Morgunblaðið - 14.10.1958, Síða 20
VEÐRIÐ
S- eða SA-kaldi. Skúrir.
234. tbl. — Þriðjudagur 14. október 1958
Gufuhola í hitaveitu
Hveragerðis tóm
NOKKRUM klukkustundum eft-
ir að stóra gufuborholan við
Gufudal í Ölfusi var opnuð síð-
degis á laugardaginn, var því
veitt eftirtekt í Hveragerði, að
ein af gufuholum hitaveitu
bæjarins tæmdist. Við þcssa
holu eru tengd hitakerfi tíu húsa
og gróðurhús með 1500 ferm.
gróðurfleti.
í gær var ekki vitað með vissu
hvort samband væri milli þessa
atviks og gufugossins í stóru bor-
holunni. Að ráði dr. Gunnars
Böðvarssonar verður höggbor
settur í hina 80 m djúpu holu
í Hveragerði svo og karbítur.
Standa vonir til þess, að úr því
fáist skorið í dag, hvort sam-
band sé milli þessara tveggja
gufuhola, en stóru borholunni
var alveg lokað í gærdag.
Því er ekki að neita, að Hver-
gerðingar eru nokkuð uggandi
um hitaveitu sína eftir að hol-
an tæmdist á sunnudaginn.
Þróftur á Siglufirði gagn-
rýnir ríkisstjórnina mjög
SIGLUFIRÐI, 13. okt. —- Svo sem
Mbl. skýrði frá fyrir skemmstu
urðu úrslit fulltrúakjörs á ASÍ-
þing í verkamannáfélaginu
Þrótti á Siglufirði þau, að komm-
únistar og andkommúnistar hlutu
jafnmörg atkvæði, eða 183 hvor
listi. — Aðilar komu sér sam-
an um, að við endurkjör kæmi
aðeins fram einn listi, er í efstu
sætum skyldi skipaður 2 and-
kommúnistum og 2 kommúnist-
um; hlutskipti skyldi ráða 5.
sæti, en félagið á rétt á fimm
fulltrúum á þingið. Þessu hlut-
kesti töpuðu kommúnistar, svo
fulltrúar Þróttar á þinginu verða
3 andkommúnistar og 2 komm-
únistar.
Aðalfulltrúar lýðræðissinna á
þinginu verða Steingrímur Magn-
ússon, Stefán Guðmundsson og
Pétur Baldvinsson, en til vara,
Jóhann Möller, Jörgen Hólm og
Friðrik Márusson. Aðalfulltrúar
kommúnista verða Gunnar Jó-
hannsson og Tómas Sigurðsson,
en til vara Hannes Baldvinsson
og Einar M. Albertsson. Eru þessi
úrslit hið mesta áfall fyrir komm-
únista, er talið hafa Þrótt á
Brezkur dáti
skorinn upp
í GÆRMORGUN var ekki vitað
um neina erlenda togara í land-
helgi. Út af Vestfjörðum voru 10
brezkir togarar að veiðum utan
12 sjómílna markanna. Þar voru
einnig 4 brezk herskip.
Brezku herskipin hafa nú flutt
öll verndarsvæðin til Vestfjarða,
en eins og áður var sagt, voru
engir togarar þar í landhelgi í
gærmorgun.
í fyrrinótt hafði brezka frei-
gátan Russel samband við varð-
skipið Ægi. Óskaði herskipið eft-
ir að fá leyfi til þess að leggja á
land til uppskurðar, einn af áhöfn
inni, en maður þessi þjáðist af
bráðri botnlangabólgu. Var þetta
leyfi veitt, og kom freigátan til
Patreksfjarðar um kl. 7 í gær-
morgun.
Sjúklingurinn rar skorinn upp
í sjúkrahúsinu á Patreksfirði
skömmu eftir komu skipsins.
Siglufirði sitt sterkasta vígi i
verkalýðshreyfingunni, næst
Dagsbrún.
