verða þær í
vetur, sem hér segir: Yngri flokk
ur á mánud. kl. 6,30, eldri flokk-
ur á miðvikud. og fimmtud. kl.
7,30 og föstud. kl. 6,30, en þá
verður jafnframt útiæfing.
Mikill áhugi er nú í hafnfirzk-
um sundmönnum og eru hér
margir góðir sundmenn á lands-
mælikvarða. Skilyrði eru hin
ákjósanlegustu til sundiðkana í
Sundhöllinni, en þar er nú mikið
að starfa dag hvern, því að skól-
arnir eru byrjaðir æfingar. Þess
skal getið, að tekið er á móti nýj-
um félögum í Sundfélag Hafnar-
fjarðar á þeim dögum, sem æf-
ingar fara fram, og geta þeir,
sem óska eftir að vera með í vet-
ur, gefið sig fram við formann-
inn, Hörð Óskarsson. — G. E.
Samninganefnd Verzlunarmannafélags Reykjavíkur (talið frá
vinstri). Fremri röð: Októ Þorgrímsson, Einar Birnir, Guð-
mundur H. Garðarsson, formaður VR, Sverrir Hermannsson,
fcrmaður samninganefndar, og Óskar Sæmundsson, formaður
deildar samvinnustarfsmanna í VR. Aftari röð: Ásgeir Halls-
son, Markús Stefánsson, Björgúlfur Sigurðsson, Guðmundur
Jónsson, Gunnlaugur J. Briem og Hannes Þ. Sigurðsson. — A
myndina vantar Eyjólf Guðmundsson og Sigurð Helgason.
Mikilvœgir samningar
milli Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur og SIS
V.R. hefur hlotið viðurkenningu allra
vinnuveitenda
FÖSTUDAGINN 10. okt. sl. var
undirritaður samningur um kaup
og kjör milli Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur og Sambands
íslenzkra samvinnufélaga. — Er
þetta í fyrsta skiptið, sem SÍS
Forsetar Alþingis voru
kjörnir í gœr
Sjö þingskjölum
útbýtt
ALÞINGI hélt áfram störfum í
gær. Kl. i.,30 var settur fundur
í sameinuðu þingi. Páll Zóphóní-
asson setti fundinn í fjarveru
aldursforseta, Jóhanns Þ. Jósefs-
sonar.
Fyrsta málið, sem lá fyrir
var kosning forseta sameinaðs
þings. Urðu úrslit þau, að kjör-
inn var Emil Jónsson með 28
atkv. Jón Pálmason fékk 15 atkv.
Fyrri varaforseti sameinaðs þings
var kjörinn Gunnar Jóhannsson
með 29 atkv. Auðir seðlar voru
16. Annar varaforseti sameinaðs
þings var kjörinn Karl Kristjáns-
son með 28 atkv., en 1'8 seðlar
voru auðir. Skrifarar sameinaðs
þings voru kjörnir þeir Friðjón
Þórðarson og Skúli Guðmunds-
son, og í kjörbréfanefnd Bjarni
Benediktsson, Friðjón Þórðarson,
Gísli Guðmundsson, Áki Jakobs-
son og Alferð Gíslason.
Að því búnu var fundi slitið í
sameinuðu þingi, en settir fundir
í deildum og kosnir deildarfor-
setar og skrifarar. Forseti neðri
deildar var kjörinn Einar Olgeirs
son með 18 atkv. Jón Sigurðsson
hlaut 11 atkv. Fyrri varaforseti
var kjörinn Halldor Ásgrímsson
með 19 atkv., en 12 seðlar voru
auðir. Annar varaforseti var
kjörinn Áki Jakobsson. Skrifarar
neðri deildar voru kjörnir þeir
Magnús Jónsson og Páll Þor-
steinsson.
Forseti efri deildar var kjörinn
Bernhard Stefánsson með 11 at-
kvæðum. Sigurður Bjarnason
hlaut 5 atkv. Fyrri varaforseti
var kjörinn Friðjón Skarðhéðins-
son og annar varaforseti Alfreð
Gíslason. Skrifarar efri deildar
voru kjörnir þeir Sigurður Óli
Ólafsson og Karl Kristjánsson.
Útbýtt var sjö þingskjölum og
voru þau sem hér segir: 1. Frum-
varp til fjárlaga fyrir árið 1959.
2. Frumvarp til laga um heimild
fyrir ríkisstjórnina til að inn-
heimta ýmis gjöld 1959 með við-
auka. Er frumvarp þetta sam-
hljóða lögum nr. 83/1957, um
heimild fyrir ríkisstjórnina til að
innheimta ýmis gjöld 1958 með
viðauka. 3. Frumvarp til laga um
bráðabirgðabreytingu á lögum
um bifreiðaskatt o. fl. Gerir frum
varp þetta ráð fyrir framleng-
ingu ákvæða um sama efni, sem
eru í lögum frá 1957. 4. Frum-
varp til laga um bráðabirgða-
breytingu á lögum um tollskrá
o. fl. Þetta frumvarp felur í sér
framlengingu ákvæða, sem eru
í lögum frá 1957. 5. Tillaga til
þingsályktunar um eflingu land-
helgisgæzlunnar og aukrtá vernd
íslenzkra fiskiskipa. Flm.: 10
þingmenn Sjálfstæðisflokksins. 6.
Frumvarp til laga um breytingu
á vegalögum. Flm.: Sigurður
Bjarnason. Er frumvarp þetta
samhljóða frumvarpi, er flutt
var á tveimur síðustu þingum, en
náði þá ekki afgreiðslu. 7. Tillaga
til þingsályktunar um innflutn-
ing varahluta í vélar, verkfæra
og áhalda til landbúnaðar og
sjávarútvegs. Flm.: Asgeir
Bjarnason o. fl.
Burt trá
Líbanon
BEIRUT, 13. okt. — Bandaríkja-
menn héldu í dag áfram að flytja
lið sitt frá Líbanon. Ekki hefur
verið gefin út nein tilkynning
um brottflutninginn og segja
fréttamenn, að mikil leynd hvíli
yfir honum. Hermennirnir eru
flestir fluttir burt með flugvél-
um, en hergögn og vistir með
skipum. Bandaríska sendiráðið í
Beirut skýrði frá því, að Banda-
ríkjamenn hygðust hafa sent allt
herlið sitt á brott frá Líbanon
um næstu mánaðamót.
semur við VR. Kjarasamningur-
inn milli þessara aðila er sam-
hljóða samningum VR við aðra
vinnuveitendur, að öðru leyti en
því, að sérákvæði er um lífeyris-
sjóð samvinnustarfsmanna.
Mikilvægur árangur
Mál þetta á sér nokkuð langan
aðdraganda. Hafa samningaum-
leitanir staðið lengi yfir milli
þessara aðila, en verulegur skrið-
ur komst á málið er starfsmenn
SIS og fyrirtækja þess sam-
þykktu með yfirgnæfandi meiri-
hluta, að viðhafðri allsherjarat-
kvæðagreiðslu, að gerast félagar
í VR. í september sl. var svo
stofnuð deild samvinnustarfs-
manna í VR. Ræður hún sérmál-
um sínum, en kaupl og kjaramál
og önnur sameiginleg hagsmuna-
mál eru að sjálfsögðu undir
stjórn VR. Félagar í deildinni eru
fullgildir félagar VR.
Samningsaðild SÍS er mjög
mikilvægur árangur í kjarabar-
áttu VR. Með henni hefur VR
hlotið endanlega viðurkenningu
allra vinnuveitenda sem stéttar-
félag og lögformlegur samnings-
aðili um kaup og kjör. — (Frétt
frá VR)
SöngsKemmrun
Stefáns íslandi
Á SUNNUDAGS- og mánudags-
kvöld ætlaði Stefán íslandi að
efna til söngskemmtana, en þeim
varð að aflýsa vegna veikinda
söngvarans. Nú standa vonir til
að söngskemmtanir þessar geti
orðið á fimmtudag og föstudag,
en það mun verða nánar auglýst
í dagblöðunum.