Á almennum fundi í Þrótti,
sem gekk frá framangreindu
samkomulagi, var samþykkt til-
laga, sem fól í sér harða gagn-
rýni á stefnu ríkisstjórnarinnar í
efnahags- og verðlagsmálum.
★
Siglufjarðarskarð varð ófært
bifreiðum aðfaranótt sunnudags
og urðu nokkrir bílar tepptir og
fastir á fjallinu. Er vegurinn nú
aftur opinn til umferðar og verð-
ur haldið opnum eitthvað fyrst
um sinn, meðan stendur á flutn-
ingi sláturafurða úr Skagafirði
til Siglufjarðar. — Stefán.
Frá athöfninni í Landakotskirkju.
Hátíðleg sálumessa í Landakots-
kirkju í gœr til minningar um
Píus páfa
FJÖLDI fólks var viðstaddur
minningarathöfn um Píus páfa
XII, er fram fór í Kaþólsku
^kirkjunni í gærkvöldi. Meðal
Séð inn í kórinn.
Sláturkeppir í vörzlu
lögreglunnar
MAÐUR nokkru hringdi til rann-
sóknarlögreglunnar á laugardags
kvöldið, og kvaðst hafa undir
höndum sláturkeppi alls kring-
um 15 kg, sem hann vissi ekki
nein deili á, því hann hafði fund-
ið keppina.
Maður þessi er nú í sláturs-
tíðinni við að svíða hausa í skúr
Valur Císlason hlaut
Silfurlampann
//'
í GÆRKVÖLDI fór fram afhend
ing „Silfurlampans", sem eru
verðlaun Félags íslenzkra leik-
dómenda fyrir bezt leikið hlut-
verk hvers leikárs. Að þessu
sinni hlaut Valur Gíslason lamp-
ann, fyrir leik sinn í hlutverki
riddaraliðsforingjans í „Faðir-
inn“, eftir Strindberg.
Önnur verðlaun hlaut Helga
Valtýsdóttir og þriðju verðlaun
Kristbjörg Kjeld.
Þetta er í fimmta sinni, sem
Félag ísienzkra leikdómenda
veitir þessi verðlaun. Valur
Gísiason blýtur nú þessi verð-
laun í annað sinni.
Nánax verður skýrt frá úr-
skurði dómenda síðar.
inni í Laugarnesbúðum og á laug-
ardaginn er hann kom að skúrn-
um lágu sláturkeppirnir í pappa-
kassa við dyrnar á skúrnum.
Hann hélt að einhver hefði
gleymt keppunum þarna, en
dagurinn leið án þess að nokkur
kæmi og vitjaði þeirra. Á laugar-
dagskvöldið milli kl. 6 og 7
hringdi maðurinn til lögregiunn-
ar, sagði henni alla söguna og
spurði síðan: „Hvað á ég að gera
við slátrið?" Hafa varð hraðann
á að taka ákvörðun um hvað
gera skyldi við slátrið, sem hætt
var við skemmdum, ef það
kæmist ekki í suðupott eða
hraðfrystingu. Fyrir orð t-ann-
sóknarlögreglunnar — bjargaði
Sænska frystihúsið málinu a.m.k.
í bili með því að taka sláturkepp-
ína í geymslu í íshúsinu: En rann í
sóknarlögreglan vill fá botn í
þetta mál og biður hinn rétta
eiganda sláturkeppanna að gefa
sig fram hið fyrsta.
kirkjugesta við Ifína hátíðlegu
athöfn voru forsetahjónin. Hóla-
biskup, Jóhannes Gunnarsson,
flutti minningarræðuna um hinn
látna páfa.
Nokkru fyrir klukkan átta í
gærkvöldi tóku kirkjugestir að
streyma til minningarathafnar-
innar í Kaþólsku kirkjunni. —
Hinar hljómmiklu klukkur
hringdu til sálumessu. Úti var
hvassviðri og rigning. — Lang-
samlega flestir kirkjugesta voru
úr söfnuði kaþólskra. — Meðal
nærstaddra voru sendiherra
Frakka hér á landi og kona hans
og Muccio, sendiherra Bandaríkj
anna. — Tveir þjónar hinnar ís-
lenzku kirkju komu og til minn-
ingarathafnarinnar, þeir séra Arn
grímur Jónsson í Odda og séra
Sigurður Pálsson, prestur á Sel-
fossi.