STAK8TEIIVAR
Lýðræðisást
Framsóknar
Þegar Framsókn stofnaði
Hræðslubandalagið með Alþýðu-
flokknum fyrir rúmum tveimur
árum lýsti hún því yfir að meg-
intilgangur hennar með því væri
að sigra kommúnista innan
verkalýðshreyfingarinnar. Hin-
um rússneskum áhrifum skyldi
eytt úr íslenzkum verkalýðsfé-
lögum. Framsókn sté á stokk og
strengdi þess heit að efla Alþýðu
flokkinn og lýðræðið í þessum
samtökum.
Niðurstaðan hefur hins vegar
orðið sú, að nú berjast Fram-
sóknarmenn eins og ljón með
kommúnistum í kosningunum til
Alþýðusambandsþings en Sjálf-
stæðismenn og Alþýðuflokks-
menn mynda fylkingu lýðræðis-
sinna gegn kommúnistum. Brodd
ar Iramsóknar leggja nú ofur-
kapp á að hjaipa kommúniscam
gegn Alþýðuflckknum í verka-
lýðssamtökunum
Svona er lýðræðisást Fram-
sóknar mikil, svona mikið er
Ieggjandi upp úr fyrirheitum
ieiðtoga hennar.
Þetta er vissulega holl lexía
fyrir Aiþýðuflokkinn, sem trúði
því að Framsóknarflokkurinn
teldi það ■ mikilsvirði að útrýma
:hrifum komrnúnismans úr verka
lýðshreyfingunni.
Kommúnistar
orðnir í minnihluta
En þrátt fyrir aðstoð Frant-
sóknarflokksins við kommún-
ista í verkalýðssamtökunum eru
kommúnistar nú búnir að tapa
fulltrúum frá fjölda félaga, mið-
að við síðasta Alþýðusambands-
þing. Þeir eru orðnir í minni-
hluta á því þingi, sem kemur
saman í næsta mánuði.
í Dagsbrún hafa kommúnistar
haldið aðstöðu sinni vegna þess
að leiðtogar kommúnista þar
hafa lýst því yfir, að þeir væru
komnir í andstöðu við vinstri
stjórnina.
Svik r'kisstjórnarinnar og úr-
ræðaleysi nefur þannig haft
mikil áhrif á skoðanir og afstöðu
fólksins í verkalýðssamtökunum.
Fjöldi fólks úr öllum starfsgrein-
um innan samtakanna hefur
snúizt gegn stjórninni.
Verkamenn sjá, að fullyrðing-
ar stjórnarherranna um að þeir
vilji hafa samráð við verkalýðs-
samtökin eru gaspur eitt, sem
enginn trúnaður er leggjandi á.
Vinstri stjórnin er einræðisklíka,
sem vill gjarnan misnota verka-
lýðssamtökin sér til framdráttar.
En hún skellir skollaeyrunum
við ráðum þeirra ef henni bíður
svo við að horfa.
Allsstaðar sama sagan
Kommúnistar eru alls staðar
að tapa í verkalýðsfélögunum.
Kosningaúrslitin um síðustu
helgi sýndu að þeir misstu full-
trúa í félögum í Vestmannaeyj-
um, í Reykjavík og vestur við
ísafjarðardjúp. Á Siglufirði, sem
liefur verið höfuðvígi kommún-
ista í verkalýðshreyfingunni,
fengu þeir nú sömu atkvæðatölu
og lýðræðissinnar, í stærsta
verkalýðsfélagi kaupstaðarins.
Niðurstaðan varð sú að Iýðræð-
issinnar fá 3 af 5 fulltrúum þess
félags.
Það er þannig auðsætt að fólk
ið vill að lýðræðisöflin innan
verkalýðshreyfingarinnar standi
saman, byggi samtökin upp og
miði starfsemi þeirra fyrst og
fremst við hagsmuni meðlima
þeirra en ekki pólitíska haga-
muni einstakra stjó"-.»á,lp-
flok ...