Lítilli stundu fyrir kl. átta
komu forsetahjónin til kirkjunn-
ar og tók á móti þeim í fordyri
hennar séra Hacking, sóknar-
prestur Landakotskirkjunnar. ■—
Var presturinn hempuklæddur og
skrýddur rykkilíni. Gekk hann
á undan forsetahjónunum inn eft-
ir hinni fögru kirkju.
Á slaginu átta heyrðist klukkna
hljómur og úr skrúðhúsi við Jós-
efsaltarið, þar sem Jósefssystur
sitja við hámessu, kom Jóhannes
Hólabiskup, hempuklæddur með
hvítt mítur á höfði. — Á undan
honum gengu fyrst þrír kórdreng
ir, þá tveir djáknar. Gekk biskup
með prestum rakleitt að háaltari
kirkjunnar, en á því var svartur
dúkur með hvítum krossi, svo
sem venja er við sálumessur.
Söng biskup því næst messuna
með aðstoð presta sinna og kórs
kirkjunnar, en kaþólskir kirkju-
gestir tóku og virkan þátt í
messugjörðinni, eins og þeirra er
siður.
Að lokinni sálumessu gekk
Hólabiskup úr kór í predikunar-
stól kirkjunnar og flutti minn-
ingarræðu um hinn látna páfa,
hans heilagleika, Píus XII, og er
sú ræða birt í heild á elleftu
síðu blaðsins.
Athöfn þessi var í senn hátið-
leg og virðuleg. Átti hin nrkla
stemning, sem jafnan ríkir í
Landakotskirkju, sinn þátt í því,
ásamt prýðilegri minningai ræðu
Hólabiskups.
Miss World 1958
LUNDÚNUM, 13. okt. — Átján
ára gömul stúlka frá Suður-
Afríku var í kvöld kjörin „Miss
World 1958“. Hún heitir Ann
Cölen.
Um 1200 bílaárekstrar
ÞAÐ sem af er þessu ári, hefur
sú deild rannsóknarlögreglunnar
er fjallar um bílaárekstra, feng-
ið í hendur 1200 bílaárekstramál.
Yfirleitt hefur tekizt að af-
greiða málin, eftir því sem þau
hafa borizt að. En þó liggja
nokkur mál stöðugt óafgreidd.
Eru það árekstrarmál, þar sem
emhver ekur á mannlausan bíl
og ,,stingur af“ frá öllu saman, en
slíkt fer mjög í vöxt. Enn eitt
slíkt mál fékk lögreglan til með-
ferðar nú um daginn. Ung stúlka,
sein skilið hafði bílinn eftir a
bílastæði, kom að honum allmik
ið skemmdum eftir árekstur.
Ekki tókast að hafa hendur í hári
sökudólgsins. Unga stúlkan var
nýlega búin að taka próf á bíl.
Hún fékk á sunnudaginn var lán
aðan bíl föður síns og ók hon-
um niður í Vonarstræti, lagði
honum á bílastæði við Iðnó um
kl. 9. Þegar hún kom að bíln-
um aftur um klukkan 12 á mið-
nætti, hafði verið ekið framan á
bílinn og hann skemmdur. Nú
eru það vinsamleg tilmæli rann-
sóknarlögreglunnar til allra
þeirra er upplýsingar gætu gefið
í máli þessu, að gera viðvart.
Það er nú nærri vonlaust orðið,
síðan fjöldi einstaklinga hefur
farið inn á þá braut að laga bila
eftir árekstra, að hafa uppi á bíl-
um slíkra umferðarníðinga sem
hér á hlut að máli, en lengi vel
dugð; að snúa sér til bílaverk-
stæðanna, þegar leita þurfti uppi
bíla er „stungið höfðu af“ frá
árekstri.